Austri - 16.10.1957, Blaðsíða 3
AUSTRI
Neskaupstað, 16. október 1957
r
3
Verkin tala
Stuttlega var í síðasta blaði
drepið á vaxandi örðugleika tog-
araútgerðar og talið eðlilegt, að
aiutlaus athugun yrði látin fara
fram á því, hve miklum vinnu-
tekjum togari bæjarútgerðar
Neskaupstaðar hefði skilað í bæ-
inn og hvað mikið bæjarbúar
yrðu að leggja fram fyrir þær
tekjur. Var í sakleysi haldið að
slíkt mat væri ekki síður þýðing-
armikið fyrir bæjarbúa, en vit-
neskja um fjölda Garúna, Hillarí
usa og fleiri dánumanna burtkall-
aðra af vorri jörð fyrir nokkrum
öldum. Var talið líklegt að komm
únistar gætu bráðlega lagt fram
reikninga hinna tveggja togara
en sumt af því hafa þeir nú ýldað
undir sér um ár, þá ætti og fyrstu
tölur um rekstur Gerpis að liggja
fyrir og mætti af þessum upplýs-
ingum ráða nokkuð, hvemig mál-
in liggja nú fyrir. En ekkert slíkt
fæst fram, en því meir af venju-
legum vaðli og haldlausum full-
yrðingum. Nú skal geymt nokkuð
að ræða útvegsmál, enda nokkur
vandi við slíka öndvegismenn að
ræða, sem kommúnistar em í
sjávarútvegsmálum og í mörgu
brautryðjendur hér í bæ. Menn
niuna, er helztu broddar þeirra
stofnuðu til Preyfaxaútgerðarinn-
ar og fór þar fyrir núverandi út-
vegsmálaráðherra og hefur þá
væntanlega ekki skort heilla-
drjúga leiðsögn og gæmusama
forsjá, enda hafði kempan fyrir
stuttu stigið af fleytunni er út-
gerðin komst í þrot og var bátur-
inn seldur héðan. Aðrir leiðtogar
hafa og litið í „stjömur“ og fund-
ið töluvert til sín. Vikingur hf.
sem þeir hafa nokkuð verið við
kenndir núverandi leiðtogar,
komst yfir bát, sem umskírður
var og Mummi nefndur. Sá bátur
hefur nú verið leigður um nær-
fellt ár úr bænum. Stapi hf. reis
af sængurklæðum og lét byggja
Jón Ben. Voru þá lúðrar þeyttir
og þrekvirki látið heita að ráðast
í slíkt manndómsbragð og mátti
halda að tímamótum mundi til-
koma þess báts valda í atvinnu-
málum bæjarins. En varla var
blek þornað af reikningur, er þeir
mætu athafnamenn tóku að ótt-
ast um að nafnið myndi stytast
og tapið eitt yrði eftir af Stap-
anum, seldu SÚN mestan hluta í
bátnum og létu það sjá um út^
gerðina. Fór báturinn til Eyja í
vetur og þótti enga sérstöðu hafa
um að leggja upp afla hér heima.
Er sízt að furða að ritstjóri Aust-
urlands þykist nú hátt mega gala
um að 70 tonna bátar séu of litlir
og leggi sjaldan afla á land í
heimahöfn, er þeir bátar, sem hann
hefur átt hlut að eru liðlega 20
tonn og er annar leigður burt allt
árið, hinn gerður út þaðan, sem
veiðivonin er mest. Þær gleymast
sjálfum lífsreglumar, sem öðrum
er ætlað að lifa eftir.
1 síðasta blaði Austurlands er
sungin messa í nokkuð öðrum
dúr, enda er guðspjallið fengið frá
Sjálfstæðismönnum og er óvenju
hugnæmt og vel hugsað af efni úr
þeirri átt. Hinsvegar fær Sjálf-
stæðisflokkurinn launin goldin í
hlýlegri orðsendingu til Einars
Sigurðssonar sem skotið er inn í
útlístun textans.
Bjarni Jónsson
Framh. af 1. síðu.
