Ísfirðingur - 25.01.1983, Page 3
ÍSFIRÐINGUR
3
störf hjá Samvinnubanka ís-
lands útibúinu á Patreks-
firði og hefur unnið þar síð-
an og nú sem útibússtjóri
bankans.
Frá því Sigurgeir fluttist
til Patreksfjarðar hefur
hann starfað allmikið að
hinum ýmsu félagsmálum.
Hann átti sæti í sveitarstjórn
Patrekshrepps á árunum
1974-1982 og átti þá jafn-
framt sæti í ýmsum nefnd-
um innan hreppsins. Hann
mætti um árabii sem fulltrúi
á fjórðungsþing Vestfirðinga
og sat aðalfundi Orkubús
Vestfjarða. 1978-1982 átti
hann sæti í Fræðsluráði
Vestfjarða.
Fyrstu ár sín á Patreks-
firði varð Sigurgeir endur-
skoðandi Kaupfélags Pat-
reksfjarðar, en síðan stjórn-
armaður og nú síðustu árin
stjórnarformaður Kaupfé-
lags Vestur- Barðstrendinga.
Hann á sæti í fulltrúaráði
Samvinnutrygginga og
Ándvöku. Þá má nefna það
að j að hann hefur alllengi
átt sæti í stjórn Framsóknar-
félags Patreksfjarðar og er
nú í miðstjórn Framsóknar-
flokksins.
Steingrímur Hermannsson
Góðir Vestfirðingar og
Strandamenn
Kjördæmissamband
Framsóknarmanna hefur á-
kveðið að efna til skoðana-
könnunar um framboðslista
flokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi fyrir Alþingiskosning-
arnar í vetur eða vor. Um
það er ekkert nema gott eitt
að segja. Eðlilegt er að
flokksmenn velji sína full-
trúa.
Fyrst fór ég í framboð
1967 en þingmaður Vest-
fjarða hef ég verið síðan
1971. Þessi tími hefur orðið
mér afar eftirminnilegur. Ég
hef kynnst fjölmörgum dug-
miklum einstaklingum. Þau
kynni og sagan og lífsbarátt-
an á Vestfjörðum og
Ströndum hefur orðið mér
sérstaklega lærdómsrík. Hér
eru jafnframt verkefnin
mörg og áhugaverð. Ég
fagna því að hafa fengið
tækifæri til þess að takast á
við þau.
Undanfarin ár hafa örlög-
in ráðið því, að ég hef haft
með höndum all ábyrgðar-
mikil störf í íslensku þjóðfé-
lagi. Þau hafa karfist mikils
af tíma mínum. Ég hef því
ekki getað ferðast um kjör-
dæmið eins og ég hefði vilj-
að og tel mikilvægt. Von
mín er þó sú, að það, sem
sæmilega hefur tekist í mín-
um störfum, teljist ekki síður
í þágu Vestfjarðakjördæmis
en annarra landshluta, enda
er ég í mínu starfi sem þing-
maður Vestfirðinga.
Ég hef ákveðið að gefa
enn kost á mér til framboðs.
Verkefnin eru mörg og i
þágu Vestfirðinga og
Strandamanna vil ég helst
vinna. Störf mín mun ég
ekki tíunda. Þið þekkið þau.
Ekki mun ég heldur annað
loforð gefa en það, að ég
mun á meðan ég er þing-
maður ykkar vinna að fram-
faramálum kjördæmisins og
íbúa þess af þeirri atorku,
sem ég get.
Framsóknarmönnum í
Vestfjarðakjördæmi þakka
ég kynnin og samstarfið
undanfarin 15 ár. Ég óska
ykkur og öllum íbúum kjör-
dæmisins farsældar um
framtíð alla.
Steingrímur Hermannsson.
Sveinn Bernódusson
Sveinn Bernódusson er
fæddur í Bolungarvík 18.
júní 1953 og hefur búið þar
alla ævi.
í uppvexti sínum vann
Sveinn við almenn sveitar-
störf og almenna verka-
mannavinnu þar til hann
hóf nám í vélsmiði 16 ára
gamall. Hefur hann unnið
að iðn sinni síðan og sein-
ustu árin í eigin fyrirtæki.
Sveinn gekk í Fram-
sóknarfélag Bolungarvíkur
1971 og var m.a. formaður
þess í þrjú ár. Hann á sæti í
miðstjórn flokksins og í mið-
stjórn Sambands ungra
framsóknarmanna. Hann
hefur verið varabæjar-
fulltrúi í bæjarstjórn Bol-
ungarvíkur frá 1978, setið
kjördæmisþing og flokks-
þing.
