Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.03.1983, Side 3

Ísfirðingur - 11.03.1983, Side 3
fSFIRÐINGUR í stuttu máli Framhald af hls. 4 Þarna er um stóran galla að ræða og engu líkara en að menn hafi ekki kunn- að á hallamæli. Tillaga hefur komið fram um að kaupa sturtuklefa í bað- herbergin. Þeir kosta um 200 þús. og hefur bæjar- ráð neitað að fallast á þessa tillögu. Ráðið vill fá fram könnun á því, hver beri ábyrgð á þessum mistökum og verður sá að borga. Mikill þakleki hefur komið fram á íbuðum við Garðaveg í Hnífsdal. í húsi leikskólans í Hnífsdal er mikill raki í vesturgafli, sem verður erfitt að losna við. Þá vekur það furðu, að við byggingu leikskól- anna í Hnífsdal, við Tún- götu og einnig dagheimil- ið, er ekki gert ráð fyrir húsrými til geymslu á úti- áhöldum. Nú skal reisa sérstaka geymsluskúra svipaða þeim sem menn höfðu áður fyrr við hús sín undir kol. Öll þessi mistök munu kosta bæjarfélagið mikla fjármuni og fyrirhöfn. Þó er hér aðeins minnst á það helsta af löngum lista. Hér þarf svo sannar- lega að breyta til í þá veru, að hönnuðir, verk- takar og eftirlitsmenn, at- hugi sín verk betur en nú er. Ár þingflokksformanna Þótt ekki liggi fyrir enn úrslit úr prófkjöri krata hér á Vestfjörðum þegar þetta er skrifað, þá virðist ljóst að þetta einvígi ald- arinnar, eins og sumir hafa kallað slaginn, hefur gengið mjög nærri þeim köppunum Sighvati og Karvel. Þaannig mun Sighvatur hafa fengið taugaáfall, þegar hann heyrði að Ólafur G. Ein- arsson, formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, hefði lent í fjórða sæti í Reykjaneskjördæmi. En eins og flestir rhuna þá hafði annar þingflokksfor- maður, Ólafur Ragnar Grímsson, áður verið úti- lokaður frá þingmennsku á næsta þingi, með því að vera settur í fjórða sæti hja kommum í Reykja- vík. Hjá Ólafi munaði að- eins einu atkvæði og hefði Ólafur sjálfur haft at- kvæðisrétt í Reykjavík þá hefði kona hans, Guðrún Þorbergsdóttir, getað ráð- ið úrslitum um hvort Ól- afur hefði haft Guðrúnu Helgadóttur undir. Það er þó talið alls óvíst að Guðrún Þorbergsdóttir hefði kosið bónda sinn. En Sighvatur sá nú við því að svona mistök hentu ekki hér vestra. Hann flutti lögheimili sitt hingað á Herinn, þar sem hann er skráður með sína sex manna fjölskyldu. Mun ætlunin að setja inn þrefaldar kojur í þessu eina herbergi á Hernum svo fjölskyldan geti sofið þar öll saman, ef til kem- ur. Heldur mun þó verða þröngt um fjölskylduna, þar sem hún er heldur ekki smávaxin. Þá hefur verið sagt að Karvel og lið hans og þar með vega- málastjórinn í Bolungar- vík, hafi gengið berserks- gang fyrir prófkjörið og smalað saman fólki úr öll- um flokkum og auk þess flokksleysingjum. Þannig mun Tausen frá Flateyri hafa útvegað tvo fulla frystigáma af atkvæðum úr Reykjavík og sent hingað vestur, sem þakk- lætisvott við Karvel fyrir dyggan stuðning á liðn- um árum. Þá mun odd- vitinn á Patreksfirði hafa gengið þar fram fyrir skjöldu í öflun atkvæða fyrir Karvel. Hér á ísa- firði mun Karvel hafa fengið rúmlega 100 at- kvæði og komu þar við sögu m.a. yfirlýstir sjálf- stæðismenn og kommar, sem ekki munu sérlega vinveittir Sighvati. Nú er bara að sjá hvort þriðji þingflokksformað- urinn fellur út af þingi í prófkjörsslagnum hér vestra, en það virðist ekki ára vel hjá þingflokksfor- mönnum þetta árið. Kaupfélag V-Barðstrendinga Erum með mikið úrval af hátíðamat frá okkar eigin kjötvinnslu Svínakjöt — Nautakjöt Dilkakjöt reykt og nýtt Kjúklingar og margt fleira Sérstakt Páskatilboð á Londonlömbum og hangikjöti MIKIÐ ÚRVAL AFPÁSKAEGGJUM KVB Örlygshöfn Krossholti Bíldudal Patreksfirði Nýtt Vestfjarðaumboð Höfum tekið að okkur söluumboð fyrir SÆLGÆTISGERÐINA FREYJU, KÓPAVOGI, og NORSKU FREIU Stærstu sælgætisgerð Noregs >Freyju sœlgœti“ fyrirliggjandi „Freiu sœlgœtP* vœntanlegt í marz , í . > .... ■ , <Mc X' - 'K 'M MtePsr:* SANDFELL HF SUÐURGÖTU - SÍMAR 3500 & 3570 Hleðslugler utanhúss sem innan Jupiter 24x24x8 cm. Oríon 24x 24 x 8 cm. Malta 19x 19x8 cm. Wolke 19 x 19x8 cm. og 24x24x8 cm. Sýningarbás hjá Byggingaþjónustunni Hallveigarstíg 1, Reykjavík. GLERVERKSMIÐJAN Samverk hf. Síml 99-5888 — 850 Hellu

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.