Ísfirðingur


Ísfirðingur - 24.01.1989, Blaðsíða 6

Ísfirðingur - 24.01.1989, Blaðsíða 6
6 ÍSFIRÐINGUR IsaQarðarkaupstaður Deiliskipulag Auglýst er deiliskipulag sjúkrahússreits á ísafirði, en þar er m.a. gert ráð fyrir kirkju- byggingu, í samræmi við grein 4.4. í skipu- lagsreglugerð nr. 318/1985. Skipulagstillagan liggur frammi á 1. hæð í Stjómsýsluhúsinu frá og með 3. janúar 1989 til 31. janúar sama ár. Athugasemdir, ef einhverjar em, skulu vera skriflegar og berast bæjarstjóm fyrir 1. fe- brúar 1989. Bæjarstjórínn á ísafirði. Frá sorpbrennslustöðinni á Skarfaskeri Tilgangur auglýsingar þessarar, er að vekja athygli hlutaðeigandi á þeim vanda sem skapast í sorpbrennslustöðinni á Skarfaskeri, þegar sett er óbrennanlegt msl í sorppoka sem berast til hennar. Sorpbrennslustöðin er byggð til brennslu á heimilissorpi. Það veldur því miklu tjóni á stöðinni þegar hent er gleri, járni og sam- bærilegu sorpi í hana. Sorp það sem hér hefur verið nefnt veldur tjóni á hleðslusteini, sem ofninn er einangraður með, völsum sem færa ruslið niður í ofninn og ristum sem em í botni hans. Viðhald á þessum hlutum er mjög dýrt. Það em því tilmæli okkar sem að rekstri sorp- brennslunnar standa, að heimilssorp sé flokkað áður en það er sett í mslapokana. Látið ekki gler, grjót og járn í poka sem fara í sorpbrennslustöðina, hendið því á sorp- hauga fyrir óbrennanlegt sorp. Sé farið eftir þessum tilmælum verður rekstur sorpbrennslustöðvarinnar ódýrari og því hægt að nota þá fjármuni sem annars fara í viðhald, til annarra framkvæmda í sveitarfé- laginu. Stjóm sorpbrennslustöðvar á Skarfaskerí. Húsmæðraskólinn Ósk Námskeið í vetur ☆ saumar — bútasaumur ☆ vefnaður — ☆ postulínsmálun — almenn matreiðsla — ☆ gerbakstur — ☆ örbylgjuofnar — ☆ smurt brauð — ☆ sjávarréttir — tertur og kökur — ☆ heilsufæði — og fleira Upplýsingar í skólanu í síma 3025. Skólastjórí. Dagheimili - Leikskólar Fóstmr og aðstoðarmenn vantar í eftirtaldar stöður: Bakkaskjól: 50% staða eh., laus nú þegar. 50% staða eh., laus frá 1. mars nk. Eyrarskjól: 50% staða í afleysingar. 50% staða fh. frá 1. febrúar. Upplýsingar veita forstöðumenn viðkomandi dagvistarheimila. Iðnaður á Borðeyri Á Borðeyri hefur verið starf- rækt síðast liðin 9 ár vélaverk- stæði í eigu hlutafélagsins Klappar. Að hlutafélaginu standa nokkur fyrirtæki og fé- lög þar í sveitinni, aðallega tengd landbúnaði. Fyrst og fremst hefur verkstæð- ið annast vélaviðgerðir og við- hald ýmis konar og hafa að jafnaði fjórir menn starfað að því. Til að fylla í eyður, sér- staklega yfir vetrartímann hafa verið framleiddir á verkstæðinu stauraborar og sturtuvagnar. Með því hefur verið hægt að tryggja þremur mönnum at- vinnu á veturna. Stauraborinn sem getið er um hér að framan er ætlaður fyrir girðingarstaura. Hann er festur aftan á traktor og tengdur í frí- tengi. Borinn er að öllu leyti smíðaður hjá Klöpp h.f., að því undanskildu að drifkúla úr bíl er notuð. Þessir borar hafa reynst mjög vel, t.d. í hörðu og grýttu landi þar sem erfitt hefur verið að girða undir venju- legum kringumstæðum. Bor- arnir hafa mikið verið notaðir í mæðiveikigirðingum. Þá hafa líka verið framleiddir borar fyr- ir vegstikur. Sturtuvagnarnir eru einnig fyrir traktora. Þeir bera 5 tonn. Fyrirhugað er að framleiða vagna sem borið geta 7-8 tonn. Það verður gert með hliðsjón af því hversu öflugir og stórir traktorar eru að verða nú til dags. Þessir vagnar taka tvær breiddir af stóru heyrúllunum, sem sífellt eru að verða algeng- ari í heyskapnum. Ofangreindar upplýsingar eru fengnar með viðtali við Svein Karlsson í Vélsmiðjunni á Borðeyri. Ef einhverjir lesenda ísfirðings hafa áhuga á því að vita meira um þessa starfsemi, eða fá nán- ari upplýsingar er þeim bent á að hafa samband við Svein. Hann næst í símum 95-1145 og Frá Borðeyri. Myndin er tekin 1983. Útvörður Tímarit samtaka um jafnrétti milli landshluta Út er komið tímaritið „Útvörð- ur,” sem gefið er út af Samtökun- um um jafnrétti milli landshluta. í ritinu er fjöldi greina um lands- byggðarmál, í víðustu merkingu, enda berjast Samtökin fyrir jafn- vægi í byggð landsins. Greinahöf- undar eru margir og sumir lands- þekktir. Viðtal við Steingrím J. Sigfússon landbúnaðar- og sam- gönguráðherra, þar sem hann iýsir skoðunum sínum á þeim mála- flokkum báðum og setur fram ferskar hugmyndir að vinnubrögð- um og stefhum í ýmsum málum, sem undirhann heyra. Grein er eftir Jóhönnu Sigurð- ardóttur um eflingu sveitarfélaga og verkaskiptingu ríkis og þeirra. Bjarni Einarsson hjá Byggða- stofnun ritar grein um orskakir byggðavandans og afleiðingarnar af áframhaldandi byggðaröskun. Málmfríður Sigurðardóttir alþing- ismaður ræðir um atvinnumög- leika kvenna í dreifbýli. Einar Oddur Kristjánsson for- maður „forstjóranefndarinnar” skrifar um stöðu atvinnuveganna og pólitíska stjórnun þeirra á síðustu árum. Loks eru athyglis- verðar greinar eftir fólk sem hefur látið þessi mál til sín taka við ýmis tækifæri, s.s. Halldór Hermanns- son ísafirði, Jónu Valgerði Kristjánsdóttur Hnífsdal, Sigurð Helgason Seyðisfirði, svo nokkrir séu nefndir. Eins og fram er komið er ritið skrifaö'af ýmsu fólki scm búsett er vítt og breitt um landiö og starfar í hinum ýmsu stéttum þjóð- félagsins. Ætti því hér að birtast allgott þversnið af almcnningsálit- inu í landinu, hvað byggðamálin varðar. Frá Samtökum um jafnrétti milli landshluta. Auglýsið í ísfirðingi VEGAGERÐIN Símsvarar með upplýsingum um færð: Patreksfjörður: 1348 ísafjörður: 3958 Hólmavík: 3105

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.