Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010
HANDKNATTLEIKUR
Fylkir – Valur 19:31
Íþróttahús Fylkis, úrvalsdeild kvenna, N1-
deildin, miðvikudaginn 16. febrúar 2010.
Mörk Fylkis: Mörk Fylkis: Ela Kowal 5,
Laufey Ásta Guðmundsdóttir 5, Sunna
María Einarsdóttir 3, Sunna Jónsdóttir 3,
Kolbrún Ósk Pétursdóttir 1, Sigríður
Hauksdóttir 1, Anna Sif Gunnarsdóttir 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 7,
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Hildi-
gunnur Einarsdóttir 4, Rebekka Rut
Skúladóttir 4, Karólína Gunnarsdóttir 3,
Nína K. Björnsdóttir 2, Kristin Guðmunds-
dóttir 2, Soffía Rut Skúladóttir 2, Íris Ásta
Pétursdóttir 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Haukar – Stjarnan ...............................26:22
Staðan:
Valur 17 15 2 0 546:320 32
Fram 16 13 1 2 474:343 27
Stjarnan 17 12 1 4 542:384 25
Haukar 17 12 0 5 505:408 24
FH 18 9 0 9 466:483 18
Fylkir 17 7 0 10 403:404 14
KA/Þór 17 4 1 12 404:505 9
HK 18 2 1 15 411:557 5
Víkingur 17 0 0 17 278:625 0
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
16 liða úrslit, fyrri leikir:
Bayern München – Fiorentina................2:1
Arjen Robben, vít, 45., Miroslav Klose 89. –
Per Kroldrup 50. Rautt spjald: Massimo
Gobbi (Fiorentina) 73.
Porto – Arsenal.........................................2:1
Varela 11., Radamel Falcao 51. – Sol Camp-
bell 18.
England
Úrvalsdeild:
Wigan – Bolton .........................................0:0
Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn
fyrir Bolton.
Staðan:
Chelsea 26 18 4 4 61:22 58
Man. Utd 26 18 3 5 62:21 57
Arsenal 26 16 4 6 61:30 52
Man. City 25 12 9 4 48:33 45
Liverpool 26 13 5 8 43:27 44
Tottenham 26 12 7 7 45:26 43
Aston Villa 25 11 9 5 32:19 42
Birmingham 25 10 7 8 24:26 37
Everton 25 9 8 8 35:36 35
Fulham 26 9 7 10 30:28 34
Stoke City 25 7 10 8 24:28 31
Blackburn 26 8 7 11 26:43 31
Sunderland 25 6 8 11 32:42 26
Wigan 25 6 7 12 26:49 25
West Ham 25 5 9 11 32:40 24
Wolves 25 6 6 13 21:42 24
1. deild:
Newcastle – Coventry..............................4:1
Aron Einar Gunnarsson kom inn á sem
varamaður hjá Coventry á 65. mín.
Crystal Palace– Reading.........................1:3
Ívar Ingimarsson lék ekki með Reading,
Brynjar Björn Gunnarsson lék allan leikinn
með Reading og lagði upp tvö mörk, Gylfi
Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á
76. mínútu hjá Reading, Gunnar Heiðar
Þorvaldsson sat á varamannabekknum.
