Morgunblaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 20
20 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 EFTIR að hafa bú- ið við eitt og hálft ár af fjármálakreppu og lagaflækjum, nið- urskurði og ýmiss konar samningum um afborgunarskilmála, er kominn tími til að hefja uppbyggingu og leggja sterkan grunn að framtíðinni. Gott er að hafa í huga að kínverska táknið fyrir „kreppu“ táknar einnig „mögu- leika“. Ísland er stórkostlegt land tæki- færa, náttúruauðlinda og sjálf- stæðrar og friðelskandi þjóðar. Með slíkan grunn, og í ljósi þeirra möguleika sem fámenn þjóð hefur til að laga sig fremur hratt að nýj- um aðstæðum, er framtíðin björt sé tækifærið gripið einmitt nú. Nú er lag að hefja uppbyggingu með langtímasjónarmið að leiðar- ljósi, í umhverfi sem er í far- arbroddi á heimsvísu þegar kemur að þeim sköpunarkrafti og fram- kvæmdagleði sem náttúra Íslands blæs okkur í brjóst á einstakan hátt. Við getum með skjótum hætti orðið fordæmi til að snúa þróuninni við eftir fjármálakreppu heimsins. Ef við þorum að taka nokkur óhefðbundin hliðarspor getum við byggt upp kröftugan og hugmyndaríkan hóp sem höfðar bæði til skapandi fólks og skap- andi fjármagns. Ísland á mögu- leika á að verða fyrsta land í heimi þar sem jafnvægi næst í losun og upptöku koltvísýrings. Á tíu árum gætum við endurnýjað allan bíla- flota landsins þannig að notuð yrði innlend og endurvinnanleg orka. Á Íslandi er gnótt af því sem al- mennur skortur er á í heiminum; víðernum og auðnum. Við vitum öll að með matvöru sem framleidd er á staðnum og framreidd af hugmyndaauðgi og sjálfsögðum gæðum, og með nýstárlegum gistimöguleikum og aukinni þjónustu, á landið möguleika á að verða gífurlega vinsæll áningarstaður ferða- manna. Til að koma þessu í framkvæmd er þörf á þekkingu, hug- myndaauðgi, hugrekki og sköpunarkrafti. Árið 2010 mun Nor- ræna húsið í Reykjavík, sem ég vona að geti lagt sitt af mörkum sem frjósamt og kraftmikið afl á erfiðum tímum, setja börnin í önd- vegi. Börnin okkar taka þátt í að byggja upp landið á ný og þau þurfa að fá í hendurnar verkfæri og einnig stuðning sem eykur hug- myndaflug, hugrekki og þann mikla sköpunarkraft sem getur gert Ísland að besta landi í heimi. Í samvinnu við Háskóla Íslands verður nú í apríl opnað Tilrauna- land sem er öllum opið þeim að kostnaðarlausu. Tilraunalandið höfðar til sköpunarkrafts og for- vitni, það er fræðandi og skapandi en jafnframt skemmtilegt. Til- raunalandið er sett upp í samvinnu við Tom Tits Experiment í Svíþjóð, sem er miðstöð upplifana í Söder- tälje sunnan