Ísfirðingur - 10.05.1975, Blaðsíða 1
/ VESTFJAKÐAKJORDÆMI
25. árgangur.
ísafirði, 10. maí 1975.
10. tölublað.
Adaliundur mio-
stjórnar Fram-
sóknarflokksins
Aðalfundur miðstj. Fram-
sóknarfl. hófst í Reykjavík
föstudaginn 18. apríl s.l. Ól-
afur Jóhannesson, formaður
flokksins, flutti í þingbyrjun
yfirgripsmikla yfirlitsræðu um
helstu atburði og þróun mála,
sem átt hafa sér stað frá
síðasta flokksþingi, en það
var haldið í nóvember s.l.
Að lokinni ræðu Ólafs fluttu
þeir Steingrímur Hermanns-
son og Tómas Árnason skýrsl-
ur ritara og gjaldkera flokks-
ins. Einnig flutti Kristinn
Finnbogason, framkvæmda-
stjóri Tímans, skýrslu um
rekstur og afkomu blaðsins.
Á miðstjórnarfundinum var
Ólafur Jóhannesson einróma
endurkjörinn formaður flokks-
ins. Aðrir 1 stjórnina voru
endurkjörnir Steingrímur Her-
mannsson, ritari og Tómas
Árnason, gjaldkeri. Einar
Ágústsson var endurkosinn
varaformaður, Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir var kosin
vararitari og Halldór E.
Sigurðsson endurkosinn vara-
gjaldkeri.
í framkvæmdastjórn flokks-
ins voru kjörin: Eysteinn
Jónsson, Helgi Bergs, Guð-
mundur G. Þórarinsson, Þór-
arinn Þórarinsson, Jónas Jóns-
son, Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir, Erlendur Einarsson,
Jón Skaftason og Eggert
Jóhannesson. Sjálfkjörnir í
framkvæmdastjórnina eru for-
maður flokksins, varaformað-
ur, ritari, gjaldkeri og form.
SUF.
Varamenn voru kosnir:
Kristinn Finnbogason, Hannes
Pálsson og Halldór Ásgríms-
son.
Miðstjómarfundurinn var
ágætlega sóttur af fulltrúum
úr öllum héruðum landsins.
Stjórnmálaályktunar mið-
stjórnarfundarins verður getið
hér í blaðinu síðar.
Þjóðviljalesandi
skrifar
Kjartan Ólafsson varaþing-
maður og ritstjóri er ötull
maður og duglegur að skrifa
um ávirðingar rikisstjórnar-
innar. Ótaldar eru þær grein-
ar hans sem f jalla um vonsku
stjórnarinnar, löngun hennar
til að níðast á launþegum og
alþýðu allri. Stjórnin er sögð
ábyrg fyrir öllum verðhækk-
unum. Það sé hennar stefna,
að færa hvern milljarðinn af
öðrum frá launþegum til
atvinnurekenda. Aldrei hefur
hann skrifað nokkurt orð um
það, að innlend fyrirtæki
þurfi eitthvað til að mæta
auknum reksturskostnaði.
Svo gerist það skyndilega
að Þjóðviljinn er hækkaður
í verði núna um daginn. Því
skrifar nú ekki Kjartan ádeilu
á útgáfufélag Þjóðviljans?
Þvi lætur hann það átölulaust
að peningar séu teknir af
lesendum handa fyrirtækinu?
Hefur ekki útgáfufélag Þjóð-
viljans þarna gengið til liðs
við vonda ríkisstjórn?
Þjóðviljinn sagði, að blað-
gjöldin væru hækkuð vegna
þess að pappír hefði hækkað.
Það skyldi þó aldrei vera að
hráefni hefðu hækkað hjá
fleiri fyrirtækjum? Hækkun
Þjóðviljans og forsendur
Hraðbraut trá Isafirði á Isafjarð
arflugvöll
Á fundi bæjarráðs 15. apríl
s.l. lagði Guðmundur Sveins-
son, bæjarfulltrúi, fram tillögu
um nauðsyn þess, að hrað-
braut verði sem allra fyrst
lögð frá ísafirði inn á ísa-
fjarðarflugvöl'l. Tillaga Guð-
mundar var á dagsskrá
bæjarstjónar 23. f.m. og var
samþykkt. Tillagan er svo-
hljóðandi:
„Samkvæmt fyrirhuguðu
aðalskipulagi ísafjarðar er
gert ráð fyrir að hraðbraut
liggi frá ísafirði inn á ísa-
fjarðarflugvöll. Er ákveðið að
vegurinn liggi meðfram sjón-
um framan við íþróttavöllinn
á veginn við Seljalandsbrú.
Fjöldi bifreiða sem ekur þessa
vegalengd nú eftir Seljalands-
veginum, er samkvæmt mæl-
ingum mun meiri en á mörg-
um öðrum stöðum, sem fengið
hafa fullkomnar hraðbrautir.
Það er fyrir löngu orðin brýn
þörf á því, að úr þessu verði
bætt með því að leggja hrað-
-brautina.
Bæjarstj. ísafjarðar beinir
því þeim eindregnu tilmælum
til fjárveitingavaldsins að
þessari framkvæmd verði lok-
ið á árunum 1974—1977, og
verði vegaáætlun þessara ára
við það miðuð.
