Morgunblaðið - 09.04.2010, Side 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010
ÚTSALA
Smellurammar 10x15 kr. 100.-
20x25 kr.250.- og 40x50 kr. 800.-
Myndir frá kr. 2.500.-
Málverk frá kr. 5.000.-
Innrömmun 20% afsláttur
Sérskorinn karton 20% afsláttur
Karton m. glugga
kr. 200-600.-
Álrammar
21x30 kr. 1.200.-
og 59x67 kr. 1.800.-
Tré og álrammar
50-60% Afsláttur
Íslensk grafík 20-60% afsl.
Tolli - Bragi - Jón Reykdal - Þórður Hall o.fl.
Síðumúla 34 - Sími 533 3331
Opið virka daga
kl. 9-18
Laugardag
kl. 11-15
Kurmanbek Bakijev, forseti Kirg-
isistans, sagði í samtali við rúss-
neska útvarpsstöð í gær að hann
væri í suðurhluta Kirgisistans og
hefði engin áform um að yfirgefa
landið.
Bakijev komst til valda eftir
byltingu í landinu fyrir fimm árum,
en flúði frá höfuðborginni Bishkek
eftir uppreisnina á miðvikudag og
var talið að hann hefði farið til
Osh. Hann sagðist ekki viðurkenna
ósigur þrátt fyrir að stjórnarand-
stæðingar stjórnuðu nú landinu en
viðurkenndi að þó hann væri for-
seti hefði hann engin völd.
Bakijev neitar að gefast upp
BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, og Dmitri
Medvedev, forseti Rússlands, lýstu yfir ánægju með af-
vopnunarsamninginn, sem þeir undirrituðu í Prag í
Tékklandi í gær.
Bandaríkjaforseti sagði að samningurinn væri sögu-
legur. Hann stuðlaði að öruggari og friðsamari heimi og
með því að koma í veg fyrir fjölgun kjarnorkuvopna fjar-
lægðust þjóðirnar kalda stríðið enn frekar.
Samkvæmt nýja samningnum mega Bandaríkin og
Rússland ráða í mesta lagi yfir 1.550 kjarnaoddum, um
30% færri en gert var ráð fyrir í fyrri afvopnunarsamn-
ingi frá 2002. Samningurinn tekur við af svonefndum
START-samningi frá 1991, sem rann út í desember sl. og
verða þjóðþing ríkjanna að samþykkja hann til þess að
hann taki gildi. Obama sagðist vona að Bandaríkjaþing
samþykkti samninginn á þessu ári. Samþykki 66% þing-
manna þarf til og repúblikanar hafa sagt að þeir sam-
þykki engan samning sem veiki eldflaugavarnakerfi
Bandaríkjanna.
Nýr kafli
Dmitri Medvedev, forseti Rússlands, sagðist líta björt-
um augum til framtíðarsamskipta við Bandaríkin. „Ég
vona að undirskriftin marki nýjan áfanga í samskiptum
þjóðanna,“ sagði hann.
Samningaviðræðurnar drógust á langinn, meðal ann-
ars vegna deilu um áform Bandaríkjamanna um að koma
upp eldflaugavarnakerfi í Evrópu og sögðu rússnesk
stjórnvöld, að sáttmálinn öðlaðist því aðeins gildi að
Bandaríkin drægju mjög úr umfangi eldflaugavarnanna.
Tímamótasamningur
Obama segir afvopnunarsamninginn sögulegan og hann tryggi friðsamari heim
Medvedev vonast til þess að viðburðurinn bæti enn samskiptin við Bandaríkin
Reuters
Undirskrift Ánægðir forsetar.
MIKILL uppgangur er í Kína og í sumum tilfellum bitn-
ar hann á íbúum sem er gert að yfirgefa heimili sín án
þess að þeir hafi endilega í önnur hús að venda. Landið
er dýrmætt og í stað núverandi húsnæðis á að byggja
stærra, betra og dýrara. Það hentar ekki íbúunum en
stjórnvöld halda sínu striki.
Reuters
Umdeildar framkvæmdir víða í Kína
Uppgangur og niðurrif
FORSVARSMENN breska flug-
félagsins British Airways og
spænska ríkisflugfélagsins Iberia
tilkynntu í gær að þeir hefðu undir-
ritað samkomulag um samruna í
þeim tilgangi að stofna eitt stærsta
flugfélag heims.
