Austri - 29.05.1969, Page 2
2
AUSTRI
Neskaupstað, 29. maí 1969.
Atþingi sliíii
Þinglausnir fóru fram laugar-
daginn 17. maí að lokinni skarpri
hrotu síðustu dagana.
Öngþveili efnahagsmálanna hef
ur sett, svip á þinghaldið, geng-
islækkunin og fjöfmargar laiga-
setningar í kjölfar hennar tóku
mikinn tíma framan af þingi.
Mörg önnur mál voru að sjálf-
sögðu afgreidd, þar á meðal ým-
is lög um menningaimál, er rík-
isstjórnin hafði látið undirbúa
t. d. lög um þjóðminjasafn, Lisla-
gafn, Háskóla ísiands o. s. frv.
Framsó'knarmenn fluttu mörg
mál á þessu þingi, 70 frumvörp
og þingsályktunartillögur, er þeir
fluttu einir eða voru fyrstu flutn-
ingsmenn að, auk fjölda fyrir-
spurna. Þá voru þingmenn Fram-
sóknar meðflutningsmenn að 20
máilum.
Telja má á fingrum sér þau
mál stjórnarandstæðinga er sam-
þyk'ki hlutu. Meðal þeirra var til-
laga Eysteins Jónssonar um
starfshætti Alþingis og tillaga
Ólafs Jóhannessonar og fleiri um
undirbúning löggjafa um þjóðar-
atkvæði.
Þá var ©amþykkt tillaga frá
Tcmasi Árnasyni um rannsóknir
á loðnugöngum ásamt: vicauka frá
Vilhjálmi Hjálmarssyni um heim-
ild fyrir i-íkisstjórnina til að
leigja skip til fiski’eitar og rann-
só'kna í 6 mánuði. Einnig fengu
þeir I.ngvar Pálsson, Jónas Jóns-
son cg Einar Ágústsson sam-
þykkt mál á þinginu.
Það er áreiðanlega misráðið
hversu tregt hefur verið um af-
greiðslu mála á Alþingi, ef þau
koma úr herbúðum stjórnarand-
stöðunnar — og er það raunar
ekki nýtt. Margt þeirra mála, er
einstakir þingmenn flytja geta að
sjálfsögðu verið hin athygliverð-
ustti mál þótt þau snerti ekki
meginst efnu stjórnmálaflok'kanna.
Slík mál á að vera hægt að íhuga
Qg afgreiða hleypidómalaust og
án tillits til þess hver ber þau
fram.
Allir geta skilið, að mál eins og
frumvörp Framsóknarmanna um
Atvinnumálastofnun, um breytta
stefnu í lánamálum og í málefn-
um iðnaðarins, svo dæmi sé nefnd,
geta eigi náð samþykki Alþingis
eins og það nú er skipað. En allt
öðru gegnir um fjölmörg önnur
mál.
Þó að það hafi ekki verið 'kann-
að tölulega, þá er það mál manna
að enn færist í vöxt á Alþingi sá
lieiði siður að mál fáist ekki af-
greidd á þinglegan hátt heldur
safni í nefndum.
Hér veldur væntanlega allt í
senn, helzt til langdregin ræðu-
höld á stundum, úrelt skipulag o;g
slæleg verkstjórn.
Að samþykktri fyrrnefndri til-
lögu Eysteins Jónssonar um
starfghætti Aljbingis mun nefnd
Auhin trkiöjlui utin Suöur-
landssvœðisins brýn nuuðsyn
Frá fundi Rafmaansveitna ríkisins
Rafveitu- og deildarstjórafund-
ur Rafmagnsveitna ríkisins var
haldinn að Höfn í Hornafirði
dagana 28.—30. apríl sl.
Fundinn sóttu svæðarafveitu-
stjórar Rafmagnsveitnanna, deild-
arstjcrar á aðalskrifstofu, au!k
nokkurra annarra starfsmanna.
Fundurinn hcfst með stuttu
erindi Gísla Björnssonar, raf-
veitustjcra á Hornafirði. Ræddi
hann um virkju Smyrlabjargaár,
langan aðdraganda hennar og
undirbúning, en framkvæmdir við
virkjunina eru nú í fullum gangi.
