Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 34

Skólablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 34
Inspector scholae setti fundinn, sem hófst í sjötta tima ardegis fimmtudaginn 8. janúar. Las inspector sítSan upp dagskra fundarins : 1. Kosningar á Landsþing menntaskóla- nema. Kosning skyldi ekki bundin við bekki. 2. Álit nemenda á hæfni kennara. 3. Lagabreyting : í stað orðanna "tillög- um um lagabreytingar" í 5. kap. gr. 5. 1 komi orðin "öllum tillögum, sem lesa á upp á skólafundi". Flytjandi : Kristján Auðunsson. 4. önnur mál. Sex framboð höfðu boriat : Einar Unnsteinsson 4. -R, Geir Haarde 5. -B, Guðni jóhannesson 5.-Z, Hannes J. S. Sigurðsson 5.-U, Mörður Árnason 3. -J og Ólafur Flóvenz 5. -Z. Inspector ræddi nokkuð þá tilhögun kosninga, að fimm fulltrúar væru kosnir á skólafundi og einn úr samstarfs- nefnd. ^Sagði hann þá hugmynd áður hafa verið rædda á skólafundum, að kosnir yrðu tveir full- trúar úr samstarfsnefnd og fjórir á skólafundi, en vegna réttlátrar gagnryni hefði verið horfið fra því ráði, þar eð fundarboðendur eiga sæti í nefndinni og eru sjálfkjörnir á þingið. Sagðist inspector vilja leiðrétta þann misskilning, að stjorn skolafelagsins hafi með ákvörðun sinni um kosningu eins fulltrúa úr samstarfsnefnd tekið á einhvern hatt fram fyrir hendurnar á skólafundi. Stjornir skólafélaga allra menntaskólanna boðuðu til þingsins og væri það þeirra en ekki skóla- fundar hvers skóla, að ákveða fyrirkomulag þings- ins í stórum dráttum, svo og fjölda fulltrua. Taldi inspector eðlilegt, að kosinn væri einn full- trui ur samstarfsnefnd og sjálfsagt, að fundar- boðendur væru sjálfkjörnir. Fyrstur á mælendaskrá var Geir Haarde. Taldi hann bokakaupsmal nemenda vera eitt brýnasta verkefni landsþingsins, þ. e. a. s. athuganir á því, hvort ekki mætti lækka námsbókakostnaðinn með þvi að koma á einhvers konar sameiginlegri inn- kaupastofnun á vegum menntaskólanema. Þá lagði Geir a það aherzlu, að ef takazt ætti að gera einhverjar raunhæfar tillögur varðandi skolakerf- ið í heild, yrðu umræður þingfulltrúa að snúast um skolamal, ekki þjóðmál almennt. Þá tók til máls Einar Unnsteinsson. Sagði hann hinn mikla namskostnað erlendis samfara vanda- malum Haskolans gera umræður um lánamál studenta að knyjandi nauðsyn. Þo taldi Einar tima vera til þjóðmálaumræðna. Hannes J. S. Sigurðsson tók í sama streng og Einar varðandi lanamál stúdenta, en lagði mikla aherzlu a það, að kröftunum yrði beint að af- mörkuðum punktum, en ekki eytt í óþarfa tillögur og þras, sem einungis yrði til að beina athygl- inni fra aðalmálum þingsins. Guðni jóhannesson sagði nýjar námsleiðir krefj- ast nýs husnæðis og alla verða að fá tækifæri á því að stunda nám við sitt hæfi. Hann áliti ís- lenzkukennslu í menntaskólunum vera steindauða og likti nemendum í þvi sambandi við kálffullar beljur, teymda gegnum fornbókmenntirnar og jortrandi hverja orðskýringu þrisvar án þess að kunna meðferð talaðs máls. Guðni lagði áherzlu a^nauðsyn þess, að menntaskólanemar ættu með ser öflug samtök, sem samræmt gætu kröfur þeirra út á við. Mörður Árnason minntist jpess, hversu mjög öll- um skólarannsoknum er her abotavant op i þvi sambandi á endurskoðun skólakerfisins í heild. Aleit Mörður umræður um þessi tvö atriði með tilliti til menntaskólastigsins, hljóta að verða aðalverkefni þingsins. SÍðastur frambjóðenda talaði ólafur Flóvenz. Harmaði hann skipulagsleysið í menntamálum og ræddi um nauðsyn þess, að landsþingið yrði virkt tæki í höndum menntaskólanema, til þess að ýta á eftir umbótum, svo og, að þeim tækizt með tilkomu landssambandsins að gera þingið að ábyrgri stofnun, sem mark væri tekið á. Næstur á mælendaskrá var Geir Waage. Bar hann fram eftirfarandi tillögu : "Við undirritaðir álítum, að verið sé að ganga á ákvörðunarrétt skólafundar til að tilnefna fulltrúa M. R. á lands- þing. Við teljum, að inspe_ctor op scriba séu sjalfkjörin a þingið, en stjorn skolafelagsins hafi enga heimild til að skipa þess utan a þingið og höfum við þar í huga fulltrúa þann, sem hún ætl- ar samstarfsnefnd, og leggjum við fyrir fund þennan, hvort skólafelaginu verði veitt heimild til að lata samstarfsnefndarfulltrúa eiga sæti á landsþingi. Viljum við, að fundurinn skeri úr um það. " Kári Stefánsson, Geir Waage. Inspector gerði athugasemd við tillögu Kára og Geirs og sagði stjorn skolafélagsins ekki bera skyldu til að bera öll þau mál, er hún fjallaði um, undir urskurð skolafundar. Sagði hann það einungis mundu tefja eðlilega framvindu mála. Vissulega bæri skolastjórn að leita álits skóla- fundar um öll mikilvægari málefni, en ekki vera bundin honum 1 öllum sínum gjörðum. Kari Stefansson bað um orðið og sagði kosningu fulltrua skólans á landsþing ekki vera neitt smá- mal og einkamal stjornar skolafelagsins, heldur hagsmunamal allra nemenda. Sagðist Kári vilja benda a það, að með þessari nýbreytni væri næstum helmingur allra fulltruanna sama og sjálfkjörinn. Skoraði hann því á skólafund að sýna hug sinn í þessu máli. Inspector tók þá aftur til máls og sagðist ekki skilja, hvers vegna gera þyrfti Jjessa nýbreytni að fjaðrafoksmali, þar eð augljost væri, að hún væri smávægileg og einungis til bóta, og bryti á engan hátt í bág við lög skólafélagsins.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.