Morgunblaðið - 09.04.2010, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010
EKKI verður við það unað
að lambakjöt hafi látið í
minni pokann fyrir hvíta
kjötinu, sagði Sindri Sigur-
geirsson, formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda, í
setningarræðu á aðalfundi
samtakanna í gær. Um
fimmtíu manns sátu fund-
inn sem verður haldið
áfram í dag. Hann benti á
að neysla á svínakjöti hefði
aukist um 230% og neysla á alifuglakjöti um
300% á 25 árum. Á sama tíma hefði neysla á
lambakjöti farið úr 41 kg á íbúa í 23 og heild-
arkjötneysla hefði aukist úr 66 í 85 kíló á mann
á ári.
Sindri sagði að síendurtekin og gegndarlaus
offramleiðsla sumra framleiðenda á svínakjöti
væri látin viðgangast og ylli áhyggjum. „Það
setur allan kjötmarkað í uppnám með tilheyr-
andi verðfalli hjá öllum öðrum framleiðend-
um.“ Hann sagði að ekki hefðu háar fjárhæðir
verið afskrifaðar vegna sauðfjárbænda en fjár-
hæðir sem hefðu tapast í kjúklinga- og svína-
kjötsframleiðslu væru gríðarlegar og tap lána-
stofnana mælt í milljörðum – tap af hverju kílói
í framleiðslu þessa kjöts væri 120 krónur á
kílóið: „Það voru orð í tíma töluð í [gær]morg-
un þegar fjárbændur höfðu orð á því við morg-
unverðarhlaðboðið hér á Sögu að eggin og
fleskið væru líklega „Beint frá banka“.“ Þar
vísaði hann í átakið „Beint frá býli“ og sagði
það hafa verið gríðarlega jákvætt fyrir mark-
aðssetningu sauðfjárbænda.
Sindri segir mikilvægt að skoða starfsemi
þeirra sjö afurðastöðva sem sinni sauðfjár-
slátrun í landinu: „Allar eru þær í eigu bænda á
einhvern hátt eða að minnsta kosti hluta. Mikl-
ir möguleikar felast í samvinnu og verkaskipt-
ingu þessara fyrirtækja,“ sagði hann. Þannig
næðist sterkari staða gegn smásölum og einnig
ef kæmi til aðildar að Evrópusambandinu.
„Það sem skyggir á þessa framtíðarsýn er
viðvarandi skilningsleysi stjórnvalda á íslensk-
um landbúnaði,“ segir hann og vill að ákvæði
sérlaga umfram samkeppnislög verði styrkt –
eða sambærileg heimild í búvörulögum og
mjólkurafurðastöðvum hafi verið gefin. Hann
bindur miklar vonir við starfshóp landbúnað-
arráðherra um framtíðarskipulag á kjötmark-
aði.
Í ræðu sinni á aðalfundinum talaði Sindri um
Evrópusambandið. Hann sagði að þeir sem
hlynntir væru ESB-aðild reyndu að höggva í
samstöðu bænda gegn aðild með „heilaþvott-
arferðum“ aðila úr bændastétt til Brussel á
vegum ESB. Hann gagnrýndi skýrslu Hag-
fræðistofnunar Háskólans og sagði vinnu-
brögðin slæleg þar sem fullyrt væri að sauð-
fjárrækt kæmi hvað best út úr aðild að ESB
miðað við aðrar búgreinar. Aðild þýddi 30-45%
verðlækkun til bænda og að innlendur kinda-
kjötsmarkaður drægist saman um 38%. Sauð-
fjárbændur vissu hvað ESB-aðild byði og af-
þökkuðu það boð.