Síðan var farið í skoðunaríerð á
virkjunarstað, um 50 km frá
Höfn. i; [
Framkvæmdum við virkunina
hefur miðað vel áfram. Við þær
hefur verið stuðzt við CPM-áætl-
un 'Og hefur notkun þess kerfis
gefizt mjög vel.
Acalefni fundarins var erinda-
flutningur og umræður um ýmis
málefni Rafmagnsveitnanna.
Valgarð Thoroddsen, rafmagns-
veitustjóri, ræddi um fjármál
þeirra. Hann taldi rekstraraf-
komuna árið 1968 hafa verið við-
unandi. Niðurstaða rekstrar-
reiknings voru um 250 millj. kr.,
þar af samningsbundnar greiðsl-
ur vaxta og afborgana um 90
miUj. cg stóðust tekjur og gjöld
nok'kum veginn á. Þó var ekki
um rekstrarafgang að ræða til
að táka þátt í nýbyggingum af
eigin fé. f (
Hins vegar taldi rafmagnsveitu-
stjóri, að fjárhagsútlitið fyrir ár-
ið 1969 væri mjög slæmt. Síðasta
gengisbreyting hefði haft i för
með sér aukningu rekstrargjalda
um 90 millj. kr. á árinu og væri
útilokað að mæta þessum auknu
gjöldum með hækkunum lil kaup-
enda Rafmagnsveitna rikisins
einna. Lausn þessa vandamáls
væri nú í athugun hjá stjórnar-
völdum.
Jón Helgason flutti erindi um
skipulagsmál, Bent Scheving
Thcrsteinsson um birgðEumál, Er-
ling Garðar Jónasson um rekstur
dreifikerfa og öryggismál starfs-
manna, Ólafur Eiríksson um
varnarviðhald orkuvera, Ágúst
Halblaub um samkeyrslu orku-
vera og Tryggvi Sigurbjarnarson
um línubyggingar.
Þá flutti gestur fundarins, Jón
manna frá öllum þingflo'kSkum
ásamt forsetum þingsins íhuga
þessi mál í sumar. Verður for-
vilniiegt aó sjá að liausti „hve
vænlegt ráð þeir hitta".
Á. Bjarnason, rafmagnseftirlits-
stjóri, erindi um eftirlitsmál raf-
oi'kuvirkja.
Miklar umræður urðu um öll
þessi mál. Einnig kom fram á
fundinum mildli áhugi um aukna
hagkvæmni í orkuöflun og var
kosin sérstök nefnd til athugun-
ar á því máli. 1 nefndina hlutu
kosningu Guðjön Guðmundsson
s'krifstofustjóri, Aage Steínsson
rafveitustjóri á Vestfjörðum,
Jakob Ágústsson rafveitustjóri í
Ólafsfirði, Ingólfur Árnason raf-
veitustjóri á Norðausturlandi og
Er’ling Garðar Jónasson, rafveitu-
stjóri á Austurlandi.
Nefndin skilaði áliti í lok fu.nd-
arins og var það svohljóðandi:
„Rafveitu- og deildarstjóra-
fundur Rafmagnsveitna ríkisins,
haldinn að Höfn í Hornafirði 28.
—30. apríl 1969 ályklar:
Með virkjun Þjórsár við Búr-
fell hefur verið ríflega séð fyrir
raforkuþörf samkeyrslusvæðisins
á Suðvesturlandi. Fundurinn vill
hins vegar vekja athygli á, að
allir aðrir landshlutar hafa und-
anfarin ár verið afs'kiptir í virkj-
unarmálujm.
Nú er svo komið, að orkuskort-
ur væri í þessum landshlutum,
ef ekki hefði verið gripið til þess
úrræðis að setja upp dieselaflvél-
ar til orkuframleiðslu, en að
sjálfsögðu er þar um bráðabirgða-
ráðstöfun að ræða. Ber því brýr.a
nauðsyn til, að stefnt verði mark-
visst að byggingu vatns- eða
gufuorkuvera og samtengilína í
þessum landshlutum.