við Stokkhólm og fær árlega heimsóknir mörg hundruð þúsund gesta og hefur hlotið fjölda evrópskra verðlauna fyrir fræðslu- efni sitt. Ætlunin er einnig að ferðast vítt og breitt um landið með Tilraunalandið í tveimur vögn- um í sumar. Norræna húsið hefur skipulagt fjölda viðburða sem ætlað er að höfða til barna, undir yfirskriftinni „Fjöregg“. Í lok apríl verður Barna- og unglingabókmenntahá- tíðin Mýrin haldin, en hana sækja margir af færustu höfundum og myndskreytum heims. Í ár verða líka í boði leiksýningar, kvik- myndasýningar, breikdans og til- raunareitur til ræktunar. Stav- anger hefur sent okkur „sandkassa með yfirbreiðslu“ – innsetningu sem gerð var þegar bærinn var ein af menning- arborgum Evrópu fyrir nokkrum árum. Í haust verður hafist handa um að byggja upp betra votlendi fyrir fuglana í Vatnsmýrinni og samtímis setjum við upp einstakan útiskóla í miðri höfuðborginni. Þetta verður gert í samvinnu við Háskóla Íslands, Reykjavíkurborg og eftir hugmyndum frá X-Clinic við New York-háskóla. Með þessu frumkvæði og með framkvæmdagleðina að leiðarljósi fá börnin tækifæri til að kynnast uppfinningum og frjórri hugsun sem gagnast við uppbyggingu þess Íslands sem mun standa sterkt um langa framtíð. Þessi grein er hvatning til stjórnmálamanna, sem hefja senn kosningabaráttu, til að úthugsa leiðir til að fá börnum okkar í hendur tól, tækifæri og forsendur til nýsköpunar í borginni, auk sköpunargleði og samkenndar. Þannig verður framtíð Íslands björt. Að auki finnst mér að grafa eigi Hringbrautina í göng svo að við eignumst sannkallaðan borgargarð og háskóla í miðri Reykjavík- urborg. Fjöreggin klekjast út í Til- raunalandinu í Vatnsmýrinni Eftir Max Dager » Börn þurfa að fá í hendurnar verkfæri og stuðning sem eykur hugmyndaflug, hug- rekki og sköpunarkraft, til að gera Ísland að besta landi í heimi. Max Dager Höfundur er forstjóri Norræna hússins. VONBRIGÐI og reiði vegna aðgerða- leysis stjórnvalda fara vaxandi með hverjum deginum. Í góðri grein Ástu Hrundar Guðmundsdóttur í Morgunblaðinu 24. mars sl., „Bakka- bræður afturgengn- ir?“ er forkólfum rík- isstjórnarinnar líkt við þá kumpána og ekki að ástæðulausu. Mörg úrræði sem gripið hefur verið til hafa reynst vanhugsuð og lítt eða ekki und- irbúin af þeirri kostgæfni sem gera verður kröfu til. Ríkisstjórnin hefur heykst á að taka ákvarðanir og afstöðu til brýnna mála og við- fangsefna. Á alþingi hafa þarflaus mál, dægurmál og gæluverkefni, étið upp vinnustundir þingmanna og tekið tíma frá þörfum og áríðandi verkefnum, sem bíða úrlausnar. Verkstjórn