Morgunblaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 12. apríl, kl. 18.15 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg G unnlaugurBlöndal Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd: í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is ÁVÖXTUNARKRAFA á grísk ríkisskuldabréf til tíu ára fór í 7,6% á fjármálamörkuðum í gær. Þetta þýð- ir að áhættuálagið umfram þýsk rík- isskuldabréf er tæplega 450 punktar. Á sama tíma féll gengi evrunnar gagnvart dollar og nálgast nú 1,3. Þróunin endurspeglar ótta fjár- festa um að grískum stjórnvöldum takist ekki að fjármagna komandi gjalddaga á viðunandi kjörum, en samkvæmt Dow Jones-fréttaveit- unni þurfa þau að klára skuldabréfa- útboð að andvirði 10 milljarða evra fyrir lok næsta mánaðar. Þrátt fyrir að grísk stjórnvöld hafi fengið fyrirheit um efnahagsaðstoð frá öðrum aðildarríkjum evrusvæð- isins ef þörf verður á er enn óljóst á hvaða kjörum slík lánafyrirgreiðsla yrði veitt. Þó fregnir hafi borist af því að sum evruríki séu reiðubúin að veita lán á ríflega 4% vöxtum standa þýsk stjórnvöld fast á því að vextir lánanna yrðu nálægt þeim vöxtum sem grískum stjórnvöldum stendur til boða á fjármálamörkuðum. Einsýnt þykir að spennan kring- um gríska hagkerfið haldi áfram að öllu óbreyttu. Hækkandi skulda- bréfakrafa á ríkisskuldabréf er farin að hafa áhrif á efnahagsreikning grískra banka sem eru með stórar stöður í slíkum pappírum. Þrátt fyrir að engum dyljist að ástandið sé graf- alvarlegt ítrekuðu grísk stjórnvöld í gær að þau þyrftu ekki aðstoð, hvorki frá öðrum evruríkjum né AGS, til þess að leysa úr fjármögn- unarvandanum. ornarnar@mbl.is Við suðumark  Krafa á grísk ríkisskuldabréf hækkar og efnahagsleg óvissa magnast Stuttar fréttir ... ● ÍSLANDSBANKI vill ekki tjá sig um ummæli Jóns Ger- alds Sullenber- gers, fram- kvæmdastjóra Kosts, í Morgun- blaðinu í gær, þess efnis að hann fengi ekki neina lánafyr- irgreiðslu í banka- kerfinu, öfugt við keppinauta. Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka, segir að Arion banki geti ekki lögum sam- kvæmt tjáð sig um hvort eða hverjir leiti til bankans um fyrirgreiðslu. Ekki náðist í talsmann Landsbanka í gær. Tjá sig ekki um ummæli Jóns Geralds Kostur Fær ekki fyrirgreiðslu. ● PÁLMI Haralds- son, fyrrverandi eigandi Fons, sendi frá sér til- kynningu í gær vegna stefnu Glitnis á hendur honum og fleirum. Hann segir stefnu bankans vera til- efnislausa. Hann segist ekki hafa hagnast persónulega á viðskiptunum, sem nú hafa orðið til- efni málsóknar, heldur hafi félag hans, Fons, notið góðs af þeim. Lánið hafi verið notað til að greiða niður önnur lán Fons. „Vert er að taka fram í þessu sam- bandi, að bústjóri Fons hf. hefur undir höndum allt bókhald félagsins. Þar hefði slitastjórn Glitnis banka hf. get- að fengið réttar upplýsingar áður en stefnan var gefin út. Þeim hefði því verið í lófa lagið að fá öll gögn en ekki bara sum áður en þeir hófust handa. Þegar slíkum vinnubrögðum er beitt, getur umræðan aldrei orðið sannleik- anum samkvæmt,“ segir í tilkynningu Pálma. Þar kemur einnig fram að sýnt verði fram á í dómsal að stefnan sé „með öllu tilefnislaus“. Pálmi hyggst ekki tjá sig frekar um málið við fjöl- miðla. Segir stefnu Glitnis með öllu tilefnislausa Pálmi Haraldsson einstökum lagaákvæðum, heldur byggt á hinni svokölluðu almennu skaðabótareglu. Þeir hafi hlutast til um stjórn bankans með saknæmum og ólögmætum hætti. Í ritgerð sinni fjallar Pétur einn- ig um tilvik þar sem takmörk á ábyrgð hluthafa geta fallið niður. Geti það t.d. gerst ef stór hluthafi hafi átt viðskipti við hlutafélagið og njóti ávinnings vegna viðskiptanna sem aðrir viðskiptavinir hafi ekki notið. Í stefnunni er ekki byggt á þessu sjónarmiði, en hugsanlega gæti það komið til álita í öðrum dómsmálum. FL Group var skugga- stjórnandi Glitnis  Jón Ásgeir og Pálmi stýrðu ákvörðun um lánveitingu Morgunblaðið/Kristinn Hegningarlög Í stefnu Glitnis á hendur fyrrverandi forstjóra bankans, Lár- usi Welding, segir að lánveitingin kunni að varða við refsilög. FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is MIÐAÐ við lýsingu á málavöxtum í