Ísfirðingur - 24.01.1989, Side 8
Netagerð Vestfjarða M.
ísafirði, sími 94-3413 — Útibú Hvammstanga, sími 95-1710.
Netagerð Vestfjarða M.
Guðmundur P. Valgeirsson, Bæ:
Fréttapistill úr Árneshreppi
Brot úr annál síðastliðins árs
Árferði.
Síðastliðið sumar var okkur
Árneshreppsbúum fremur
erfitt. Það voraði seint og maí-
mánuður var hretviðrasamur.
Fénaður fór því seint af gjöf.
Líklegt er að kyrkingur hafi
komið í lömb vegna þess hve
gróðri fór hægt fram allt til 20.
júní vegna óhagstæðs tíðarfars.
Frá þeim tíma og fram í miðjan
júli var veðurfar hagstætt. Fór
þá gróðri vel fram og tún
spruttu vel. Varð gras á túnum
með besta móti alls staðar og
sums staðar svo, að í annan
tíma hefur ekki orðið betri
spretta á túnum og óslægju inn-
an girðinga.
Heyskapur byrjaði ekki fyrr en
20. júlí. Upp frá því gekk í
votviðri svo að varla gat heitið
að þurr dagur kæmi fyrr en 21.
ágúst. Þá komu þrír samfelldir
dagar sem nýttust til heyþurrk-
unar á það hey sem þurrkað
var. En þar skall hurð nærri
hælum með að ná inn heyi áður
en rigna fór á ný og það svo um
munaði. Flestum tókst það þó.
Dagana á eftir gerði slíkt vatns-
veður að líkja mátti við steypi-
flóð, einkum 27. og 28. ágúst.
í því veðri urðu þau mestu
spjöll á vegum sem um getur.
Tók það langan tíma og mikla
vinnu að lagfæra það svo fært
gæti talist. Á þessum tíma gerð-
ust jarðspjöllin í Ólafsfirði og
víðar, sem ollu stórfelldu tjóni
á vegum og mannvirkjum.
í þessu steypiflóði reif áin á
Eyri við Ingólfsfjörð (Eyrará)
sig út úr farvegi sínum og olli
stórkostlegu umróti og
skemmdum. Tvö steinsteypt
íbúðarhús eru þar nærri ánni.
Vatnsflaumurinn úr ánni skall
á öðru þeirra og gróf jarðveg
og stórgrýti frá undirstöðum
þess og munaði litlu að það
stórskemmdist. Brúin yfir ána
varð á þurru. Var þar óskaplegt
umrót að sjá.
Þegar þessi ósköp skullu yfir
mátti heita að heyskap væri
Iokið hjá flestum bændum og
mátti það heita vel sloppið.
Þeir sem ekki náðu að koma
þurrheyjum sínum inn fyrir
vatnsflóðið lentu í erfiðleikum
með að nýta það, en tókst þó
að mestu, um síðir.
Upp frá þessu var tíðin hrak-
viðra- og áfallasöm allt fram
um veturnætur, fór illa með fé
og nokkur vanhöld hlutust af
því. Fram úr veturnóttum urðu
veður mildari og þrátt fyrir um-
hleypinga hélst jörð oftast auð
og snjólítil fram að jólum svo
allir vegir voru færir innan
sveitar og út úr henni, sem er
óvenjulegt á þeim árstíma.
Með jólum spilltist veður og
færð og þrálát ótíð hefur haldist
síðan allt til þessa. Með jarðýtu
á staðnum hefur þó verið hald-
ið uppi nauðsynlegustu sam-
göngum innan sveitar norðan
Gjögurs.
Afkoma á árinu.
Afkoma Árneshreppsbúa var
mun verri á s.l. ári en hún var
árið áður. Grásleppuveiði brást
með öllu, en var til stórra bú-
drýginda árið áður. Fiskafli
varð einnig mun minni en á
fyrra ári. Kaupfélagið fékk nú
aðeins 50 tonn til vinnslu og
sölumeðferðar í stað 70 tonna
árið áður. Því ollu ógæftir og
tregari fiskur þegar á sjó gaf.
