Morgunblaðið - 09.04.2010, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010
RAX
Skemmtileg vísindi Sápukúluborðið, Ísprinsessan, Vatnshrútur, Sólarofninn, Kúlubekkurinn,
Brunnurinn skjálfandi, Ölduvaggan, loftpúðaborð, spéspegill, hvirfilflöskur og orkuhjól. Þetta
er meðal þess sem hægt er að skoða, upplifa og taka þátt í í Tilraunalandinu sem opnað verður í
Norræna húsinu í dag. Tilraunalandið er lifandi og gagnvirk sýning þar sem vísindin eru kynnt
á óvenjulegan og skemmtilegan hátt með virkri þátttöku gesta. Í Tilraunalandinu eru allir
jafnvígir, en gott er að hafa fróðleiksþorstann, hugrekkið og ímyndunaraflið með í farteskinu.
Bandaríkjamenn og Rússar
undirrituðu í gær nýjan samning
um fækkun á langdrægum
kjarnaeldflaugum (START) í
Prag, sem fækka mun lang-
drægum kjarnaeldflaugum í
vopnabúrum okkar þannig að
fjöldi þeirra verður samsvarandi
því sem var á fyrsta áratug
kjarnorkualdarinnar. Þessi sann-
anlega fækkun hjá tveimur
stærstu kjarnorkuveldum heims
endurspeglar skuldbindingu okkar við grund-
vallarhugmynd samningsins um bann við út-
breiðslu kjarnavopna (NPT) – allar þjóðir eiga
rétt á að nota kjarnorku á friðsamlegan hátt, en
þeim ber einnig öllum skylda til að koma í veg
fyrir fjölgun kjarnavopna, og þær þjóðir sem
eiga slík vopn verða að vinna að afvopnun.
Þessi samningur er aðeins eitt af mörgum
raunhæfum skrefum sem Bandaríkin stíga nú
til að efna heit Obama forseta um að gera
Bandaríkin og allan heiminn öruggari, með því
að draga úr þeirri ógn sem stafar af kjarna-
vopnum, útbreiðslu þeirra og hryðjuverka-
starfsemi.
Á þriðjudaginn var kynnti forsetinn skýrslu
um afstöðu Bandaríkjastjórnar í kjarnavopna-
málum (NPR) þar sem fram kemur vegvísir um
hvernig skuli draga úr hlutverki og fjölda
kjarnavopna okkar en um leið verja Bandaríkin
og bandamenn okkar á áhrifaríkari hátt fyrir
mestu hættum samtímans.
Í næstu viku tekur Obama forseti á móti rúm-
lega 40 þjóðarleiðtogum á leiðtogafundi um
kjarnorkuöryggi sem hefur það að markmiði að
tryggja öll óvarin kjarnorkuefni svo fljótt sem
auðið er til að koma í veg fyrir að þau falli í
hendur hryðjuverkamanna.
Og ásamt erlendum vinum okkar beita
Bandaríkin nú diplómatískum aðferðum sem
hafa raunverulegar afleiðingar fyrir ríki, eins og
Íran og Norður-Kóreu, sem hunsa alþjóðlegar
samþykktir um takmörkun á útbreiðslu kjarna-
vopna.
Þessi skref senda skýr skilaboð um forgangs-
röðun okkar og staðfestu.
Til bandamanna okkar og vina, og allra þeirra
sem hafa lengi litið til Bandaríkjanna sem
ábyrgðaraðila staðbundins og alþjóðlegs örygg-
is: Ásetningur okkar, að verja hagsmuni okkar
og bandamenn, hefur aldrei verið eindregnari.
Þessi skref munu gera okkur öll óhultari og
öruggari.
Til þeirra sem neita að uppfylla
alþjóðlegar skyldur sínar og reyna
að ógna nágrönnum sínum: Heim-
urinn stendur betur saman en
nokkru sinni fyrr og mun ekki
sætta sig við óbilgirni ykkar.
Samningurinn sem undirritaður
verður í dag er vitnisburður um
þann ásetning okkar að standa við
skuldbindingar okkar samkvæmt
NPT-samningnum og þá sérstöku
ábyrgð sem Bandaríkin og Rúss-
land bera sem tvö stærstu kjarn-
orkuveldin.
Nýi START-samningurinn felur
í sér 30 prósenta fækkun langdrægra kjarna-
eldflauga sem Bandaríkin og Rússland mega
hafa til taks, og sterkt og virkt eftirlit sem mun
gera samband ríkjanna tveggja enn stöðugra,
auk þess að draga úr hættunni á mistökum í
boðskiptum eða útreikningum.
Og samningurinn takmarkar ekki eld-
flaugavarnir okkar – hvorki nú né í framtíðinni.
