Morgunblaðið - 18.02.2010, Blaðsíða 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010
Rakel DöggBragadóttir
skoraði níu mörk
fyrir Levanger í
gær þegar liðið
tapaði fyrir efsta
liði norsku úr-
valsdeildarinnar,
Larvik, á útivelli,
37:28. Ágúst Jó-
hannsson er þjálfari Levanger sem
er í níunda sæti deildarinnar með 12
stig að loknum 15 leikjum.
Sigurður Ari Skúlason gerði fjög-ur mörk fyrir Elverum þegar
liðið vann Sandefjord, 35:31, í
norsku úrvalsdeild karla í hand-
knattleik í gærkvöldi.
Haugaland, liðið sem ÓlafurHaukur Gíslason leikur með,
vann loks sigur í gærkvöld eftir
nokkra tapleiki. Haugaland vann
BSK/NIF, 35:33, á heimavelli og
lyfti sér þar með upp í 10. sæti deild-
arinnar með 7 stig. Ólafur Haukur
stóð í marki Haugalands að vanda og
varði 10 skot.
Andri Stefan Guðrúnarson og fé-lagar í norska meistaraliðinu
Fyllingen gerðu jafntefli við Dram-
men, 24:24, í norsku úrvalsdeildinni í
handknattleik í gær.
Gunnar SteinnJónsson
þótti leika afar
vel með Drott í
gærkvöldi þegar
liðið vann Hamm-
arby, 27.23, í
sænsku úrvals-
deildinni í hand-
knattleik. Gunnar
var markahæstur leikmanna Drott
með sjö mörk. Liðið er nú í 4. sæti
með 25 stig að loknum 20 leikjum, er
aðeins tveimur stigum á eftir Säve-
hof sem er efst.
Arnór Atlason skoraði þrjú mörkog var einu sinni vísað af leik-
velli þegar FCK vann öruggan sigur
á Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik í gærkvöldi.
Gísli Kristjánsson var að vanda íliði Nordsjælland sem nokkuð
óvæntan sigur á meistaraliðinu
Kolding, 34:29, í dönsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik í gærkvöldi.
Nordsjælland er í sjötta sæti deild-
arinnar.
Fólk folk@mbl.is
ÍR sagði í gær upp samningi bandaríska leikstjórnandans Michaels Jefferson og hyggst liðið
finna sér annan bandarískan leikmann fyrir lokasprettinn í Iceland Express-deildinni í
körfuknattleik. Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR, sagði í samtali við Morgunblaðið að Breið-
hyltingar væru að leita að öðrum leikmanni. Þeir eru ekki komnir með annan leikmann í
sigtið en eru að kynna sér hvað er í boði. ÍR-ingar stefna að því að vera komnir með banda-
rískan leikmann fyrir næsta leik gegn Snæfelli í næstu viku, en aðeins fimm umferðir eru
eftir af deildakeppninni.
Spurður út í þá ákvörðun að senda Jefferson heim sagði Gunnar ástæðuna vera einfalda.
„Hann var bara ekki sá leikmaður sem hann var sagður vera og skilaði ekki því sem ætlast
var til af honum.“
Hreggviður Magnússon lykilmaður ÍR-inga meiddist á dögunum auk þess sem Svein-
björn Claessen er úr leik. Hreggviður meiddist á ökkla en mun hafa sloppið við að slíta lið-
bönd. Hann mun því væntanlega ná síðustu þremur leikjum ÍR-inga og mögulega fleirum.
ÍR-ingar eru með 10 stig eins og Tindastóll og Fjölnir. Breiðablik hefur 8 stig en FSu er svo
gott sem fallið með 2 stig. Tvö lið falla í 1. deild og því er hörð barátta framundan í neðri
hluta deildarinnar. kris@mbl.is
ÍR-ingar ráku Jefferson
Michael
Jefferson
Ásvellir, úrvalsdeild karla, N1-deildin,
miðvikudaginn 17. febrúar 2010.
Gangur leiksins: 1:2, 4:2, 7:6, 9:10,
13:13, 17:15, 17:16, 20:16, 22:18, 22:20,
23:21, 26:21, 28:22, 31:24.
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson
11/3, Björgvin Hólmgeirsson 5, Pétur
Pálsson 4, Guðmundur Árni Ólafsson
3, Þórður Rafn Guðmundsson 3, Elías
Már Halldórsson 2, Heimir Óli Heim-
isson 2, Freyr Brynjarsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson
13/2 (þar af 1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk HK: Valdimar Fannar Þórsson
10/5, Atli Ævar Ingólfsson 4, Ragnar
Hjaltested 2/1, Bjarki Már Gunnarsson
1, Halldór Haraldsson 1, Bjarki Már Elí-
asson 1, Ólafur Víðir Ólafsson 1, Sverrir
Hermannsson 1, Vilhelm Gauti Berg-
sveinsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 6,
Lárus Ingi Halldórsson 4 (þar af 1 aftur
til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Anton Pálsson og Brynjar
Einarsson.
Áhorfendur: Um 300.
Haukar – HK 31:24
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÞETTA er í annað skiptið á nokkrum
dögum sem Haukar vinna HK því lið-
in mættust einnig í undanúrslitum
bikarkeppninnar síðastliðinn laug-
ardag. „Ég veit ekki hvort við erum
með tak á HK en við höfum alla vega
verið með tak á þeim í þessum tveim-
ur leikjum. Þeir rassskelltu okkur
hins vegar rétt fyrir jól og við tókum
þá mjög alvarlega. Við undirbjuggum
okkur því mjög vel fyrir þessa tvo
leiki. Persónulega fannst mér HK
vera að spila langt undir getu í dag.
