Ísfirðingur - 27.01.1976, Page 1
BLAÐ TRAMSOKNAmANNA / !/£S TFJARÐA&JORDÆMI
26. árgangur.
ísafirði, 27. janúar 1976.
3. tölublað.
HERMANN JÓNASSON
tyrrv. forsœtisráðherra
Hermann Jónasson.
EINN mikilhæfasti og far-
sælasti stjómmálamaður hér-
lendis á síðari áratugum, Her-
mann Jónasson, fyrrverandi
forsætisráðherra og formaður
Frams óknarflokksins, lést að
morgni 22. þ.m. Hann átti
við ólæknandi veikindi að
stríða nokkur síðustu árin.
Hermann Jónasson var
fæddur að Syðri-Brekkum í
Skagafirði 25. desember 1896,
sonur hjónanna Pálinu Bjöms-
dóttur og Jónasar Jónssonar,
bónda og smiðs. Hermann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1920 og
lögfræðiprófi frá Háskóla Ís-
lands 1924. Hann var fuiltrúi
við bæjarfógetaembættið í
Reykjavík 1924—1929, en það
ár var hann skipaður iög-
reglustjóri í Reykjavík og
því starfi gegndi hann til
ársins 1934.
í alþingiskosningum 1934
var Hermann kjörinn ' þing-
maður Strandamanna og fyrir
þá sat hann óslitið á þingi
tiil 1959. Eftir kjördæma-
breytinguna það ár var hann
kosinn þingmaður í Vest-
fjarðakjördæmi og fyrir það
kjördæmi sat hann síðan á
þingi til ársins 1967, en þá
ákvað hann að vera ekki í
framboði og hætta þing-
mennsku. AUan þingmennsku-
feril sinn naut Hermann í
ríkum mæli trausts og fylgis
kjósenda.
Þrisvar var Hermann Jónas-
son forsætisráðherra. Fyrsta
ráðuneyti sitt myndaði hann
vorið 1934 og var óslitið for-
sætisráðherra til 18. nóv-
ember 1941. Sama dag mynd-
aði Hermann annað ráðuneyti
sitt sem var við völd til 16.
maí 1942. í báðum þessum
ráðuneytum gegndi hann,
auk forsætisráðherraembætti,
dóms- og kirkjumálaráðhenra-
emb. og á ánmum 1938-39 fór
hann einnig með utanríkis-
mál og kennslumál. Þriðja
ráðuneyti sitt myndaði Her-
mann 24. júld 1956 og var
það við völd til 23. desember
1958. Auk þess að veita
ríkisstjórninni forystu fór
hann einnig með dómsmál og
landbúnaðarmál. í ráðuneyti
Steingríms Steinþórssonar á
árunum 1950 tál 1953 fór Her-
mann með embætti land-
búnaðarráðherra.
í stjómarathöfnum öllum
reyndist Hermann Jónasson
hygginn, athuguil og fram-
sýnn stjómmálamaður.
Fjölda mörgum öðrum
opinberum störfum gegndi
Hermann um lengri og
skemmri tíma. Um árabil, um
og eftir 1930 átti hann sæti í
bæjarstjórn Reykjavíkur og í
bæjarráði var hann á árunum
1932—1933. Hann var 1
sendinefnd íslands á ails-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna 1948, í mannréttinda-
nefnd Evrópuráðs var hann á
árunum 1954—1957 og full-
trúi íslands í Evrópuráði var
hann um árabil. Hann var
skipaður formaður bankaráðs
Búnaðarbankans 1943 og í
mörg ár var hann lögfræði-
legur ráðunautur þess barika.
í Þingvaiianefnd átti Her-
mann sæti árum saman.
Mörgum öðrum opinberum
trúnaðarstörfum gegndi Her-
mann þó að þau verði ekki
talin hér.
Hermann Jónasson var mik-
m unnandi íþrótta og gerði
þeim margháttað gagn á
stjórnarárum sínum. Fyrr á
árum stundaði hann sjálfur
mikið íþróttir og glímu-
kóngur íslands varð hann
1921. Hann var mjög áhuga-
samur skógræktarmaður og
í stjóm Skógræktarfélags ís-
lands var hann árum saman.
Á árinu 1944 var Hermann
Jónasson kjörinn formaður
Framsóknarflökksins og því
starfi gegndi hann samfellt
til 1962. Innan Framsóknar-
flokksins naut hann að mak-
legheitum trausts og óskoraðs
áiits flokksbræðra sinna.
