Austri - 22.11.1961, Page 2
AUSTRI
Neskaupstað, 22. nóvember 1961.
2
Afmæliskveðj a
Hinn 21. okt. varð Pétur Ein-
arsson, Hafursá ’á Völlum átt-
ræður.
Pétur fór ungur til vandalausra
og var haldið fast að vinnu, sem
venja var á þeim árum, enda var
hann fljótt ötull, trúverðugur og
þrautseigur. Vinnuharkan hleypti
þrótti í þá, sem vel voru gerðir
og burðarmiklir, en reyndist oft
ofjarl þeim, er tápminni voru. Á
þessum árum var alsiða að hefja
verk eldsnemma að morgni og
standa við langt fram á kvöld,
fram til kl. 9 eða 10.
Pétur var í vist á ýmsum bæjum
í Fljótsdal í uppvexti og réðist
svo til frænda síns Tryggva Ól-
afssonar á Víðivöllum. Á þeim
árum gekk hann að eiga Ingileif
Sigurðardóttur.
Pétur réðst á fullorðinsárum
til Skógyæktar ríkisins á Hall-
ormsstað og vann þar óslitið í 15
ár. Haft liefur verið á orði, að
ýmsir í þjónustu ríkisins skili
litlu dagsverki. Þetta átti ekki við
um Pétur Einansson, Hann var
skógræktinni jafntrúr og öðrum
húsbændum sínum og vann henni
vel og dyggilega. Eru mörg hand-
verk hans enn að bera ávöxt í
þessum fagra gróðrarreit Aust-
urlands.
Pétur hafði litla setu á skóla-
bekk, en er þó vel menntur og
mest af sjálfum sér. Hann er
bókelskur, les mikið og kann vel
til margra hluta, er reifur og
glaður, ræðinn og skemmtilegur
samvistum. Og enn er hann léttur
í lund og ungur í anda þótt ald-
inn sé að árum.
Pétur hefur alla ævi unað svo
að segja í sömu sveit og er bund-
J
inn henni sterkum böndum, en
jafn annt er honum um þjóð sína
og fósturjörð og er næmur á
fegurð landsins.
Á afmælisdaginn heimsóttu
hann ýmsir vinir og árnuðu hon-
um heilla. Þá sem fyrr lék hann
á alls oddi og hreif alla með sér
af fölskvalausri lífsgleði. Með
honum er alltaf gott að vera.
Vinur.
Sldtrun lokið
hjó K. H. B.
Slátrun sauðfjár er nýlokið hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa. Alls var
slátrað 49.400 fjár og er það tæp-
lega 5.000 fleira en sl. ár. og hef-
ur aldrei fyrr verið slátrað jafn-
mörgu fé á vegum félagsins.
Kemur hvort tveggja til, að bænd-
ur hafa undanfarin ár fjölgað fé
sínu og að vegna lélegs heyfengs
víða á félagssvæðinu eru færri
líflömb sett á vetur. Þá hafa
margir af sömu ástæðu fargað
eldri ám og lélegum.
Meðal fallþungi dilka varð
13.39 kg. og er það nokkru minna
en í fyrra.
Beztu meðalvikt fékk, eins og
undanfarin ár, Halldór Sigvarðs-
son, Brú, Jökuldal. Hann lagði inn
157 dilka og varð meðalþungi
þeirra 18.75 kg. Halldór átti
einnig fallþyngsta dilkinn, sem
vóg 26.1 kg.
Mestur hluti kjötsins fer á inn-
anlandsmarkað, en eitthvað verð-
ur selt úr landi. Til England hafa
þegar verið send 270 tonn af
kjöti og 14 tonn af innmat.
»Lömun þjóðarlíkamans«
Þegar „viðreisn" stjórnar-
flokkanna hafði verið fram-
kvæmd um það bil þrjá ársfjórð-
unga, sagði þjóðkunnur maður,
sem starfar í Sjálfstæðisflokkn-
um, að áhrif „viðreisnarinnar"
hefðu reynzt eins og lömun á
þjóðarlíkamann. Hafði hann þá
einkum í huga afkomu sjávarút-
vegsins.
Fleiri og fleiri vitnisburðir úr
ýmsum áttum styðja þetta álit á
verkum núverandi stjórnarflokka.
Einn af þingmönnum Alþýðu-
flokksins hefur lagt áherzlu á
það í ræðu, að á þessu ári hafi
átt sér stað fimmtán stór verk-
föll og víðtæk, sem hafi dregið úr
framleiðslu þjóðarbúsins.
Um þessar mundir segja verka-
lýðsfélög á ýmsum stöðum upp
kaupgjaldssamningum enn að
nýju, þar á meðal stór félög, þar
sem stjórnarliðar hafa tögl og
hagldir, s. s. Iðja í Reykjavík.
S j ávarútve gsm ál ar áðh e r ra
skýrir sjálfur frá því á aðalfundi
Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna, að við borð liggi
truflun á framleiðslustarfseminni
við sjávarsíðuna sökum ágrein-
ings um fiskverð.
Verkfræðingar hafa horfið frá
störfum fyrir nokkrum mánuðum
og er starf margra ríkisstofnana
lamað af þeim sökum.
Morgunblaðið skýrir frá því, að
tíu verkfræðingar hafi flutzt úr
landi síðustu vikumar og að við
borð liggi, að fleiri í þeirri stétt
hverfi af landi brott.
Starf Atvinnudeildar Háskól-
ans að jarðvegsrannsóknum er að
stöðvast.
