Ísfirðingur - 02.10.1976, Page 2
2
ISFIRÐINGUR
Útgefandi:
Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi.
Riistjórar:
Malldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb.
AfgreiSslumaóur:
Guðmundur Sveinsson, En'jjavegi 24, sími 3332.
SKATTAMÁLEFNI -
VERÐBÓLGAN
Síðla sumars var þáttur um skattamál í sjónvarpinu. Hann
var umhugsunarverður, og þó einkum vegna þess hvað lítið
var á honum að græða. IVIenn töluðum um réttlæti og jöfnuð.
Það vantaði ekki. Minna var talað um hitt, hvernig það ætti
að nást.
Það var athyglisvert að í öllu þessu jafnréttistali virtist
koma fram áhugi fyrir því, að skattfríðindi þau, sem kennd
eru við útivinnu eiginkvenna, fengju að haldast þó að sér-
sköttun hjóna kæmist á.
Sá misskilningur virtist koma fram hjá sérfræðingi Al-
þýðusambandsins að launaslkattur og aðstöðugjald væru ekki
lögð á atvinnurekstur, heldur aðeins falin atvininurekendum
til innheimtu. Það var raunalegt að heyra.
Úr hópi blaðamanna mátti heyra annað eins og það, að
breyta ætti lögum svo að menn létu ekki fyrirtæki sín fram-
færa sig án þess að telja sér til tekna, — rétt eins og þeir
héldu að einhver lög heimiluðu slíkt. Vissulega komu sumir
heldur illa lesnir í þennan tíma.
Merkilegast í þættinum voru orð Ólafs Nilssonar um verð-
bólguna. Hann benti á, að það er raunar EKKI HÆGT AÐ
NÁ ALMENNU RÉTTLÆTI f VERÐBÓLGULANDI.
Það er tómt mál að tala um réttlæti meðan verðbólgan er
eins og verið hefur. Verðbólgan veldur því, að menn fá
nauðsynjar sínar á mismunandi verði. Sumir borga húsa-
skjólið margföldu verði á við aðra. Sami ójöfnuðurinn segir
til sín í ölium reksturskostnaði.
Framleiðsluverð og launakjör miðast smám saman við
eitthvað meðaltal þanmig, að það verður of lítið fyrir suma,
en óþarflega mikið fyrir aðra.
Sá gamalgróni fær umfram þarfir og verðleika, það sem
byrjandinn þarf og verðskuldar, en fær ekki.
Þessu fylgir svo það, að ómögulegt er að lögfesta skatta-
ákvæði öðruvísi en svo, að þau verði hlálega rúm fyrir einn,
ef þau verða ekki óþolandi fyrir annan,. Þetta er ranglæti
verðbólgunnar.
Þá eru ótalin þau áhrif hennar að hún veldur varanlegri
lánsfjárkreppu. Það gerir hún með því móti að stöðugt þarf
fleiri og fleiri krónur í sama rekstur. Þó fjölgar alltaf þieim
krónum sem eru í umferð eftir því sem þær smækka, en samt
sér verðbólgan um það, að fjölgunin er alltaf á eftir þörf-
inni.
Önnur og enn verri áhrif verðbólgunnar eru þau, að menn
vilja ekki geyma fé. Mörgum finnst það nauðsyn að eyða
öllu aflafé sínu eftir hendinni og raunar helst fyrirfram. Það
hafa svo margir auðgast á því að sökkva sér í skuldir. Gamla
ráðdeildin hefur svipt svo marga eignum sínum. Glataður er
geymdur eyrir!
Höfuð einkenni verðbólgunnar er það, að velta byrðunum
af sér á þá sem á eftir koma. Það er hvorki réttlátt né
dnengilegt. Og það er ekki skynsamlegt heldur.
Víst er það furðulegt hvað eftir er af sparsemi, vinnusemi
og ráðdeild með þessari iþjóð. Samt er það greinilegt að un,gt
fólk, sem vill verða sjálfbjarga og tryggja hag sinn, dreymir
einkum um að eignast eitthvað slem hægt er að selja aftur,
— og helst að eignast það í skuld.
Verstu áhrif verðbólgunnar eru spilling hugsunarháttarins.
Menn vilja eignast án þess að borga. Það hafa svo margir
komist fram með það, að fá lánaða kú og borga hana með
lambi.
Bókasafnið ísafirði
Frá og með 1. okt. nk. verður safnið opið
sem hér segir:
ÚTLÁN:
þriðjudaga
miðvikudaga
fiimntudaga
föstudaga
laugardaga
kl. 2—7
kl. 2—7 og 8,30—10
kl. 2—7
kl. 2—7
kl. 2—4
LESSTOFAN:
þriðjudaga—föstudaga kl. 2—7.
HNÍFSDALSSAFN:
þriðjudaga kl. 5—6,30
laugardaga kl. 2—4
TALBÆKUR (segulbandsupptökur)
lánaðar blindum, sjóndöprum og fötluðum
— einnig gefst þeim kostur á að hlusta
á þær í safninu.
GRAFlKMYNDIR lánaðar út endur-
gjaldslaust.
