Austri - 20.07.1967, Blaðsíða 4
4 '
f
AUSTRI
Neskaupstað, 20. júlí 1967.
FREGNAD ÚR FJÚRDUNGNUM
Að lokinni fermingarguðsþjón-
ustu á Valþjófsstað í sumar,
hafði sóknarnefnd Valþjófsstað-
arkirkju boð inni í félagsheimil-
inu til heiðurs Einari Sveini
Magnússyni og konu hans Maríu
Jónsdóttur. Þau hafa nú brugðið
búi og Einar Sveinn lætur af
starfi meðhjálpara eftir u.þ.b. 40
ára þjónustu. Hann hefur og átt
sæti í sóknamefnd í nærfellt 50
ár, lengst af formaður. Bæði hafa
þau hjón sýnt kirkjunni mikla
ræktarsemi og hús þeirra staðið
opið fyrir messugestum alla tíð.
Benedikt Friðriksson flutti að-
alræðuna fyrir minni heiðursgest-
anna. Auk hans töluðu þeir Gutt-
ormur Þormar, Jón M. Kjerúlf,
Hallgrímur Helgason, Vigfús
Þormar og Erlingur Sveinsson.
Séra Bjarni Guðjónsson .stýrði
hófinu og Jón M. Kjerúlf leiddi
almennan söng. Þeim hjónum var
fært að gjöf málverk af Valþjófs-
stað.
Á 2. hundrað manns sátu hóf-
ið.
—o—
Nýlega var opnað á Eskifirði
nýtt veitinga- og gistihús, sem
hlotið hefur nafnið „Hótel Askja“.
Eigendur hins nýja gistihúss eru
þeir feðgar Viggó Loftsson, mat-
reiðslumaður og Sigvaldi Viggós-
son, framreiðslumaður, sem jafn-
framt er hótelstjóri.
Sigvaldi nam iðn sína í Nausti
í Reykjavík, en flutti heim til átt-
haganna á sl. vetri.
Hótel Askja er til húsa í
„gamla læknishúsinu", viðamiklu
og allstóru timburhúsi, sem nú
hefur verið umskapað eins og
frakast er unnt með tilliti til
þarfa síns nýja hlutverks. Hefur
sú nýsköpun tekizt mjög vel.
Á neðri hæð hótelsins er gesta-
móttaka, setustofa, snyrtingar,
véitingasalur fyrir um 50 manns,
auk eldhúss.
1 veitingasalnum er komið fyr-
ir sjálfsafgreiðsluborði, sem held-
ur mat heitum um langan tíma.
Á efri hæðinni eru gestaher-
bergi fyrir samtals 13 manns. Eru
þau búin ágætum húsgögnum.
Undanfarið hefur skortur á
gisti- og veitingaþjónustu verið
tilfinnanlegur á Eskifirði. Með
tilkomu Hótel Öskju raknar veru-
lega úr þeim vanda.
Fyrir skömmu héldu Skóla-
nefnd og Hreppsnefnd Eskifjarð-
ar þeim hjónum frú Sigríði og
Ragnari Þorsteinssyni, kennara á
Eskifirði, kveðjusamsæti, er þau
voru á förum til Reykjavíkur eft-
ir langa og farsæla búsetu á
Eskifirði, þar sem Ragnar hefur
verið kennari frá árinu 1931.
Jóhann Klausen oddviti, stjórn-
aði samsætinu, en ræður fluttu
auk hans, Magnús Bjarnason,
skólanefndarformaður, sem til-
kynnti þeim hjónum, að skóla-
nefnd og hreppsnefnd hefðu á-
kveðið að færa þeim hjónum að
gjöf sjónvarp, sem afhent yrði
þeim er þau hefði komið sér fyrir
á hinu nýja heimili sínu syðra,
Þorleifur Jónsson, sveitarstjóri,
er mælti fyrir minni frú Sigríðar,
Arnþór Jensen, framkv.stj. er til-
kynnti um bókagjöf þeim hjónum
til handa, frá Pöntunarfélagi
Eskfirðinga, en Ragnar var þar
um árabil stjórnaformaður, Krist-
ján Ingólfsson er flutti kveðjur
frá Barna- og unglingaskóla Eski-
fjarðar, Bóas Emilsson er minnt-
ist starfa Ragnars í þágu umf.