Eins og við vorum að spila þá vorum
við bara að spila á parinu og ekkert
meira en það. Ég átti von á því að
þetta yrði mun jafnari leikur,“ sagði
Elías Már Halldórsson, leikmaður
Hauka og fyrrverandi leikmaður HK,
í samtali við Morgunblaðið að leikn-
um loknum.
Fyrir margra hluta sakir er áhuga-
vert að Haukar skuli hafa sloppið
jafn auðveldlega frá þessum leik og
raun ber vitni. Í fyrsta lagi þá hefði
maður haldið að leikmenn HK myndu
vera ákveðnari í því að hefna fyrir
bikartapið á dögunum. Reglan hefur
oftar en ekki verið sú að þegar jöfn
lið mætast á stuttum tíma í deild og
bikar þá skipti þau með sér vinning-
unum.
Birkir og Gunnar meiddir
Í öðru lagi þá léku Haukar án
tveggja af sínum reyndustu leik-
mönnum. Eyjamennirnir Birkir Ívar
Guðmundsson og Gunnar Berg Vikt-
orsson eru báðir á sjúkralistanum
vegna smávægilegra meiðsla. Auk
þess spilaði Freyr Brynjarsson ein-
ungis þriðjung leiksins. Birkir
meiddist á öxl á æfingu og Gunnar er
meiddur á mjöðm. Voru þeir í raun
hvíldir eins og það heitir á fagmálinu
því mörg spennandi verkefni eru
framundan hjá Íslandsmeisturunum.
Um næstu helgi fara Haukar til
Spánar og leika þar tvo Evrópuleiki
og um aðra leiki bíður þeirra bik-
arúrslitaleikur í Laugardalshöll gegn
bikarmeisturum Vals. Telja má lík-
legt að Birkir og Gunnar verði báðir
tilbúnir í þann slag en þessi sömu lið
mættust í úrslitarimmu um Íslands-
meistaratitilinn síðastliðið vor.
Í þriðja lagi má segja að með slík
verkefni framundan þá hefði átt að
vera erfitt fyrir Haukana að halda
einbeitingu í þessum deildarleik. Það
tókst hins vegar ágætlega og verður
að hrósa þeim fyrir það.
Leikmönnum HK gekk verr að
halda einbeitingunni og eftir ágætan
fyrri hálfleik virtust leikmenn liðsins
vera andlausir í síðari hálfleik.
Rosknari menn í liðinu eins og Vil-
helm Gauti Bergsveinsson, Ólafur
Víðir Ólafsson og Valdimar Fannar
Þórsson verða að gæta þess að halda
uppi ákveðnum anda svo liðið detti
ekki niður á svo lágt plan að vera
andlaust í leik gegn Íslandsmeist-
urunum. Þeir léku langt undir getu
að þessu sinni eins og Elías benti á
og hefðu átt að geta nælt í 2 stig fyrst
Haukar léku án Birkis og Gunnars.
Haukar unnu HK án
Birkis Ívars og Gunnars
Morgunblaðið/Golli
Óstöðvandi Sigurbergur Sveinsson skoraði 11 mörk fyrir Hauka. Valdimar Fannar Þórsson úr HK er til varnar.
Haukar áttu ekki í miklum vandræðum
með að leggja HK að velli í N1-deild
karla í handknattleik á Ásvöllum í gær-
kvöldi. Haukar sigruðu 31:24 eftir að
hafa verið yfir í hálfleik 17:15. Sigur-
bergur Sveinsson átti stórleik fyrir
Hauka og skoraði 11 mörk.
Sigurbergur skoraði 11 mörk þegar Haukar unnu HK öðru sinni
í Hamburg, 37:26, eftir jafnan fyrri hálfleik. Ólafur Stefánsson skoraði fimm
mörk fyrir Löwen, þar af tvö úr vítakasti. Snorri Steinn Guðjónsson meidd-
ist á kálfa á æfingu í fyrrakvöld og hafði hægt um sig í gær og Guðjón Valur
Sigurðsson var ekki með vegna meiðsla. Hann verður frá keppni næstu þrjá
mánuði.
Lübbecke vann Gummersbach á heimavelli sínum í gær, 27:26, og sýndi
fram á að sigur liðsins í fyrri umferðinni var engin tilviljun. Róbert Gunn-
arsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach. Þórir Ólafsson er enn fjarri
góðu gamni vegna meiðsla og Heiðmar Felixson skoraði ekki að þessu sinni
fyrir Lübbecke sem er í 10. sæti með 23 stig eftir 20 leiki. Gummersbach er
í 7. sæti með 23 stig.
Alexander Petersson fékk fá tækifæri með Flensburg gegn sínum væntan-
legu samherjum í Füchse Berlín þegar liðin mættust í Max Schmeling-
höllinni í Berlín. Flensburg vann naumlega, 26:25. Rúnar Kárason skoraði
ekki fyrir Berlínarrefina sem sitja í níunda sæti. Hann var einu sinni rekinn
af leikvelli í tvær mínútur. iben@mbl.is
og Lemgo vann
N1-deild karla
Staðan:
Haukar 12 9 2 1 308:277 20
Valur 11 7 1 3 274:255 15
FH 11 6 1 4 307:288 13
HK 11 6 1 4 286:278 13
Akureyri 11 6 1 4 278:267 13
Grótta 11 4 0 7 274:297 8
Stjarnan 10 2 0 8 225:255 4
Fram 11 1 0 10 279:314 2