Morgunblaðið - 09.04.2010, Side 11

Morgunblaðið - 09.04.2010, Side 11
Daglegt líf 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 framleiða eigið rafmagn með því að hjóla á hjóli og ef vel tekst til í raf- magnsframleiðslunni er hægt að hlusta á útvarpið, kveikja á sírenu og viftu allt í einu. Leikskólakrakkarnir hafa gaman af litlum bílum sem þurfa engan kraft til að fara áfram. Nægir að setjast í sætið og þá fara þeir af stað vegna mismunandi þunga á milli búks og lappa. Það er auðvelt að gleyma stund og stað í Tilraunalandi enda margt þar að upplifa og uppgötva. Morgunblaðið/RAX Strimla spegill Þar þarf tvo til, sem sitja á móti hvor öðrum og þá verður spegilmyndin öðruvísi en maður er vanur eins og ljósmyndari komst að. Enginn aðgangseyrir er á sýn- inguna, allir eru velkomnir en þurfa að skrá sig á www.norraena- husid.is. Opnað verður fyrir skrán- ingu eftir helgi. Margir þekkja slúðurprinsinn Perezhilton og fara reglu- lega inn á vefinn www.perezhilton.com til að sækja sér nýjasta slúðrið um stjörnurnar. Færri vita að Perez heldur líka úti tískubloggi undir nafninu Cocoperez, hvað annað. Þar segir hann nýjustu fréttir úr tískuheiminum. Hann fjallar ekki aðeins um það sem er í tísku heldur líka um gjaldþrot tískuhúsa, fyrirsætur, klæðaburð frægra, tísku- blöðin og margt fleira sem viðkemur tísku. Perez er óhræddur við að gagnrýna það sem er í tísku og lætur stóru og dýru merkin oft heyra það. Til dæmis lét hann tískumerkið Balmain heyra það nýlega vegna rif- innar hermannaskyrtu sem honum finnst þeir hjá Balmain verðleggja allt of hátt. Einnig veltir hann fyrir sér hvað breska útgáfan af Elle sé að gera með Demi Moore á for- síðunni á maíheftinu. Hún hafi ekkert fram að færa til að eiga skilið forsíðu á frægu tímariti. Cocoperez.com er hressandi viðbót við tískublogg- rúntinn, enda aðeins öðruvísi en þau tísku- blogg sem tröllríða öllu núna og eru nánast öll eins með myndum af götutískunni og bloggaranum sjálf- um í nýjustu tísku í bland við umfjall- anir um það sem hátískumerkin eru að gera. ingveldur@mbl.is Vefsíðan: www.cocoperez.com Tískuslúður hjá Cocoperez Endilega... Tilraunaland er hluti af dag- skránni Fjöregg: barnamenn- ingarhátíð Norræna hússins 2010. Dagskráin nær yfir allt árið og verður meðal annars boðið upp á barnabók- menntahátíðina Mýri, dans, myndlistarsýningar og tón- leika. Í sumar stækkar Til- raunaland og nær út á lóð Nor- ræna hússins með fleiri tækjum og tólum. Barnamenningar- hátíð Norræna hússins Reuters Slúðurprins Perez- hilton eða Cocope- rez eða kannski bara bæði? www.noatun.is GRÍSALUNDIR ERLENDAR KR./KG 1498 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI NAUTABUFF MEÐ LAUK KR./KG 1298 1998 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI Ö ll ve rð e ru b ir t m e ð fy ri rv a ra u m p re n tv ill u o g /e ð a m yn d a b re n g l ÓDÝRT GOTT FYRIR ÞIG Í MATINN FLJÓTLEGT OG GOTT PEPSI 1 L FP PASTASKRÚFUR 500 G 149KR./PK. FP HAFRAMJÖL 1 KG 199 KR./PK. FP HVÍTLAUKSBRAUÐ 2 STK. 298 KR./PK.Við gerum meira fyrir þig 25% afsláttur Alla daga - allar nætur Hringbraut - Austurver - Grafarholt Opið í Hamraborg og Nóatúni 17 frá kl. 10 - 20 alla daga 3 2FYRIR ...lyktið lengi af Less is More ilminum Ilmvatn að nafni Less is More er nýtt frá sænska snyrti- vörumerkinu Make Up Store. Um létta lykt er að ræða með plómu-, moskus- og sjávarilm í grunninn, lilja, mangó og alpafjóla eru í miðið og ananas, tangerína og rauðar kúrenur aðaltónarnir. Lyktin er sæt og frískandi en musk-ilmurinn tónar hana niður svo að á komin sveipar hún þann sem hana ber bæði ferskleika og dulúð. Þetta er lykt sem fer vel með sumri og hækkandi sól. Í sömu línu er einnig hægt að fá ilm- kerti og í vor bætist líkamsúði við úr- valið. Fleiri gerðir ilmvatna eru í boði í Make Up Store sem er í Kringlunni og Smáralind. Ilmur Ilmlína frá Make Up Store færir frískleika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.