Morgunblaðið - 18.03.2010, Page 2

Morgunblaðið - 18.03.2010, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 2 Fréttir www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verkir í hásin? Vandaðar stuðningshlífar til meðferðar á hásinabólgu Fjölbreytt úrval Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. B5 RobinVan Persie brá sér á B5 sl. vor REKSTRARFÉLAGI skemmtistað- arins B5 var í gær skipaður skipta- stjóri. Skemmtistaðurinn hefur not- ið mikilla vinsælda meðal landsmanna á síðastliðnum miss- erum og iðulega er þar fullt út úr dyrum síðla kvölds á helgum. Þær vinsældir virðast hins vegar ekki hafa skilað sér í góðri rekstrar- afkomu. Nýjasti, opinberi ársreikn- ingur félagsins er frá árinu 2008, en þá skilaði reksturinn um 95 milljóna króna tapi. Jafnframt var eigið fé B5 ehf. neikvætt um tæp- lega 120 milljónir í árslok 2008. Fjármagnsgjöld voru félaginu þungbær á árinu og námu yfir 95 milljónum króna. Ekki náðist í meirihlutaeiganda B5 ehf. í gær. Jafnframt tókst ekki að afla upplýs- inga um hvort rekstur skemmti- staðarins hafi verið seldur á síðustu mánuðum. thg@mbl.is Rekstrarfélag B5 til gjald- þrotaskipta Morgunblaðið/Eggert Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SLITASTJÓRI þrotabús Lands- bankans í Lúxemborg og skilanefnd Landsbankans á Íslandi eiga nú í viðræðum um að Glitni í Lúxemborg verði falin umsýsla stórs hluta lána- bókar fyrstnefnda bankans til um- sýslu. Ari Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Glitnis í Lúxemborg, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að viðræður um slíkan þjónustu- samning hefðu átt sér stað, en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Tveir fyrrverandi starfsmanna Landsbankans í Lúxemborg hafi þegar verið ráðnir yfir til Glitnis þar í landi. Þær ráðningar eru þó ekki gerðar í beinum tengslum við þann þjónustusamning sem nú er rætt um að verði gerður. Glitnir mun ekki taka yfir neinar eignir Landsbanka. Samskiptin að batna Landsbankinn í Lúxemborg var settur í þrot í desember 2008, en Glitnir náði hins vegar samkomulagi við kröfuhafa sína um að halda starf- seminni áfram til að verðmæti eigna bankans þar í landi yrði hámarkað. Skilanefnd Landsbankans er stærsti kröfuhafi Lúxemborgardóttur- félagsins ásamt Seðlabanka Lúx- emborgar, en skiptastjórinn hefur markvisst haldið skilanefnd utan við kröfuhafaráð bankans. Páll Bene- diktsson, upplýsingafulltrúi skila- nefndar Landsbankans, segir að samskipti skilanefndar við skipta- stjórann í Lúxemborg hafi batnað mjög að undanförnu. Það hafi ekki síst verið eftir að viðskiptaráðherra ferðaðist til Lúxemborgar og beitti sér fyrir málinu. Einnig hafi aðkoma Seðlabanka Íslands að viðræðunum haft sitt að segja. Niðurstöðu við- ræðna um uppgjör krafna í þrotabú Landsbankans í Lúx muni vonandi ljúka á allra næstu vikum. Umsýslu lána- bókar útvistað til Glitnis í Lúx Frá Lúxemborg Samskipti skilanefndar Landsbankans og skiptastjóra dótt- urfélagsins í Lúxemborg voru ekki með besta móti framan af. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is FYRIRTÆKI sem eru í eigu Exista, VÍS, Lýsing og Síminn, verða að öllum líkindum seld í fyllingu tímans, en mjög óvíst er um hvenær af því verður. Viðmælendur Morg- unblaðsins úr hópi kröfuhafa Exista segja að ekkert hafi verið ákveðið ennþá um með- ferð þessara eigna, en Exista er í greiðslu- stöðvun. Hefur félagið ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta og er því í raun ekkert sem stendur í vegi fyrir því að áðurnefnd félög verði áfram undir hatti Exista, svo lengi sem það er í samræmi við óskir kröfu- hafanna. Eins og áður segir hefur ekkert verið formlega ákveðið um sölu félaganna, en skiptar skoðanir eru um tímasetningu. Stærstu kröfuhafarnir virðast opnir fyrir því að halda félögunum í rekstri jafnvel í nokkur ár í þeirri von að hærra verð fáist með þeim hætti fyrir þau þegar að sölu kemur. Fyrirtækin séu í ágætum rekstri og við núverandi stöðu á markaði myndi ekki fást viðunandi verð fyrir þau. Viðmælendur Morgunblaðsins úr hópi stjórnenda lífeyrissjóðanna segja að sjóð- irnir séu nú í raun einu aðilarnir með fjár- magn til kaupa á félögum Exista sem og öðrum fyrirtækjum í svipaðri stöðu. Hins vegar hafi seljendur, hvort sem það eru bankar, ríkið eða aðrir kröfuhafar, oft óraunhæfar hugmyndir um virði slíkra fyr- irtækja. Einn viðmælandi Morgunblaðsins sagði að menn þyrftu að ákveða hvort eft- irsóknarvert væri að kreista sem mest fé úr lífeyrissjóðunum, fé sem myndi á endanum renna í vasa erlendra kröfuhafa