Monitor - 25.11.2010, Blaðsíða 10

Monitor - 25.11.2010, Blaðsíða 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Stíllinn bað Ernu og Aron um að sýna sér 10 hluti sem eru þeim kærastir Battle of the Bergmann’s... Erna Bergmann Erna Bergmann fatahönnuður er 27 ára hæfileikarík, ung kona en hún útskrifaðist úr fatahönnun frá Listaháskólanum vorið 2009. Erna hefur komið við víða og verið með puttana í ýmsum verkefnum á sviði tísku og hönnunar. Hún hefur unnið í versluninni KronKron í tæp 5 ár og aðstoðaði nýverið eigendurna við fyrstu fatalínu þeirra sem kemur í verslunina um mánaðarmótin. „Ég er búin að vinna með þeim það lengi að ég skil hugsjón þeirra og hugarheim og veit hvað þau vilja,“ segir Erna. Einnig vann hún að fatalínu E-label, ásamt Hörpu Einarsdótt- ur, sem kom í búðir í byrjun nóvember. Sala á línunni hefur gengið mjög vel og heyrst hefur að einn kjóllinn eftir Ernu hafi vakið mikla lukku. Alltaf til í krefjandi verkefni Aðspurð hvað sé næst á dagskrá segist Erna vilja fara að stíga á bremsuna. „Ég ákvað að minnka aðeins við mig, ég segi nefnilega alltaf já við öllu sem mig langar til að gera þannig að ég er hálfpartinn búin að vinna yfir mig. Núna ætla ég að einbeita mér að KronKron og hjálpa við að byggja upp fyrirtækið sem er að stækka svo hratt. En annars er ég alltaf til í spennandi og krefjandi verkefni,“ segir hún. „Það er gaman að sjá hvað það er mikil vakning og fólk er að sýna samstöðu. Þetta eru spennandi og skemmtilegir tímar. Verslunin Kiosk er til að mynda snilldarhugmynd og er gott dæmi um þá samstöðu sem ríkir á milli íslenskra hönnuða í dag. Pop Up markaðurinn hefur einnig sýnt að það er mikill markaður fyrir íslenskri hönnun. Reykjavík Fashion Festival er einnig frábært framtak og ákveðinn stökkpallur fyrir hönnuði. Auk þess hafa ungir fatahönnuðir eins og Kalda, Mundi og Royal Extreme opnað fataverslanir við Laugaveginn síðasta árið, að ógleymdum Kron by Kronkron skónum hafa fengið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Þetta sýnir að það er mikil uppsveifla í íslenskri fatahönnun og það er fag sem þarf að styrkja og efla enn frekar,“ segir Erna Bergmann. Aron Bergmann Þrítugi myndlistarmaðurinn Aron Berg- mann lærði myndlist í fallegu borginni Flórens á Ítalíu en vinnur nú sem leikmynda- hönnuður og propsari. Aron er Keflvíkingur í húð og hár þó hann búi í miðbæ Reykjavíkur í dag. Áhugi hans á leikmynd og myndlist kviknaði snemma en hann skellti sér í leikfélag sem lítill polli. „Ég var í leikfélagi frá því að ég var 10 ára gamall. Síðan fór ég til Akureyrar í eitt ár og var í myndlistarskóla þar, en ég var líka að vinna hjá Leikfélagi Akureyrar á meðan ég var í skólanum og var þá að hjálpa til við leikmyndir og dansa í leikritum og svona.“ Núna er Aron að vinna í propsinu í áramótaskaupinu. „Við klárum í lok nóv- ember og það gengur mjög vel,“ segir Aron. Hann hefur unnið í mörgum auglýsingum og bíómyndum og var hann meðal annars að vinna í nýjasta myndbandi hljómsveitar- innar Hurts sem var tekið upp hér á landi í september. Skemmtilegast að „dútla“ Aroni finnst skemmtilegast að skapa eitthvað fallegt og mála. „Ég er þó ekki búinn að vera að mála eins mikið og ég hefði viljað. En mér finnst líka skemmtilegast að fá að gera svona „dútl“ verkefni, eins og t.d. þegar ástarfaraldur Ey- mundsson var, þá bjuggum við til öll litlu húsin, sem var virkilega skemmtilegt föndur.“ Verkefnin segir Aron koma meira og minna jafnóðum í þessum bransa. „Stundum er eitt og eitt planað fram í tímann. Núna er t.d. RFF (Reykjavík Fashion Festival) á næstunni.“ Hann hlakkar þó til jólanna og segir að sér finnist best að vera í fríi um jólin og taka því rólega. „Það verður nice að vera bara með stelpurnar mínar og hafa það kósí og baka. Ég nenni ekki að vera í neinu jólastressi.“ÞAÐ TOPPA FÁIR MOTTUNA HANS ARONS ERNA ER FLOTTUR FATAHÖNNUÐUR SAUMAVÉLINA KEYPTI HÚN Í HJÁLPRÆÐISHERNUM. HÚN ER HANDVIRK EN VIRKAR MJÖG VEL „ÉG SAFNA SKÓM, ÉG Á ALDREI OF MIKIÐ AF SKÓM“ SELF SERVICE BLÖÐIN ERU HENNAR UPPÁHALD EN HÚN SAFNAR ÞEIM ÞENNAN HRING ER ERNA ALLTAF MEÐ Á FINGRI ERNA SAFNAR DÝRALÖMPUNUM, EN HENNI FINNST ÞEIR GEFA SVO KÓSÍ BIRTU „VINIR MÍNIR OG VANDAMENN OG HUNDARNIR MÍNIR TVEIR“ TÖLVAN ER AÐ SJÁLFSÖGÐU ÓMISSANDI ERNA HLUSTAR MIKIÐ Á GAMALT ROKK OG ER VIVIENNE WESTWOOD UPPÁHALDS HÖNNUÐURINN MYND EFTIR HILDI YEOMAN: „HILDUR LÍKTI MÉR VIÐ STELPUNA Á MYNDINNI OG ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ ÞETTA SÉ ÉG“ „ILMVÖTNIN TVÖ SEM ÉG GET EKKI VERIÐ ÁN“ SÍMANN ÞARF ARON AÐ VERA MEÐ Á SÉR ENDA BUSY MAN „UPPÁHALDS SKÓRNIR MÍNIR. EF EINHVER SKÓSMIÐUR GETUR GERT VIÐ ÞÁ, ÞÁ MÁ HANN HAFA SAMBAND“ ARON ER Í KARLAKÓR KAFFIBARSINS EN ÞEIR HAFA VAKIÐ MIKLA LUKKU PENSLASETTIÐ ER ÁVALLT MÖST FYRIR MÁLARANN DÆTUR ARONS, CHLOE ANNA OG ÍSMEY MYRRA SÆTAR Í SVEITINNI ARON ER DUGLEGUR AÐ TAKA MYNDIR TIL AÐ EIGA GÓÐAR MINNINGAR ÞETTA APPARAT KEMUR SÉR VEL: „ÉG ER ALLTAF MEÐ HNÍFINN Á MÉR“ STÖFFIÐ ER SETT Í HÁRIÐ DAGLEGA ARON ER ALLTAF MEÐ GREIÐUNA VIÐ HÖND ARON NOTAR PLÖTUSPIL- ARANN MIKIÐ OG ERU ELLÝ VILHJÁLMS OG VILLI VILL Í MIKLU UPPÁHALDI Myndir/Allan stíllinn Tíska kemur og fer en stíll varir að eilífu -Yves Saint Laurent.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.