Skýrsla Obama forseta um afstöðuna í
kjarnavopnamálum (NPR) gerir meginregluna
á bak við þennan samning – og heildarstefnu
okkar hvað varðar takmörkun á útbreiðslu
kjarnavopna og vopnatakmarkanir – að hluta af
þjóðaröryggisáætlun okkar. Nú hefur fjölgun
kjarnavopna og kjarnorkuhryðjuverk komið í
stað hættu kalda stríðsins á stórfelldri kjarn-
orkuárás, sem mesta ógn við öryggi Bandaríkj-
anna og umheimsins. NPR útlistar nýja nálgun
sem mun tryggja að varnir okkar og utanríkis-
stefna séu sniðin að því að taka á þessum við-
fangsefnum á árangursríkan hátt.
Það er hluti af þessari nýju nálgun að Banda-
ríkin heita því að nota hvorki né hóta að nota
kjarnavopn gegn kjarnavopnalausum ríkjum
sem eru aðilar að NPT-samningnum og fara eft-
ir ákvæðum hans um bann við útbreiðslu
kjarnavopna. Bandaríkin myndu aðeins íhuga
notkun kjarnavopna við öfgakenndar aðstæður
til að verja lífsnauðsynlega hagsmuni Banda-
ríkjanna eða bandamanna þeirra og vinaþjóða.
Enginn ætti hins vegar að velkjast í vafa um að
við munum láta hvert það ríki, hryðjuverkahóp
eða aðra aðila sem styðja eða auðvelda hryðju-
verkamönnum að komast yfir eða nota gereyð-
ingarvopn svara til saka.
NPR-skýrslan leggur einnig áherslu á nána
samvinnu við bandamenn okkar um allan heim,
og viðheldur skuldbindingum okkar um gagn-
kvæmt öryggi. Við munum vinna með vina-
þjóðum okkar að því að styrkja svæðisbundna
öryggisuppbyggingu, eins og eldflaugavarnir og
aðra eflingu hefðbundins herstyrks. Bandaríkin
munu halda áfram að viðhalda tryggri, öruggri
og áhrifaríkri kjarnorkufælingu fyrir okkur
sjálf og bandamenn okkar svo lengi sem þessi
vopn eru til einhvers staðar í heiminum.
Fjölgun kjarnavopna og hryðjuverka-
starfsemi eru hnattræn viðfangsefni og krefjast
hnattrænna viðbragða. Þess vegna hefur
Obama forseti boðið leiðtogum hvaðanæva úr
heiminum til Washington á leiðtogafund um
kjarnorkuöryggi og mun leita eftir skuldbind-
ingu allra þjóða – sérstaklega þeirra sem nýta
sér kjarnorkuver – um að grípa til aðgerða til að
stöðva útbreiðslu kjarnavopna og tryggja ör-
yggi óvarinna kjarnorkuefna. Ef hryðjuverka-
menn kæmust yfir þessi hættulegu efni yrði af-
leiðingin hræðilegri en hægt er að gera sér í
hugarlund.
Allar þjóðir verða að gera sér ljóst að tak-
mörkun á útbreiðslu kjarnavopna gengur ekki
ef þeir sem brjóta samkomulagið fá að ganga
fram refsingarlaust. Þess vegna vinnum við að
því að ná alþjóðlegri samstöðu um aðgerðir sem
munu sannfæra leiðtoga Írans um að breyta um
stefnu. Þar á meðal eru nýjar refsiaðgerðir Ör-
yggisráðs SÞ sem munu skýra þá kosti sem þeir
standa frammi fyrir, að standa við skuldbind-
ingar sínar, eða horfast í augu við aukna ein-
angrun og sársaukafullar afleiðingar. Hvað
varðar Norður-Kóreu þá sendum við áfram þau
skilaboð að það sé ekki nóg að snúa aftur að
samningaborðinu. Yfirvöld þar verða að taka
skref í átt til algerrar og sannanlegrar kjarn-
orkuafvopnunar með óafturkræfum aðgerðum
ef þau vilja eiga eðlileg og refsilaus samskipti
við Bandaríkin.
Öll þessi skref, allir samningar okkar, leið-
togafundir og refsiaðgerðir hafa það sameig-
inlega markmið að auka öryggi Bandaríkjanna,
bandamanna okkar og fólks um allan heim.
Í apríl á síðasta ári stóð Obama forseti á
Hradcany-torgi í Prag og skoraði á þjóðir heims
að sækjast eftir framtíð sem væri laus við þær
kjarnorkuógnir sem hafa vofað yfir okkur öllum
í meira en hálfa öld. Þetta er verkefni fyrir heila
mannsævi, ef ekki lengri tíma. En í dag, einu ári
síðar, stígum við stórt skref í átt að þessu mark-
miði.
Eftir Hillary Rodham
Clinton
» Öll þessi skref, allir
samningar okkar, leiðtoga-
fundir og refsiaðgerðir hafa
það sameiginlega markmið
að auka öryggi Bandaríkjanna,
bandamanna okkar og fólks
um allan heim.
Hillary Clinton
Höfundur er utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Útfærsla á kjarnavopnaáætlun fyrir 21. öldina
Reuters
Samningurinn í höfn Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Dimitrí Medvedev, forseti
Rússlands, takast í hendur og skiptast á eintökum af samningnum um fækkun kjarnorkuvopna,
sem þeir undirrituðu í Prag í gær.