Ísfirðingur - 24.01.1989, Side 5

Ísfirðingur - 24.01.1989, Side 5
ÍSFIRÐINGUR 5 og gegnir erindum eftir þörfum. Síöan leitum við að þræðinum að nýju og Finnbogi heldur áfram): Á síðasta ári hefur verið hnignun í atvinnu- lífi hér og staða fyrirtækja hef- ur versnað, enda þótt atvinna hafi haldist að mestu leyti. Þessu verður maður auðvitað að segja frá. Maður fær stund- um að heyra að það séu mest neikvæðar fréttir héðan að vestan. Ef maður segir ein- hverjar aðrar fréttir af þessu ástandi væri það beinlínis frétt- afölsun. En að öllu samanlögðu ber ég mig ekki illa undan Vest- firðingum og fæ oft góð viðbrögð. Sérstaklega hefur það vakið athygli mína að burtfluttir Vestfirðingar hlusta grannt eftir fréttum héðan. Þeir fylgjast til dæmis margir með Landpósti, bæði ungir og gamlir. Nú ert þú kominn í nýtt og gott húsnæði. Hvaða breyting- ar þarf að gera hérna og hvenær er von á að þú fáir aðstöðu til að vinna útvarpsefni? Eins og ég saðgi áðan, er stefnt að því að hér komi svæði- sútvarp 1. október. Þá á að vera komin hér hljóðstofa, hægt að taka hér upp viðtöl og ganga frá þáttum. Það verða gram- mófónar og sendingarútbúnað- ur, þannig að það verður hægt að nota dreifikerfið Rásar 2. Að vísu hefur nú síðustu dag komið upp nokkurt vandamál fyrir norðan og austan. Stund- um hefur dægurmálaútvarpið lofað rúsínu í pylsuendann á sinni dagskrá og það borið upp á tíma svæðisútvarpsins. Þá lokast fyrir efni rásarinnar á maðan, á milli kl. 6 og 7 og menn telja sig missa af góðu efni. Fram til þessa hefur verið reynt að koma í veg fyrir að svæðisútvarpð rækist á við efni sem ætla má að allir landsmenn hafi áhuga á að heyra. Vantar þá samráð þarna á milli? Það var gengið út frá því í upp- hafi svæðisútvarps,m að dæg- urmáladeildin yrði ekki með feitt á stykkinu á þessum tíma, en það virðist eitthvað hafa ver- ið að breytast og ég veit að það er ekki ánægja með það. Hvar mun svæðisútvarp á Vest- fjörðum nást? Verður það alis staðar þar sem Rás 2 næst? Það er reyndar tæknilegur möguleiki á því. Mér sýnist því, að þessu verði dreift frá Bæjum og þannig náist í ísafjarðarsýsl- ur að mestu. Síðan er spurning hvort ekki verður hægt að dreifa þessu líka frá Stykkis- hólmi yfir á Barðaströnd og nágrenni. Ekki er ljóst hvernig verður með Strandasýslu fyrst um sinn. Hvaða hugmyndir gerðir þú þér um svæðisútvarp? Hvernig hafa svæðisútvarp á Akureyri og á Austfjörðum starfað? í fyrsta lagi er mikil breyting á því að senda dagskrárefni og sérstaklega fréttaefni í gegnum fréttastofu í Reykjavík út um allt land, eða senda héðan til Vestfirðinga. Þú ert orðinn þinn eiginn fréttastjóri og þá komum við aftur að þessu margumtalaða fréttamati. Fréttir verða miklu nær svæð- inu. Fréttir sem ekki eiga erindi í landsrásina geta átt erindi í þetta útvarp. Þetta verður að nokkru á sama grundvelli og fréttir héraðsblaðanna okkar. Þar má nefna staðbundið félags- líf, málefni sveitarstjórna, þessu verða gerð önnur skil en hægt væri í almennum fréttum. Þar er helst rætt um stærstu mál, fjárhagsáætlun eða stærri drætti í starfi. Þannig verður fréttamat annað og við kom- umst nær