Staðan:
Newcastle 31 18 9 4 53:22 63
WBA 31 17 9 5 62:32 60
Nott. Forest 32 16 10 6 47:24 58
Swansea 31 12 14 5 28:22 50
Cardiff 30 14 7 9 56:36 49
Leicester 30 12 11 7 37:30 47
Sheff. Utd 32 12 9 11 44:43 45
Blackpool 32 11 11 10 48:40 44
Middlesbro 32 12 8 12 43:36 44
Doncaster 30 10 10 10 37:36 40
Coventry 32 10 10 12 36:45 40
Derby 31 11 6 14 38:44 39
Barnsley 31 11 6 14 40:48 39
Preston 31 10 9 12 37:45 39
Watford 29 10 8 11 41:43 38
Bristol City 31 8 14 9 35:43 38
Scunthorpe 31 10 6 15 37:56 36
Reading 30 9 8 13 35:47 35
QPR 30 8 10 12 41:48 34
Sheff. Wed. 31 9 7 15 36:49 34
C. Palace 30 11 10 9 34:34 33
Ipswich 30 6 15 9 35:44 33
Plymouth 30 8 4 18 28:42 28
Peterborough 32 5 9 18 36:55 24
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Ármann – Hrunamenn..........................84:71
Staðan:
KFÍ 15 13 2 1277:1088 26
Haukar 14 10 4 1206:988 20
Valur 14 10 4 1105:1033 20
Þór Þ. 14 10 4 1214:1114 20
Skallagrímur 14 9 5 1111:1039 18
Þór A. 15 6 9 1148:1239 12
Höttur 14 5 9 1075:1156 10
Ármann 14 5 9 1135:1162 10
ÍA 14 4 10 1117:1277 8
Hrunamenn 16 0 16 1173:1465 0
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Mýrin: Stjarnan – Akureyri .................18.30
Mýrin: Fram – Valur.............................19.30
Seltjarnarnes: Grótta – FH..................19.30
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
NÓG var um baráttu framan af en hún
þarf að skila einhverju og sú var ekki
raunin. Eftir tíu mínútur fór að draga
til tíðinda og skotin fóru að koma á
mörkin en þrjú af skotum Hauka fóru í
tréverkið. Hinum megin varði Bryndís
ótt og títt, þar á meðal fjögur skot í
sömu sókn Stjörnunnar, því boltinn fór
alltaf til mótherja. Þegar Hafnfirðing-
urinn Hanna G. Stefánsdóttir hrökk
svo í gang og skoraði þrjú mörk í röð
sigu Haukar fram úr og eftir þrjú
mörk í röð úr hraðaupphlaupum var
munurinn orðinn sex mörk, 14:8, undir
lok fyrri hálfleiks.
Gestirnir úr Garðabæ mættu ein-
beittir til síðari hálfleiks en það dugði
bara til að halda sjó, því þegar Hauka-
konur tóku við sér linntu þær ekki lát-
um fyrr en munurinn var orðinn níu
mörk og tíu mínútur voru eftir. Þá
slökuðu þær alltof mikið á svo að
Stjörnukonur hófu að saxa á forskotið
með sjö mörkum gegn tveimur, en það
var ekki nóg.
Sumar eiga uppáhaldsstað
„Mér fannst þetta mjög skemmti-
legur leikur því við komum alveg til-
búnar til leiks og ætluðum alls ekki að
tapa. Við slógum að vísu pínulítið af í
lokin en þetta hafðist,“ sagði Bryndís,
markvörður Hauka, eftir leikinn og
vildi sem minnst úr sínum hlut gera en
hún varð þó að svara því hvort hún legði
mikla vinnu í að kortleggja skot mót-
herja: „Ég er með þetta svona í undir-
meðvitundinni en hef ekki lagst í mikla
vinnu við að spá í skotin hjá hverjum
leikmanni. Sumar eiga sinn uppáhalds-
stað en skjóta samt ekki alltaf á hann
svo maður verður oft að standa og bíða
eftir skotinu, það þýðir ekkert að æsa
sig of mikið.“ Ramune Pekarskyte var í
strangri gæslu en tókst þó að skora
fimm mörk. Hanna, ásamt Ester Ósk-
arsdóttur, lét þá til sín taka, en Nína B.
Arnfinnsdóttir var sterk í vörninni.
Vorum alltof seinar í gang
Stjörnuliðið sýndi hinsvegar góða
baráttu á köflum, en þeir voru ekki
nógu margir og langir. „Þetta var alls
ekki nógu gott. Við lékum ágæta vörn
og Florentina var alltaf í stuði fyrir aft-
an okkur en við hentum boltanum alltof
mikið í hendurnar á Haukaliðinu og
skutum í markvörð, sem stóð alveg
kyrr. Í staðinn fengum við á okkur
hraðaupphlaup, þau voru alltof mörg.