Sauðfjárbændur
segja hvíta kjötið
í boði bankanna
50 sauðfjárbændur sátu aðalfund Formað-
urinn segir höggvið í samstöðu bænda gegn ESB
» Vilja ekki ESB-aðild
» Vilja samstöðu bænda
» Vilja meiri samvinnu
» Vilja ekki offramleiðslu
Sindri
Sigurgeirsson
„MARKMIÐIÐ er að mæta ástandinu eins og
það er í dag. Verkefnið skapar störf, sem er
brýnt velferðarmál, og býður fólki upp á fjöl-
breyttari búsetukosti en áður,“ segir Guðríður
Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæj-
arstjórn Kópavogs. Flokkurinn kynnti í gær
áætlun um aðgerðir í húsnæðis- og atvinnu-
málum undir heitinu Ný Kópavogsbrú.
Hugmyndin gengur út á það að Kópavogs-
bær hafi forgöngu um að lokið verði við bygg-
ingu hálfkláraðs íbúðarhúsnæðis í bænum og
því komið í notkun. Ætlunin er að bærinn út-
vegi fjármagn á hagstæðum kjörum og mun
Samfylkingin beita sér fyrir því að allt að ein-
um milljarði verði varið í þetta verkefni en
upphæðin fer þó eftir því að hvaða marki bank-
ar, Íbúðalánasjóður og aðrar fjármálastofnan-
ir og byggingarfyrirtæki sem eru með hálfkar-
aðar íbúðir eru tilbúin að taka þátt í því.
Íbúðirnar verða boðnar til leigu, kaupleigu
eða sölu á almennum markaði. Guðríður segir
að með því skapist fjölbreyttari búsetukostir í
Kópavogi en áður hafa staðið fólki til boða.
Stendur undir sér
„Þetta er algerlega raunhæft verkefni. Það
mun standa undir sér sjálft og hefur ekki áhrif
á rekstur bæjarins,“ segir Guðríður. Hún segir
hægt að hefjast handa þegar í sumar.
Heiti verkefnisins, Ný Kópavogsbrú, gefur
til kynna að aðgerðin er tímabundin, til að
brúa ákveðið bil. „Við viljum taka við þar sem
markaðurinn hefur strandað með þessar eign-
ir og koma þessu aftur á flot,“ segir Guðríður
og segir að bærinn muni draga sig út úr verk-
efninu þegar markaðurinn hefur náð að jafna
sig.
Úttekt sem gerð hefur verið bendir til að um
400 íbúðir hafi verið langt komnar í byggingu í
lok síðasta árs. Margar þeirra eru í eigu aðila
sem enga burði hafa til að ljúka smíði þeirra.
Guðríður segir að ókláraðar byggingar séu
engin staðarprýði auk þess sem hætt sé við að
verðmæti glatist ef byggingar standi hálfkar-
aðar lengi.
Húsnæðisáætlunin verður í stefnuskrá
Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar og Guðríður segir að málið
verði einnig rætt í bæjarstjórn.
„Við byrjum að vinna að þessu nú þegar,“
segir hún. Ætlunin er að taka upp viðræður við
fjármálastofnanir og byggingarfyrirtæki um
samstarf og kanna möguleika á fjármögnun.
helgi@mbl.is
Íbúðarhúsnæði
verði komið í not
Samfylkingin í Kópavogi vill hafa forgöngu um
að ljúka byggingu íbúða og selja eða leigja
Morgunblaðið/Golli
Urðarhvarf Mikið er af ókláruðu íbúðar- og
atvinnuhúsnæði í Kópavogi.
Fangaðu Ísland
með Canon
Hvaða mynd sem er getur sýnt stað, manneskju eða við-
burð. Frábær mynd segir sögu. Með Canon myndavélum
eiga allir möguleika á að vera frábærir sögumenn.
Taktu meira en myndir. Taktu sögur. Canon myndavélar
fyrir allar aðstæður.
Viðurkenndir söluaðilar um land allt.
Nánari upplýsingar á: www.canon.nyherji.is
Vertu aðdáandi Canon á Íslandi á Facebook
Frábær saga
er sögð með stæl
Ixus sameinar fágað útlit og frumkvöðla ljósmyndatækni.
Að taka frábærar myndir við allar aðstæður hefur aldrei
verið auðveldara þar sem Scene Detection tækni Canon
velur á milli 18 hentugustu tökustillingana eftir því hverjar
aðstæðurnar eru.