Morgunblaðið - 18.02.2010, Page 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2010
KONRÁÐ Olavsson, fyrrverandi landsliðs-
maður í handknattleik, hefur sagt starfi sínu
lausu sem þjálfari hjá KIF í Kristiansand sem
leikur í næstefstu deild í Noregi. Frá þessu er
greint á vefsíðunni fvn.no.
Stjórnarformaður félagsins, Jan Ole Opsahl,
sendi frá sér yfirlýsingu í fyrrakvöld þar sem
sagði meðal annars að Konráð hefði ákveðið að
stíga til hliðar með framtíðarhagsmuni félags-
ins að leiðarljósi en Konráð sjálfur mun hafa
neitað að tjá sig um ákvörðunina.
Allt á suðupunkti
Samkvæmt vefsíðunni er allt á suðupunkti í
Kristianstad en félagið er í ellefta og næst-
neðsta sæti deildarinnar.
Ljóst er að talsvert hefur
gengið á síðustu daga því
Konráð mun hafa látið leik-
manninn Christian Abra-
hamsen fara frá félaginu á
mánudaginn.
Konráð var ekki ánægður
með þá ákvörðun Abraham-
sen að gagnrýna störf hans
í fjölmiðlum en það gerðu
einnig Vegard Kalstad og
Morten Eikeland. Daginn eftir fundaði Konráð
með stjórn félagsins og í kjölfarið var greint
frá uppsögn hans. kris@mbl.is
Konráð Olavsson hættur hjá KIF
Konráð
Olavsson.
Á UNDANFÖRNUM dögum hafa for-
ráðamenn NBA-liðanna 30 verið í stöðugu
sambandi vegna leikmannamála en lokað
verður fyrir leikmannaskipti í kvöld.
Samkvæmt heimildum CNN-fréttastof-
unnar í gær er mjög líklegt að Tracy
McGrady verði leikmaður New York Knicks
en launahæsti leikmaður NBA-deildarinnar
hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig
með Houston í vetur. Houston fær Jared Jeff-
ries, Larry Hughes og Jordan Hill í skiptum
fyrir McGrady.
Miðherjinn Marcus Camby er nú leikmaður
Portland en hann fór frá LA Clippers í skipt-
um fyrir Steve Blake og Travis Outlaw.
Dallas og Washington
skiptu á sjö leikmönnum á
dögunum en það er
„brunaútsala“ í gangi hjá
forráðamönnum Wash-
ington.
Búast má við frekari tíð-
indum af leikmannaskipt-
um í dag og kvöld. Amere
Stoudamire, framherji
Phoenix Suns, er „stærsti“
bitinn á markaðinum en
bæði Miami Heat og Cleveland Cavaliers vilja
fá hann í sínar raðir.
seth@mbl.is
Fer Tracy McGrady til New York?
Tracy
McGrady
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
SIGMUNDUR er Njarðvíkingur og
lék að sjálfsögðu upp alla yngri
flokka í þeim mikla körfuboltabæ.
„Ég var reyndar ekki mörg ár í
meistaraflokki. Ég myndi ekki
treysta mér til þess að dæma í ein-
hverri íþrótt ef ég hefði ekki spilað
hana. Það er hægt en það er rosa-
lega erfitt. Ég myndi segja að það
væri nauðsynlegt,“ sagði Sigmundur
þegar Morgunblaðið settist niður
með honum á dögunum.
Sigmundur er orðinn reyndur á
alþjóðlegum vettvangi og verkefnin
erlendis hafa aukist jafnt og þétt.
„Síðustu tvö tímabil hef ég verið að
fá 10-15 leiki frá ágúst og fram í
febrúar, mars. Síðast dæmdi ég tvo
leiki í Frakklandi; karlaleik á milli
Roanne Basket, sem er í norður-
hluta Frakklands, og Banvid frá
Tyrklandi. Fullt hús með átta þús-
und áhorfendum sem er svolítið ann-
að umhverfi en hérna heima. Einnig
dæmdi ég kvennaleik í Montpellier í
16-liða úrslitum í Eurocup þar sem
Montpellier mætti Limassol frá
Kýpur,“ sagði Sigmundur og bætti
því við að algengt sé að hann dæmi
tvo leiki í hverri ferð og þarf þá frí
frá vinnu sinni sem vörustjóri í
BYKO. „Hver og einn leikur er þrír
vinnudagar hjá mér. Aðrir dómarar
á meginlandinu geta gert þetta á
skemmri tíma en þetta er bara hluti
af því að búa á Íslandi og maður
grætur það ekki að fá verkefni,“ út-
skýrir Sigmundur og verkefnin sem
honum er treyst fyrir verða æ mik-
ilvægari.