bankanna. Hefur Sjóvá verið nefnt í því sambandi, en eins og fjallað hefur verið um í Morg- unblaðinu eru gæði þeirra skuldabréfa sem ríkið lagði í tryggingafélagið mismikil og hefur það áhrif á virði félagsins. Þá séu sum þessara skuldabréfa það löng að erfitt gæti reynst að selja þau á skömmum tíma og því vafasamt að telja þau til eiginfjár tryggingafélagsins. Mun þetta vera ein ástæða þess að Sjóvá hefur ekki enn verið selt. Aðrir hafa gagnrýnt þessa stöðu mála með því að vísa til samkeppnissjónarmiða. Stjórnendur og eigendur fyrirtækja sem ekki eru undir stjórn bankanna hafa kvart- að sáran undan því að þurfa að keppa við fyrirtæki sem njóti, að þeirra mati, óeðli- legs stuðnings bankanna. Óvissa um sölu Exista-fyrirtækja  VÍS, Lýsing og Síminn verða að öllum líkindum seld, en hugsanlega ekki fyrr en að nokkrum árum liðnum  Markmiðið er að fá sem hæst verð fyrir eignirnar  Margir ósáttir við hve langan tíma tekur að selja fyrirtæki, sem með einum eða öðrum hætti eru undir stjórn bankanna Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is ORKUVEITA Reykjavíkur hefur selt helminginn af þeim tíu millj- örðum sem standa til boða í skuldabréfaútboði félagsins. Orku- veitan hefur samt sem áður lokið fjármögnun núverandi rekstrarárs en það var gert með því að lengja lán frá Landsbankanum sem var á gjalddaga í ár til fimmtán ára til við- bótar. Andvirði þess láns er fimm milljarðar króna. Reykjavíkurborg veitti Orkuveit- unni heimild fyrr í vetur til þess að ráðast í 10 milljarða króna skuldabréfaútboð. Skuldabréfin, sem eru verðtryggð, eru til tuttugu ára og er fjárfestum boðið upp á 4,65% vexti. Eins og fjallað var um í Morgunblaðinu í nóvember þá töldu margir sérfræðingar að kjörin í skuldabréfaútboðinu væru vart ásættanleg og að þau endurspegluðu ekki þá undirliggjandi áhættu sem er í rekstri félagsins. Sú áhætta felst meðal annars í því að OR skuldar ríf- lega 200 milljarða króna í erlendri mynt en enn sem komið er lang- stærstur hluti tekna félagsins í ís- lenskum krónum. Sem kunnugt er þá er það eitt af því sem varð til þess að matsfyrirtækið Moody’s lækkaði lánshæfiseinkunn Orkuveitunnar niður í svokallaðan ruslflokk, en í þeim flokki eru skuldabréf sem ekki eru talin fjárfestingahæf. Að sögn Guðlaugs Sverrissonar, stjórnarformanns Orkuveitunnar, er búið að ljúka helmingnum af áð- urnefndu skuldabréfaútboði og hafa nokkrir lífeyrissjóðir keypt bréfin. En engar reglur eru í gildi sem tak- marka kaup íslenskra lífeyrissjóða í íslenskum fyrirtækjum við ákveðið lánshæfismat. Guðlaugur segir enn- fremur að þar sem búið er að reka endahnútinn á fjármögnun félagsins fyrir þetta ár með skuldbreytingu Landsbankalánsins þá sé Orkuveit- an ekki undir neinum þrýstingi að ljúka við skuldabréfaútboðið að svo komnu máli. Kjörin á því láni eru sambærileg og fjárfestum stendur til boða í skuldabréfaútboðinu.  Búið að selja fimm milljarða af tíu. Fjármögnun ársins tryggð með lánalengingu frá Landsbanka. Skuldabréfaút- boð Orkuveit- unnar hálfnað Morgunblaðið/ÞÖK ÞROTABÚ SPRON greiðir um milljarð á mánuði til Arion banka vegna yf- irtöku Arion á innlánum SPRON. Telur slitastjórn SPRON að þessi fjárhæð sé verulega umfram áhættu og kostnað Arion af yf- irtöku innlánanna og hefur farið fram á það við Fjármálaeftirlitið að þetta verði endurskoðað. Fáist ekki viðunandi niðurstaða útilokar slita- stjórnin ekki málsókn. Á kröfuhafafundi í gær kom fram að eignir búsins eru um 150 millj- arða króna virði. Lýstar kröfur í búið eru um 250 milljarðar og hefur verið tekið tillit til um 95 prósenta þeirra. Um 70 prósent samþykktra krafna, eða um 86 milljarðar króna, eru kröfur erlendra kröfuhafa. Þessar kröfur eru um 70 prósent samþykktra krafna og miðað við þessar tölur má gera ráð fyrir því að samþykktar kröfur í búið verði um 140 milljarðar króna. Ef niður- staðan verður á þá lund er viðbúið að kröfuhafar fái allar kröfur sínar greiddar. Telja greiðslur til Arion of háar Fjöldi Íslendinga var með innlán í dótturfélagi Landsbankans í Lúxemborg. Við fall bankans fengu þeir greitt út til samræmis við reglur Evrópusambandsins um innistæðurtryggingar, 20.887 evrur, en margir áttu mun hærri innistæðu þar en sem því lágmarki nemur.Úrlausn mál- efna Landsbankans í Lúxemborg hafa meðal annars tekið tillit til þessa og unnið hefur verið að því að innistæðieigendur stærri hluta krafna sinna greidda. Innistæður í Lúx  Rætt um að þrotabú Landsbankans í Lúxemborg feli Glitni hluta stóran hluta eignasafns síns til umsýslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.