Hann var víðsýnn og vitur
Fundir al-
þingismanna
Steingrímur Hermannsson,
alþingismaður, hélt fundi um
, sjávarútvegsmál á sunnan-
verðum Vestfjörðum 17. og
18. þm. Voru fundimir haldn-
ir á Bíldudal, Táiknafirði og
Patreksfirði og vom aJlir vel
sóttir. í framsöguræðu sinni
ræddi Steingrdmur um stöðu
sjávarútvegsins nú, skýrslu
fiskiifræðinganna, aukningu
fiskveiðiflotans á síðustu ár-
um o.fl. Á fundunum tóku
margir til máls og urðu um-
ræður hinar fjörugustu. Mikiii
áhugi var ríkjandi fyrir mál-
efnum sjávarútvegsins.
Gunnlaugur Finnsson,
alþingismaður, mætti á fund-
um hjá félögum framsókna*r-
manna í Bolungarvík og á
ísaf. 22. og 23. þm. Á fundun-
um ræddi hann ýmsa þætti
fjárlaganna og þá alveg sér-
stafclega þá þætti er snerta
Vestf j ar ðak j örd. Töluverðar
umræður urðu á fundunum
um hin ýmsu máiefni kjör-
dæmisins, svo sem hafnamá]
vegamál o.fl. Einnig kom
landhelgismálið töluvert til
umræðu. Aiþingismaðurinn
svaraði fyrirspumum sem
fram voru bomar.
Fljótur oð gleyma
í SÍÐASTA Skutli er grein á
annari síðu blaðsins um leiðar-
ann í ísfirðingi frá 17. þ.m.
Umræddan leiðara skrifaði
Gunnlaugur Finnsson, al-
þingismaður. Fyrirsögn leið-
arans ber með sér að í honum
er fjallað aðeins um „örfá
atriði varðandi fjárlög 1976”.
Fyrirsögnin gefur nefnilega
greinilega til kynna að í ieið-
aranum eigi ekki að gera
neina ailsherjarúttekt á fjár-
lögunum, eða að gefa tæm-
andi skýringar á þeim. En
þessu hefur greinarhöfundur
Skutuls gleymt og ber það
ótvírætt vitni þess að maður-
inn sé alveg óvenjulega
gleyminn.
Ekki skal fjölyrt hér í
blaðinu að þessu sinni um
greinina í Skutii, það getur
Gunnlaugur Finnsson sjálfur
gert síðar ef honum finnst
ástæða til. ‘En tilgangur
greinarinnar er augljóslega
sá að minna á Iþá Sighvat og
Karvel, því til þessa hefur
Mtið farið fyrir því að þeir
hafi sjálfir gert það með
verkum sínum á Alþingi.
stjórnmálaforingi sem hugs-
aði málin aldrei út frá þröngu
flokkshagsmunalegu sjónar-
miði, heldur jafnan út frá
því hvað þjóðinni sem heild
væri fyrir bestu. Hann skrif-
aði fjölda stjórnmálagreina
sem jafnan þóttu mjög at-
hygHsverðar og þá ekki hvað
síst yfirMtsgreinar hans um'
áramót.
Alla tíð lét Hermann sér
mjög annt um hagsmuni
kjördæmis síns. Það var oft
eftir því tekið hve fljótur
hann var að finna lausn á
og ráða fram úr ýmsum mái-
um sem að var unnið í kjör-
dæminu. Og hann hafði næmt
auga fyrir hvaða fram-
kvæmdir það voru sem sér-
staklega þyrfti að hraða.
Vinsældir hans í kjördæminu
voru alia tíð mifclar og náðu
raunar iangt út fyrir raðir
Frams óknarmanna.
Hermann kvæntist eftirlif-
andi konu sdnni, Vigdísi
Steingrímsdóttur, 30. maí
1925. Böm þeirra eru Stein-
grímur, alþingismaður, kvænt-
ur Eddu Guðmundsdóttur og
Pálína, húsmóðir, gift Svein-
birni Dagfinnssyni, lögfræð-
ingi og ráðuneytisstjóra.
Að leiðarlokum eru Her-
manni Jónassyni þökkuð mikil
og giftudrjúg störf í þágu
alþjóðar og alveg sérstaklega
eru honum hér fluttar þafckir
fyrir störf hans öll í þágu
Strandasýslu og síðar Vest-
fjarðakjördæmis. Undir þær
þakkir hygg ég að aliir
Framsóknarmenn í Vest-
fjarðakjördæmi muni taka
heils hugar.
Jón Á. Jóhannsson