Morgunblaðið - 10.02.2010, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 41. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,)-
)..,/0
)).,+0
*0,1)*
*),22-
)/,01
)).,+/
),-*//
)./,0
)/2,+)
345
3 ." 6474 *8)8
)*+,-2
*88,**
)*8,)+
*0,1+)
*),1)/
)/,-))
)*8,*
),-0).
)./,+.
)/1,0
*0),01++
%
9: )*+,/1
*88,/)
)*8,20
*0,/2
*),1+
)/,-1*
)*8,20
),-01)
).+,-+
)/1,/.
Heitast 7 °C | Kaldast 2 °C
Hæg suðlæg átt og
víða léttskýjað eða
bjartviðri á NA- og A-
landi, en annars skýjað
að mestu. » 10
Karl Blöndal skrifar
um Bernard-Henri
Levy, einn virtasta
gáfumann Frakka,
sem hljóp aldeilis
á sig. »30
AF LISTUM»
Gáfumaður
gekk í vatnið
TÓNLIST»
Sinfónían flytur Carmina
Burana og Bolero. »27
Tveir félagar, annar
íslenskur og hinn
frá Bandaríkjunum,
vinna heimilda-
myndir um
íslensk bönd. »28
TÓNLIST»
Mammút
í mynd
LEIKLIST»
Dómur um leiksýninguna
Ufsagrýlur. »29
FÓLK»
Valentínusarstjörnur
á rauða dreglinum. »32
Menning
VEÐUR»
1. Vann tvo milljarða í lottói
2. Skilin við barnsföðurinn
3. Andlát: Rut Magnússon
4. Ætlar að gefa allar eigur sínar
Íslenska krónan stóð í stað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Ein stærsta og
mikilvægasta tón-
listarhátíð Norður-
landa er By:Larm-
hátíðin sem fer
fram í Osló dagana
18. til 20. febrúar.
Hátíðin er öðrum
þræði ráðstefna með miklum og góð-
um norrænum vinkli og hefur henni
vaxið fiskur um hrygg undanfarin
ár. Fimm íslenskir aðilar koma fram
á hátíðinni í þetta sinnið en það eru
For A Minor Reflection, Seabear,
Hafdís Huld, Jóhann Jóhannsson
og Kira Kira.
TÓNLIST
Ísland á fimm fulltrúa
á By:Larm-hátíðinni
Ragnhildur
Skúladóttir,
fyrrverandi lands-
liðsþjálfari
stúlknalandsliðs-
ins í knattspyrnu
(U17), kemur ný
inn í aðalstjórn
KSÍ, sem verður kjörin til tveggja
ára á ársþingi sambandsins á laug-
ardag.
Sjálfkjörið er í stjórnina. Geir
Þorsteinsson var kjörinn formaður
í fyrra til tveggja ára. Ingibjörg
Hinriksdóttir gefur ekki kost á sér
áfram og tekur Ragnhildur sæti
hennar. Þá verður Tómas Þórodds-
son nýr aðalfulltrúi Suðurlands.
ÁRSÞING KSÍ
Ragnhildur Skúladóttir ný
í stjórninni næstu tvö árin
Á dögunum var
haldin Skartgripa-
samkeppni Hend-
rikku Waage í sam-
vinnu við Hönn-
unarmiðstöð
Íslands. Sigurveg-
ari keppninnar er
María Kristín Jónsdóttir, 32 ára
vöruhönnuður, en hún bar sigurorð
af 120 öðrum þátttakendum.
Hlaut María hálfa milljón króna í
verðlaunafé auk þess sem skart-
gripalínan sem hún hannaði verður
framleidd undir vörumerki hennar
og Hendrikku Waage og sett á al-
þjóðlegan markað.
HÖNNUN
Vann skartgripasamkeppni
Hendrikku Waage
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem höfuðborgar-
búar rekast á uglu. Starfsmenn Bílalífs ráku því
upp stór augu þegar uglan hér hringsólaði yfir
bílaplaninu og valdi sér síðan einn af tilboðsbíl-
unum til þess að tylla sér á. Þar sat uglan og var
hin spakasta meðan starfsmaður bílasölunnar
myndaði hana í bak og fyrir. Þegar hún var búin
að fá nóg af fyrirsætustörfunum hóf hún sig á
loft, flaug á milli bílanna og fór síðan að atast í
tveimur hröfnum á flugi. Að sögn Birnu Drafnar
Birgisdóttur, starfsmanns Bílalífs, var sérlega
tilkomumikið að sjá vænghaf uglunnar.