því sem er að gerast á svæðinu. Þar að auki byggir svæðisútvarp mjög mikið á fréttaritarakerfinu. Á Austurl- andi hefur Inga Rósa byggt upp mjög öflugt fréttaritarakefi. Þetta er nauðsynlegt til að þetta endi ekki sem einhvers konar ísafjarðarútvarp. Þeir hringja þá inn pistla frá hverjum stað. Þó menn tali um að lítið gerist í þessum kauptúnum frá degi til dags er þó alltaf eitthvað í deiglunni, það eru aflafréttir, félagslíf o.s. frv. Svona fréttir eiga einmitt erindi í svæðisút- varpið. Ég hef horft á þetta þannig að svæðisútvarp gæti gegnt sérstöku hlutverki á Vestfjörð- um, jafn drifð og byggðin er og samgöngur stopular á vetrum. Þetta gæti sameinað byggðir, því samgangur er víða lítill inn- byrðis. Gæti orðið ákveðinn menningarlegur og félagslegur tengiliður milli byggða. Hvaða hiutfall yrði milli frétta- efnis og dagskrárgerðar? Svæðisútvarp á þessu stigi er Hér er Finnbogi á nýju skrifstofunni með Nagra tækið. einkum og sér í lagi fréttir. Á Austfjörðum byrjuðu þeir á hálftíma, tvisvar í viku, en eru komnir upp í klukkutíma, tvi- svar í viku. Inga Rósa ráðlegg- ur okkur hér að byrja strax með klukkutíma. Þeir hafa þar fréttir, síðan svonefnt „Item“, þar sem ákveðin málefni eru tekin fyrir og svo auglýsingar. Mikilvægt er að fá samtímis þessu aðstöðu til að vinna þætti sómasamlega, og einhver aukning verður á mannafla. Á Egilsstöðum eru nú tvö og hálft stöðugildi starfandi við útvarp- ið. Finnbogi, frá útvarpi yfir til sjónvarpsins, hvað með sam- vinnu? Með tilkomu nýja útvarps- hússins breytast aðstæður. Það er gert ráð fyrir því að sjón- varpið fari í þetta hús þegar það verður fullbúið. Nú þegar hafa tæknideildir þessara stofnana verið sameinaðar og umræður hafa verið um frekara samstarf og hugsanlega sameiningu á- kveðinna þátta sjónvarps og útvarps. Við höfum leitt að því hugann við hönnun þessa húsn- æðis hvort rétt væri að sjón- varpið fengi hér eitthvert afdrep. Hér er sem kunnugt er einn fréttaritari fyrir sjónvarpð og annar á Bíldudal, en báðir með lélegar vélar. Ég hef ásamt Ingu Rósu Þórðardóttur átt tal um þetta við Boga Ágústsson, fréttastjóra sjónvarps og Helga H. Jónsson, sem er deildar- stjóri innlendra frétta þar sem þessi mál voru rædd. Það er vilji fyrir því hjá Sjónvarpinu að bæta þjónustuna við lands- byggðina, meðal annars með aþvf að til komi nýjar vélar, svokallaðar Super VHS, og það er á döfinni að við förum að gera eitthvað fyrir Sjónvarpið. Þannig mætti nýta aðstöðuna fyrir báðar stofnanir og koma í veg fyrir tvíverknað. Hvernig gengur að virkja frétt- aritara sem þú hefur á stöðu- num? Það er nú svolítið misjafnt. Við héldum nýlega fund um þetta á fréttastofunni syðra og það er vilji fyrir því að hlúa bet- ur að þessu starfi. Jón Baldvin Halldórsson fréttamaður er orðinn tengiliður við fréttarit- arana á landsbyggðinni og okk- ur á útstöðvunum og við vænt- um þess, að sú breyting hafi einhver áhrif. Þessu hefur tæp- lega verið sinnt nægilega frá fréttastofunni og fréttaritarar hafa kvartað yfir því að fá held- ur slaka þjónustu þar, þegar þeir hafa verið að hringja. Ný- liðar, sem ekki eru of vissir um eigin