Sveinn sagði, að áhugi á
landsmálum yfirleitt, hefði
komið honum til að gefa
kost á sér í þessari könnun.
Hann taldi atvinnumálin
einna helst þarfnast úr-
lausnar og að koma yrði
málum þannig að Vestfirð-
ingar gætu lifað sæmilega af
því sem hér væri boðið upp
á. Auka yrði fjölbreytnina í
atvinnulífinu hér. Þá taldi
hann, að ástand í orku- og
samgöngumálum Vestfirð-
inga yrði að laga og að þessi
mál tengdust öll innbyrðis.
Össur Guðbjartsson
Össur Guðbjartsson er
fæddur að Láganúpi,
Rauðasandshreppi, Vestur-
Barðastrandasýslu 27. febrú-
ar 1927 og hefur átt þar
heima alla sína ævi.
Össur hefur aðallega
stundað búskap, en þó unn-
ið ýmis störf sem til hafa
fallið og var m.a. barna-
kennari um tíma.
Hann hefur setið kjör-
dæmisþing fyrir Framsókn-
arflokkinn og verið á listum
flokksins fyrir alþingiskosn-
ingar. Þá hefur hann átt
sæti í hreppsnefnd sinnar
sveitar í 25 ár og síðustu 12
árin sem oddviti. í viðtali
við blaðið sagðist Össur hafa
ætlað að hætta í fyrravor, en
mikill meirihluti hreppsbúa
hefði óskað eftir því að hann
sæti áfram.
Sama sagan virðist hafa
endurtekið sig nú í haust,
því eina ástæðuna fyrir þátt-
töku sinni í skoðanakönnun-
inni kvað Össur vera þá, að
fólk í hans héraði hefði
mælst til þess við hann að
hann gæfi kost á sér til fram-
boðs.
Össur sagði, að sarn-
göngumálin væru sér hug-
leiknust og byggðamál yfir-
leitt. Nefndi hann sem
dæmi, að á síðasta ári hefði
íbúum í Rauðasandshreppi
fækkað um 15 og taldi hann
að sú hætta væri fyrir hendi,
að hinar strjálli byggðir
hryndu saman ef byggða-
málin fengju ekki sann-
gjarna meðferð.
Að lokum benti Össur á,
að mikið misrétti væri ríkj-
andi í menntunarmálum,
jafnvel i grunnskólanum, og
þar væri úrlausnar þörf.
Við áramót
Framlwlcl af bls. 4
sömu skólum. Þannig varð
ég vitni að því á liðnu vori,
að hópur námsmanna mars-
eraði ! nasistagerfi um götur
Reykjavíkur. Hvað er að
gerast í íslensku þjóðlífi? Er
stéttarbaráttan, sem einu
sinni var barátta um brauð,
að komast á það stig, að
kjörorðið gæri verið pening-
anna eða lífið? Er hluti af
okkar skólakerfi orðið svo
mannskemmandi, að
nasistadýrkun er árangur-
inn?
Framhald í næsta blaði.
ð/ Ísaíjarðarkaupstaður
ísafjörður, nágrenni
Athygli er vakin á , að bæjarbúum
gefst kostur á að eiga viðtöl við bæjar-
fulltrúa á tveggja til þriggja vikna fresti,
á föstudögum frá kl. 17:00 til 19:00
Föstudaginn 4. febrúar munu bæjar-
fulltrúarnir Hallur Páll Jónsson og Ingi-
mar Halldórsson verða til viðtals á
bæjarskrifstofunum frá kl. 17:00 til
19:00.
Bæjarstjórinn
Góðir ísfirðingar
Vegna skorts á dagvistarrými fyrir börn
á ísafirði eru mjög margir útivinnandi
foreldrar í miklum vandræðum með
börn sín.
Bráðvantar því fólk til að taka að sér
dagvistun í heimahúsum (dagmömm-
ur).
Þeir sem hafa áhuga, hafi samband við
undirritaðan ísafirði 7. jan. 1983
Félagsmálafulltrúinn,
bæjarskrifstofunum
Austurvegi 2. ísafirði
Póstur og sími
Laust starf
Staða ritsímaritara á loftskeytastöð
er laus.
Upplýsingar veitir stöðvarstjóri
Póstur og sími
ísafirði
VEGAGERÐ RÍKISINS
Laust starf
Vegagerð ríkisins, ísafirði óskar að ráða
skrifstofumann í hálft starf. Laun sam-
kvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Lára G. Oddsdóttir í síma 3911. Um-
sóknir skal senda Vegagerð ríkisins,
Dagverðardal, 400 ísafirði fyrir 25.
janúar 1983 á eyðublöðum, sem þar
fást.