Ísfirðingur - 01.11.1975, Blaðsíða 3
ISFIRÐINGUR
3
Kvennafríið
Framhald af 4. síðu
sauðkindin og þráinn í henni
og okkur, hafi haldið í okkur
líftórunni gegnum aldimar.
Þá tók til máls Margrét
Óskarsdóttir. Hún ságði m.a.,
að starf húsmóður væri einsk-
is metið úti á vinnumarkaðn-
um, t.d. hennar uppeldisstarf
í 10—20 ár, ef hún færi svo
að vinna á dagheimili, fengi
hún byrjunarlaun eins og
unga stúlkan, sem aldrei hefur
nálægt uppeldisstörfum kom-
ið. Og sama gildir um eldhús-
störf og fleiri þjónustustörf,
sem húsmæður vinna meira
og minna daglega heima.
Einnig talaði hún um ekkjur
og einstæðar mæður á þessa
leið. Að þeim býr þjóðfélagið
þannig að þær verða að fara
frá börnum sínum ungum út
í atvinnulífið yfirleitt fyrir
lægstu laun. Þær verða að
borga fyrir fóstrun barn-
anna á rándýrum stofnunum
og enginn talar um, að þær
eigi að vera hjá sínum börn-
um og ala þau upp sjálfar.
Næst talaði Þuríður Péturs-
dóttir og sagði á þá leið, að
þegar karlmenn giftu sig, þá
væru þeir að fá sér ódýran
vinnukraft heima til þess að
geta einbeitt sér að virðu-
legri störfum úti í þjóðfélag-
inu. „Þess vegna kúga karl-
menn konur”, sagði hún.
Þessu er ég alls ekki sammála,
t.d. eru það ekkert síður kon-
ur en karlar, sem vilja giftast
og í öðru lagi tel ég að
ef konur eru kúgaðar, sé það
ekki síður af eigin vanmeta-
kennd en af karlmönnum.
Einnig tók til máls Ást-
hildur Þórðardóttir. Kvaðst
hún sakna þess á þessari
samkomu, að ekki skyldi talað
meira um einstæðar mæður og
erfiðleika þeirra.
Það er rétt, en þetta var
nú hugsað þannig, að hver
talaði um það, sem hún vildi
og engin lína gefin um það
af neinum aðilum. Það þekkir
enginn betur en einstæðar
mseður sjálfar, hvar skórinn
kreppir að hjá þeim og því
mega þær til með að tala
fyrir sig sjálfar eða fá sér
talsmann, sem þær sjáifar
gefa fyrirmæli um hvað segja
þarf. Félag einstæðra foreldra
var beðið af nefnd kvenna-
frídagsins að senda aðila til
þess að flytja ávarp. Af ein-
hverjum ástæðum varð þetta
ekki og er það miður. Ég
held að fleiri hcifi ekki tekið
til máls. Og nú voru sungnir
baráttutextar dagsins við
undirleik Hjálmars Helga
Ragnarssonar. Dregið var í
happdrættinu og síðan sleit
Bryndís Schram þessari sam-
komu með ræðu. Mér er
minnisstæðast, að hún benti
á mikilvægi þess, að ungar
stúlkur öfluðu sér menntunar,
því að mennt væri máttur.
Tek ég mjög sterkt undir
það, því „hvað er menning
manna, ef menntun vantar
snót”.
Nú var svo stutt þangað
til næsta skemmtiatriði
kvennafrídagsins hæfist í
þessu sama húsi, að það tók
því ekki fyrir konur að fara
út. Þessi skemmtidagskrá
nefndist „Litið inná æíingu
hjá Litla leikklúbbnum”.
Fyrst komu fram f jórir ungir
herramenn, sem dönsuðu fyrir
okkur dansa, sem Margrét
Oskarsdóttir hafði samið og
æft. Þeir dönsuðu af lífi og
sál og miklum kröftum og
finnst mér það vel við hæfi,
því að konur dást oít að
likamskröftum karla, enda er
það hið eina, sem þeim er
gefið fram yfir kvenkynið og
það mega þeir eiga einir mín
vegna.
Næsta atriði var þáttur,
sem þau nefndu „Síðasta
gaidrabrennan á íslandi” og
er það um sannsögulega
atburði. Þau sýndu þetta
með látbragðsleik án orða, án
sviðsútbúnaðar og geta slíkar
sýningar verið mjög skemmti-
legar og óvenjuiegar og svo
var um þessa. Þetta æfði
einnig og stjórnaði Margrét
Oskarsdóttir og er henni
margt til lista lagt.
Þá var þessari skemmti-
legu maraþondagskrá lokið og
mér fannst hún góð.
Um kvöldið var frítt inná
kvikmyndasýningu í Alþýðu-
húsinu og var þar fullt hús
mestmegnis af konum.