Þá vill bæjarstjórn ísa-
fjarðar minna á það, að enn
er ólokið hluta Skíðavegar að
Skíðaskálanum. Eftir er að
bera ofan í veginn. Óskar
bæjarstjórnin eftir fjárveit-
ingu á fjallvegaáætlun tii
þessa verks”.
Hér er vissulega um aðkall-
andi verkefni að ræða og verð-
ur að vænta þess að alþingis-
menn kjördæmisins vinni
sameiginlega að skjótri lausn
þess.
Áskorun til bæjuryfirvnldu
ísnfjarðurkaupstuður
1. maí 1075
Að venju fóru fram á ísa-
firði hátíðahöld 1. maí. Vegna
veðurs var útifundur ekki
haldinn, en samkoma var í
Alþýðuhúsinu. Þar flutti
Karvel Pálmason alþingis-
maður ræðu. Ávörp fluttu
Eiríkur Sigurðsson, frá Félagi
járniðnaðarmanna og Gunnar
Finnsson, frá Félagi iðnnema.
Að ræðum loknum skemmti
Jörundur með eftirhermum.
í samkomuhúsinu Uppsölum
flutti Aðalsteinn Ingólfsson,
listfræðingur, erindi klukkan
16. Um klukkan 17 var svo
opnuð sýning á verkum
Snorra Arinbjarnar í kjallara
Alþýðuhússins. Sýningin er
opin klukkan 8—10 síðdegis,
en n.k. sunnudag, sem mun
vera síðasti sýningardagur,
verður opið klukkan 4—10
síðdegis.
Ókeypis aðgangur er að
sýningunni.
hennar er e.t.v. ekki algjör-
lega einangrað fyrirbæri.
Hér er ekki nema um tvennt
að ræða. Annaðhvort er hækk-
un Þjóðviljans beinn fjand-
skapur við lesendur og laun-
þega eins og Kjartan Ólafs-
son hefur túlkað aðrar verð-
hækkanir í landinu. Sé hins-
vegar hækkun blaðsins eðli-
leg afleiðing vaxandi reksturs-
kostnaðar þá á það sama við
um fjölmargar hækkanir
aðrar.
Og þá er mest af því, sem
Kjartan Ólafsson hefur skrif-
að um þau mál marklaust bull
Og þá er það annaðhvort
skrifað gegn betri vitund, eða
af fullkomnum óvitaskap og
skilningsleysi á því, sem er
að gerast í landinu.
Á fundi bæjarstjórnar ísa-
fjarðar þann 23. apríl s.l. var
til umræðu erindi sem borist
hafði frá 64 nemendum og
kennurum Iðnskólans á ísa-
firði. Þeir telja núverandi
húsnæði skólans mjög ófull-
nægjandi og krefjast þess að
bæjarstjórnin vinni að því að
bæta úr þessum vanda. Um
þetta mál urðu miklar um-
ræður á bæjarstjórnarfund-
inum. Erindi nemendanna og
kennaranna er svohljóðandi:
„Við undirritaðir nemendur
og kennarar úr öllum deildum
Iðnskóla ísafjarðar förum
þess hér með á leit við bæjar-
yfirvöld ísafjarðarkaupstaðar,
að á bæjarstjórnarfundi sem
halda skal hinn 24. april 1975
verði tekin fyrir og lausn
fengin á þeim málum sem nú
ógna tilveru Iðnskólans, þeas.
húsnæðisvandamálinu. Teljum
við orsök þessara vandræða
fyrst og fremst framkvæmdar-
leysi bæjaryfirvalda, þar sem
fyrir liggja ummæli húsráð-
enda um að ekkert sé til fyrir-
stöðu frá þeirra hendi um
leigu á nægilegu húsnæði fyrir
skólann. Krafa okkar er að
skólinn verði áfram á ísa-
firði og fái tækifæri til að
eflast og vaxa svo sem slíkri
stofnun ber, einnig að kenn-
arar skólans sitji við sama
borð gagnvart húsnæði og
kennarar við aðra skóla stað-
arins”.
„LÁTUM EKKI FLYTJA
SKÓLANN FRÁ ÍSAFIRÐI".
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
mmmmumm
ÍÞRÓTTIR it ÚTILÍF
„Ég bar mikið úr býtuml
sem íþróttamaður en minna |
sem óbreyttur borgari” segir
Gunnar Huseby m.a. í
opinskáu viðtaii, sem birtist
í nýútkomnu íþróttablaðinu,
1. tbl. 1975, en Gunnar var
á sínum tíma heimsfrægur
íþróttamaður.
Iþróttir lögðust ekki niður
þótt hann legði þær á hilluna
og á litprentaðri kápu blaðs-
ins er birt mynd af flestum
þeim, er hlutu titdlinn:
íþróttamaður ársins 1974, í
sinni grein, en á afmælisdegi
ÍSÍ 28. jan. s.l. fór fram
afhending þessara viðurkenn-
inga til handa besta íþrótta-
fólks okkar. Blaðið birtir svo
frásagnir og stutt viðtöl við
þá. Margt fleira áhugavert
Framhald á 2. sfSu