Morgunblaðið - 09.04.2010, Síða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
STEINGRÍMUR Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands, telur að áform Álf-
heiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra um að
áminna hann gangi gegn markmiðum starfs-
mannalaga og brjóti á stjórnarskrárvörðum
rétti hans til tjáningar. Þetta kemur fram í
andmælabréfi sem Steingrímur Ari sendi ráð-
herra í gær.
Steingrímur Ari leitaði til ríkisendurskoð-
unar varðandi framkvæmd reglugerðar um
alvarlegar tannaðgerðir sem heilbrigðisráð-
herra gaf út í byrjun mars. Álfheiður taldi að
Steingrímur Ari hefði átt að leita til sín áður
en hann leitaði til ríkisendurskoðanda. Þessu
er ríkisendurskoðandi ósammála.
Steingrímur Ari bendir á að samkvæmt 21.
gr. starfsmannalaga, þar sem fjallað er um
áminningu til starfsmanns, skuli veita starfs-
manni áminningu þegar hann hefur sýnt í
starfi óstundvísi eða aðra vanrækslu, óhlýðni
við löglegt boð eða bann yfirmanns síns, van-
kunnáttu eða óvandvirkni í starfi, hafi ekki
náð fullnægjandi árangri í starfi, verið ölvaður
í starfi eða framkoma hans eða athafnir í starfi
eða utan þess að öðru leyti þótt ósæmilegar.
Hann minnir á að samkvæmt áliti umboðs-
manns Alþingis beri ráðherra að tiltaka hvaða
ákvæði 21. gr. starfsmaður sé talinn hafa brot-
ið. Hann minnir á að hvergi í starfsmannalög-
um sé kveðið á um sérstaka hollustu eða trún-
aðarskyldur embættismanns gagnvart
ráðherra, en ráðherra nefnir í bréfi sínu að
Steingrímur Ari hafi brotið gegn hollustu- og
trúnaðarskyldum gagnvart ráðherra.
Steingrímur Ari bendir á að í starfsmanna-
lögum sé lögð áhersla á að auka sjálfstæði for-
stöðumanna ríkisstofnana til að stuðla að rétt-
aröryggi, stjórnfestu og stöðugleika í
starfsemi hins opinbera. Sú hollustuskylda
sem ráðherra tali um samræmist því ekki
markmiði laganna.
Steingrímur Ari minnir á að samkvæmt
stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evr-
ópu hafi embættismenn tjáningarfrelsi. Rík-
isendurskoðandi hafi tekið undir þetta og telji
ólögmætt að beita hann stjórnsýsluviðurlög-
um eins og áminningu.
Áminning í ósam-
ræmi við lögin
Forstjóri Sjúkratrygginga telur ekkert tilefni
til að heilbrigðisráðherra veiti honum áminningu
„Af umfjöllun minni
um málefnaleg sjónar-
mið má ráða að ekki
einasta byggir fyrir-
huguð áminning ekki á
málefnalegum sjónar-
miðum heldur er hún
til þess fallin að ganga
gegn markmiðum
starfsmannalaga og
brjóta gegn stjórnar-
skrárvörðum rétti
mínum til tjáningar,“ segir í niðurlagi
bréfs Steingríms Ara Arasonar til Álf-
heiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra.
Steingrímur Ari minnir þar á að sam-
kvæmt stjórnsýslulögum beri ráðherra að
taka rökstudda afstöðu til sjónarmiða
hans áður en ákvörðun er tekin um
áminningu.
Brot á tjáningarfrelsi
Steingrímur
Ari Arason
MEISTARANEMAR námsbrautar í um-
hverfis- og auðlindafræði stóðu í vikunni
fyrir svonefndum Grænum dögum í Há-
skóla Íslands, en þeim lýkur í dag. Þetta
var í þriðja skiptið sem GAIA, nemenda-
félag námsbrautarinnar, stendur fyrir
þessum dögum, en í ár var þema þeirra líf-
fræðilegur fjölbreytileiki í tilefni af því að
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt 2010
sem ár líffræðilegs fjölbreytileika. Að
sögn Kristínar Þóru Jökulsdóttur, for-
manns GAIA, er markmið Grænu daganna
að auka fræðslu og meðvitund háskóla-
samfélagsins um umhverfismál. „Við reyn-
um að gera það á bæði fræðandi og
skemmtilegan hátt,“ segir Kristín og
bendir í því samhengi á að meðal þess sem
boðið hafi verið upp á á Grænum dögum
sé bar svar (e. pub quiz), kvikmyndasýn-
ingar og fataskiptimarkaður, sem vakti
mikla athygli og ánægju gesta og gang-
andi á Háskólatorgi í gær. Markaðurinn
verður endurtekinn í dag og þar getur
fólk skipst á fötum eða keypt sér notuð föt
á 300 kr. stykkið.
Í gær voru einnig haldnar pallborðsum-
ræður þar sem reynt var að leita svara við
spurningunni hvort framtíð væri fyrir
erfðabreyttar lífverur á Íslandi. Meðal
þeirra sem þátt tóku í umræðunni voru
Arnar Pálsson, vistfræðingur við HÍ, Jón
Kalmansson, siðfræðingur við HÍ, Kolbrún
Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráð-
herra og Gunnar Gunnarsson frá vottun-
arstofunni Túni. Grænum dögum lýkur í
dag með fyrrnefndum fataskiptimarkaði
kl. 11-14, fjölþjóðlegu kaffi kl. 14-16 og
lokahátíð kl. 19-21.
Góð stemning á fataskiptamarkaði í HÍ
Morgunblaðið/Ernir
„Skemmtilegt og fræðandi“
Frábær saga er
persónuleg
Með PowerShot SX myndavélum getur þú farið mjög
nálægt - allt að 20x aðdráttur - og nýtt kosti 28mm
gleiðlinsu í landslags- og hópmyndir. Handvirkir eigin-
leikar auka sköpunarmöguleika þína og þú ert með
hina fullkomnu smá-myndavél.
Frábær saga snýst
um uppgötvun
Farðu lengra með Canon EOS - yfirgripsmesta stafræna
SLR kerfinu í heiminum; útskiptanlegar linsur og auka-
hlutir sem tryggja sveigjanleika: Þrautreynt af atvinnu-
og áhugaljósmyndurum. Uppáhald ljósmyndara um allan
heim.