og for- gangsröðun hefur ver- ið í molum. Sagan af hestinum Í Kristnihaldi undir Jökli lætur Halldór Laxness Jón prímus segja frá hesti sem datt ofan í Goðafoss, ef rétt er munað. Hann kraflaði sig upp á eyri neðan við fossinn og hímdi þar í tvo daga -; svo fór hann aftur að bíta. Þjóðinni er kannski líkt farið og þessum hesti. Fall hestsins niður fossinn táknar hér hrunið og enn er þjóðin að híma; bíða úrlausna þeirra sem hún hefur valið til for- sjár. En biðin er orðin of löng. Fólkið er enn að átta sig á stöð- unni, en á meðan fólkinu er haldið í óvissu um afkomu fjölskyldna í landinu, af forsjármönnum, er ekki við því að búast að unnt verði að glöggva sig á kringumstæðum, þannig að hægt verði að byrja að bíta, eins og hesturinn gerði, þeg- ar hann hafði áttað sig. Lausnir felast í grasrótinni Menn eru misfljótir að taka við sér. Hugmyndir hafa kviknað hjá einstaklingum og sumar eru þegar farnar að bera ávöxt, en stjórnvöld hafa þegar brugðið fæti fyrir önn- ur verkefni, sem ella væri unnt að hrinda í framkvæmd til heilla fyrir land og þjóð. Kreppunni linnir ekki fyrr en einstaklingarnir í þjóðfélaginu hafa áttað sig og „far- ið að bíta“, en til að flýta því verð- ur að skapa fólkinu ramma sem það unir og treystir. Þá fyrst mun birta til og vonir kvikna. Stjórn- völd verða að mynda grunninn, en að öðru leyti koma lausnir ekki að ofan, þ.e. frá þeim. Lausnir verða til meðal fólksins í landinu, vegna fólksins í landinu og fyrir fólkið í landinu. Kunna ráðamenn til verka? Ef þú, lesandi góður, værir að stofna fyrirtæki og ætlaðir að ráða fólk til starfa er nokkuð víst að valið myndi helgast af kunnáttu og reynslu umsækjenda. Hafa þau sem valist hafa til stjórnarstarfa í þjóðfélaginu þá kunnáttu og reynslu til að bera? Væri þetta fólkið sem þú réðir til starfa í fyr- irtækinu þínu? Hér er verið að tala um stjórn stærsta fyrirtækis landsins, sjálfs þjóðfélagsins. Nú- verandi setar í ráðuneytum hafa fæstir fengist við stjórnunarstörf af þeirri gráðu sem við er að glíma þar. Reynsla þeirra, upp til hópa, hefur helgast af því að vera í stjórnarandstöðu, en ekki við stjórnvölinn. Á þessu tvennu er mikill munur. Það hefur verið sagt að vel menntaðir en reynslulitlir menn hafi komið bönkunum á kaldan klaka. Nú á vel menntað en reynslulítið fólk að leiða þjóð- ina til bjargálna. Er líklegt að þeim takist það? Efi læðist að. Ekki svo að skilja að einhverjir aðrir sem nú sitja á þingi séu lík- legir til að ráða við þetta verkefni. Því fer sennilega fjarri. Lausn úr fjötrum stjórnmálaflokka Er ekki kominn tími til að