Morgunblaðið - 09.04.2010, Page 10

Morgunblaðið - 09.04.2010, Page 10
Þegar ég var enn ófermdur lítill ungifannst mér fólk eldra en 20 ára verafullorðið, svo ekki sé talað um fólkeldra en 25 ára. Það var augljóslega komið með alla vega eitt ef ekki tvö börn, mann, íbúð og draumastarfið. Síðan varð ég sjálf 20 ára og man enn hvað ég var ánægð að geta loksins keypt mér vín og komist inn á skemmtistaði án þess að eiga á hættu að vera hent út nokkru síðar af fílefldum karlmanni í jakka sem á stóð gæsla. Mig minnir að mér hafi ég fundist nokkuð fullorðin á þessum tíma- punkti en þegar ég hugsa aftur voru bernskan og unglingsárin þó ekki svo langt undan. Öðru hvoru blússuðu upp dramatísk deilumál á milli vinkvenna, óvíst var hvaða skref maður ætlaði að taka næst og inn á milli fékk ég eina og jafn- vel tvær bólur á hökuna. Síðan kom að því að ég flaug úr hreiðrinu rétt rúmlega tvítug og hélt á vit franskra ævintýra. Þá var ég orðin heims- dama sem kunni að ferðast ein og vílaði ekki fyrir mér að takast á við ókunnugar nýj- ungar. Heimurinn var mín ostra og ég skyldi njóta hennar sem mest ég mætti. Á þessum tímapunkti fannst mér ég líklegast orðin nokkuð sjóuð svo ég tali nú ekki um ári seinna þegar ég flaug end- anlega úr hreiðrinu og settist að í Englandi þar sem ég bjó næstu fjögur árin. Þá kom að því að kaupa sér sjálfur klósettpappír og hreinsilög, passa að síma- og hit- areikningarnir væru borgaðir og sýna þolinmæði en um leið festu þeg- ar á reyndi í sambúð ólíkra ein- staklinga. Já þessu fylgdi sannarlega heilmikil lífsreynsla og þroski en þegar ég lít til baka finnst mér ég enn hafa ver- ið ósköp mikill ungi. Mér finnst ég ekki enn í dag vera orðin sú fullorðna mann- eskja sem ég ímyndaði mér eitt sinn að fólk væri orðið undir þrítugt. Iðulega gleymi ég því líka hvað ég er gömul og samhliða því er ekkert til sem heitir að hegða sér eftir aldri. Þó reyni ég auðvitað að hegða mér settlega alla jafna og ausa reglulega úr viskubrunni mínum til þeirra sem yngri eru. Síðastliðin ár hef ég líka hallast enn meira að því að aldur sé afstæður og að fólk þurfi ekki endilega að ljúka ákveðnum verkum af lífslistanum fyrir ákveðinn aldur. Kannski verður maður aldrei algjörlega fullorðinn og það er kannski líka bara gott samanber þá speki að um leið og fólk hætti að leika sér verði það gamalt. Um daginn þegar ég var rétt að sofna rann allt í einu upp fyrir mér að ég væri næstum 28 ára gömul og því aðeins tvö ár í að ég yrði þrítug. Þó var ég alls ekki uggandi heldur hugsaði frekar um töluna á hlutlausan hátt og gladdist yfir öllum þeim hlut- um sem mig langar og ætla að gera áður en ég verð full- orðin. Þangað til ætla ég að halda áfram að róla mér, fara í kollhnís og hafa gaman af því. Svo vakna ég kannski bara fullorðin einn daginn, stíf og stirð eftir atganginn en með stórt bros á vör. María Ólafsdóttir | maria@mbl.is »Þá var ég orðin heims-dama sem kunni að ferðast ein og vílaði ekki fyrir mér að takast á við ókunnugar nýj- ungar. HeimurMaríu 10 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 Morgunblaðið/RAX Vatn og loft Börnin í Stekkjarási finna leið til að koma vatni á milli flaskna. Þetta er einföld og skemmtileg þraut. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Reyndu að opna þessa hurðán þess að nota kraft-ana,“ sagði einn leiðbein-andinn í Tilraunalandinu og benti mér á litla rimlahurð með hálflélegum húni. „Uss ekkert mál,“ hugsaði ég og fór að bisa við þessa blessuðu hurð. Þetta var ekki eins auðvelt og það leit út fyrir að vera en eftir nokkra stund og smá dæs fannst lausnin sem var mjög einföld þegar hún var fundin. Það er margt að skoða í Tilrauna- landi sem verður opnað í dag í kjall- ara Norræna hússins. Þetta er lif- andi og gagnvirk sýning þar sem vísindin eru kynnt á óvenjulegan og