Austri - 21.02.1962, Page 1

Austri - 21.02.1962, Page 1
7. árgangur. Neskaupstað, 21. febrúar 1962. 4. tölublað. Mjólkurframleiðsla færist í aukana Rætt við mjólkurbússtjórana í Neskaupstað og Egiisstöðuni V —JOikJ Þess var nýlega getið í útvarps- fréttum um rekstur mjólkurbúa á liðnu ári, að mest hefði mjólkur- aukningin orðið hlutfallslega á svæði Mjólkurbús KHB á Egils- stöðum, en mjólkurstöð Kf. Fram í Neskaupstað haft jafnbeztu mjólkina. Það hefðu einhverntíma þótt tíðindi, að Austfirðinga væri sér- staklega getið að ágætum á þessu sviði. — Austri hefur af þessu tilefni átt stutt samtöl við þá Svavar Stefánsson, mjólkurbús- stjóra á Egilsstöðum og Inga Sig- mundsson kollega hans í Neskaup- stað og innt þá frétta. Ingi: Já, við byrjuðum að flokka mjólkina fyrir rúmum fimm árum. Fyrst flokkaðist hún misjafnlega, talsvert fór í II. og III. flokk, en þetta hefur farið batnandi. Flokk- unin er nauðsynleg könnun á því, hvar við vorum staddir um gæði framleiðslunnar og þegar sú könn- un lá fyrir, var hægt að leita að því hvar skórinn kreppti og reyna að bæta úr ágöllunum. Þetta hef- ur með góðum vilja, tekizt það vel, að sl. ár fóru 434.358 kg. í I. fl., 6040 í H. og 265 í HL, en innvegin mjólk það ár varð 440.663 kg. E\r nokkuð að marka þessa flokkun ykkar? Það á að vera. Sömu aðferðum er beitt um land allt, og raunar nálæg lönd, og sömu matsreglur gilda um flokkaskipunina. Mjólk- in er litarprófuð og segir sú próf- un til um gerlafjölda mjólkurinn- ar, en undir honum eru bragð og geymsluþol mjólkurinnar mjög komið. Þá er hún fituprófuð við og við. Einkum til leiðbeiningar fyrir nautgriparæktarfélag fram- leiðenda. Hve oft er mjólkin litarprófuð? Vikulega, en ekki á fyrirfram tilteknum dögum. Framleiðandi veit þannig ekki hvenær mjólk hans verður athuguð, en er látinn vita um niðurstöður hennar. Á þann hátt fylgist hann að jafnaði með framleiðslunni og fær jafn- skjótt að vita, ef út af bregður um gæði hennar. Komi það fyrir, er aldrei látið undir höfuð leggjast að finna orsökina og bæta úr eftir föngum. Við stærri mjólkurbú eru fleiri prófanir gerðar. Þeim verð- ur varla við komið hér. Ég hef þó hug á að taka upp prófanir sem segja til um það, hvort kýrn- ar hafa júgurbólgur. Hvað veldur gæðum mjólkur- innar ? Framleiðendur eru fáir, að stað- aldri 12—14, flestir um 20, mjólk- in er flutt daglega til mjólkur- búsins og um skamman veg. Það eru um 7 km frá innsta bæ í sveit- inni að stöðvarvegg, en fyrst og fremst má þakka þetta góðri um- gengni í fjósum og nákvæmni í meðhöndlun mjólkurinnar, hirðu- semi í meðferð mjaltavéla og mjólkuríláta samhliða góðri kæl- ingu. Bændur lcggja metnað sinn í að vanda framleiðslu sína og samstarfið við þá hefur frá upp- hafi verið hið bezta. Þess vil ég geta, að þótt flutn- ingar á mjólkinni séu auðveldir að sumri til, er aðra sögu að segja að vetri. Vegurinn um sveitina er gamall, lítið uppbyggður í upp- hafi og víða siginn. Það er því mjög aðkallandi að endurbyggja veginn og velja honum stað með tilliti til snjóalaga. Kaupfélagið rekur mjólkurstöð- ina? Já, og lét reisa vandað hús vfir þá starfsemi. Stöðin var tekin í notkun í des. 1959 og hefur reynzt vel, bæði innrétting og vélarbún- aður. I sama húsi er mjólkurbúð, þar sem seld er mjólk í lausu máli, rjómi og sýrð mjólk. Mjólkin fer öll, að kalla til neyzlu. Mjólkurmagnið, sem stöð- inni berst, er misjafnt eftir árs- tímum, mest í júní-ágúst, en minnst í okt.