Stefnt er að því að nýja félagið,
International Airlines Group, reki
419 flugvélar, sem fljúgi til meira
en 200 áfangastaða með um 58
milljónir farþega á ári og spari um
400 milljónir evra á ári fimm árum
frá samruna.
Sameining flugfélaganna er háð
samþykki evrópskra samkeppnis-
yfirvalda auk hluthafa í British Air-
ways og Iberia.
British Airways og
Iberia semja um
sameiningu
Sameining Vélar frá Iberia og BA.
KÍNA og Nepal
hafa um árabil
deilt um hæðina
á tindi Everest-
fjalls, hæsta fjalls
heims, sem er á
landamærum
landanna. Nepal
hefur sagt fjallið
vera 8.848 m hátt
og hefur sú hæð
almennt verið
viðurkennd síðan 1955. Kína segir
að hæðin sé 8.844,43 m fyrir utan
snjólagið og miðar við þá tölu. Í vik-
unni náðu þjóðirnar samkomulagi
um hæð fjallsins. Kínverjar viður-
kenna að hæðin að snjóhettunni
meðtalinni sé 8.848 m og Nepal
fellst á að án hettunnar sé hæðin
8.844,43 m.
Vegna jarðhræringa telja land-
fræðingar að Everest sé að hækka.
Samkvæmt mælingum bandarísks
leiðangurs 1999 er Everest 8.850 m
og styðst Landfræðifélag Banda-
ríkjanna við þá tölu.
Samkomulag um
hæðina á Everest
Margir hafa klif-
ið Everest.
RÚSSAR hafa boðið ráðandi öflum í
Kirgisistan aðstoð og fulltrúar Sam-
einuðu þjóðanna og Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE)
hafa verið sendir til höfuðborgarinn-
ar Bishkek vegna ástandsins, en tal-
ið er að meira en 70 manns hafi látist
í átökunum.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
sérstakur sendifulltrúi SÞ yrði send-
ur til Kirgisistans og auk þess færi
þangað fulltrúi frá Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu vegna ríkjandi
ástands í landinu síðan á miðvikudag
í kjölfar uppreisnar stjórnarand-
stæðinga.
Vladimir Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, átti í gær símtal við Roza
Otunbajeva, leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, sem hefur boðað kosning-
ar eftir sex mánuði. Að sögn tals-
manns forsætisráðherrans lagði
Pútín áherslu á sérstakt samband
landanna og sagði að Rússland
myndi hér eftir sem hingað til styðja
íbúa Kirgisistans.
Rússar bjóða aðstoð
Sendifulltrúar
Sameinuðu þjóð-
anna og ÖSE til
Kirgisistans
Reuters
Völd Roza Otunbajeva, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, fer
fyrir bráðabirgðastjórn í Kirgisistan og boðar kosningar eftir hálft ár.
SÉRFRÆÐINGAR telja líklegt að
Venesúela verði hernaðarlega háð
Rússlandi eftir að Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, samdi í liðinni viku
við Rússa um að kaupa hergögn fyrir
sem samsvarar fimm milljörðum
dollara.
Raul Salazar, varnarmálaráð-
herra Venesúela 1999 til 2000, segir
að vegna vopnakaupa af Rússum
undanfarin ár sé Venesúela háð þeim
og viðskiptin útiloki samkeppni á
þessu sviði.
Stjórnmálaskýrandinn Carlos
Romero segir að með kaupunum vilji
Chavez sýna að hann hafi mikilvægu
hlutverki að gegna á heimssviðinu.
Aðrir sérfræðingar benda á að rúss-
nesku vopnin séu of dýru verði
keypt. Maruja Tarre, sérfræðingur í
erlendum málefnum, segir að stór
hluti þjóðarinnar spyrji hvernig for-
setinn geti leyft sér að eyða svo mikl-
um peningum í hergögn þegar þjóðin
hafi varla efni á því að borga fyrir
vatn og rafmagn.
Samningurinn kveður meðal ann-
ars á um kaup á þremur kafbátum,
92 gömlum skriðdrekum, brynvörð-
um bílum í tugatali, 10 herþyrlum,
eftirlitsvélum og loftvarnarkerfum.
Vígbún-
aður vek-
ur athygli