Allt segir þetta til sín í verð-
mætum og vinnulaunum.
Innlegg bænda varð einnig mun
minna en árið áður. Haustið
1987 var slátrað 3.800 dilkum
með 15.8 kg fallþunga, en á s.l.
hausti 3.300 dilkum með 14.1
kg fallþunga. Munur á fall-
þunga þessara tveggja ára er
því 1.7 kg og veldur þar verra
árferði. Það munar um minna í
búi bóndans, þó aðrir aðilar
telji það til hagsbóta sínum
sjónarmiðum. Tala slátraðra
dilka gefur ekki rétta mynd af
tekjum sauðfjárbænda, því á
s.l. hausti voru seld héðan úr
hreppnum 300 lömb til lífs á
þau svæði sem skorið hafði ver-
ið niður á vegna riðuveiki, en
voru nú að fá nýjan fjárstofn.
Ekkert var selt til lífs árið áður.
Bændur í Árneshreppi hafa um
langt skeið lagt sig fram um
sauðfjárrækt gegnum sauðfjár-
ræktarfélag sitt, VON og náð
góðum árangri. En þar eins og
á öðrum sviðum þarf stöðuga
árvekni til að missa ekki niður
það sem hefur áunnist. Á liðnu
hausti var hrútasýning í
hreppnum eins og lög standa
til. Þar voru sýndir 43 hrútar.
Af þeim fengu 33 fyrstu verð-
laun og 10 önnur verðlaun.
Sýningin var ekki haldin fyrr en
um veturnætur og þá var búið
að lóga mörgum góðum
hrútum. Af sýndum hrútum
voru 12 þeirra stigadæmdir og
fóru 11 í heiðursverðlaunaf-
lokk. Stigahæstur var Lassi
Kristjáns Albertssonar á Mel-
um með 84 stig. Afburða hold-
mikill og vel gerður.
Framkvæmdir.
Talsverðar framkvæmdir voru
hér á sumrinu. Lokið var við að
einangra og klæða utan sam-
komuhús sveitarinnar, sem far-
ið var að láta á sjá vegna
steypugalla. Unnið var að
vatnsleiðslu fyrir kaupfélagið
og starfsemi þess, sláturhús og
fiskvinnslu. Á Krossnesi var
lokið við byggingu nýs íbúðar-
húss og flutt í það að áliðnu
sumri. Hjónin á Krossnesi, Ey-
jólfur Va'.geirsson og Sigur-
björg Alexandersdóttir hafa
látið af búskap og fengið syni
sínum og tengdadóttur jörð og
bú í hendur. í stað þess að flytja
burtu á öldrunarheimili brugðu
þau á það ráð að byggja sér litla
en mjög þægilega og snotra
íbúð heima á Krossnesi. Með
því geta þau veitt heimilinu þá
aðstoð er kraftar þeirra leyfa
og notið hjálpar yngri hjón-
anna. Mætti þetta verða öðrum
til fyrirmundar undir líkum
kringumstæðum. Mér er sagt
að þetta sé eina íbúðarhúsið,
sem byggt hefur verið á tveimur
síðustu árum í sveit á Vest-
fjörðum.
Á Steinstúni var nær 50 ára
gamalt íbúðarhús tekið til
gagngerðrar viðgerðar og
endurbóta og er nú sem ný-
byggt væri.
Kirkjubygging.
Bygging hinnar nýju kirkju
safnaðarins miðar hægar en
ætlað var og æskilegt er. Þó
tókst að koma upp grind henn-
ar og reisa sperrur sem eru úr
stáli. Bíður hún þess að verða
klædd utan og innan á komandi
sumri eftir því sem efni og á-
stæður leyfa.