-nóv. Mjólkurþörfin er misjöfn, en oftast fullnægir heimaframleiðslan ekki eftirspurn- inni og þarf þá að kaupa mjólk að. Síðari hluta vetrar er alltaf nokkuð í afgangi og látið ganga í rjóma og skyr, en meginið af rjóma og skyri og allar aðrar mjólkurvörur verður að kaupa að. Innflutningur af skyri, rjóma og mjólk varð sl. ár, ná- lægt 600.000 í krónum talið. Nokkrar nýjungar á döfinni? Ekki á næstunni. Stöðugt er leitað eftir nýjum og hagkvæmum aðferðum við „pökkun" mjólkur- innar. Þær aðferðir, sem mest eru notaðar, fullnægja ekki kröfum neytenda. Hinar glæru flöskur eru gaálagripir, pappirsumbúðir dýr- ar, en vitanlega getum við ein- ungi3 reynt að fylgjast með þeim nýjungum, sem fram koma og beðið þess, að eitthvað komi inn- an tíðar sem henti okkur við þær aðstæður sem við búum við. Ný- lega fórum við að selja rjóma í : flöskum og tökum senn upp sama j hátt við sýrðu mjólkina. Aðrar breytingar verður framtíðin að leiða í ljós á sínum tíma. Svavar: Já, það varð mikil aukning á | imjólkurmagninu síðast liðið ár. Og svo er enn. — Innvegin mjóik í janúar núna er um 40 þús. lítr- um meiri en í fyrra. Þó voru flutningar núna mjög erfiðir í a. m. k. eina viku. Ófullkomið vegakerfi er mjólk- urframleiðslunni á Héraði mikill fjötur um fót. Almennt talað má segja að vegakerfið á Héraði þoli Fyrir réttum 60 árum bundust þrjú k'aupfélög í Þingeyjarsýslum samtökum og stofnuðu Samband íslenzkra samvinnufélaga. Fyrstu kaupfélögin voru stofn- uð í þeim tilgangi að ná verzlun- inni úr höndum erlendra kaup- manna og jafnframt að veita mönnum þau hagstæðustu verzl- unarkjör sem unnt væri. Forvígis- menn kaupfélaganna þóttust þess fullvissir, að bætt verzlunarþjón- usta í höndum innlendra aðila myndi verða mikill aflgjafi al- mennra framfara í búnaði og öllu athafnalífi þjóðarinnar, en varla hafa þeir séð fyrir, að þetta fé- lagsform myndi breiðast út um land allt og ná þeim þrótti sem nú er. Samband kaupfélaganna var í upphafi í samræmi við frumstarf kaupfélaganna, einungis verzlun- armiðstöð. Greiddi fyrir innflutn- ingi verzlunarvarnings og leitaði 1 hagstæðra markaða fyrr afurðir svo sem engin snjóalög. Auk þess eru svo ennþá allvíða einstök höft sem myndast strax í fyrstu snjó- um. Þannig er t. d. ástatt í öxl- unum utan við Eiða, hérna inn hjá Höfða og víðar og víðar. Er oft gremjulegt, þegar slík höft loka leiðum hér skammt undan, en síð- an er kannske skotfæri um allt á enda mjólkurleiðarinnar. — Þó er það ótalið, sem ergir mann kann- ske hvað mest, aurbleytan á vor- in, en þá hendir það ósjaldan að bílum verður alls ekki við komið og er þá brotizt á dráttarvélum og jafnvel ýtum — eftir auðum veg- unum! •— Á hinu leitinu er það svo náttúrlega gífurlegt óhagræði hvernig háttað er vegarsamband- inu við Neskaupstað, fjölmennasta staðinn í fjórðungnum. IIver.su víða dragið þið svo föng til bús? Fyrst er að nefna hreppana fyrir austan Fljót, allt frá efstu bæjum í Skriðdal og Skógunum til yztu bæja í Hjaltastaðaþinghá. Nálega hver bóndi á þessu svæði hefur nú orðið einhverja mjólkur- sölu. 1 Fellum er mjólkursala orð- in allalmenn og tveir bæir í Fljóts- Frarnh. á 3. síðu. meðlima kaupiélaganna. Fljót- lega sannaðist, að kaupfélögin brugðust í engu vonum manna um bætt verzlunarkjör. Það sannfærði menn um, að í samstöðu og sam- vinnu almennings fælist afl, sem beita mætti við lausn fjölmargra annarra viðfangsefna. 1 samræmi við þessa reynslu, leituðu kaupfé- lögin fleiri viðfangsefna, einkum á sviði athafnalífsins og urðu brátt svo öifliug af samstilltujm kröftum almennings, að atvinnu- lífið úti um land hvíldi að veru- legu leyti á þeirra herðum og til þeirra gátu menn leitað marghátt- aðrar fyrirgreiðslu og þjónustu. Heildarsamtökin þróuðust í svip- aða átt og nú eru hin fámennu verzlunarsamtök kaupfélaganna orðin að víðfeðmri samvinnuhreyf- ingu sem þegar hefur haslað sér völl á flestum sviðum í athafna- og viðskiptalífi þjóðarinnar. En þótt samvinnumenn hafi Framh. á 4. síðu. Samb. ísl. samvinnuíélaga 60 ára

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.