Morgunblaðið - 10.02.2010, Page 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
FRANSKA myndin A Prophet
hefur gert rækilegan skurk í
heimalandinu og gagnrýnendur
þar tala um hana sem bestu mynd
ársins, þó að skammt sé á það liðið.
Myndin er framlag Frakklands til
Óskarsverðlaunanna en allt þetta
væri sosum ekki í frásögur færandi
nema að „Gobbledigook“lag Sigur
Rósar kemur fyrir í myndinni. Já,
allt sem gulldrengirnir snerta á
virðist verða að gulli …
Sigur Rós með tónlist
í bestu mynd Frakka
Fólk
„HANN Bowen Staines er fé-
lagi minn frá Bandaríkjunum
og við erum meðal annars að
gera saman mynd um Airwa-
ves-tónlistarhátíðina sem fór
fram í fyrra, þetta var auka-
spor hjá honum,“ segir Gunn-
ar B. Guðbjörnsson um tutt-
ugu mínútna þátt sem sjá má á
vefnum um hljómsveitina
Mammút. Gunnar aðstoðaði
Staines við þáttinn og tók t.d.
upp tölvert af efninu hér á landi. „Hann kynntist
Mammút á Airwaves og fór með þeim á Evr-
óputúr strax í kjölfarið. Hann gerir þætti um
hljómsveitir sem hann kallar Don’tPanic TV og
næst á dagskrá er t.d. Agent Fresco.
Staines er líka að gera heimildarmynd í fullri
lengd um Mammút sem kemur út seinna í sumar
og verður kynningarefni fyrir hljómsveitina.
Hann mun nota eitthvað af sama efni og er í
þættinum, eitthvað af Airwaves og jafnvel meira
því hann kemur aftur hingað í sumar.“
Gunnar og Staines eru báðir kvikmyndagerð-
armenn sem hafa mikinn áhuga á tónlist og þeg-
ar þeir kynntust í gegnum netið ákváðu þeir að
gera eitthvað saman ef Staines kæmi til Íslands.
„Hann sló til og úr varð þetta Airwaves-
verkefni. Sú mynd er aðallega hugsuð fyrir er-
lendan markað,“ segir Gunnar sem gerði m.a.
myndina Himinninn er að hrynja … en stjörn-
urnar fara þér vel um tónlistarmanninn Ólaf
Arnalds, myndin var sýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík síðastliðið haust og
kemur út í sérstökum pakka með næstu plötu
Ólafs.
Gunnar vinnur nú um þessar mundir að heim-
ildarmynd um hljómsveitina Sólstafi. „Það er
mikið að gera hjá þeim um þessar mundir og af
nægu að taka, t.d. fer ég með þeim á Hróars-
keldu og á Wacken. Stefnan er að myndin komi
út fyrir næstu jól.“
Gunnar var eitt sinn með tónlistarnetþáttinn
Sleepless in Reykjavik og er hann að vinna í því
að vekja þann þátt upp aftur.
„Ég ætla að byrja með hann á netinu en von-
andi kemst hann í sjónvarp er fram líður, það
þarf að gera meira fyrir íslenska tónlist í sjón-
varpi,“ segir Gunnar sem vinnur líka sem klipp-
ari hjá Saga Film. ingveldur@mbl.is
Heimildarmyndir og þættir um íslenska tónlist
www.dontpaniciceland.com
www.sir.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mammút Lætur gera um sig heimildarmynd.
Gunnar B.
Guðbjörnsson
FÉSBÓKARVEFURINN er bú-
inn að vera mál málanna lengi vel
og svo virðist sem því ætli ekkert að
linna nærri því strax. Vefir af þessu
tagi eru jafnan tengdir ungu fólki
en þeir sem eldri eru ryðjast nú inn
á „Fésið“ og heldur Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur úti skemmti-
legri síðu. Þá er Fríkirkjan komin
þar inn en ráðamenn þar hafa verið
duglegir að tileinka sér hvers kyns
nýjungar. Undir „info“ flipanum
má sjá að hún er kvenkyns, fædd
19. nóvember 1909. Ennfremur lýs-
ir hún sér sem „trúverðugri evang-
elísk-lúterskri kirkju í örum vexti.“
Flippað!?
Fríkirkjan er komin
á Facebook!
LATIBÆR leitar nú logandi ljósi
að nýrri Sollu stirðu í tilefni af
stórtónleikum í Höllinni 27. mars.
Prufur verða keyrðar á Hótel Hil-
ton Reykjavík Nordica næsta laug-
ardag og munu tvær þriggja manna
dómnefndir verða að störfum allan
daginn. Víst er að full þörf er á sé
tillit tekið til áhuga Íslendinga á
söngprufum af þessu tagi.