taka stjórnartaumana af stjórn- málaflokkunum, flokksklíkum og flokkseigendafélögum? Alþingi er því miður máttlaust og úrræða- laust, en ef einhver dugur og heil- indi finnast enn á meðal þing- manna, ættu þeir að losa sig úr fjötrum flokkanna og fara að vinna samkvæmt eigin sannfær- ingu að málefnum sem varða þjóð- arheill. Skilgreina málefnin og skipa þeim í flokka. Annars vegar verkefni, sem varða þjóðarvelferð, sem auðvelt á að vera að ná sam- stöðu um, og hins vegar mál, sem kalla má pólitísk mál og eru þess eðlis að vera næring fyrir stjórn- málaþrætur. Setja þjóðþrifamálin í forgang og pólitísku málin í salt. Er ekki full ástæða til að núver- andi stjórnvöld víki og störf seta í ráðuneytum verði auglýst laus til umsóknar? Í framhaldi af því verði hópur valinkunnra manna (ekki þingmanna) skipaður til að fara yfir umsóknir og velja þá hæfustu til setu í ráðuneytum, þ.e. umsækjendur sem búa yfir þekk- ingu og reynslu af stjórn- unarstörfum. Menn og konur sem kunna til verka, hafa reynslu af vandaðri og markvissri áætl- anagerð, getu til að hrinda góðum áætlunum í framkvæmd og kjark til að fylgja þeim eftir og sinna nauðsynlegu eftirliti og endurmati þeirra á hverjum tíma. En er nokkur von til að það geti orðið á meðan flokkshagsmunir, klíkur og óstjórnlegur þorsti óhæfra einstaklinga í völd (og sem komast í þá aðstöðu að verma valdastóla) einkenna stjórnkerfið. Breytum kerfinu. Komum raun- verulegu lýðræði á, þannig að völd og ábyrgð verði tengd órjúfandi böndum og að þingmenn og fram- kvæmdavald leggi störf sín í dóm fólksins á fjögurra ára fresti í raun og veru. Lifandi lýðræði. Kunna stjórnvöld til verka? Eftir Magnús Axelsson »Er ekki full ástæða til að núverandi stjórnvöld víki og störf seta í ráðuneytum verði auglýst laus til umsókn- ar og ráða fólk með reynslu af stjórnun? Magnús Axelsson Höfundur er fasteignasali og matsmaður. V i n n i n g a s k r á 49. útdráttur 8. apríl 2010 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur) 3 2 1 3 2 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 2 4 8 3 0 3 9 5 7 4 6 1 7 8 8 7 0 8 8 8 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 14341 32136 37298 47252 56122 66601 16005 34157 37883 55702 60049 67679 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 2 6 8 9 1 1 0 6 8 1 8 3 2 5 2 9 1 4 8 4 2 8 8 5 5 2 3 7 1 6 3 6 8 7 7 0 6 5 8 3 2 5 0 1 1 4 7 9 2 0 8 9 0 2 9 7 9 7 4 3 7 5 3 5 4 1 0 9 6 4 5 2 9 7 3 2 0 1 3 8 8 3 1 2 2 3 3 2 1 4 9 5 3 0 2 8 4 4 4 0 2 2 5 5 1 0 7 6 5 0 0 7 7 3 5 5 9 4 4 2 8 1 3 4 4 8 2 1 5 6 5 3 1 3 5 0 4 4 1 5 7 