getu þurfa uppörvun og skilning. Ég held nú að þetta sé allt að lagast og ég get ekki neitað því að mér hlýnar um hjartaræturnar þegar ég heyri pistla frá fréttariturum mínum og hvet þá hér með til dáða. Eitthvað að lokum um hlutverk fréttamannsins? Hlutverk útvarps, hlutverk fréttamanna, hvað hefur frétta- gildi? Fréttagildi felst oft í því afbrigðilega, þannig að jafn og góður afli hefur auðvitað fréttagildi í sjálfu sér, en ekki eins og mokafli eða ördeyða, sem ekki var von á. Yfirleitt segi ég þó aflafréttir almennt, til upplýsingar. Hverjir eru skjólstæðingar fréttamannsins? Ætli það sé ekki hinn almenni borgari. Fréttamaður þarf að hafa dómgreind í lagi og hann verður að vera heiðarlegur og nákvæmur. allar fréttir þarf að baktryggja og vanda. Ég hef jafnan reynt að lesa fyrir menn það sem ég hef haft eftir þeim og hef yfirlett ekki fengið fréttir í hausinn. Alltaf kann að skeika einhverju smálegu í hita leiksins, en hjá því verður ekki komist með öllu. Ég get ekki annað sagt en ég sé í góðu sambandi við byggð- irnar hérna og ég hef aðgang að mjög mörgum til að afla frétta. Mjög margir hafa samband við mig og láta vita af fréttum. Mér þykir vænt um þetta samstarf og vil koma á framfæri þökkum til þeirra sem starfa þannig með mér. P.B. Svavar Gestsson Dagana 14.-16. janúar var Svavar Gestsson menntamála- ráðherra í heimsókn á ísafirði og í nágrenni. Ætlunin var að koma vestur föstudaginn 13. jan. og heim- sækja þá skólastaði í V-ís. allt til Þingeyrar, en vegna sam- gönguerfiðleika varð ekki af Menntamálaráðherra f ræðustóli. T.v. má sjá Smára Haraldsson formann skólanefndar Grunnskólans á ísafirði og t.h. Gerði G. Óskarsdóttur ráðunaut um skólamál. á Vestfjörðum því og frestaðist förin um einn dag. Með ráðherra voru í för Guð- rún Ágústdóttir aðstoðarráð- herra og Gerður G. Óskars- dóttir ráðunautur hans um skólamál. Farið var til Bolungarvíkur og skoðuð þar skólamannvirki og bókasafn og snæddur hádeg- isverður í boði bæjarstjórnar. Fundur um skólamál var svo haldinn á ísafirði á laugardag. Var hann vel sóttur og um- ræður fjörugar. Ráðherra og föruneyti hans skoðuðu ýmsar stofnanir á ísafirði á vegum bæjarstjórnar, heimsóttu síðan grunnskólann á ísafirði, litu við í Bræðratungu og heilsuðu upp á heimilismenn, skoðuðu gamla sjúkrahúsið og fleira. Þá var einnig annar fundur með skólafólki, að þessu sinni var fjallað um framhaldsskólamál. Almenn ánægja var með komu menntamálaráðherrans hingað vestur og hversu margt hann sá ásamt fylgdarliðið sínu, Ráð- herrann hafði við orð að reyna að fara víðar um Vestfirðina í næstu heimsókn. Hann sagði nægan tíma, því hann teldi líklegt að hann sæti um sjö ár í þessu embætti, eða því sem næst! Kvöldið áður en menntamála- ráðherrann kom til ísafjarðar voru hér tveir aðrir ráðherrar, þ.e. fjármála og utanríkismála. Voru þeir með fjörugan og fjöl- mennan fund í Alþýðuhúsinu á ísafirði, auk þess sem þeir skutu upp rauðum sólum, bæjarbúum til skemmtunar. Ekki verður fjallað um þennan fund hér, enda hafa flestir fjöl- miðlar gert honum nokkur skil. PB.

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.