Leikirnir að verða
mikilvægari
„Leikirnir hafa verið misjafnlega
mikilvægir í gegnum tíðina en þeir
eru alltaf að verða betri og mik-
ilvægari þarna úti. Það er skemmti-
legra að standa í þessu þegar maður
hefur einhverja svona gulrót eins og
stór verkefni erlendis. Það er meiri-
háttar gaman,“ bendir Sigmundur á
og hann á sér háleit markmið sem
halda honum við efnið. „Það væri
draumur að dæma þegar fjögur lið
eru eftir í Evrópukeppnum fé-
lagsliða. Ég væri ekki í þessu ef ég
tryði því ekki að ég kæmist lengra.
Það er ekkert útilokað í þessu. Þetta
snýst um að standa sig vel í þeim
verkefnum sem maður fær og mér
finnst klárlega vera stígandi í þessu
hjá mér,“ sagði Sigmundur ákveðið
og hann heldur því fram að hann eigi
sín bestu ár framundan í dómgæsl-
unni. „Menn mega ekki gerast
alþjóðadómarar fyrr en í kringum 25
ára aldurinn. Það tekur mörg ár að
öðlast almennilega reynslu og dæma
alla viðburði sem hægt er í heima-
landinu. Það er því litið þannig á að
menn séu á toppnum frá fertugu og
upp í fimmtugt. Bestu dómararnir
dæma á stærstu mótunum upp að
fimmtugu.“
Sigmundi hefur þegar verið treyst
fyrir stórum verkefnum. „Ég hef
nokkrum sinnum dæmt leiki í 16-liða
úrslitum karla og kvenna í Evr-
ópukeppnum félagsliða. Stærsti ein-
staki leikurinn myndi ég segja að
væri leikur Finna og Ítala í A-deild
Evrópukeppni karlalandsliða. Hann
er minnisstæður enda voru Ítalir að
berjast um að komast í úr-
slitakeppnina.“
Sá besti ætlar sér lengra
Sigmundur Már Herbertsson dæmir 10-15 leiki erlendis á hverju keppnistímabili
Dómari ársins á Íslandi fimm ár í röð Á bestu árin eftir í dómgæslunni
Morgunblaðið/Kristinn
Málin rædd Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindvíkinga, og Sigmundur Már Herbertsson dómari ræða málin.
Í HNOTSKURN
»Sigmundur hefur dæmt íefstu deild karla síðan
1995 og dæmdi sinn þúsund-
asta leik á vegum KKÍ í mars
2009. Á laugardaginn dæmir
Sigmundur bikarúrslitaleik í
áttunda sinn.
»Sigmundur hefur dæmt íkringum 80 leiki á alþjóð-
legum vettvangi.
Sigmundur Már Herbertsson er af
flestum talinn besti körfuknattleiks-
dómari landsins um þessar mundir. Í
það minnsta hafa leikmenn kosið Sig-
mund „dómara ársins“ á lokahófi KKÍ
síðustu fimm árin. Sigmundur tók
dómaraprófið árið 1994 og hefur ver-
ið alþjóðadómari frá 2003. Hann er
þó ekki nema 41 árs og segist eiga
sín bestu ár eftir en dómarar mega
dæma á alþjóðlegum vettvangi til 50
ára aldurs. Sigmundur dæmir reglu-
lega erlendis og er t.d. nýkominn frá
Frakklandi.
Helena Sverr-isdóttir var
nálægt því að ná
þrefaldri tvennu í
84:61-tapleik
TCU gegn San
Diego í banda-
ríska há-
skólakörfubolt-
anum í fyrrinótt.
Helena skoraði 16 stig, tók 8 fráköst
og gaf 9 stoðsendingar. Íslenska
landsliðskonan tapaði boltanum 9
sinnum í leiknum. Helena hitti úr
fjórum af alls tíu tveggja stiga skot-
um sínum. Hún tók þrjú þriggja stiga
skot og tvö þeirra fóru ofan í og öll
sex vítaskot hennar fóru rétta leið.
TCU hefur unnið 9 en tapað 3 leikj-
um í Mountain West-deildinni en alls
hefur TCU unnið 19 leiki á tímabilinu
og tapað sex.
Ari FreyrSkúlason,
leikmaður sænska
fyrstu deildar liðs-
ins Sundsvall, fór í
aðgerð á hné í
Stokkhólmi í gær.