Austra, Þorvaldur Friðriksson og
Óli Kr. Guðbrandsson fyrrum
skólastjóri.
Hátt á annað hundrað manns
sátu hófið, sem var í alla staði
hið ánægjulegasta.
I dag heldur um 30 manna
hópur af stað héðan að austan á-
leiðis norður í Laugar í Þingeyj-
arsýslu til keppni í knattspyrnu
og handknattleik. Hér er um að
ræða úrvalslið U.Í.A. í þessum
iþróttagreinum, er taka þátt 1
undankeppni Landsmóts U.M.F.Í.
er fram á að fara á Eiðum á
næsta ári.
Iþróttafólkið er frá íþróttafé-
laginu Þrótti í Neskaupstað, Umf.
Austra á Eskifirði, Umf. Leikni á
Fáskrúðsfirði og Knattspyrnufé-
laginu Spyrni á Héraði.
Á föstudaginn kl. 11.30 munu
U.Í.A.-stúlkurnar mæta hand-
knattleiksstúlkum H.S.Þ. Þessi ó-
venjulegi leiktími stafar af því að
H.S.Þ.-stúlkurnar fljúga samdæg-
urs til keppni sem háð verður í
Vestmannaeyjum.
Kl. 20.00 á föstudagskvöld mæt
ast Austfirðingar og Þingeyingar
á iknattspyrnuvellinum.
Á laugardag kl. 16.00 keppa
aftur Austfirðingar og Skagfirð-
ingar í knattspyrnu, en hand-
knattleiksstúlkurnar hafa frí þann
dag, þar eð Skagfirðingar eru
með öðrum samböndum í riðli í
handknattleik.
Á sunnudagsmorgun halda
Austfirðingar áleiðis að Lauga-
landi í Eyjafirði, en þann dag
verður haldinn Bændadagur Ey-
firðinga þar á staðnum og keppni
Eyfirðinga og Austfirðinga felld
þar inn í hátíðarhöldin. Keppa
þar bæði knattspyrnumennirnir og
handknattleiksstúlkurnar.
Beztu óskir fylgja hinum ungu
keppendum okkar norður yfir
fjöll.
Sumarhátíð Framsóknarmanna,
sem að venju var haldin aðra
helgi í júlí í Atlavík itókst með
miklum ágætum, þótt veðrið hefði
á laúgardagskvöld mátt vera
betra. Hljómsveitirnar Gautar frá
Siglufirði og Ómar frá Reyðar-
firði léku fyrir dansi.
Aðalhátíðardagskráin hófst ikl.
2.00 á sunnudag í samkomu-
rjóðrinu. Vilhjálmur Hjálmarsson
setti samkomuna og stjórnaði
henni. Ávörp fluttu þeir Eysteinn
Jónsson, alþm. og Tómas Árna-
son, hrl., en aðalræðuna flutti sr.
Sveinn Víkingur fyrrum sóknar-
prestur á Seyðisfirði.
Skemmtiskrá var mjög fjöl-
breytt, leikararnir Gunnar og
Bessi fluttu skemmtiþátt, Karl
Einarsson hermdi eftir stórmenn-
um, Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari söng og þar að auki
skemmtu Gautar frá Siglufirði
undir stjórn Gerhards Smith.
Lúðrasveit Neskaupstaðar lélc
í upphafi og á milli atriða undir
stjórn Haralds Guðmundssonar.
Magnús Stefánsson var fram-
kvæmdastjóri samkomunnar ann-
að árið í röð. Tókst starf hans
með ágætum, en auk þess unnu
samkomunefndarmennirnir Sigur-
jón Jónasson, Jón Kristjáns-
son, Marinó Sigurbjörnsson, Sig-
mar Hjelm og Hiimar Thoraren-
sen mjög gott starf auk fjölda
sjálfboðaliða.
Höskuldur Goði Karlsson, í-
þróttakennari við Samvinnuskól-
ann í Bifröst hefur stundað er-
indarekstur fyrir íþróttasamband
Islands 2 undanfarin sumur. Und-
anfarinn hálfan mánuð hefur hann
ferðazt milli íþrótta- og ung-
mennafélaga hér á Austurlandi og
áætlað er að hann heimsæki þau
öll, áður en lýkur veru hans hér
eystra í sumar.
Jópiter hlœr um ollt Austurl.
