Morgunblaðið - 10.02.2010, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.02.2010, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sá miður geð-felldi fé-lagsskapur Hells Angels, eða Vítisenglar, hefur um nokkurra ára skeið reynt að skjóta rótum hér á landi. Þessi alþjóðlegu glæpamannasamtök hafa notið aðstoðar nokkurra Íslendinga sem starfrækt hafa félag sem vilji stendur til að renna inn í hin alþjóðlegu sam- tök. Aðildarferlið mun samkvæmt upplýsingum frá embætti Rík- islögreglustjóra vera á loka- stigi og því kann að vera stutt í það að fullgildir Vítisenglar láti til sín taka hér á landi. Þegar haft er í huga með hvaða hætti þessi samtök hafa starfað þar sem þau skjóta rót- um er ekki að undra að óhug setji að almenningi hér á landi við slíkar fréttir. Við þekkjum vel fréttaflutning frá nágranna- löndum okkar, ekki síst Dan- mörku, þar sem slík glæpa- gengi hafa staðið fyrir skotbardögum og jafnvel beitt þungavopnum í baráttu sinni fyrir auknum umsvifum og áhrifum. Eins og fram kemur í tilkynningu frá Ríkislög- reglustjóra hafa Danir þurft að fjölga í lögreglunni til að takast á við vandann og víst er að tæk- ist alþjóðlegu glæpagengi að skjóta rótum hér á landi gæti orðið erfitt fyrir fámennt ís- lenskt lögreglulið að halda aft- ur af starfseminni og tryggja öryggi borgaranna. Stundum hefur heyrst gagn- rýni á lögreglu- yfirvöld fyrir að vísa mönnum sem tilheyra slíkum glæpamanna- samtökum úr landi án þess að þeir hafi brotið neitt af sér hér. Vissu- lega má til sanns vegar færa að það eru menn sem fremja glæpi en ekki samtök eða fyrirtæki, en hluti af starfsemi þessara al- þjóðlegu samtaka er rekin í formi fyrirtækis. Á hinn bóginn verður ekki framhjá því litið að að kjósi menn að ganga í sam- tök sem eru umfram allt þekkt fyrir skipulagða glæpastarf- semi geta þeir ekki búist við að aðrir menn eða þjóðríki sýni þann barnaskap að meðhöndla þá eins og hverja aðra ferða- menn. Íslenska ríkið hefur fulla heimild til að verja landamæri sín og tryggja öryggi borgara sinna gegn skipulagðri glæpa- starfsemi og þar með gegn þeim sem henni tengjast. Ríkið hefur raunar ekki aðeins heim- ild til slíkrar varðstöðu, því ber beinlínis skylda til að verja borgara sína gegn ytri og innri ógn. Þetta er frumskylda rík- isvaldsins. Þess vegna ber að taka því fagnandi að yfirvöld löggæsl- unnar í landinu séu vel vakandi gagnvart skipulagðri glæpa- starfsemi og grípi tafarlaust inn í þegar hætta er á ferðum. Mikilvægi þess að hindra Hells Angels í að koma sér upp útibúi hér á landi verður seint ofmet- ið. Ríkinu ber skylda til að taka fast á móti þegar Vítisenglar eru annars vegar} Hells Angels og öryggi íslenskra borgara Margsannað erað hneyksl- unargildi mála á Íslandi fer mest eftir því hver á í hlut en síður eftir eðli misgerð- arinnar. Ótal dæmi staðfesta þetta. Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra, sem vitað er að hafði sterk tengsl við stjórnendur SPRON, fékk á dögunum póli- tíska vitrun og seldi á hár- réttum tíma bréf sín í þeim sparisjóði og græddi tugi millj- óna króna. Sextíu milljónir hafa verið nefndar. Aðstoð- armaður hans, Kristján Guy Burgess, fékk m.a. fyrir at- beina forsetans loforð um milljónatugi frá Carnegie- stofnuninni til að rannsaka bráðnun jökla á Himalaja- fjöllum. Þar eru líka nefndar sextíu milljónir. Aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra hefur neitað að ræða málið eða gefa á því skýr- ingar. Hann hefur ekki einu sinni nefnt þá skýringu, að hann hafi óvænt öðlast pólitíska vitrun um að hvergi væri betra að skoða bráðnun jökla í Hi- malajafjöllum en úr utanrík- isráðuneytinu við Rauð- arárstíg. Þótt forðast beri flimtingar og spé þegar slík fyrirmenni eiga í hlut er óneit- anlega athyglisvert hvernig ætluð auðsöfnun