Við misstum því dampinn, náðum samt
að saxa á forskotið í lokin en vorum allt-
of seinar í gang,“ sagði Þorgerður Anna
Atladóttir, sem átti góðan leik og skor-
aði fjögur mörk. Harpa Sif Eyjólfs-
dóttir var markahæst með sjö mörk en
þær tvær drógu vagninn ásamt Flo-
rentinu Stanciu, sem varði 21 skot. Lið-
ið náði ekki að nýta krafta skyttunnar
Alinu Tamasan því hún á við bakmeiðsli
að stríða og það munar um minna.
„Hún hefur lítið verið með á æfingum í
vikunni svo við bjuggumst við að hún
yrði ekki með og æfðum án hennar. Í
svona leik verður einhver að taka af
skarið þegar lykilleikmann vantar en
það gekk ekki í dag,“ sagði Þorgerður
eftir leikinn.
Bryndís varði
alls 29 skot
Bryndís Jónsdóttir fór heldur illa með
Garðbæinga í gærkvöldi þegar hún
varði 29 skot í 26:22-sigri Hauka á
Stjörnunni á Ásvöllum. Miklu skipti líka
að Stjörnukonur fundu ekki fjölina sína
fyrr en tíu mínútur voru eftir af leikn-
um en það var alltof seint því Hafnfirð-
ingar höfðu þá níu marka forystu.
Stjarnan heldur þó enn þriðja sæti
deildarinn með stigi meira en Haukar.
Haukakonur unnu sannfærandi sigur
Eru enn í fjórða sæti úrvalsdeildar
Morgunblaðið/Golli
Öruggt Ramune Pekarskyte og félagar hennar í Haukum lögðu Íslandsmeist-
aralið Stjörnunnar nokkuð örugglega í gær á Ásvöllum í Hafnarfirði.
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í bad-
minton lagði Svía að velli, 4:1, á Evr-
ópumeistaramótinu sem fram fer í
Póllandi. Þetta er fyrsti sigur Íslands
á EM, en liðið tapaði 5:0 gegn Þjóð-
verjum í gær. Kvennaliðið leikur
gegn Spánverjum í dag en Spánverjar
töpuðu gegn Svíum, 3:2, og 4:1 gegn
Þjóðverjum.
Karlaliðið hefur tapað öllum þrem-
ur leikjum sínum til þessa, en í gær
lék Ísland gegn Finnum í karlaflokki.
Það eru konurnar sem landa sigr-
um á EM fyrir Ísland en mikil spenna
var í mörgum viðureignum Íslands
gegn Svíum í gær.
Ragna Ingólfsdóttir lagði Sophiu
Hansson í einliðaleik, 22:20, 21:17.
Tinna Helgadóttir vann einnig sinn
mótherja í einliðaleik, 21:18, 11:21,
21:16, en mótherji Tinnu var Jessica
Carlsson.
Snjólaug Jóhannsdóttir tapaði gegn
Elinor Width í einliðaleik, 21:18 og
21:15. Ragna og Tinna léku í tvíliða-
leik gegn Emmu Wengberg og Emilie
Lennartsson. Þar hafði Ísland betur
21:14, 16:21 og 21:17.
Snjólaug lék í tvíliðaleik með Karit-
as Ósk Ólafsdóttur. Þær töpuðu fyrstu
lotunni en sneru leiknum sér í hag og
höfðu betur gegn Amöndu Högström
og Ceciliu Bjuner,
20:22, 21:18 og 21:16.
Þriðji tapleikur
karlaliðsins
Karlalandsliðið
hefur tapað þremur
fyrstu leikjum sínum
á EM. Í gær tapaði Ís-
land 4:1 gegn Finn-
um en síðasti leikur
liðsins er gegn Ung-
verjum í dag.
Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi
Helgason unnu tvíliðaleik gegn þeim
Mikko Vikman og Kasper Leihikoi-
nen. Það var eini sigurleikur Íslend-
inga en hinir fjórir leikirnir töpuðust.
Ísland tapaði 5:0 gegn Dönum í fyrra-
dag og 3:2 gegn Króatíu.
Helgi tapaði 21:19 og 21:16 gegn
Ville Lang í einliðaleik. Magnús Ingi
lék gegn Eetu Heino og tapaði 21:10
og 21.17. Kári Gunnarsson lék einnig í
einliðaleik og hann tapaði gegn Ka-
sper Lehikoinen 21:16 og 21:18.
