Monitor - 02.09.2010, Qupperneq 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
Komdu í klúbbinn sem lætur
ekki bjóða sér hvað sem er
Verð frá 489.000 kr.
Viltu komast í útvalinn hóp fólks sem velur ekta hönnun og varast eftirlíkingar? Þá er
ekta Vespa frá Piaggio eitthvað fyrir þig. Komdu og skoðaðu glæsilegt úrval í
sýningarsal Heklu eða á vespur.is og vertu með í MC Vespa hópnum á Facebook.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fóstbróðir í
forsetann?
Orðið á götunni er að hópur
fólks vilji að leikarinn Benedikt
Erlingsson bjóði sig fram í embætti
forseta Ísland þegar kosið verður
árið 2012. Benedikt yrði ekki fyrsti
meðlimur Fóstbræðra til að taka
að sér valdastöðu á Íslandi, því Jón
Gnarr varð auðvitað borgarstjóri
í maí. Þá er bara spurning hvort
annað hvort Sigurjón Kjartansson
eða Þorsteinn Guðmundsson gæti
orðið forsætisráðherra þjóðarinnar.
Níu vikur í röð
á toppnum
Helgi Björnsson og Reiðmenn
vindanna gáfu fyrr í sumar út
plötuna Þú komst í hlaðið og hefur
hún svo sannarlega malað gull.
Platan hefur verið sú mest selda á
Íslandi síðan hún kom út - í heilar
níu vikur - og hefur selst í um
fjögur þúsund eintökum. Þú komst í
hlaðið verður því vafalaust á meðal
mest seldu platna ársins í hópi með
Diktu-plötunni Get It Together og
fleiri góðum gripum.
„Ég þurfti bara að fá pásu frá brjál-
æðinu og áreitinu í bænum,“ segir
glamúrpían Vala Grand, sem flutti í
vikunni frá Reykjavík á heimaslóðir
sínar í Keflavík. Þar býr hún nú ein
með foreldrum sínum og segir
það mikið dekurlíf. „Það er
bara geðveikt meganæs að
vera komin aftur á hótel
mamma og pabbi. Ég er
yngsta barnið og þau hafa
gaman af því að dekra við
mig,“ segir Vala.
Hún gekkst undir
kynleiðréttingaraðgerð í
byrjun sumars, en hefur
að eigin sögn fengið
lítinn tíma til þess að
jafna sig og stöðugt verið
í kastljósi fjölmiðla. „Ég
gat varla farið niður í bæ.
Hérna í Keflavík er miklu
rólegra og það er þægilegt
að vera hér á meðan ég er
að reyna að ná mér aftur í
jafnvægi. Ég þurfti mikið á
þessu að halda,“ segir Vala.
Hún segist sjaldan hafa
verið hamingjusamari,
enda byrjuð að
jafna sig eftir
aðgerðina sem hún þráði svo lengi að
gangast undir. „Að fara frá því að vera með
typpi yfir í að vera með píku er klikkað,“
segir Vala og þegar hún er beðin um að
nefna dæmi um það sem er skrítnast við
umskiptin segir hún hlæjandi: „Maður þarf
að þrífa svo mikið. Klósettpappírinn klárast
bara einn, tveir og þrír.“
Voru hætt saman fyrir aðgerðina
Vala hefur undanfarin tvö ár búið með
unnusta sínum, blikksmiðnum Baldvin
Vigfússyni, en nýlega bárust fréttir af því
að þau hefðu hætt saman. Vala segir að
sambandsslitin hafi í raun átt sér stað
miklu fyrr en almenningur hélt. „Við vorum
alveg hætt saman fyrir aðgerðina, en við
vildum ekki segja neinum þá og létum eins
og við værum bara hamingjusöm saman.
Við ætluðum okkur að bíða með að tilkynna
þetta í alveg hálft ár því þjóðin var geðveikt
að styðja okkur saman. En svo gátum við
ekki verið að þykjast lengur,“ segir Vala.
Hún tekur fram að þau Baldvin séu enn
mjög góðir vinir. „Við tölum reglulega
saman, en það er ekkert á milli okkar
lengur,“ segir hún. Baldvin og Vala sáust
saman í Smirnoff-partíinu sem haldið var í
Saltfélaginu á dögunum og þá spruttu upp
sögur um að þau væru byrjuð aftur saman,
en Vala þvertekur fyrir það. „Það er bara
rugl. Hann er að deita á fullu. Hann var úti
í Frakklandi um daginn að missa sig yfir
einhverjum frönskum gellum,“ segir Vala.
Myndarlegur en nautheimskur
Vala hefur síður en svo setið auðum
höndum sjálf og nýtur þess í botn að vera
á lausu. „Ég er búin að vera að deita og er
með nokkra í takinu, en nú er ég bara að
leita að hinum eina rétta. Það er einn sem
ég er ógeðslega hrifin af, en ég vil ekki segja
hver það er strax,“ segir Vala. Stefnumótin
hafa þó ekki öll verið jafn góð.
„Um daginn fór ég í bíó með gaur og hann
vildi hafa autt sæti á milli okkar og geymdi
poppkornið þar. Hann vildi ekki að neinn
sæi að við værum saman,“ segir Vala sem
var að sjálfsögðu ekki sátt við uppátækið.
„Mér líður eins og sumir gaurar komi fram
Deitið vildi hafa autt
sæti á milli í bíóinu
Maður þarf að
þrífa svo mikið.
Klósettpappírinn klárast
bara einn, tveir og þrír.
Vala Grand er flutt til foreldra sinna í Keflavík þar sem hún ætlar að
taka því rólega. Hún nýtur þess að vera á lausu og er byrjuð að deita.
VALA GRAND ER MEÐ NOKKRA GAURA
Í TAKINU, ENDA EFTIRSÓTT PÍA
M
yn
d
/E
rn
ir
Þrjú í sömu sæng
Vala hefur mikið verið með söngvaranum Haffa Haff
síðustu vikur og segir erfitt að vera svona langt fjarri
honum. „Ég sakna Haffa Haff ógeðslega mikið núna. Við
erum alveg BFF. En ég sagði við Haffa að á meðan ég er í
Keflavík hangi ég bara með Óla Geir í staðinn,“ segir Vala.