Eiga margir erfitt að.sætta sig
við hin snöggu skipti, að Bjami
á Skorrastað sé horfinn frá óðali
yfir móðuna miklu, en óskir fá
engu þar um þokað. Þakklæti og
virðing vefur minningu vinar og
félaga og samúð leitar til venzla-
manna, sem lostnir em sámm
harmi. G. H.
Auglýsing
■
■
Félagsmálaráðuneytið hefur heimilað Sjúkrasamlagi Nes-
kaupstaðar að hækka mánaðariðgjöld meðlima sinna úr kr.
35.00 í kr. 40.00, frá og með 1. maí 1957 að telja.
■
\ ■
■
■
Sjúkrasamlag Neskaupstaðar.
Refaskyttan
Framh. af 1. síðu.
Ertu kannske að hugsa um að
hætta þessu stríði?
Stefán svaraði aldrei þessari
spurningu, Hefur líklega þótt hún
óþörf. Og mér sýndist maðurinn
til alls annars líklegri þó ég spyrði
svona.
Samtalið varð ekki öllu lengra.
Það var að byrja fundur uppi í
skólahúsinu nýja, og við Stefán
héldum þangað. Nú sakna ég þess
mest að hann skyldi ekki segja
mér eina eða tvær spennandi
veiðisögur til að setja í Austra.
En sumir eru klárari að fara með
byssuna sína, sigta og fíra af
heldur en færa í stílinn eftir á. —
Þetta er svo misjafnt.
Refaplágan er víða eitt hið
versta böl búandmanna, og veldur
stórum vanhöldum á lömbum
mikilli tímatöf um hábjargræðið
og gifurlegum kostnaði fyrir
sveitafélögin, sem mörg hver eru
ekki of vel stæð fyrir,
Duglegar grenjaskyttur eru
sannkallaðir bjargvættir. En hér
Nr. 25/1957.
Tilkpinfncf
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi há-
marksverð á gasolíu, og gildir verðið hvar sem er á landinu.
Heildsöluverð, hver smálest .................... kr. 825.00
Smásöluverð úr geymi, hver lítri ............... — 0.83
Heimilt er að reikna 3 aura á líter fyrir útkeyrslu.
Heimilt er einnig að reikna 12 aura á líter í afgreiðslu-
gjald frá smásöludælu á bifreiðar.
Sé gasolía afhent í tunnum, má verðið vera 2V2 eyri hærra
hver lítri.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 1. okt. 1957.
Reykjavík, 30. sept. 1957.
VerðJagsstjórinn.
Eftir kröfu bæjarstjórans í Neska-upstað var hinn 11. þ. m.
kveðinn upp úrskurður um lögtak á ógreiddum gjöldum til
Bæjarsjóðs og Hafnarsjóðs Neskaupstaðar sem hér segir:
Otsvör 1957
Fasteignaskattur 1957 |
Vatnsskattur 1957
Hafnar-, bryggju- og ljósagjöld heimaskipa 1957.
Lögtökin mega fara fram án frekari aðvörunar að liðnum
átta dögum frá birtingu auglýsingar þessarar fyrir gjöldunum
og kostnaði við lögtakið, á kostnað gjaldenda en ábyrgð gerð-
arbeiðanda.
Bæjarfógetinn í Neskaupstað, 12. október 1957.
Axel V. Tulinius.
-
Lögiök
Eftir kröfu stjórnar Sjúkrasamlags Neskaupstaðar var hinn
11. þ. m. kveðinn upp úrskurður um lögtak á áföllnum og ó- ■
greiddum iðgjöldum samlagsmanna.
Lögtökin mega fara fram án frekari aðvörunar að liðnum
átta dögum frá birtingu auglýsmgar þessarar fyrir gjöldunum |
og kostnaði við lögtakið, á kostnað gjaldenda en ábyrgð gerð- j
arbeiðanda.
Bæjarfógetinn í Neskaupstað, 12. október 1957.
Axel V. Tulinius.
þarf fleira að koma til. Og verði
ekki hafizt handa um skipulegar
hernaðarsðgerðir gegn þessum ó-
íögnuði þá mun verra af hljótast.
Það ættu þeir að hugleiða sem
með lögum er falin forysta um
eyðingu refa, V. H,
Til sölu
; Til sölu er orgel. — Upp-j
j lýsingar hjá blaðinu.