Ari sagði í viðtali
við sænska frétta-
vefinn dagbla-
det.se í gær að hann vonaðist til þess
að geta hafið æfingar að nýju eftir 2-3
vikur en laga þarf liðþófa í hnénu á
landsliðsmanninum. „Það kom mér á
óvart að ég þurfti ekki að bíða lengur
eftir aðgerðinni og ég vonast til þess
að geta byrjað æfingar með bolta eft-
ir tvær vikur,“ segir Ari.
David Moyes, knattspyrnustjóriEverton, hefur staðfest að belg-
íski miðjumaðurinn Marouane Fel-
laini þurfi að gangast undir aðgerð á
ökkla, og verður hann frá keppni í
hálft ár.
Fellaini meiddist eftir viðskipti við
gríska varnarmanninn Sotirios Kyr-
giakos í leik Everton og Liverpool á
dögunum og segir Moyes að meiðsli
Fellainis séu með svipuðum hætti og
hjá Robin van Persie, framherja Ars-
enal. Þetta er mikið áfall fyrir Ever-
ton enda hefur Belginn hárprúði ver-
ið afar öflugur á leiktíðinni og
prímusmótorinn í miðjuspili liðsins.
George Karl,þjálfari
NBA-liðsins Den-
ver Nuggets,
greindi frá því á
fundi með frétta-
mönnum í fyrra-
dag að hann hefði
greinst með
krabbamein í
hálsi, og mun hann fara í lyfja- og
geislameðferð á næstu vikum. Karl,
sem er 58 ára gamall, greindist með
krabbamein í blöðruhálskirtli árið
2005. Adrian Dantley, aðstoðarþjálf-
ari Denver, mun stýra liðinu í þeim
leikjum sem Karl mun missa af á
næstunni. Karl skrifaði á dögunum
undir eins árs samning við Denver en
hann hefur þjálfað liðið frá árinu
2005. Denver tapaði í úrslitum vest-
urdeildar í fyrra gegn LA Lakers í
sex leikjum.
Fólk sport@mbl.is
ÞEGAR fylgst er með körfuboltaleikjum þá vekur
athygli að dómararnir ræða gjarnan við þjálfara og
leikmenn og færa rök fyrir ákvörðunum sínum.
Nokkuð sem sést talsvert minna af í öðrum bolta-
greinum. Morgunblaðið bar þetta undir Sigmund
Má Herbertsson.
„Við viljum helst ekki sjá mikið af „fundum“ með
hinum og þessum sem tefja leikinn. Hins vegar er
alls staðar lagt upp með að góð samskipti eigi sér
stað á meðan á leiknum stendur. Við eigum ekki að
hundsa neinn. Auðvitað fá menn nóg ef eingöngu er
um að ræða tuð og leiðindi en lagt er mikið upp úr
eðlilegum samskiptum,“ sagði Sigmundur og bendir
á að flestar þjóðir í kringum okkur séu að taka upp
þriggja dómara kerfi. Er það meðal annars gert
með það fyrir augum að auka samskipti á milli
dómara og þjálfara.
„Ég vona að við eigum eftir að upplifa það á Ís-
landi að dæma í þriggja dómara kerfi. Það eru
flestar þjóðir í kringum okkur að gera. Það munar
öllu að hafa þriðja dómarann. Leikirnir eru orðnir
hraðari en áður og það er eins hér heima. Karla-
deildin hér heima er að mínu mati orðin mjög góð.
Ég hef dæmt víða og get sagt að íslensku leikmenn-
irnir eru mjög góðir og þegar komið er í úr-
slitakeppni bætast við öflugir erlendir leikmenn.
Hraðinn er orðinn gríðarlegur. Ef við tökum úr-
slitarimmuna hjá körlunum í fyrra, KR - Grindavík,
þá var það fullt starf fyrir þrjá dómara. Við vorum
hins vegar bara tveir, því miður. Ég vona að þetta
hafi ekki komið mikið niður á dómgæslunni í þess-
um fimm leikjum en samt sem áður var þetta verk-
efni fyrir þrjá. Í þriggja dómara kerfi þá er þriðji
dómarinn staðsettur þannig að hann er nálægt
þjálfurunum. Hann er mikilvægur í dómgæslunni
inni á vellinum en er einnig hugsaður til þess að sjá
um samskiptin. Þjálfarinn þarf því ekki að öskra
með látum inn á völlinn því hann er með dómara
hjá sér. Ef róa þarf einhvern niður þá er dómari á
staðnum sem klárar málið. Þau samskipti eru því
yfirleitt til fyrirmyndar,“ sagði Sigmundur við
Morgunblaðið. kris@mbl.is
„Hraðinn er orðinn gríðarlegur“
Sigmundur vill sjá þriggja dómara kerfi í íslenskum körfubolta