Morgunblaðið - 18.03.2010, Qupperneq 5
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010
Fréttir 5
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.isVerðbréfaþjónusta Arion banka
er söluaðili sjóða Stefnis.
Kynntu þér sjóðina hjá starfsfólki
verðbréfaþjónustu Arion banka
í síma 444 7000, í næsta útibúi
eða á arionbanki.is/sjodir
Stefnir - Samval.
Meiri möguleikar á
breytilegum markaði.
• Fjárfestir í þeim eignaflokkum sem ákjósanlegastir eru hverju sinni
– eignastýring í einum sjóði
• Virk stýring í skuldabréfum og hlutabréfum. Áhersla á ríkistryggð
skuldabréf undanfarin misseri
• Fjárfestir að mestu í öðrum sjóðum til að auka enn frekar áhættudreifingu
• Góður kostur í langtímasparnaði og hentar vel í reglubundnum sparnaði
• 15,4% meðalnafnávöxtun síðastliðin 5 ár*
• Lágmarkskaup 5.000 kr.
Ávöxtunartölur vísa til fortíðar. Fyrri ávöxtun sjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur þeirra. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða, t.d. getur fjárfesting
rýrnað eða tapast að öllu leyti. Stefnir - Samval er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um
áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu og útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á www.arionbanki.is/sjodir.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
49
43
3
03
/1
0
*Upplýsingar fengnar af www.sjodir.is
fyrir tímabilið 28.02.2005-28.02.2010.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s
segir Bandaríkin og Bretland nú
umtalsvert nær því að missa AAA-
lánshæfiseinkun sína.
Við mat sitt horfir Moody’s meðal
annars á það hve hátt hlutfall tekna
viðkomandi ríkis fer í að greiða nið-
ur skuldir. Á þessu ári er þetta
hlutfall hæst hjá þessum tveimur
ríkjum, af þeim ríkjum sem Mood-
y’s fylgist með.
Á þessu ári munu um sjö prósent
tekna bandaríska alríkisins fara í að
greiða af skuldum og verður hlut-
fallið komið í um ellefu prósent árið
2013, ef gert er ráð fyrir hóflegum
hagvexti og fjárhagsáætlunum rík-
isins. Hins vegar þarf ekki mikið til
að hlutfallið hækki til mikilla muna.
Hættulega nálægt mörkunum
Ef hagvöxtur verður 0,5 prósentu-
stigum lægri en spár gera ráð fyrir
munu Bandaríkin verja um 15 pró-
sentum tekna sinna í að greiða af
lánum, en Moody’s hefur það fyrir
reglu að fari hlutfall Bandaríkjanna
yfir fjórtán prósent ber að lækka
lánshæfiseinkunn í AA.
Í tilviki Bretlands verður um sjö
prósentum af tekjum ríkisins varið í
að greiða af skuldum á þessu ári og
níu prósentum árið 2013. Ef gert er
ráð fyrir hægari bata gæti hlutfallið
farið í 12 prósent það ár. Er það
hættulega nærri þrettán prósenta
viðmiðinu sem Moody’s hefur sett í
tilviki Bretlands.
Í grein í bandaríska tímaritinu
Fortune er fjallað um efnahags-
ástandið hér á landi og varar grein-
arhöfundur við því að Bandaríkin
gætu verið á sömu leið og Íslend-
ingar.
Segir hann að í nýlegri þjóðar-
atkvæðagreiðslu hafi íslenska þjóð-
in hafnað kjörum Icesave-samn-
ingsins, en að bandarískir ríkis-
borgarar hafi ekki fengið
sambærilegt tækifæri til að tjá
skoðun sína á skuldasöfnun banda-
ríska ríkisins.
Skuld Íslendinga væri sambæri-
leg við það ef Bandaríkin tækju á
sig 5.000 milljarða dala skuld. Það
hljómi ómögulega há tala, en hafa
ber í huga að útgjöld bandaríska
ríkisins vegna alls kyns björgunar-
aðgerða er nú þegar komin í um
2.000 milljarða dala og hefur ríkið
gengist í ábyrgðir fyrir allt að
12.500 milljörðum dala til viðbótar,
ef allt fer á versta veg.
Reuters
Verk Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hélt dag heilags Patreks hátíðlegan
í gær, en ef marka má orð Moody’s á hann erfitt verk fyrir höndum.
Moody’s varar við
lækkun lánshæfis
Segir Bretland og Bandaríkin nálgast mörkin