Helgi og Magnús Ingi unnu tvíliða-
leikinn eins og áður segir. Atli Jóhann-
esson og Kári Gunnarsson töpuðu í tví-
liðaleik gegn Eetu Heino og Marko
Pyykönen, 21:19 og 22:20.
seth@mbl.is
Góður sigur kvennaliðsins gegn Svíum
Tinna
Helgadóttir
VALUR vann öruggan sigur á Fylki, 31:19, í N1-deild
kvenna í handknattleik í Fylkishöllinni í gærkvöld og heldur
því örugglega efsta sæti deildarinnar. Liðið hefur nú 32 stig
að loknum 17 leikjum, er fimm stigum á undan Fram sem er í
öðru sæti. Fram á leik til góða. Valsliðið hefur unnið 15 leiki í
deildinni og gert tvö jafntefli en ekki tapað leik.
Valsliðið tók leikinn föstum tökum strax frá byrjun í Fylk-
ishöllinni í gærkvöldi. Þegar flautað var til loka fyrri hálfleik
virtust úrslitin vera ráðin þar sem forskot Vals var þá þegar
orðið átta mörk, 16:8.
Eins og stundum áður var Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
markahæst hjá Val. Hún skoraði sjö mörk. Línumaðurinn
sterki, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, skoraði sex mörk. Ela Kowal var marka-
hæst hjá Fylki með fimm mörk ásamt Laufeyju Ástu Guðmundsdóttur.
Valur mætir FH í næstu viku áður en liðið mætir Fram í úrslitaleik bikar-
keppninnar um aðra helgi. iben@mbl.is
Valur áfram ósigraður
Hrafnhildur
Skúladóttir
Ásvellir, úrvalsdeild kvenna, N1-
deildin, miðvikudaginn 17. febrúar
2010.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 2:2, 4:2, 4:4,
8:5, 10:8, 14:8, 15:10, 17:11, 17:13,
22:14, 24:15, 25:21, 26:22.
Mörk Hauka: Hanna G. Stefánsdóttir
9/3, Ramune Pekarskyte 5, Erna Þrá-
insdóttir 4, Nína B. Arnfinnsdóttir 4,
Ester Óskarsdóttir 4.
Varin skot: G. Bryndís Jónsdóttir
29/2 (þar af 12 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Harpa Sif Eyjólfs-
dóttir 7/1, Þorgerður Anna Atladóttir
4/1, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 3,
Þórhildur Gunnarsdóttir 3/1, Að-
alheiður Hreinsdóttir 2, Jóna Sigríður
Halldórsdóttir 2, Alina Daniela Tamas-
an 1.
Varin skot: Florentina Stanciu 21 (þar
af 10 til mótherja), Sólveig Björk Ás-
mundsdóttir 1/1.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar
Guðjónsson.
Áhorfendur: Um 175.
Haukar – Stjarnan 26:22
LOGI Geirsson hrökk í gang í gær og skoraði fimm mörk
þegar lið hans, Lemgo, vann Düsseldorf, 30:26, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik. Logi hefur lítið leikið síðustu
vikur og haft heldur hægt um sig þegar tækifæri hafa gef-
ist en í gær var hann ekkert að hika. Hann skoraði
snemma leiks með langskoti og bætti síðan fjórum mörk-
um við úr vítaköstum í síðari hálfleik. Vignir Svavarsson
skoraði eitt mark fyrir Lemgo sem komst upp í 5. sæti
deildarinnar með þessum sigri. Lemgo hefur nú 26 stig að
loknum 20 leikjum.
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark og var einu sinni
vísað af leikvelli þegar Kiel vann stóran sigur á Dormag-
en, 32:20, á heimavelli. Kiel er í öðru sæti með 36 stig eftir
20 leiki.
HSV Hamburg heldur efsta sæti deildarinnar en liðið er stigi á undan
Kiel. Hamburg vann öruggan sigur á Íslendingaliðinu Rhein Neckar Löwen
Logi Geirsson hrökk í gang
Logi Geirsson