aðstoð- armannsins komst upp. Jökl- arnir á Himalajafjöllum léku ekki með. Þeir hafa verið ófá- anlegir til að bráðna og það þvælist óneitanlega fyrir rann- sókninni. Utanríkisráðherrann og aðstoðarmaður hans eru naskir á fé. Það verður ekki af þeim skafið} Arðvænlegt í utanríkisráðuneytinu G uðlaugur Þór Þórðarson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, vill kalla bankastjóra Arion banka fyrir viðskiptanefnd Alþingis til að út- skýra hvers vegna eigendur fá áfram að reka fyrirtæki sem bankar hafa yf- irtekið, en sumir þessara eigenda hafa stöðu grunaðra í rannsókn á bankahruninu. „Ég er að bíða eftir því sama og flestir landsmenn, gagnsæinu, jafnræðissjónarmiðunum, samkeppnissjónarmiðum sem hefur verið lof- að,“ sagði Guðlaugur Þór í sjö-fréttum Rík- issjónvarpsins og spurði: „Samræmast þessar afgreiðslur og aðrar sem hafa verið að und- anförnu þessum sjónarmiðum?“ Þetta er einmitt spurningin sem landsmenn hafa verið að spyrja sig: Hvernig stendur á því að það er talið í lagi að bankar láti fyrirtæki með stóran skuldahala aftur í hendur mannanna sem sigldu fyrirtækj- unum í gjaldþrot og eru grunaðir um stórkostleg brot? Í tíufréttum sjónvarps, sama kvöld, mætti félagsmála- ráðherra, Árni Páll Árnason, og sagði: „Ég held að það skipti okkur máli að stöðva þennan ófögnuð eins fljótt og við getum … Ég held að við verðum að svara þessari spurningu öðruvísi en við svöruðum öllum siðferðilegum spurningunum fyrir hrun. Auðvitað er þetta líka spurning um það hvernig samfélag við viljum hafa. Við berum auð- vitað ábyrgð á því að hreinsa til.“ Þjóðin hefði vart getað fengið betra og afdráttarlausara svar við spurningu Guðlaugs Þórs en þetta svar ráð- herrans. Sú þjóð er ekki fátæk sem á félags- málaráðherra sem tekur af slíkri festu á mál- um sem brenna á þjóðinni. En vondu fréttirnar eru þær að þessi snöfurmannlegu orð félags- málaráðherra voru ekki svar við spurningu Guðlaugs Þórs. Þetta voru svör við spurningu fréttamanns RÚV um það hvort banna ætti SMS-smálán til ungmenna. Þegar fréttamaður gaukaði í lokin þeirri spurningu til félagsmála- ráðherra hvað honum fyndist um það að Ólaf- ur Ólafsson hefði enn óskoruð yfirráð yfir Samskipum og hvað honum þætti um boðað fyrirkomulagi á sölu Haga þá svaraði ráð- herrann því til að hann hefði sína skoðun á því en ætlaði að halda henni fyrir sig. „Bankinn hlýtur að hafa einhverjar ástæður og hlýtur að geta útskýrt þær,“ sagði hann. Árni Páll Árnason er ráðherra í ríkisstjórn sem hefur það yfirlýsta markmið að uppræta spillingu í bankakerfi og viðskiptaheimi. Ráðherrann hefur mikla skoðun á lán- um til ungmenna. Hann hefur einhverja skoðun á furðu- legum gjörningum bankanna en ætlar að halda þeirri skoðun fyrir sig. Það er örugglega ekki gaman að vera í ríkisstjórn Ís- lands og standa vaktina svo subbuskapurinn taki ekki að grassera á nýjan leik í íslensku þjóðfélagi. En ef ráðherra treystir sér ekki til að hafa opinbera skoðun á því hvernig standa eigi að traustri endurreisn íslensks banka- og við- skiptalífs þá er hann örugglega ekki í rétta starfinu. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Ráðherra stöðvar ófögnuð STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is M jög er horft til reynslu Finna enda aðstæður í Norður- Finnlandi að sumu leyti hliðstæðar og styrkjakerfi ESB í landbúnaði verð- ur áreiðanlega haft til hliðsjónar í aðildarviðræðunum sem framundan eru. Svonefnd Norðurslóðaraðstoð eru styrkir til landbúnaðar norðan 62. breiddargráðu sem komið var á við inngöngu Finna, Svía og Austur- ríkismanna í ESB á sínum tíma og teljast til sértækra aðgerða. Þessi stuðningur er að fullu fjármagnaður af viðkomandi ríki en það þarf að semja sérstaklega um fyrirkomu- lagið við ESB. Aðrar sértækar að- gerðir sem leyfðar eru, eru