Fundurinn fagnar því, að fram-
kvæmdir við virkjun Smyrla-
bjargaár eru vel á veg komnar
og 'bendir jafnframt á, að skv.
lögum frá 1956 er heimilt að fela
Rafmagnsveitum ríkisins að
virkja vainsföll á fjölmörgum
stcðum í landinu, en ákvörðun um
framkvæmdir hefur dregizt úr
hömlu. Frumalhugun um þessar
virkjanir mun þó vera fyrir
hendi.
Nsfndin telur chjákvæmilegt,
að þegar í stað verði hafizf handa
um au'kna og hagkvæma orkuöfl-
un fyrir landshluta utan Suð-
vesturlandsins. Þá telur nefndin,
samkvæmt þeim gögnum, sem
fyrir liggja, að vinkja þurfi og
byggja stofnlínur á svæðum Raf-
magnsveitna ríkisins, utan Suð-
vesturlandssvæðisins, fyrir um
70 millj. kr. til jafnaðar ár hvert
á næstu 10 árum“.
Ályktun þessi var samþykkt
samhljóða af öllum fundarmönn-
um.
Simndferðirnar
Framh. af 4. síðu.
ingaskip, sem nú eru í smíð-
um, 'koma í notkun“.
1 grei.nargerð segir svo m. a.:
Það er alkunna, að í sam-
'gö.ngumálum íslendinga hafa orð-
ið stói-felldar breytingar á síðari
tímum. Flugið er orðinn snar
þáttur í camgcngukerfinu. Og
þctt veglr séu ófullkomnir, þá nær
vegakerfið um allt land, bílaeign
landsmanna hefur aukizt hröðum
skrefum og hvers konar flutning-
ar á landi margfaldazt á fáum
árum. Saga strandsiglinganna
hefur þó orðið með öðrum hætti
síðustu árin. Það hefur sem sé
farizt fyrir að endurnýja þau
ágætu s'kip, sem byggð voru fyr-
ir 20—30 árum, og að bæta á við-
unandi hátt aðstöðu til vöruaf-
greiðslu á hafnarstöðum, en það
eru frumskilyrði þess, að unnt
sé að aðlaga strandferðaþjónust-
una breyttum kringumstæðum.
Afleiðingar þessa hafa m. a. orð-
ið þær, að hvers konar flutning-
ar með bifreiðum, þar á meðal
hrsinir þungavöruflutningar á
milli landshluta, hafa aukizt
miklu meira en æskilegt getur tal-
izt, einkum með tilliti til mikilla
vegalengda og hins veika vega-
kerfis, sem hefur goldið afhroð
af þessum sökum.
Sumir munu líta svo á, að far-
þegaflutningar á sjó séu úrelt
fyrirbrigði og heyri til fortíðinni,
og benda á óhagkvæman rekstur
Esju og Heklu því til sönnunar.
Þetta m.un þó þurfa nánari skoð-
unar við.
Esja hin eldri var ætluð jöfn-
um höndum fyrir farþega og vör-
ur, slíkt hið sama nýrri Esja og
Hekla. Allt voru þetta glæsilegir
farkostir á sínum tíma. .. .
Nú gerist það, að innlent far-
þegaflug ryður sér til rúms á ó-
trúlega skömmum tíma. Ferðir
Esju og Heklu, sem eins og fyrr
segir voru vöruflutningaskip öðr-
um þræði, þóttu þá allt of hæg-
fara, enda algengt, að lestun og
losun á stærri höfnum tæki 4 og
allt upp í 8 klst. Grundvöllur
fyrir farþegaflutninga á sjó var
því eigi lengur fyrir hendi.. .
Verkefni nýs farþegaskips yrði
fyrst og fremst að halda uppi ör-
um, kerfisbundnum ferðum milli
Reykjavíkur annars vegar og
Austfjarða og Vestfjarða hins
vegar. . . Reynsla hefur fengizt
fyrir því, að hringferðir að sumr-
inu, jafnvel með gömlu s'kipi, sem
einnig flytur vörur, eiu mjög eft-
irscttar .. .
Á undanförnum árum hafa
strandferðirnar eigi náð að þró-
ast eðlilega samhliða öðrum þátt-
um samgangna, til tjóns og ó-
hagræðis fyrir fólkið á strönd-
i.nni. Smíði tveggja skipa til
vöruflutninga er stórt spor í
réttá átt. En því þarf að fylgja
eftir með viðeigandi aðgerðum á
fleiri sviðum.