Fyrir nokkrum dögum birti
Morgunblaðið, aðalmálgagn ríkis-
stjórnarinnar, svohljóðandi fyrir-
sögn: Leggjast jarðhitarann-
sóknirnar niður? Dr. Gunnar
Böðvarsson hættir störfum.
Þannig er ástatt í þjóðfélagi
voru í dag. Við augum blasir
lömun í mörgum greinum.
Framsóknarmenn hafa varað
við „viðreisnar“-stefnunni og á-
hrifum hennar. — En nú eru
stjómarliðar og málgögn þeirra
tekin að vitna um afleiðingarnar.
Dýrðlegur fagnaður
framundan
Það hefur lengi verið draumur
kommúnista að reisa hér í bæ
styttu af félaga Staiín, og í þeim
tilgangi var fyrir löngu stofnað-
ur sjóður Rússlandsfara, sem
veittu því athygli, að þar austur
frá var enginn kotbær svo aum-
ur, að ekki státaði líkneskja af
Stalín á torgi eða stræti. Rann
þessum mönnum til rifja um-
komuleysi Neskaupstaðar í þessu
efni og töldu brýna nauðsyn til
þess bera, að reist yrði minnis-
merki yfir „mesta velgerðar-
mann mannkynssögunnar“ í
þeim eina bæ Norðurálfu, sem
lærisveinar hans færu með völd.
Til þessa hefur hugmyndin ekki
náð fram að ganga, en nú opnuð-
ust skyndilega nýir möguleikar.
Verið er að brjóta niður þúsund-
ir minnismerkja af Stalín og
hafa verkamenn austantjalds
fengið marga eftir- og nætur-
vinnustund síðustu vikur. Fyrir
þrábeiðni kommúnista hér og sér-
staka forgöngu Lúðviks Jós-
epssonar, fékkst leyfi rússneskra
stjórnarvalda til að flytja eina af
styttum Stalíns úr landi, að vísu
ekki af þeim stærstu, en þó
þokkalega, nokkurra mannhæða
háa mittismynd.
Á Stórráðsfundi, sem nýlega
Hvað á barnið . . .?
Framhald af 1. síðu.
Héraðsbúar mega ekki láta þá
skömm sannast á sér, að þeir séu
slíkir verrfeðrungar, að þeim sé
um megn að finna skaplegt heiti
á veizlunarstað sinn, sem innan
tiðar verður líka miðstöð at-
hafna og menningar á Héraði.
Athugum enn á ný gamlar uppá-
stungur, — Lagarás er ágætt
nafn, — og komið fram með nýj-
ar, runnar af austfirzkri rót, sem
minna á Hérað, Múla, Löginn eða
önnur kær heiti. Drífum svo fé-
iagsmálaráðherra á ný í hemp-
una og látum ekki standa á svari,
þegar hann spyr: Hvað á þorpið
ykkar Héraðsbúa að heita?
var haldinn, var samþykkt að
koma minnismerkinu fyrir uppi á
Júdasarbala og gerð frumdrög að
dagskrá hátíðarhalda við afhjúp-
un styttunnar. Aðalræðuna held-
ur Litli-Stalín yfir texta, sem Ól-
afur Jónsson velur úr Rómar-
samningnum, Æskulýðsfylkingin
endurtekur helztu skemmtiatriði
síðasta útbreiðslufundar, grátkór
gamalla Línukomma syngur,
sólóisti verður Bjarni Þórðarson.
Athöfnin hefst við Glaumbæj-
ardyr og verður þaðan gengið í
prosessíu til hátíðarsvæðisins, en
í fararbroddi mun fara Gunnar
Ólafsson með mynd hins látna
ástmögurs fyrir sér. Lúðvík Jós-
epsson afhjúpar styttuna, vænzt
er sendinefnda frá flokksdeild-
um, m. a. verður viðstödd fjöl-
menn sendinefnd frá Sósíalista-
flokknum, sem mætir í nafni Al-
þýðubandalagsins.
Gleymdust
bótarnir? pl
Fyrir nokkrum árum skutu út-
vegsmenn saman fé til smíða á
tveimur kappróðrarbátum og
lagði bæjarsjóður líka fram fé.
Gunnar Þórarinsson smíðaði síðan
bátana sem afhentir voru Sjó-
mannadagsráði að gjöf á sjó-
mannadaginn. Síðar var byggt
hús yfir bátana.
Þessir bátar hafa lítið verið
notaðir, nema til keppni í róðri á
sjómannadag ár hvert, en sá þátt-
ur þykir nauðsyn á skemmtiskrá
dagsins.
Með góðri umhirðu gætu bát-
arnir enzt lengi og til þess mun
hafa verið ætlazt af gefendum.
Nú hefur svo brugðið við, að bát-
arnir hafa legið úti í allt sumar
og liggja enn og hafa þegar orð-
ið fyrir áföllum og hnjaski. Væri
æskilegt, að forráðamenn eig-
enda bátanna settu í sig hörku
og kæ’mu þeim í hús, áður en
meira tjón hlýzt af.
N or ðfirðingar
Nýkomnir gúmmískór, kuldaúlpur, fjölbreytt úrval kjóla-
efna. Einnig kaffi- og matarstell, stakir bollar og diskar. \
Singer saiunavélar og Singer prjónavélar, armbandsúr og
eldhús-, stofu- og vekjaraklukkur, ýmiskonar kristalsvörur.
i Silfurvörur, s. s. sykursett á bakka, kjötskurðarsett, barna-
sett, krossar o. fl.
Tökum upp daglega mibið úrval af alls konar
jólavörum.
KF. FRAM.