Skólablaðið - 01.02.1989, Blaðsíða 19
Ofurlítil ábending til stjórnar ,,Framtíðarinnar66
Á undanförnum árum hefur ræðukeppni í millum
framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu (keppni er
einhverra hluta vegna er sett í samhengi við rökræð-
ur) skipað mestan sess í starfsemi Málfundafélagsins
,,Framtíðarinnar“. Er það mjög að vonum enda hefur
ræðulið skólans ávalt verið skipað valinkunnum sóma-
mönnum, þeas þáverandi og/eða verðandi stjórnar-
mönnum í ,,Framtíðinni“, auk þess sem mæting á ræðu-
keppni hefur oftast verið skammlaus. í lögbók Framtíð-
arinnar stendur að tilgangur þess [þe félagsins] sé ma
sá ,,að æfa félagsmenn í rökfimi og ræðuhaldi og að
efla skemmtan og fróðleik“. Vart verður haldið fram
að hin umfangsmikla ,,Morfís“ keppni æfi aðra félags-
menn en þá þrjá er stjórnin velur til þátttöku, ,,í rök-
fimi og ræðuhaldi“ og óljós er sá fróðleikur er hún
miðlar.
Séu menn sammála um þetta byggist þáttaka „Fram-
tíðarinnar" í keppninni á skemmtanagildi hennar! Að
margra áliti merkir það, að hún standi álíka traustum
fótum og loðdýraræktin í landinu. í síðasta tbl Skin-
faxa ritar Heiðrún Geirsdóttir athygli verða grein um
gildi almennra málfunda. Bendir hún þar mjög rétti-
lega á hve alvarlegar og óæskilegar afleiðingar of
mikil áherzla á keppni á borð „Morfís“ getur haft í för
með sér. Löngum hafa „Junior Chamber“ menn, mál-
freyjur, félagsfræðikennarar og aðrir góðir menn stig-
ið á stokk og útskýrt hve firna þroskandi það sé fyrir
börn og unglinga að fá úthlutað umræðuefni er verja
skal af oddi og egg. Að ekki væri minnzt á kosti þess
að tala gegn eigin sannfæringu.
Hvað skyldi Jóni finnast um „Morfís“?
Samkvæmt skoðanakönnunum dettur fjórum af
hverjum fimm íslendingum ekki í hug að íslenzkir
stjórnmálamenn meini orð af því sem þeir segja. Á
tveggja alda afmæli frönsku byltingarinnar [sem
reyndar mistókst fullkomlega] er óþarft er að fjölyrða
um afleiðingar slíks trúnaðarbrests þegar til lengri
tíma er litið. Það skyldi þó aldrei vera að hin þrosk-
andi ræðukeppni hafi innprentað það í fólk að þeir er
í ræðustól standa hafi einungis fengið stefnumálum
sínum úthlutað en tali ekki frá hjartanu frekar en það
væri ekki til? [Svo eru til sómamenn er láta úthluta
sér efni, rétt eins og maðurinn er tróð upp á kassa í
verzlun einni á höfuðborgarsvæðinu og mótmælti harð-
lega skatti af söluverði matvæla. Skömmu síðar komst
maðurinn til valda og efndirnar urðu eins og við var
búizt.] Nýlega reit Orri Hauksson, nú nýkjörinn for-
seti „Framtíðarinnar“, grein í Skinfaxa þar sem hann
segir um „Morfís": „Þrátt fyrir það að margir séu nú
að ráðleggja Menntaskólanum að draga skólann úr
keppni um hríð, er eitt ljóst: fjórir fulltrúar skólans
(sem enginn veit ennþá hverjir verða) munu standa í
pontu í fyrstu umferð Mælsku- og rökræðukeppni fram-
haldsskólanna veturinn 1989-1990“ Ekki er að efa að
hinn mæti forseti hefur ráðgazt við einhverja, td ný-
kjörna meðstjórnendur sína, áður en hann tilkynnti
þetta. Verður þetta vart skilið á annan hátt en þann
að stjórn ,,Framtíðarinnar“ hafi þegar ákveðið þátt-
töku í „Morfís“ á næsta vetri. Hins vegar er ekki ör-
grannt að sá er þetta ritar sé með böggum hildar um
að fari svo að engin breyting verði á þátttöku og
áherzlum Menntaskólans í „Morfís“ muni einhverjir
fara að taka undir með „skáldinu" er kvað:
Hvað er svo fúlt sem ,,Morfís“ flötu ræður
svo fýla skín úr áheyrenda sál,
þegar menn er heilla’ ei nokkrar hræður
hefja upp sitt leiðigjarna mál?
Skyldi engin skemmtun betri finnast,
skyldi engu hér um verða breytt?
Skyldi ekki á annað mega minnast,
meðal annars að gera ekki neitt?
Hvað myndi Hannesi’ Hafstein um það finnast
ef hann væri kominn hér á ný?
Hann myndi segja andann óðum þynnast,
og ætli margt sé ekki til í því?
Um ,,Morfís“keppni mætti eitt víst segja:
mönnum er hún orðin þver um geð.
Svo hvernig væri kjafti að halda’og þegja,
hvernig væri að vera ekki með?
[Gæsalappir utan um nafn „Framtíðarinnar“ stafa
ekki af lítilvirðingu í garð þess mæta félags heldur af
sérvizku höfundar.]
Það er aldrei of snemma í árina tekið.
Gunnar Gunnarsson, nemi.