Skólablaðið - 01.02.1989, Blaðsíða 28
Listasíðan vonda
Saga
íslendingar eru frelsisunnandi fólk, höfðingjadjarfir
og fara ekki leynt með skoðanir á þeim er þykjast yfir
þeim ráða. Þetta er okkur Frónverjum í blóð borið.
„Út vil ek“ mælti Snorri og ögraði konungi. Þá sagði
hann: „Fyrst skalt tú fá at blæda.“ Þá sagði Snorri:
„Looking good man, feels heavy.“ Tók þá kóngsi upp
popstjörnutrú og ofdýrkun á Witney Houston, væmni-
gyðjunni miklu. Undraðist hann mjög og spurði sjálfan
sig: „Wah sappening to me?“ Taldi Snorri nú að fara
bæði í hund og kött og allt hitt svo að hann gekk inn
í helgidóm væmnigyðjunnar, dró upp atgeir mikinn
og hjó gyðjuna í herðar niður og mælti um leið: „Betra
er að hafa það er sannara reynist“. Að því loknu gekk
hann til kóngsa og spurði: „Er þetta líf til einhvers?“
Gat kóngsi engu svarað og sneri vörn í sókn og mælti:
„Eigi er það lengur til einhvers þar sem þér hjóguð
af kellu hausinn.“ Tók hann inn blóð gyðjunnar í bik-
ar og drakk til botns og breyttist í ófrjósemisguð og
rekur upp stríðsóp meget. Fékk Snorri ógnarmikinn
panskan skelk, hljóp upp til handa og fóta, höfuðs og
lims, og hljóp og 100 metrana á 9,79 sek. Var hann
þegar tekinn til lyfjaprófs og fannst örlítið blóð innan-
um lyfin í æðum hans. Svipti hann þá af sér hettunni
og í ljós kom Benni Jóns. Hafði hann ætlað sér að
keppa undir merkjum Jan Mayen á heimsleikum and-
lega fatlaðra en þegar á hólminn var komið var komið
saman lið andlegra öfugugga og átti Benni fótum fjör
að launa. Dró hann skefldan lim sinn honum í flýti til
happs. Brá hann þá landi Frónverja næst undir fót
sinn og keppti fyrir hönd þeirra á Asíuleikum bældra
þar sem hann breyttist í „By-sexual“ og gerðist félagi í
1T Af kóngsa er það að segja að hann reyndi stíft að fá
grædda í sig kynhormóna til að fá frjósemi sína aftur.
En læknarnir á Heilsubælinu rugluðust örlítið og
græddu hrárvaxtarhormón. 1 örvæntingu sinn féll
kóngsi í þá gildru að éta krembrauð, kökur og alls
kyns óhugnað. Eru afkvæmi hans nú dreifð um alla
jörð og hafa þau erft nokkra kosti föður síns. Má t.d.
nefna: Árna (Pee Wee), Daníel , Meat-Loaf, og Stffan
Olson. En af Benna er það að segja að hann varð for-
maðurH og innleiddi hormónagjöf í inntökupróf 1T og
eru félagar félagsins 3 að jafnaði.
Endir.
J.K. og S.K. 3.G.
Vornætur
Ég gekk með skáldadrauma í maganum allt þar til
ég sá að heimskulegt var að hafa drauma í maganum.
Þá hætti ég við að verða skáld. Síðan hefur mér alltaf
gengið betur og betur að yrkja. Þegar ég ætlaði að
verða skáld gætti ég þess alltaf að vera fátækur. Má
segja að ég hafi af mikill hörku brotist til fátæktar.
Markið var aldrei sett hærra en að Thora. Verst þótti
mér heilbrigði mitt. Þótti mér ljóður á skáldaímynd
minni að vera ekki hóstandi berklasjúklingur. Ákjós-
anlegast hefði þó verið að deyja ungur. Eitt sinn ætl-
aði ég upp í turn Hallgrímskirkju en presturinn rak
mig út með bölvi og bannfæringu dei gratia. - Þegar
ég heyrði orð Oscar Wilde að það að skrifa skáldsögu
væri ekkert annað en dægradvöl andlegra iðjuleys-
ingja var starfsvettvangur minn ráðinn. Síðan hef ég
gefið út fjölda bóka. Engin hefur selst að ráði enda
hef ég fengið góða dóma og laun frá hinu opinbera.
Ég lifi á hollri fæðu og held mér í góðu formi með því
að ganga Keflavíkurgönguna á hverju ári. Brátt mun
ég leggja skáldskap á hilluna og veit að þá verður
hann loksins á réttri hillu í lífinu.
Þó hjartað ei hamingju fyndi
hún hlotnaðist því effthvert sinn.
Því dauðinn er ást þín og yndi
og ástin er dauði þinn.
Aðalsteinn Kistmundsson (Steinn Steinarr)