landbún- aðarstyrkir til harðbýlla svæða. Hafa margir litið svo á að ef Ísland verður aðili að ESB verði landbún- aður hér skilgreindur á harðbýlu svæði. Stuðningur við landbúnað á harðbýlum svæðum er fjármagn- aður sameiginlega af ESB og við- komandi landi. Afdráttarlaus ummæli Haraldar Benediktssonar, formanns Bænda- samtaka Íslands, eftir fundi með samningamönnum Finna, sem fram komu í Morgunblaðinu í gær, vekja athygli. Líkti Haraldur öllu tali um stuðning ESB við norðlægan land- búnað við sjónhverfingar. Bent var á það í ítarlegri úttekt Morgunblaðsins á ESB í fyrra að umframstyrkir til landbúnaðar á norðurslóðum eru ekki greiddir úr sjóðum ESB, heldur er eingöngu um heimild til innanlandsstuðnings að ræða. Í Finnlandi greiðir ESB um 30% af svokölluðum harðbýlis- styrkjum en finnski ríkissjóðurinn um 70%. Þannig greiða Finnar sjálf- ir í reynd um 60% af styrkjum sem til landbúnaðarins renna þar í landi en 40% koma úr sjóðum ESB. Þegar litið er á sameiginlega landbúnaðarstefnu ESB blasir við mun flóknari mynd af styrkjakerfi landbúnaðarins. Sameiginlega land- búnaðarstefnan er fjármögnuð af öllum aðildarríkjunum og hefur hún verið einn stærsti útgjaldaliður fjár- laga ESB. Styrkirnir eru ekki fram- leiðslutengdir líkt og hér heldur eru eingreiðslur til búa og fær finnskur landbúnaður árlega nálægt 570 milljónum evra úr sjóðum ESB á grundvelli hennar skv. finnskri skýrslu um stöðu landbúnaðar í Finnlandi sem út kom í fyrra. Þá eru ónefndir grænir styrkir til land- búnaðar, umhverfisstuðningur, en ESB fjármagnar ríflega helming þeirra. Í bakgrunnsskýrslu Hag- fræðistofnunar HÍ sem birt var sl. sumar um íslensk bú í finnsku um- hverfi var komist að þeirri nið- urstöðu að afkoma kúabænda hér myndi væntanlega versna til mikilla muna við breytingu styrkjakerfisins til samræmis við grunngreiðslur sameiginlegu landbúnaðarstefn- unnar en á hinn bóginn mundi af- koman verða nærfellt sú sama ef miðað er við norðurslóðastuðninginn sem nyrstu svæði Finnlands hljóta. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins um íslenskan landbúnað í alþjóðlegu umhverfi 2003 var á hinn bóginn komist að þeirri meginniðurstöðu að miðað við óbreytt styrkjakerfi yrði staða íslensks landbúnaðar verri innan ESB en utan þess. Morgunblaðið/RAX Vandasamt Samningahópur um landbúnað býr sig undir flóknar viðræður við ESB. Á hann m.a. að hafa að leiðarljósi að stuðningi við landbúnað verði sem minnst raskað þrátt fyrir að breytingar verði á styrkjakerfinu. Standa sjálfir undir 60% styrkjanna Íslendingar verða seint á eitt sáttir um hvernig hugsanleg að- ild að ESB muni leika íslenskan landbúnað. Samanburður við reynslu Finna er dýrmætt veg- arnesti í aðildarviðræðunum. Skiptar skoðanir eru á þróun finnsks landbúnaðar eftir inn- göngu í ESB. Frá því landið gekk í ESB hefur býlum fækkað úr ríf- lega 95 þúsund í 65 þúsund árið 2008. Óvarlegt er að alhæfa út frá þessum tölum um áhrif sam- eiginlegu landbúnaðarstefn- unnar á þessa þróun þar sem fækkun var hafin áður en Finnar fengu inngöngu. En við blasir að landbúnaðurinn hefur breyst. Í nýlegri heimsókn fulltrúa Bændasamtakanna til Finna fengu þeir í hendur upplýsingar um hvernig stuðningur við finnska bændur hefur þróast eftir inngönguna í ESB. Af þeim tölum má sjá að stuðningur ESB á grunni sameiginlegu landbún- aðarstefnunnar hefur aukist nokkuð frá 1995. Styrkir til harðbýlla svæða og umhverf- isstyrkir hafa einnig hækkað en Erna Bjarnadóttir, sviðsstjóri fé- lagsmálasviðs BÍ, bendir á að aukningin er eingöngu vegna aukinna útgjalda Finna sjálfra. Hlutdeild ESB í þessum fram- lögum hefur lækkað á tíma- bilinu. „60% af greiðslum til bænda í Finnlandi eru finnskir peningar,“ segir Erna. Færri býli hærri styrkir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.