Leikfélag Neskaupstaðar boðaði
nokkra fréttamenn blaða á sinn
fund 12. júlí sl. Gerði þar for-
maður félagsins Birgir Stefáns-
son grein fyrir starfsemi L. N.,
sem virðist mikil og athyglisverð.
Fyrirhugað er að leggja upp í
leikferð um allt Austurland með
sjónleik í þrem þáttum eftir A. J.
Cronin sem heitir „Júpiter hlær“.
Leikstjóri er Erlingur E. Hall-
dórsson, en ekki er víst að hann
geti verið með í þessari ferð, eða
öllu heldur ferðum sökum anna.
Mun þetta í fyrsta sinn sem
leikfélag á Austurlandi skipulegg-
ur sýningaferð til svo margra
staða og fjarlægra, eins og Vopna
fjarðar og Hornafjarðar Verður
þetta að kallast mikið framtak
og dugnaður hjá Leikfélagi Nes-
kaupstaðar, að leggja upp í þessa
ferð, og það sem mestu máli
skiptir er hið mikla og þrotlausa
starf sem liggur að baki slíkrar
ferðar. Félagsáhugi til að fá fólk
til að taka að sér hlutverk, svo
að læra, æfa og allt sem því er
samfara, fá lánað hitt og þetta,
búa til og lagfæra svo að það
geti gengið. Þetta þekkja aðeins
þeir, sem í hafa komizt. Allan
spenninginn við fyrstu sýningu.
En allt þetta hefur verið lagt á
sig fyrir örfáa áhorfendur. Því
hefur oft mikið og gott starf ver-
ið unnið en fáir fengið að njóta.
Nú ætlar L.N. að reyna nýja leið
og sýna okkur Austfirðingum öll-
um árangurinn af sínu áhuga-
starfi. Hér er ekki um lærða eða
launaða leikara að ræða, en mér
finnst stundum að fólk geri ekki
mun á því.
Áætlun L.N. er þessi:
15. júlí sýndi leikfélagið í
Sindrabæ á Höfn í Hornafirði.
21. júlí ,föstudag, Neskaupstað,
og verður það 4. sýningin þar.
22. júlí, laugardag, Vopnafirði.
23. júlí, sunnudag, Egilsstöðum.
28. júlí, föstudag, Eskifirði.
30. júlí, sunnudag, Seyðisfirði.
Á Reyðarfirði er ákveðið að
hafa sýningu, en ekki hvaða dag
það verður. Fór Birgir nokkrum
orðum um, hvað Reyðfirðingar
væru miklir áhugamenn um leik-
list og góðir heim að sækja, en
teldu sig nokkuð afskipta um við-
komur leikflokka, þrátt fyrir
þeirra ágæta hús. Reyðfirðingar
hafa áður sýnt „Júpiter hlær“.
Áður hefur L.N. sýnt á Fá-
skrúðsfirði og Breiðdal, en ekki
gat Birgir svarað ákveðið hvort
sýnt yrði að Hamraborg á Beru-
fjarðarströnd, en taldi þó nokk-
um hug á því hjá L.N.
Þetta er annað viðfangsefni
Leikfélags Neskaupstaðar á þessu
leikári. Áður var tekið „Gildran",
leikstjóri Höskuldur Skagfjörð.
Um 850 menn hafa séð „Júpiter
hlær“ hjá L. N.
Aðspurðir sögðu fulltrúar L. N.
að mikið væri um að sama fólk-
ið starfaði að þessum málum, en
alltaf bættust nýir í hó»»ínn, r. d.
væru 4 nýliðar í þessu leikriti.
Félagið er 16 ára og hefur
fengizt við um 20 verkefni. Und-
anfarandi ár hafa verið tekin 2
verkefni, og taldi Birgir auðveld-
ara að fá fólk til starfa með því
að hafa verkefni sífellt í gangi.
Með þessari ferð er hafinn nýr
þáttur í starfi leikfélaga á Aust-
urlandi, þar sem þetta er fyrsta
leikferð að sumri til sem skipu-
lögð er um allt Austurland af
áhugaleikfélagi, þó ekki sem ein
ferð, heldur sem nokkrar helgar-
ferðir.
Um leið og Austri óskar L. N.
góðrar ferðar, væntum við þess
að þessi ferð takist vel og hægt
verði að vænta þess á næstu
sumrum, að okkur gefist kostur á
að sjá viðfangsefni hinna ýmsu
leikfélaga á Austiirlandi.