Atvinnulífið í bBenum var
kannske ekki alveg lamað
þennan dag, en mjög í molum
og skólakerfið einnig. Hvern-
ig maturinn smakkaðist hjá
körlunum hef ég ekki spurnir
af. En eitt er víst, að í dag
getur enginn karlmaður leyft
sér það að vera sem álfur út
úr hól í því, sem viðkemur
heimilisstörfum, því þá er
hann eins og uppdagað nátt-
tröll í nútímanum, umkomu-
laus og getur aldrei verið
kvenmannslaus hvorki nótt
né nýtan dag. En á hinn bóg-
inn verður kona að kunna
skil á öllum fjármálum heim-
ilisins út á við og innávið til
jafns við karl sinn og einnig
að fylgjast með stjórnmálum
innaniands og utan, efnahags-
málum og yfirleitt öliu því
sem gerist og máli skiptir
og ástunda frjálsa skoðana-
myndun yfirleitt, byggða á
þekkingu. Annars verður hún
einnig sem nátttröll í nútím-
anum.
Lokaorð: Það síðasta sem
ég heyrði sagt um nóttina
eftir kvennafrídaginn og sem
verður mér minnisstætt.
Maður nokkur sagði við konu
sína „Jæja, kona góð„ nú er
kvennafrídagurinn búinn og
hér hefurðu tölu, sem datt
úr fötunum mínum í dag og
hún þarf að vera komin á
fyrir morgundaginn”. Var
hann ekki „Typiskur” og
„Ekta” karlmaður?
í málefnum kvenna tel ég,
að ekki sé þörf neinnar bylt-
ingar, því að „byltingin étur
börnin sín”, eins og hefur sýnt
sig í heiminum. Eins finnst
mér kúgun kvenna tæplega
vera til á Islandi, það sýndi
þessi ágæti kvennafrídagur
best, en það þarf mikla hugar-
farsbreytingu beggja kynja á
mörgum sviðum, og hef ég þá
trú, að þessi hugarfarsbreyt-
ing sé í stöðugri þróun.
Ingibjörg Norðkvist.
Hörmuleg slys
SÍÐASTLIÐINN mánudags-
morgun fannst fólksbifreið á
hvolfi í Vatnsdalsá í Barða-
strandarsýslu. í bifreiðinni
voru kona og karlmaður, sem
bæði voru látin. Konan hét
Þórhildur Jónasd., kennari,
29 ára gömul, til heimilis að
Markarflöt 41 í Garðahreppi
og Svavar Helgason, kennari
44 ára gamall til heimilis að
Fornuströnd 5 Seltjamarnesi.
Þau voru á leið suður frá
Patreksfirði, en þaðan fóru
þau kvöldið áður. Þau láta
bæði eftir sig maka og börn.
Þaú sátu fundi skólcunanna
hér á Vestfjörðum í vikunni
áður.
Þá varð banaslys síðastlið-
inn þriðjudag á veginum milli
Reyðarfjarðar og Egilsstaða
þegar bifreið lenti í hálku,
rann á brúarstöpul og féll í
ána. Ökumaðurinn var einn í
bifreiðinni og mun hafa iátist
samstundist. Hann hét Vil-
hjálmur Sigurbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri, og átti heima
á Egilsstöðum. Hann var
kvæntur og sex barna faðir.
Vilhjálmur var 52 ára gamall.
Vilhjálmur og fjölskylda
hans áttu heima á ísafirði frá
hausti 1955 til vors 1956, en
þá var hann settur skattstjóri
í Vestfjarðaumdæmi.
Allar almennar
myndatökur
LJÓSMYNDASTOFA
fSAFJ ARÐAR
Mánagötu 2 - ísafirði
Sími 3776.
Skattstofa Vestfjarða
er flutt að
Skólagötu 10
ísafirði sími 3788
Biðjið verslun yðar
um vörur frá:
Efnagerðinni F L Ó R U
Brauðgerð K E A
Kjötiðnaðarstöð K E A
Smjörlíkisgerð K E A
Reykhúsi K E A
Efnaverksmiðjunni S J ö F N
Kaffibrennslu Akureyrar
SENDUM beint til verzlana, gistihúsa
og matarfélaga.
FLJÖT og ÖRUGG afgreiðsla.
VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA
AKUREYRI — SlMI: (96)21400
Fðsteignir til sölu
Tilboð óskast í neðangreindar fasteignir á ísafirði:
Aðalstræti 10
Aðalstræti 12, norðurenda
Strandgötu 5, neðri hæð
Húsgrunn við Seljalandsveg
Nánari upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri
Kaupfélag ísfirðinga
fsafjarðarkaupstaður
Laus staða
Starf slökkviliðsstjóra í ísafjarðarkaupstað
er laust til umsóknar. Starfið felur í sér m.a.
stjórn slökkviliðs, viðhald tækja og búnaðar
og eldfæraeftirlit.
Kjör skv. kjarasamningum og nánara samkomulagi.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og starfsreynslu, berist skrifstofu
bæjarstjóra, sem veitir allar nánari upplýsingar .
fyrir 10. nóv. n.k.
Bæjarstjóri ísafjarðar.
Auglýsið í ísfirðingi