Leitin að Sollu
stirðu er hafin
Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Mo-
ussaieff forsetafrú og afhendir hún við-
urkenninguna á Bessastöðum á mánudaginn
kl. 16. Það verkefni sem hlýtur Eyrarrósina
fær fjárstyrk að upphæð 1,5 milljónir kr. og
verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarins-
dóttur. Í fyrra hlaut Landnámssetrið í Borg-
arnesi Eyrarrósina en aðrir handhafar henn-
ar eru Rokkhátíð alþýðunnar – Aldrei fór ég
suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA,
listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóð-
lagahátíðin á Siglufirði.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Bræðslan á Borg-
arfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og
Skjaldborg – heimildarmyndahátíð á Pat-
reksfirði eru tilnefnd til Eyrarrósarinnar í
ár. Eyrarrósin er veitt fyrir framúrskarandi
menningarverkefni á landsbyggðinni og er
markmið hennar að efla fagmennsku og
færni við skipulagningu menningarlífs og
listviðburða á landsbyggðinni, auka kynning-
armöguleika einstakra sveitarfélaga og
landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menn-
ingartengdrar ferðaþjónustu.
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Bræðslan Ljúfmennin í Belle & Sebastian léku á Bræðslunni sumarið 2006.
Bræðslan, Eiríksstaðir
og Skjaldborg tilnefnd
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
STUÐSVEITIN FM Belfast er á
tiltölulega stuttri ævi orðin að goð-
sagnakenndri tónleikasveit og hefur
orðspor hennar á þeim vettvangi
meira að segja náð út fyrir strendur
landsins. Plata hennar How To
Make Friends kom út hér á landi
fyrir jól 2008 og var vel tekið og nú
hefur hún sömuleiðis verið að
hræra í útlendingunum. Kimi Re-
cords, útgefandi FM Belfast, gaf
plötuna út um gervalla Evrópu fyrir
stuttu og hefur hún fengið lof-
samleg ummæli í ýmsum miðlum.
Platan kemur svo út í Bandaríkj-
unum í vor en fyrst er það fyrsti
„almennilegi“ Evróputúrinn eins og
Árni Vilhjálmsson, einn meðlima,
orðar það. Tónleikaferðalagið hefst
í Frakklandi 18. febrúar og lýkur í
Osló 6. mars og verða þá alls þrett-
án tónleikar að baki.
Spilað og spilað
„Noregur er uppáhaldslandið
okkar,“ segir Árni. „Við höfum spil-
að langmest þar og fórum meira að
segja í stuttan Noregstúr einu sinni
þar sem við heimsóttum bæi eins og
Haugasund, Kristjánssand og
fleiri.“
Árni segist ekki vilja hljóma eins
og hann sé með uppgerðarhógværð
en samt sé það svo að þau í sveitinni
hafi hingað til litið á það sem alger-
an bónus þegar þau hafi átt kost á
því að spila utan landsteina.
„Við höfum bara verið raunsæ.
Við höfum t.d. ekki gert mikið úr
því þegar við höfum farið út og spil-
að á einhverjum litlum stöðum.
Lenskan er sú hér á Íslandi að ef
hljómsveit spilar í einhverri holu í
New York fyrir fimm manns þá sé
hún búin að meika það.“
Árni segir að FM Belfast hafi
spilað eins og hún gat fyrstu tvö ár-
in fyrir misháar fjárhæðir og oftast
ókeypis.
„En svo er þetta farið að rúlla
betur núna. Það er enginn að fara
að missa húsið sitt út af túrnum. Við
erum rosa spennt, erum loksins
komin með almennilegan bókara og
þetta er í raun fyrsti „almennilegi“
túrinn okkar.“
Árni segist eðlilega gleðjast yfir
jákvæðum dómum um sveit sína, og
það sé alltaf gaman þegar fólk nær
hugmyndinni á bak við bandið.
Fullt af mistökum
Árni á hins vegar örðugt með að
útskýra þá töfra sem fara í gang
uppi á sviði.
„Dýnamíkin felst ábyggilega í því
að við vitum aldrei almennilega
hvert við eigum að fara með þetta.
Auk þess finnst okkur mjög gaman
að vera saman á sviðinu. Við erum
ekki snillingar, við gerum fullt af
mistökum, en pössum okkur á því að
vera ekki að stressa okkur of mikið
yfir þeim. Við leggjum þá mikið upp
úr því að ná tengingu við áhorf-
endur, en það næst aldrei ef við sjálf
erum ekki vel tengd uppi á sviðinu.“
Sveitin fer út sem kvartett, en
auk Árnanna tveggja og Lóu er
Örvar Þóreyjarson Smárason í
sveitinni. Unnsteinn Manúel úr
vinasveitinni Retro Stefson fer svo
með sem gítarleikari og Grímur
Atlason, sveitarstjóri Dalabyggðar
og músíkmógúll, mun sjá um að
keyra sendibíl sveitarinnar auk þess
sem meiri líkur en minni eru á því
að hann taki í bassann sinn góða.
„Við erum ekki snillingar“
Stuð Árni Vill, Lóa og Árni plúseinn úr FM Belfast í Reykjavíkurrökkrinu. Yfir þeim vomir Kúabjöllukórinn.
FM Belfast fer í Evróputúr í næstu viku Plata hennar, How To Make
Friends, kemur út í Bandaríkjunum í vor Heilmikið „suð“ í kringum sveitina