Austri - 20.03.1981, Page 1
Fljótsdalshéraðs 10 ára
Tónkór
— tónleikar 12. apríl
— hyggur á utanför
Tónkór Fljótsdalshéraðs er
10 ára um þessar mundir, en
hann var stofnaður haustið 1971
og fór sú stofnun saman við
byrjun Tónskóla Fljótsdalshér-
aðs. Kórinn hefur starfað óslit-
ið síðan og í tilefni af þessum
tímamótum ræddi undirritaður
við Magnús Magnússon stjórn-
anda kórsins og Emelíu Sig-
marsdóttur varaformann hans.
Magnús sagði að efnisskrá
kórsins í gegnum árin hefði
byggst á íslenskri og erlendri
músík frá ýmsum tímum, en þó
hefði verið lögð höfuðáhersla á
að kynna íslenska músík. Kór-
inn hefði komið fram við ýmis
tækifæri auk venjubundinna
tónleika svo sem vígslu kirkju
hér á Egilsstöðum, þjóðhátíð
1974 á Eiðum svo eitthvað sé
nefnt. Kórinn hefur haldið tón-
leika á vorin, oftast í tengsium
við menningarvöku. Kórinn hef-
ur sungið á fjölmörgum stöðum
hér á Austurlandi og auk þess
farið í söngferðir til Norður-
lands og til Reykjavíkur.
Nokkrir aðfengnir kraftar
hafa komið fram með kórnum,
einkum einsöngvarar og má þar
nefna Guðrúnu Tómasdóttur,
Sigrúnu Gestsdóttur, John
Speight, Ruth L. Magnússon.
Einnig hefur komið fram með
kórnum kammerhljómsveit frá
Reykjavík en það var árið 1978
er kórinn flutti páskaoratoríu
eftir A.M. Brunckhorst.
Æfingar eru stundaðar yfir
vetrarmánuðina tvisvar í viku
og var byrjað á æfingum í októ-
ber í haust. Kórinn hélt að-
ventutónleika í desember síðast-
liðnum sem er nýjung í starf-
framhald á bls. 3
HÚSBYGGINGIN AÐAL
VERKEFNIÐ
Rétt fyrir utan Valaskjálf á
Egilsstöðum er að rísa myndar-
legt hús, tveggja hæða. Þetta
hús er í eigu slysavarnadeildar-
innar Gró á Fljótsdalshéraði og
verður björgunar- og þjónustu-
miðstöð. Austri hitti formann
Slysaviraodflldin firó byggir jfir stnrfsemi sína
Raoði hrossinn tehur þdtt í byggingunni
slysavarnadeildarinnar, Hall-
dór Sigurðsson á Miðhúsum og
innti hann eftir því mikla starfi
sem að baki þessari húsbygg-
ingu liggur og starfi að slysa-
varnar- og björgunarmálum al-
mennt.
Unnið við byggingu húss Slysavamafélagsins.
Halldór sagði að húsbygging-
in væri aðalverkefni félagsins
núna og snerist allt um hana.
Húsið verður eins og áður seg-
ir til afnota fyrir björgunar-
sveitina, starfsemi hennar og
tæki og einnig fyrir slysavarna-
deildina. Það er á tveimur hæð-
um 165 m2 grunnflötur á hvorri
hæð og 1050 rúmmetrar. Á
neðri hæð verða bílgeymslur og
aðstaða fyrir björgunarsveitina
og slysavarnadeildina, þar á
meðal sérherbergi til fjarskipta.
Fframhald á bls. 3