stefnu Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jónssyni og Pálma Haraldssyni, sem voru í gegnum eignarhalds- félög stórir hluthafar í bankanum, má líta á félögin eða þá sjálfa sem skuggastjórnendur bankans. Pétur Steinn skrifaði meist- araritgerð í lögfræði þar sem m.a. er fjallað um skuggastjórnendur fyrirtækja og segir hann að í tilviki Glitnis megi hugsanlega líta á FL Group, sem var stór hluthafi í bankanum, sem skuggastjórnanda. Með því er átt við utanaðkom- andi aðila, t.d. hluthafa, sem ekki gegnir formlega embætti stjórn- anda félags, en stýrir því á bak við tjöldin. Atvik í aðdraganda hruns- ins, þar á meðal hvernig staðið var að lánveitingu til Jóns Ásgeirs og Pálma, renni stoðum undir þá kenningu að þeir hafi í krafti eign- arhaldsins haft meiri áhrif á rekst- ur bankans og ákvarðanatöku en venjulegt þykir. Engin ákvæði eru í íslenskum lögum um skuggastjórnendur og er ekki vísað til hugtaksins beint í stefnunni. Hins vegar segir í henni að þeir Jón Ásgeir og Pálmi hafi haft frumkvæði að, hvatt til og í raun stýrt ákvörðun bankans um að veita sex milljarða króna lán til FS38, félags í eigu Pálma. Í stefnunni á hendur tvímenning- unum er ekki vísað til brota gegn Engin lög eru hér á landi um skuggastjórnendur, en í ná- grannalöndum okkar eru ákvæði í lögum um skyldur slíkra aðila, sem stýra félögum á bak við tjöldin. Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SKULDIR Fons, fjárfestingafélags Pálma Har- aldssonar, við Glitni námu 29 milljörðum króna á þeim tíma sem sex milljarða lán var veitt til FS38. Eigið fé Glitnis var á þeim tíma bókfært 283 millj- arðar, og skuldir Fons því um 10,25% af eigin fé hans. Þar af leiðandi áttu stjórnendur Glitnis að meðhöndla lánabeiðni Fons og FS38 af sérstakri varúð, með tilliti til þess að um stóra áhættuskuld- bindingu var að ræða. Í ljósi þess að eina eign FS38 var krafa á Stím, sem hafði þegar verið af- skrifuð af hálfu Glitnis, var félagið ekki hæft til að fá sex milljarða króna lán. Síðar var lánabeiðni FS38 samþykkt, utan fundar áhættunefndar bankans, eins og fram kom í fundargerð. Þetta kemur fram í stefnu skilanefndar Glitnis gegn fyrrverandi eigendum og starfsmönnum bankans. „Nokkuð ósanngjarnt“ gagnvart Fons Pálmi sagði í einum þeirra pósta sem opinber- aðir eru í stefnu skilanefndar að hann teldi „nokk- uð ósanngjarnt“ að Fons tæki eitt á sig „FS38 æv- intýrið,“ en Pálmi útskýrir ekki frekar í póstinum hvaða merkingu eigi að leggja í það orðfæri. FS38 var ævintýri  Reglur FME um stórar áhættuskuldbindingar ekki virtar  Áhætta gagnvart Fons yfir 10% af eigin fé Morgunblaðið/Golli Eigendur Jón Ásgeir og Pálmi eru taldir hafa misbeitt stöðu sinni sem eigendur Glitnis. BANKARNIR þrír, Arion banki, Íslandsbanki og NBI, vilja litlu svara um hvort þeir, sem nú hef- ur verið stefnt af Glitni í sex millj- arða skaðabóta- máli, muni hafa minni aðgang að fyrirgreiðslu en áður. Morgunblaðið sendi bönk- unum þremur fyrirspurn þessa efnis í gærmorgun. Frá Íslandsbanka, sem áður var Glitnir, bárust þau svör að ekki væri hægt að tjá sig um málefni aðilanna sem um ræðir frek- ar en einstakra viðskiptavina hjá bankanum. Hins vegar var tekið fram í svari bankans að mögulegar auknar skuldbindingar við- skiptavina hefðu vissulega áhrif á lánshæfi þeirra, eins og það er orðað í svari Íslandsbanka. Í svari NBI við fyrirspurn Morgunblaðsins, segist bankinn ekki telja sig vera í stöðu til að tjá sig um málefni fyrrverandi hluthafa Glitnis. Málið verði að hafa sinn gang í rétt- arkerfinu. NBI muni hins vegar grípa til aðgerða ef þörf kræfi. Eng- in svör bárust frá Arion banka. 365 miðlar, fyrirtæki í eigu eins hinna ákærðu, Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar, er í viðskiptum við NBI. thg@mbl.is Fábrotin svör bankanna Auknar skuldir skerða lánshæfi  Óvíst um fyrir- greiðslu til stefndra                     !  "   " #  " $ % & '  '  $ ()$( $ *! +,-./0 +10./ +,2./, ,,.13- ,+.3/2 +2.4+4 ++1./ +./-+, +13.+3 +25.-0 +,-.44 +10.22 +,2.41 ,/.5+0 ,+.0 +2.44- ++1.4/ +./-0, +13.2, +2+.// ,,2.2350 +,-.12 +14.,3 +,-.54 ,/.5-, ,+.04/ +2.2, ++1.14 +./-1, +10./ +2+.-+

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.