Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 7. M A R S 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
72. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGT LÍF
ENGIN VETTLINGATÖK
Í RUÐNINGNUM »10
«BLÚSARINN SUPER CHIKAN
Snillingur sem smíð-
ar eigin gítara »48
6
ENGU var líkara en varðeldur hefði verið kveiktur ofan á
Eyjafjallajökli þegar ljósmyndari Morgunblaðsins fór um
svæðið í fyrrakvöld. Þótt sólin hafi verið sest lýstu eldgosið og
tunglið upp himininn, auk þess sem ljós frá bílum þeirra fjöl-
mörgu ferðamanna sem mættir voru til að skoða bjarmann
lýstu upp svæðið. Gríðarleg umferð var í gærkvöldi um Fljóts-
hlíðina og raunar Suðurlandsveginn allt frá Reykjavík. Hjón
sem voru á leið inn Fljótshlíð í gærkvöld mættu 300 bílum á
leið út úr Fljótshlíðinni, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.
Nokkur dæmi eru um að fólk sem hefur haldið í gönguferð á
Fimmvörðuháls til að berja gosstöðvarnar augum hafi verið
vanbúið, jafnvel aðeins í strigaskóm og gallabuxum. | 4
Tunglið, eldurinn og ferðamenn lýstu upp himininn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
ENDURHEIMTUR á 319 milljarða
heildarkröfum í þrotabú Baugs
stefna, eins og mál standa nú, í að
verða á bilinu 1-2%. Eignir félagsins í
Bretlandi voru undir eignarhalds-
félaginu BG Holding. Þær voru að
mestu veðsettar, en skilanefnd
Landsbankans gekk að veðunum í
febrúar á síðasta ári.
Svipaða sögu má segja um eigna-
safn félaga tengdra Baugi hérlendis.
Riftanir gætu skilað milljörðum
Einhverjar breytingar gætu þó
orðið á þeim endurheimtuhlutföllum
sem um er rætt í dag. Fjárhæð krafna
gæti breyst, og ef þrotabúið hefur
betur í þeim riftunarmálum sem höfð-
uð hafa verið gæti staðan batnað.
Stærsta riftunarmálið er vegna
sölu Baugs á Högum til eignarhalds-
félagsins 1998 ehf. sumarið 2008. Það
riftunarmál snýr ekki að sölunni sem
slíkri og skiptastjóri þrotabúsins er
ekki á höttunum eftir hlutabréfum
Haga, heldur snýr riftunin að ráðstöf-
un kaupverðsins, en þeir 30 milljarðar
sem fengust fyrir Haga voru notaðir í
að greiða niður skuldir við Kaupþing
og Glitni, auk þess sem 15 milljarðar
voru notaðir í að kaupa hlutabréf
Gaums, ISP Eignarhaldsfélags og
Bague AS í Baugi. Eigendur félag-
anna eru þau Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Ingibjörg Pálmadóttir og Hreinn
Loftsson.
Áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu að skiptastjóri Baugs kanni
hvort félagið hafi verið ógjaldfært á
þeim tíma sem kaup á eigin bréfum
fóru fram. Hafi þrotabúið sigur í mál-
inu og þeir sem seldu bréfin eru borg-
unarmenn 15 milljarða, mun það
hækka endurheimtuhlutfall upp í
6-7%, að því gefnu að fjárhæð krafna
haldist nokkuð óbreytt.
Önnur riftunarmál sem höfðuð
hafa verið eru á hendur Gaumi vegna
færslu eigna frá Baugi í október 2008,
upp á samtals sex milljarða. Þrotabú-
ið hefur einnig gjaldfellt milljarðslán
til Haga, sem veitt var á árinu 2004.
Einnig hafa verið höfðuð riftunarmál
vegna gjafagerninga til handa Skarp-
héðni Berg Steinarssyni, samtals 104
milljónir, og Karli G. Sigurbjörns-
syni, alls 10 milljónir.
Kröfuhafar Baugs
fá lítið í sinn hlut
Stefnir í 1-2% endurheimtur Niðurstaða riftunarmála gæti bætt stöðuna
» Endurheimtur að óbreyttum kröfum 1-2%
» Heildarkröfur í þrotabú Baugs 319 milljarðar
» Riftun vegna ráðstöfunar söluverðs Haga gæti
skilað þrotabúi allt að 15 milljörðum króna
» Milljarður gæti komið frá Högum
Læknum hér á landi hefur
fækkað um 100 frá ársbyrjun
2008 samkvæmt upplýsingum
Birnu Jónsdóttur, formanns
Læknafélags Íslands. 41 sér-
fræðilæknir hefur útskrifast er-
lendis frá því í september síðast-
liðið haust og hafa átta þeirra
komið heim. »20
Veruleg fækkun
lækna síðustu ár
Sunnudags Mogginn
er borinn út með laugardags
Morgunblaðinu