Þrátt fyrir varnaðarorð Davíðs
Stefánssonar skálds í kvæði
hans um Abba Labba Lá og
trúna á stokka og steina, virðist
sú trúarhreyfing eiga vaxandi
fylgi að fagna. Menn þykjast
sjá í hrörlegum hálfhrundum
kofum og brunarústum helga
dóma og menningarverðmæti,
þó þeir sömu hafi áður látið sig
þá engu varða meðan þeir voru
og hétu. Sú hreyfing hefur ekki
farið fram hjá okkur og við
goldið þess. Reynsla okkar af
því mætti verða öðrum til varn-
aðar en ekki eftirbreytni.
Bíldudalur — Blómlegt félagslíf
Góð þjónusta Arnarflugs
Leikfélagið Baldur sýndi söng-
leikinn „Stína Vóler“ eftir Haf-
liða Magnússon og Ástvald
Jónsson á sinni árlegu „Deshá-
tíð“ og einnig var söngleiknum
útvarpað á milli jóla og nýárs í
umsjón Finnboga Her-
mannsonar.
Jólin voru haldin hátíðleg á
hefðbundinn hátt. Á jóladag
var veður slæmt og gerði ófært
yfir Hálfdán. Fjölmenn jóla-
trésskemmtun fyrir börnin var
haldin 28. des. og tókst hún vel,
enda komu góðir sveinar í
heimsókn með gott í pokum.
Hinn 28. desember var svo
haldið vísnakvöld þar sem fram
komu 13 manns, sem sungu eða
fluttu frumsamið efni. Um 100
manns sóttu þessa skemmtun
og voru undirtektir mjög
góðar.
Áramótin fóru vel fram með
flugeldaskotum og öðru til-
heyrandi og var nýja árinu
heilsað með dansleik í Baldurs-
haga samkvæmt gamalli hefð,
þar sem bæði ungir og aldnir
dönsuðu fram undir morgun
við undirleik ungra hljómlist-
armanna héðan af staðnum.
Togarinn Sölvi Bjarnason hélt
til veiða að nýju þann 8. janúar,
eftir viðgerð á vél. Rækjuveið-
ar hófust aftur í byrjun janúar
og var byrjað að vinna í rækju-
verksmiðjunni 9. janúar. Tíu
bátar stunda nú rækjuveiðar
hér í Armarfirði og er viku-
skammtur þeirra fjögur tonn á
bát. Arnarflug hefur haldið
uppi mjög góðri þjónustu allt
síðastliðið ár, þar sem þeir hafa
áætlunarflug hingað alla daga
vikunnar. í desember var flogið
28 daga, aðeins tveir dagar féllu
úrvegna veðurs. Fyrir kom að
tvær vélar flugu hingað sama
daginn, sérstaklega í kringum
jólin. Dagblöð og póstur berast
okkur því á hverjum degi og
eins yfir Hálfdán til Tálkna-
fjarðar og Patreksfjarðar þegar
fært hefur verið. Nú er aðeins
mokað tvisvar í viku og þykir
okkur íbúum hérna það léleg
þjónusta, að ekki sé nú talað
um öryggisþáttinn, þar sem
læknir og sjúkrahús eru á Patr-
eksfirði,
Lionsmenn héldu þrettánda-
gleði fyrir börnin og tókst hún
mjög vel. ITC-félagar Byltu
buðu mökum sínum til veislu
laugardag 14. janúar. Var þar
blandað alvöru og glensi, og fór
þetta í alla staði hið besta fram.
Birna.
Bílddælingar eru þekktir fyrir þróttmikið félagslíf og leikstarfsemi. Myndin er frá 20 ára afmælishátíð leikfé-
lagsins Baldurs, haustið 1985, en þá komu burtfluttir stofnfélagar heim í fri og æfðu og léku ásamt staðarbú-
um atriði úr mörgum leikritum sem sýnd hafa verið á liðnum árum. Að sjálfsögðu var húsfyllir á tveimur
sýningum, eins og oftast þegar Baldur setur verk á svið.