Óvæntur gestur tyllti sér niður hjá bílasölunni Bílalífi
Forvitin ugla skoðaði tilboðsbíla
Ljósmynd/Erlingur Þór Cooper
Næstkomandi
fimmtudag hefst
Vetrardjasshátíð
í Reykjavík sem
nú er haldin í
fyrsta sinn og
stendur hún
fram á mánudag.
Alls verða tíu
uppákomur á
djasshátíðinni og
segir Pétur Grétarsson, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, nóg um
að vera í íslensku djasslífi. „Það er
svo mikið af ungum djassleikurum
en svo hafa línur á milli tónlistar-
stefna dofnað og jafnvel horfið sem
betur fer.“ | 27
Nóg um að vera í
íslenskum djassi
Pétur Grétarsson
Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur
Sigurðsson, leikmaður þýska liðsins
Rhein-Neckar Löwen, neyðist til að
fara í aðgerð á hné og verður hann
frá keppni í það minnsta næstu tvo
til þrjá mánuðina. Guðjón Valur,
einn af bronsstrákunum á EM, fer
undir hnífinn á morgun og verður
fjarri góðu gamni í kvöld þegar
Rhein-Neckar Löwen tekur á móti
meisturum Kiel. | Íþróttir.
Guðjón Valur þarf
að fara í aðgerð
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„MÉR þykir ofboðslega vænt um
þessa viðurkenningu frá iðnaðar-
mönnum,“ segir Björgvin Tómasson
orgelsmiður sem útnefndur var heið-
ursiðnaðarmaður ársins 2009 á ný-
sveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík um helgina. Björgvin
lærði orgel- og harmóníumsmíði í
Þýskalandi á árunum 1978-86 og hef-
ur síðan þá rekið orgelverkstæði,
síðustu árin á Stokkseyri. Hann er
nú að smíða sitt 32. pípuorgel en það
er ætlað í Guðríðarkirkju í Grafar-
holti.
Þrátt fyrir viðurkenninguna er
ekki sérlega bjart framundan að
sögn Björgvins. „Það er enginn spá-
maður í sínu föðurlandi og í gegnum
árin hef ég mætt litlum skilningi á
störfum mínum hjá orgelnefnd ís-
lensku þjóðkirkjunnar,“ segir Björg-
vin og tekur fram að þannig hafi ver-
ið sorglegt að sjá á eftir fjölda
orgelsmíðapantana til útlanda á síð-
ustu árum. Tekur hann fram að eftir
hrunið hafi sóknir landsins haldið að
sér höndum og því enginn með nýtt
orgel í pöntun nú um stundir. „Þegar
smíði orgelsins í Guðríðarkirkju lýk-
ur er ekkert verk sem bíður okkar.
Nýsmíði er grundvöllur rekstrar
verkstæðisins, sem er atvinnuskap-
andi, því það veitir fjórum mönnum
vinnu. Það er ekki hægt að reka
verkstæðið á stillingum og viðhaldi
einu saman, til þess eru orgelin ekki
nógu mörg hérlendis. Útlitið hefur
því aldrei verið svartara en núna. Ég
býst við því að þurfa að hætta rekstr-
inum hvað úr hverju og kvíði því,“
segir Björgvin. Tekur hann fram að
eina ráðið, vilji hann haldast í faginu,
sé að koma sér til útlanda og fara að
vinna á orgelsmíðaverkstæði þar.
Framtíðin er óljós
Björgvin Tómasson orgelsmiður valinn heiðursiðnaðar-
maður ársins 2009 á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins
Fögnuður Björgvin Tómasson tekur við viðurkenningunni úr hendi Ólafs
Ragnars Grímssonar, en á milli þeirra stendur Katrín Jakobsdóttir.