skemmtilegan hátt með virkri þátt- töku gesta. Það er margt fleira á sýningunni en ein flókin rimlahurð. Það næsta sem ég prófaði voru risahúsgögn, borð og tveir stólar sem sýna hlut- föll fullorðinna eins og þau birtast þriggja ára gömlum börnum. Allt í einu mundi ég af hverju heimurinn virðist stundum ógnvekjandi í aug- um lítilla barna. Svo prófaði ég sápukúluborð, kúlubekk, öldu- vöggu, loftpúðaborð og strimla- spegil svo eitthvað sé nefnt. Fyrir alla aldurshópa „Þetta eru tilraunir og tæki að- allega frá Tom Tits-safninu í Sví- þjóð og frá Háskóla Íslands, frá honum Ara Ólafssyni sem er tilraunaeðlisfræðingur,“ segir Þur- íður Helga Kristjánsdóttir hjá Nor- ræna húsinu. „Sýningin hefur farið til Bandaríkjanna og ferðast um Svíþjóð og verið gríðarlega vinsæl,“ bætir Þuríður við. Þegar ég heimsótti sýninguna í gær var hópur af leikskólakrökkum frá Stekkjarási í Hafnarfirði að fara í gegnum hana við mikinn fögnuð og fróðleiksfýsn. Þau voru á aldr- inum tveggja og hálfs árs til þriggja og hálfs árs og skemmtu sér konunglega. „Tilraunaland er fyrir alla aldurshópa en það er miðað við þriggja ára og upp úr, að- alhópurinn er hugsaður 6 til 12 ára. Í vor er þetta aðallega skólasýning en fyrir fjölskyldufólk um helgar og í sumar. Það þarf bara að panta tíma svo það sé örugglega laust. Sýning er sett upp í stöðvum og það er mismunandi eftir tækjum og börnum hvað stoppað er lengi við hverja stöð en við gerum ráð fyrir að heimsókn taki ekki minna en klukkutíma,“ segir Þuríður. Leikur og fræði Markmið sýningarinnar er að kynna og kanna undraheima vís- indanna, veita innblástur og vekja forvitni um tilraunir, tæki og lögmál náttúrunnar. „Krakkar hafa mikinn áhuga á svona fræðum sem birtast þeim í skemmtilegum leikjum. Þau fræðast án þess að átta sig á því að þau séu að læra,“ segir Þuríður og leiðir mig að handbatteríi svo ég geti mælt hversu mikinn straum líkami minn leiðir. Næst á dagskrá er að Tilraunir, tæki og lögmál náttúrunnar Það er alltaf gaman að ganga í barndóm og það fékk Ingveldur Geirsdóttir að reyna þegar hún heimsótti Til- raunaland í Norræna húsinu í gær og kannaði undraheim vísindanna ásamt hafnfirskum leikskólabörnum Mikið hefur verið fjallað um að fléttur séu aðalhártískan í sumar. Við erum allar búnar að ná því en í haust virð- ist túperað hár snúa aftur. Á tískupöllunum fyrir haust- og vetrartískuna 2010/2011 sáust fyr- irsæturnar oftar en ekki með mikla lyftingu í hárinu, þá aðallega hárið greitt aftur og toppinn túperaðan eins og sést á meðfylgjandi myndum. Toppurinn/kollurinn á að vera hár en restin af hárinu slétt og látlaus. Túp- eraður hnakki í anda sjötta áratug- arins hefur líka sést meðal annars á sýningu Rochas í París og stjörn- urnar eru farnar að sjást með mikla hárhrúgu í hnakkanum og hárbönd. Það er New York Times sem greinir frá þessu. Mikið og hátt hár hefur í gegnum aldirnar táknað völd kvenna; því hærri hárkolla, því hærra sett. Ekki má samt búast við að konur fari að sýna stöðu sína í haust með háum hárgreiðslum, við vonum a.m.k. ekki. ingveldur@mbl.is Taktu eftir Reuters Töff túpering Frá sýningu Chanel. Hártískan í haust er „há“ Nina Ricci Sýning á haust og vetri. Georgíumenn héldu í fyrsta skipti tískuviku í höfuðborg sinni Tíblisi í lok mars. Tuttugu og einn fatahönnuður og tískuhús sýndu það nýjasta frá sér á þessari fyrstu tískuviku í Georgíu. Með- al þeirra sem sýndu var spænski hönnuðurinn Agatha Ruiz De La Prada. Fatnaður hennar er einstaklega litrík- ur og hressandi eins og sést á meðfylgjandi myndum. ingveldur@mbl.is Appelsínubleik Flottur kjóll með smá sixtís- áhrifum. Úr teiknimynd Hressandi og hjartnæm sam- setning. Tíska Litríkt og hressandi Reuters Flugfreyja? Áberandi augnskuggi, lítill hattur og hjörtu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.