Morgunblaðið - 18.03.2010, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.03.2010, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 4 Fréttir Netþjóna- og tæknibúnaðu r IBM System X , Z, P, i · IBM BladeCenter · IBM System S torage · Vara aflgjafar, kælibúnaður og rekkar frá APC IBM HS22V Blaðaþjónn sérhannaður fyrir gagnagrunna og sýndarvélar. · 2 fjórfaldir örgjörvar · 144 GB minni · 2 SSD diskar BETRI ÞJÓNAR IBM System X eru betri netþjónar fyrir allar gerðir og stærðir fyrirtækja.Hjá Nýherja er öflugur hópur sérfræðinga sem finnur rétta búnaðinn fyrir þig.Við bjóðum forvarnarábyrgð á varahlutum og vinnu á staðnum. Nýherji hf. Sími 569 7700 www.nyherji.is IBM x3650 M2 Flaggskip IBM í meðalstórum rekkaþjónum tryggir hámarks rekstraröryggi. · 2 fjórfaldir örgjörvar · 128 GB minni · 12 “hotswap” diskar IBM x3200 M2 Hagstæður turnþjónn fyrir smærri fyrirtæki. · 1 tvöfaldur örgjörvi · 8 GB minni · 4 “hotswap” diskar Fjölþrepa bakbrettið • Eykur sveigjanleika • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun • Má nota hvar sem er Opið virka daga frá kl. 9 -18 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verð: 7.950 kr. www.doguncapital.is - fyrirtækjaráðgjöf dögun capital Dögun CapitalSmiðjuvegur 10 200 Kópavogur Sími 414 8440 Ísland er hluti af stóru atvinnusvæði þar sem margvísleg verkefni, stór og smá bjóðast. Við bjóðum verktökum aðstoð við verkefnaöflun. Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar. Verktakar - verkefnaöflun Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SEÐLABANKI Íslands lækkaði stýrivexti sína um 50 punkta gær. Vextirnir eru því nú komnir niður í 9%. Vaxtalækkunin var að mestu í samræmi við væntingar markaðs- aðila. Þannig spáði Greining Íslands- banka því að bankinn myndi lækka vextina um 25-50 punkta. Í frétta- bréfi MP-banka var því spáð að vext- ir yrðu lækkaðir um 25 punkta. Óverðtryggt hækkar Í fréttatilkynningu peningastefnu- nefndar kemur fram að árs- verðbólga í mars hafi mælst 7,3%, en verðbólgan leiðrétt fyrir áhrifum af skattahækkunum væri 5,9%. Í yf- irlýsingunni kemur fram að verð- bólgan væri að mestu fyrirséð og að reiknað væri með að hún myndi hjaðna eftir því sem liði á árið. Skuldabréfamarkaðurinn virðist í meginatriðum vera sammála því að verðbólgan muni minnka á næstu mánuðum, en verðbólguálag hefur minnkað frá áramótum. Samkvæmt vísitölu GAMMA hafa óverðtryggð bréf hækkað um 4,47% frá áramót- um. Í gær hækkuðu óverðtryggð skuldabréf jafnframt um 0,6% í tals- verðum viðskiptum, en velta með óverðtryggð skuldabréf nam yfir 15 milljörðum. Valdimar Ármann, hagfræðingur hjá GAMMA, segir Seðlabankann hafa verið samkvæman sjálfum sér með vaxtalækkuninni í gær. „Í yf- irlýsingum bankans hefur komið fram að hann muni halda áfram að lækka vexti ef krónan er stöðug og verðbólgan haldi áfram að hjaðna, þá sé ráðrúm til lækkunar vaxta í litlum skrefum. Ég tel þó að bankinn mætti lækka vextina meira í einu, en hrósa má bankanum fyrir að vera samkvæmur sjálfum sér,“ segir Valdimar í samtali við Morgun- blaðið. Vaxtamunaviðskipti snúa aftur? Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði á fréttamannafundi í gær að innstreymi nýrra fjárfestinga frá síðasta hausti næmi 14 milljörðum. „Áhugavert væri að vita hvert þeir fjármunir hafa farið. Mann grunar nú að mikið hafi farið í ríkisskulda- bréf. Því er fullt tilefni að spyrja sig hvort bankinn sé að detta í sama far- ið og áður, með því að halda útlend- ingum í háum vöxtum til að styrkja gengið,“ segir Valdimar. Verðbólguvæntingar minnka  Óverðtryggð skuldabréf hafa hækkað talsvert í verði frá áramótum  Stýrivextir lækka hægt en örugglega Skuldabréfavísitölur GAMMA frá áramótum 190 185 180 175 170 165 160 155 150 4. jan. 2010 17.mars 2010 162,939 181,509 185,386 155,545 176,013 180,885 Gamma: GBI Gamma: Verðtryggt Gamma: Óverðtryggt Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SAMKVÆMT upplýsingum Morg- unblaðsins eru talsverðar líkur á því að Arion banki muni kjósa sér nýja stjórn mjög fljótlega. Í desem- ber síðastliðnum tók skilanefnd Kaupþings 87% hlut í bankanum fyrir hönd kröfuhafa Kaupþings. Á sama tíma var staða bankastjóra auglýst laus til umsóknar, en síð- ustu fregnir herma að á milli 40 og 50 manns hafi sótt um stöðuna. Finnur Sveinbjörnsson, sem gegnir í dag stöðu bankastjóra, lýsti því þá yfir að hann myndi ekki sækjast eftir starfinu. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins má reikna með að gengið verði frá ráðningu nýs bankastjóra mjög fljótlega eft- ir að ný stjórn tekur við bank- anum. Útlendingar í stjórn Reikna má með að einhverjir er- lendir aðilar muni taka sæti í stjórn Arion banka líkt og í tilfelli Íslandsbanka. Jafnframt mun sitja þar fulltrúi skilanefndar Kaup- þings og einn fulltrúi ríkisins, sem Bankasýsla ríkisins mun sjá um að útnefna. Samkvæmt reglum Fjár- málaeftirlitsins um hæfi stjórn- armanna þarf stjórnarformaður að vera óháður, og hann mun því ekki koma úr röðum skilanefndar Kaup- þings. Erna Bjarnadóttir landbún- aðarhagfræðingur hefur gegnt stöðu stjórnarformanns Arion banka á síðustu mánuðum. Ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinn- ar. Íslandsbanki ræður Birnu áfram Fram kom í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka í gær að gengið hefði verið frá ótímabundinni ráðningu Birnu Einarsdóttur í stól banka- stjóra. Áður hafði verið tilkynnt að auglýst myndi verða í stöðuna, en það var ekki gert. Hluti sam- komulags ríkisins við kröfuhafa Ís- landsbanka var að auglýst yrði í stöður bankastjóra. Fulltrúi ríkis- ins í stjórn Íslandsbanka veitti þó ráðningu Birnu sitt samþykki, þó staðan hefði ekki verið auglýst. Íslandsbanki kaus sér jafnframt nýja stjórn 25. janúar síðastliðinn. Það gerði bankinn án þess að hafa hlotið formlegt samþykki Fjár- málaeftirlitsins. Næsta öruggt þyk- ir þó að hæfi stjórnarmanna verði staðfest. NBI var skipuð ný stjórn á aðal- fundi bankans fyrir árið 2008 sem haldinn var í síðasta mánuði. Ný stjórn mun hafa það hlutverk að ráða bankastjóra. Íslenska ríkið á yfir 80% hlutafjár í NBI, og því skipar Bankasýsla ríkisins þar fjóra af fimm stjórnarmönnum. Skilanefnd Landsbankans skipar einn stjórnarmann í NBI. Ný stjórn Arion banka verður kjörin innan skamms  Fjármálaeftirlitið veitti stjórn Kaupskila, eignarhaldsfélags Arion banka, blessun sína á mánudaginn  Ný stjórn Arion banka brátt kjörin og nýr forstjóri ráðinn Morgunblaðið/Golli Arionbanki Stjórnarmenn Kaupskila, eignarhaldsfélags Arionbanka, hlaut blessun Fjármálaeftirlitsins í vikunni. Ný stjórn bankans brátt kjörin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.