Tvö héraðsmót
Sextugur
Kristinn L. Jónsson
Kristinn L. Jónsson, húsa-
smíðameistari, Sundstr. 31 A
ísafirði, varð sextugur 29.
september s.l. Hann er fædd-
ur á ísafirði. Foreldrar hans
vcru Kristón Aradóttir og Jón
Leví Friðriksson. Kristinn
ólst upp að Leiru í Jökul-
fjörðum hjá hjómunum Ragn-
hildi Ólafsdóttur og Guð-
mundi Tómassyni.
Á árinu 1934 flutti Krist-
inn til ísafjarðar og hóf þá
nám í húsasmíði hjá Albert
Kristjánssyni, húsasmiða-
meistara, og lauk hann námi
í þeirri iðn. Síðan hefur
Krisitinn átt heima hér í bæn-
um og alltaf unnið að iðn
sinni. í mörg ár hefur hann
rekið Trésmíðavinnustofuna
Reynir s.f. ásamt Sigurði H.
Bjarnasyni, húsasmíðameist-
ara.
Kristinn er ágætur iðnaðar-
maður og er fullkomlega hægt
að treysta því að öll verk sem
hann tekur að sér séu vel og
vandiega unnin. Hann er
mesta prúðmenni, viðkynn-
ingargóður og velviljaður.
Eiginkona Kristins er Anna
Sigríður Kristjánsdóttir, ætt-
uð úr Arnarfirði. Þau eiga 5
börn, 3 dætur og 2 syni, sem
öll eru mannvænleg og vel
gefin.
Ég og kona mín óskum
Kristni og fjölskyldu hans
allra heilla í tilefni afmælis-
ins og þökkum ágæt kynni.
Héraðsmót framsóknar-
manna í Strandasýslu var
haldið að Laugarhóli í Bjarn-
arfirði 7. ágúst s.l. Var mótið
haldið á vegum Framsóknar-
félags Kaidrananhr. Magnús
Gunnlaugsson á Ósi setti
mótið og stjómaði því.
Ræðumenn á mótinu voru
Guðmundur G. Þórarinsson og
Steingrímur Hermannsson.
Var ræðum þeirra mjög vél
tekið. Skemmtiatriði önnuð-
ust Gísli Rúnar og Baldur
Brjánsson, við mjög góðar
undirtektir.
Að lokum var haldinn dans-
leikur cg lék ágæt hljómsveit
fyrir dansinum. Fjölmenni
var á héraðsmótinu og dans-
leiknum.
Héraðsmót framsóknar-
manna var haldið að Suður-
eyri i Súgandafirði laugar-
daginn 18. september s.I.
Framsóknarfélag Súgfirðinga
sá um mótið. Hörður Smári
Hákonarson setti mótið og
stjórnaði því.
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntcunálaráðh. og Stein-
grimur Hermannsson, al-
þingismaður, fluttu ræður og
var mjög góður rómur gerður
að ræðum þeirra. Um
skemmtiatriði sáu Baldur
Brjánsson og Jóhannes Krist-
jánsson, cg var þeim báðum
vel fagnað.
Að loknu héraðsmótinu var
haldinn dansleikur við undir-
leik hljómsveitarinnar Mi-
mósa. Mikið fjölmenni var á
héraðsmótinu og dansleikn-
um. Almenn ánægja var með
bæði ofangreind héraðsmót.
Kauplélags-
stjórur ráðnir
Sigurður Kristjánsson, sem
hefur verið um mörg undan-
farin ár skrifstofustj. Skipa-
deildar S.Í.S. í Reykjavík,
hefur verið ráðinn kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Dýrfirðinga
frá næstu áramótum. Páll
Andreasson sem verið hefur
kaupfélagsstjóri Kf. Dýrfirð-
inga sagði starfi sínu lausu
Jón Á. Jóhannsson
Þegar áhrif verðbólgunnar að þessu leyti eru athuguð
sjáum við að hún ier þjóðarböl. Henni fylgir siðspilling.
Með þessu er ekki sagt að verðlag megi aldrei breytast. Við
það getum við ekki ráðið. En við ættum að geta verið nálægt
því, sem gerist í helstu viðskiptalöndum okkar. Við megum
ekki sætta okkur við annað en að peningaeign haldi gildi
sínu svo að höfuðstóll rýrni ekki.
Veigamesti þátturinn í verðbólgunni hér er sú stjórn eða
óstjórn efnahagsmála, sem leitt hefur til gengisfellinga. Það
er heimatilbúið.
Við skulum ekki vanmeta það siem reynt er að gera jákvætt.
Verðtrygging lána er einna merkilegast þéss sem gert er til
jafnvægist og andófs gegn verðbólgunni. Þar dugar alls ekki
að taka einstök lán út úr. Verðtryggingin þarf að verða
almenn. Þá ©r hún réttlát, ef hún fylgir launakjörum og
afurðaverði.
Og eru menn ekki alltaf að tala um réttlæti? Skyldi verð-
bólguhjólið stöðvast gerir tryggingin engum mein.
H. Kr.