Austri - 27.02.1981, Page 1
-skýr dhvsði í stlérnarsáttmdlanum
Næstu aðgerðii' í virkjunarmálum hafa komist í brenni-
depil að undanförnu, m.a. með umræðum um hugsanlegan
virkjunarkost við Sultartanga á þjórsársvæðinu.
Blaðið hafði samband við Halldór Ásgrímsson alþingis-
mann og bar undir hann stöðuna í þessum málum nú.
Halldór sagði að í stjórnarsáttmáia ríkisstjórnar þeirrar
sem nú situr væri ákvæði um það að næsta virkjun skyldi
vera utan eldvirkra svæða. Þetta ákvæði væri skýrt að því
leyti að þar hefði eins getað staðið að næsta virkjun ætti
að rísa utan Þjórsársvæðisins. Þetta ákvæði í stjórnarsátt-
málanum hlýtur að vera grundvöllur ákvarðana í virkju-
narmálum.
Ymsir hafa óttast að undirbúningur sé of skammt á veg
kominn á oðrum virkjunarstöðum, en ekkert hefur komið
fram um það enn þá að svo sé.
Fram hefur komið í ummælum iðnaðarráðherra að
undanförnu, að tillögugerðar muni að vænta í þessum mál-
um eftir um það bil mánaðartíma og muni þá tillögur um
skipan þessara mála næstu árin verða lagðar fyrir ríkis-
stjórnina og Alþingi.
Frá Reyðarfirði
— nýtt íþróttahús í gagnið
1 stuttu símtali við Marinó
Sigurbjörnsson á Reyðarfirði
tjáði hann blaðinu að nú kæmi
nýtt íþróttahús á Reyðarfirði
brátt í gagnið, og rættist þar
með langþráður draumur Reyð-
firðinga að fá betri aðstöðu til
íþróttaiðkana fyrir unglingana
og reyndar þá fullorðnu líka.
Iþróttakennsla hefur verið á
hrakhólum þar, og var fyrst í
gamla barnaskólanum, síðan í
breta skálum og síðast í félags-
heimilinu, Félagslundi. Iþrótta-
húsið hefur nú verið í byggingu
í sex ár. Sundlaug verður líka í
húsinu og er hún undir salar-
gólfinu og verður notuð á sumr-
in,
Framkvæmdum við húsið er
nú að ljúka og þegar er byrjað
að nota íþróttasalinn, og verður
Austurlandsmót í frjálsum íþr-
óttum innanhúss þar um helgina
Húsið verður tekið formlega í
notkun í vor.
DAUFT YFIR ATVINNU-
LÍFINU.
Atvinnulífið á Reyðarfirði er
nú með daufasta móti og munar
þar mestu um loðnuna sem kom
aldrei á þessum vetri. Þykir
Reyðfirðingum heldur hart, að
síldarverksmiðjur Ríkisins lok-
uðu og sögðu upp fólki, meðan
kom fyrir að löndunarbið var
úti á Eskifirði. Loðnan hefur
undanfarna vetur komið á erfið-
um tíma í atvinnulífinu og verið
mikil lyftistöng fyrir þá menn
sem við hana hafa unnið, og
fyrir bæjarfélagið í heild.
Frystihús K.H.B. hefur verið
í gangi úrtakalítið frá áramó-
tum, en lítill fiskur hefur verið
hjá G.S.R., en einn bátur hefur
verið gerður út af þeim. G.S.R.
er stærsti aðilinn að kaupunum
Djúpivogur
- mjög slæmt ástand í
atvinnumálum
Það er ekkert að frétta af skipakaupamálum okkar,
sagði Öli Björgvinsson oddviti á Djúpavogi, er blaðið hafði
samband við hann nú í vikunni, þau mál eru í athugun og
við höfum ekki viljað vera að blása þau út í blöðum. Þetta
umtal um þessa staði sem eiga í erfiðleikum í atvinnulífinu
er ógeðfellt svo að ekki sé meira sagt.
Hér er slæmt ástand í atvinnulífinu núna, frystihúsið
lokað, og enginn bátur hefur lagt hér upp frá áramótum.
Einn bátur er gerður út hér af heimaaðila og er hann út-
búinn fyrir loðnuveiðar, og hefur landað hér tvisvar um
800 tonnum af loðnu, þannig að bræðslan hefur farið í
gang.
Tíðin hefur verið rysjótt hér eins og annars staðar og
kuldar miklir. Sáralítill snjór hefur verið í vetur, og hvass-
viðrið mikla í fyrri viku sneiddi eiginlega alveg hjá okkur,
og urðu engar teljandi skemmdir.
Menn stytta sér stundir við þorrablót, hjónaböll og fleiri
slíkar samkomur, og um næstu helgi verður hér spurninga-
keppni skóla sem U.I.A. stendur fyrir.
Skólinn hafði starfskynningarviku síðastliðna viku og
er það nýung hér. Sum börnin fóru í starfskynningu hér á
staðnum, en hluti þeirra fór til Reykjavíkur og kynnti sér
fyrirtæki þar.
Það eru ekki miklar áætlanir á prjónunum um fram-
kvæmdir á komandi vori, þó skal þess getið að ætlunln er
að halda áfram með framkvæmdir við skólahús. Eins og
fram kom í upphafi ríður nú mest á að tryggja hráefnis-
öflun til sjávarins og undirstöðu atvinnulífsins þar með.
á togaranum Guðbjörgu sem
kemur til Reyðarf jarðar í vor,
en sem kunnugt er seldi fyrir-
tækið báta sína Gunnar og Snæ-
fugl í stað togarans. K.H.B.
Reyðarfjarðar og Borgarfjarð-
arhreppur eiga einnig aðild að
togarakaupunum.
Kjötvinnsla tók nýlega til
starfa á Reyðafirði og er hún í
eigu Jóns Guðmundssonar kjöt
iðnaðarmanns.
Komnar eru á markaðinn
kjötvörur frá fyrirtækinu undir
vörumerkinu Austmat.
------------------------------------------------
Fundur um skipulagsmál
Fundur að Furuvöllum 10, mánudaginn 2. mars
kl. 21.00, með fulltrúum B-listans í sveitarstjóm
Egilsstaðahrepps.
Þórhallur Pálsson, arkitekt, skýrir tillögur um
nýtt skipulag.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Egilsstaðahrepps.