Morgunblaðið - 18.02.2010, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010
íþróttir
Ósigrandi? Kvennalið Vals heldur sigurgöngu sinni áfram í N1-deild kvenna í handknattleik.
Bryndís Jónsdóttir, markvörður Hauka, fór á kostum gegn Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar. 2
Íþróttir
mbl.is
LINDSAY Vonn frá Bandaríkj-
unum fagnaði sigri í bruni kvenna á
vetrarólympíuleikunum í Vancouver
í gær. Vonn, sem er 25 ára, sýndi
styrk sinn í erfiðri keppnisbraut þar
sem margir keppinautar hennar
féllu úr leik. Þetta er í fyrsta sinn
sem Bandaríkin fagna sigri í þessari
grein á ÓL.
„Ég var taugaóstyrk fyrir keppn-
ina og þegar ég renndi mér í mark
var ég gríðarlega glöð að hafa náð að
ljúka keppni. Þetta er besti dagur í
lífi mínu,“ sagði Vonn.
Anja Pärson frá Svíþjóð féll eftir
gríðarlegt stökk rétt við endamark-
ið. Hún var með næstbesta millitím-
ann og líkleg til þess að blanda sér í
baráttuna um verðlaunasæti áður en
hún féll.
Fleiri keppendur féllu í brautinni
og eftir að Pärson féll virtist það
draga kjarkinn úr þeim sem biðu
eftir að hefja keppni. Þar má nefna
Mariu Riesch frá Þýskalandi sem
náði sér alls ekki á strik og endaði í
áttunda sæti. Vonn kom í mark á
1.44,19 mínútum en Julia Mancuso
frá Bandaríkjunum varð önnur, 0,56
sekúndum á eftir Vonn.
Elisabeth Görgl frá Austurríki
endaði í þriðja sæti.
seth@mbl.is
Lindsay Vonn með stál-
taugar í brunkeppninni
Fyrstu gullverðlaun hennar á ÓL Pärson féll illa
Á fleygiferð Lindsay Vonn sýndi styrk sinn og áræðni í brunkeppninni.
Hún er fyrsta Bandaríska konan sem landar gullverðlaunum á ÓL í bruni.
Reuters
„ÞESSI tvö mörk voru þess eðlis að maður reikn-
ar ekki með því að sjá slíkt á þessu stigi í fótbolt-
anum. Við vorum leiknir grátt í fyrra markinu,
það seinna var hreint óhapp. Ég tel að í fyrsta lagi
hafi þetta ekki átt að vera sending hjá Campbell,
hann hafi snert boltann óvart. Síðan hefði dóm-
arinn átt að gefa okkur svigrúm til að stilla upp
varnarvegg, annars er ekki hægt að verjast auka-
spyrnum. En þetta voru tvöföld mistök okkar – en
við áttum líka að fá vítaspyrnu,“ sagði Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir 2:1 tap
hans manna fyrir Portó á útivelli í fyrri viðureign
liðanna í 16-liða úrslitum meistaradeildar Evrópu
í knattspyrnu í gærkvöldi.
Lukasz Fabianski, markvörður Arsenal, fær
bæði mörkin skrifuð á sinn reikning. Í fyrra skipti
sló hann boltann í eigið mark eftir fyrirgjöf, og
það seinna var ansi skrautlegt. Þá var dæmd
óbein aukaspyrna á Fabianski fyrir að taka bolt-
ann með höndum eftir að Sol Campbell gaf á
hann. Campbell var reyndar óheppinn, ætlaði að
skýla boltanum til markvarðarsins en fékk hann í
sig. Leikmenn Porto tóku aukaspyrnuna eld-
snöggt og skoruðu í tómt mark Arsenal.
Arsenal lék án sjö sterkra leikmanna sem verð-
ur væntanlega búið að endurheimta að einhverju
leyti til baka þegar liðin eigast við á nýjan leik.
Í München vann Bayern sigur á Fiorentina, 2:1,
þar sem Miroslav Klose skoraði sigurmarkið und-
ir lokin en markið átti aldrei að standa þar sem
rangstaða var á Ivica Olic sem átti sendingu á
Klose. Olic var kolrangstæður þegar sending kom
inn fyrir vörn Fiorentina sem barst til hans.
Reuters
Barátta Bacary Sagna leikmaður enska liðsins Arsenal í baráttunni gegn Falcao á Dragon vellinum í Portúgal þar sem Porto hafði betur, 2:1.
Martröð Fabianski í Porto
Svona mörk eiga ekki að sjást í meistaradeild Evrópu, sagði Wenger
Ólöglegt mark tryggði Bayern sigur á heimavelli gegn Fiorentina
GUÐJÓN Bald-
vinsson, sem
leikur sem at-
vinnumaður hjá
sænska fótbolta-
liðinu GAIS í
Gautaborg, er
samkvæmt heim-
ildum Morg-
unblaðsins í við-
ræðum við
KR-inga. For-
ráðamenn KR vildu ekki staðfesta
að félagið ætti í viðræðum við
sænska félagið um að fá Guðjón að
láni í sumar þegar keppni hefst í
Pepsi-deild karla. Guðjón lék með
KR sumarið 2008 en hann gerði
fimm ára samning við GAIS haustið
2008.
Guðjón með
KR í sumar?
Guðjón
Baldvinsson
JÓHANN Birnir
Guðmundsson,
knattspyrnumað-
ur í Keflavík,
gekkst undir að-
gerð í fyrradag
vegna þeirra
meiðsla sem
plöguðu hann
síðasta sumar.
„Ég hef verið
með eymsli í há-
sin af og til í nokkur ár, einhverjar
bólgur. Það var bara farið inn og
hreinsað til. Ég held að ég þurfti að
hvíla í einn og hálfan til tvo mánuði
áður en ég get byrjað aftur að æfa,“
sagði Jóhann í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann ætti því að öllu
óbreyttu að vera orðinn leikfær
þegar Pepsí-deildin fer af stað í
maí.
„Þetta var meira gert til þess að
ég yrði í lagi í sumar,“ sagði Jó-
hann. Gauti Laxdal framkvæmdi
aðgerðina en naut fulltingis Jóns
Karlssonar sem starfar í Gautaborg
en var staddur hérlendis.
kris@mbl.is
Jóhann Birnir
fór í aðgerð
Jóhann Birnir
Guðmundsson