Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010
-tryggjum öryggi í viðskiptum
Ert þú örugglega þú?
www.sff.is
Til að auka öryggi í viðskiptum þurfa
allir viðskiptavinir banka, sparisjóða og
eignarleigufyrirtækja að sanna á sér
deili með því að framvísa gildu skilríki.
Gild skilríki eru vegabréf, ökuskírteini
og nafnskírteini.
Samkvæmt lögum um peningaþvætti er skylt
að framvísa gildum persónuskilríkjum
Hafir þú ekki sannað á þér deili er mikilvægt að þú gerir það.
20
01
HVATNINGAR
VERÐLAUN
VÍSINDA- O
TÆKNIRÁ
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað
fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er styrki stoðir mannlífs
á Íslandi. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1987.
Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2010.
Verðlaunin eru tvær milljónir króna.
Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem
starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða eru sjálfstætt starfandi. Öllum sem
eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá
vísindamannsins skal fylgja tilnefningu.
Við mat á tilnefningum til verðlaunanna er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns,
sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóða-
samstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega
er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags til starfsfélaga á vinnustað
og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Dómnefnd skipa 6 handhafar verðlaunanna.
Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára en
þó er tekið fullt tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamannsins
vegna umönnunar barna.
ATH! Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 12. apríl 2010.
Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað
með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Tilnefningar
óskast!
GERT er ráð fyrir því að um 100
þúsund manns, sem svarar til tæp-
lega þriðjungs þjóðarinnar, komi á
ári í sameinaða bráðamóttöku Land-
spítala í Fossvogi. Til þess að gera
sameiningu tveggja stærstu bráða-
deilda spítalans mögulega var byggt
hús fyrir móttöku sjúklinga í Foss-
vogi og eldra húsnæðið endurbætt.
Deildirnar sameinuðust í gær.
„Markmiðið er að einfalda að-
komu sjúklinga að sjúkrahúsinu,
tryggja rétta móttöku þeirra og
auka skilvirkni til að stytta biðtíma
á bráðamóttöku. Þá er tilgangurinn
að bæta aðstöðu fyrir sjúklinga sem
ekki hefur verið vanþörf á og
minnka kostnað,“ segir Guðlaug
Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmda-
stjóri bráðasviðs Landspítala.
Tvískipt bráðadeild
Bráðamóttökunni er ætlað að
þjóna sjúklingum með bráð veikindi
og slys. Allir sjúklingar koma um
nýjan aðgang að bráðadeild G2 sem
er í viðbyggingu við húsnæði gömlu
slysadeildarinnar. Þar eru sjúkling-
ar flokkaðir eftir því hversu alvarleg
veikindin eru. Bráðadeildin er opin
allan sólarhringinn. Þeim sem ekki
þurfa þjónustu samstundis er vísað
á bráða- og göngudeild á G3 á ann-
arri hæð hússins en hún er lokuð á
nóttunni. Endurkoman er einnig
þar.
Hjartaþræðingartæki LSH verð-
ur í hjartamiðstöð í húsnæði gömlu
bráðamóttökunnar við Hringbraut.
Guðlaug segir að þar verði dag- og
göngudeildarþjónusta efld. Hjarta-
miðstöðin er lokuð um helgar.
SÁ verklausnir reistu viðbygg-
inguna sem er 160 fermetrar að
stærð. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Ernir
Hraði Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir segir frá nýju bráðamóttökunni.
100 þúsund manns
á bráðamóttökuna
Í HNOTSKURN
»Kostnaður vegna húsnæðisog tækja við sameiningu
bráðadeilda LSH í Fossvogi er
rúmar 200 milljónir kr.
»Hagræðing af sameining-unni skilar stofnkostnaði
til baka á rúmu ári.
MAGNFRÍÐUR Júlíusdóttir fjallar um kvennastýrð
heimili í Simbabve og Alda Lóa Leifsdóttir ræðir um að-
stæður ungs fólks í Tógó á UNIFEM-umræðum í húsnæði
Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á Laugavegi 42 klukk-
an 13 á morgun, laugardag.
Magnfríður er lektor í landafræði við Háskóla Íslands
og annaðist umfangsmikla rannsókn á kvennastýrðum
heimilum í Simbabve. Alda Lóa er grafískur hönnuður
og fréttaljósmyndari og hyggst meðal annars segja frá
starfsemi íslenska félagsins Sóley og félagar í þágu
heimilis nunnu í Tógó, Victo, sem hefur tekið mörg börn
og ungmenni undir sinn verndarvæng.
Nunnan Victo
frá Tógó.
Barnahjálp í Tógó kynnt