5 5 3 6 6 6 5 2 9 6 7 4 2 4 0 5 1 3 7 1 3 8 7 7 2 3 3 2 0 3 1 6 1 1 4 4 5 2 2 5 6 1 8 0 6 5 3 8 3 7 4 9 5 2 6 1 6 4 1 4 0 9 3 2 4 1 6 4 3 2 1 2 3 4 5 1 3 5 5 6 2 7 8 6 5 8 1 5 7 4 9 8 3 6 2 1 5 1 6 0 2 7 2 4 5 0 6 3 4 0 9 5 4 5 7 5 5 5 6 3 8 9 6 5 9 6 4 7 5 4 1 7 7 0 2 6 1 6 1 7 5 2 6 0 6 1 3 4 7 7 6 4 6 5 8 3 5 7 8 3 5 6 7 5 2 3 7 7 1 5 6 7 4 3 2 1 6 7 7 1 2 7 0 2 0 3 6 5 4 1 4 6 6 7 8 5 8 1 0 5 6 8 0 5 7 7 9 0 2 3 7 9 1 1 1 6 7 7 5 2 7 2 8 5 3 7 2 3 6 4 6 6 7 9 5 8 9 8 5 6 8 6 3 1 8 7 3 1 1 6 9 3 4 2 8 7 3 0 3 8 6 3 3 4 9 8 7 8 5 9 9 7 1 6 8 9 2 2 9 1 0 2 1 7 2 8 3 2 8 7 4 5 3 8 6 8 0 5 0 7 1 4 6 3 3 3 7 6 9 8 0 6 1 0 9 4 5 1 7 5 4 3 2 8 9 6 8 3 9 9 5 2 5 1 7 6 1 6 3 5 6 2 7 0 3 3 8 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 1 7 6 1 0 2 9 7 2 0 1 2 5 2 9 3 4 7 4 2 9 9 6 5 2 6 0 3 6 1 9 9 6 7 3 2 3 9 2 4 5 1 0 5 6 2 2 0 2 2 2 2 9 6 2 1 4 3 6 5 5 5 2 6 3 0 6 2 0 9 3 7 3 2 8 2 3 6 1 1 0 6 5 5 2 0 6 1 1 2 9 6 9 7 4 4 1 2 9 5 3 1 8 3 6 2 2 0 5 7 3 3 1 4 9 2 9 1 0 7 6 2 2 0 9 3 0 3 0 1 0 5 4 4 3 5 3 5 3 2 5 0 6 2 2 7 6 7 3 3 5 5 1 2 1 1 1 1 2 1 9 2 1 1 6 4 3 0 4 0 8 4 4 3 9 7 5 3 2 6 9 6 2 4 4 9 7 3 4 1 8 1 4 2 0 1 1 4 0 6 2 2 1 2 3 3 0 5 1 8 4 4 7 0 7 5 3 4 7 0 6 2 4 9 9 7 3 5 9 8 1 6 4 2 1 1 4 3 2 2 2 2 7 2 3 0 9 1 8 4 4 8 6 3 5 3 6 9 7 6 3 8 9 1 7 3 6 2 6 1 7 2 1 1 1 4 5 4 2 2 6 2 2 3 1 0 1 9 4 4 9 1 4 5 3 7 2 1 6 4 2 9 7 7 3 9 8 1 1 8 9 6 1 1 9 3 9 2 2 6 4 6 3 2 4 0 6 4 5 2 2 7 5 3 8 7 0 6 4 3 3 3 7 4 0 4 8 2 2 7 2 1 2 5 1 3 2 3 2 1 4 3 2 9 0 5 4 5 6 3 6 5 4 1 0 6 6 4 3 9 9 7 4 1 8 4 2 3 3 1 1 3 1 0 9 2 3 3 9 7 3 2 9 2 2 4 5 8 5 1 5 4 3 7 2 6 4 5 8 9 7 4 8 6 9 2 4 9 7 1 3 1 3 4 2 3 4 8 0 3 3 0 7 8 4 7 3 5 4 5 4 8 4 1 6 4 6 3 1 7 5 0 3 0 3 1 2 2 1 3 1 4 3 2 3 6 4 4 3 3 8 0 8 4 7 8 3 0 5 5 1 8 1 6 4 8 9 3 7 5 2 9 0 4 0 8 0 1 3 2 8 8 2 3 9 3 8 3 3 9 0 0 4 7 8 4 2 5 5 9 4 5 6 5 3 2 8 7 5 6 9 7 4 3 7 2 1 3 5 6 7 2 4 7 1 1 3 4 4 6 4 4 7 9 2 3 5 6 2 1 5 6 7 0 4 1 7 5 8 2 1 4 5 9 4 1 3 5 8 2 2 4 9 9 5 3 4 6 0 8 4 8 0 4 7 5 6 2 6 4 6 7 1 4 3 7 6 6 1 4 4 6 0 7 1 3 7 8 4 2 5 1 9 0 3 5 2 2 6 4 8 3 0 8 5 6 6 9 9 6 7 5 1 1 7 7 3 4 0 5 8 0 3 1 4 2 1 3 2 5 5 2 7 3 6 0 2 4 4 8 3 9 3 5 6 7 6 2 6 7 6 1 2 7 7 5 8 2 6 1 3 7 1 5 5 0 4 2 6 2 1 2 3 6 9 4 4 4 8 4 1 3 5 7 3 9 7 6 7 6 4 0 7 7 7 2 0 6 2 2 9 1 5 8 0 8 2 6 2 8 3 3 7 3 8 7 4 8 8 0 4 5 7 6 5 3 6 9 4 1 6 7 7 7 3 4 6 4 3 4 1 6 0 0 0 2 6 9 7 6 3 8 5 7 2 4 9 3 6 3 5 8 0 2 3 6 9 4 3 2 7 8 0 1 8 6 7 1 2 1 6 0 8 8 2 7 1 4 2 3 9 2 2 5 4 9 4 0 9 5 8 2 1 2 6 9 8 1 9 7 8 3 5 0 6 7 6 6 1 6 2 8 9 2 7 3 4 1 4 0 0 3 8 4 9 8 3 3 5 8 4 9 5 6 9 8 3 6 7 9 0 3 2 6 7 9 3 1 6 4 5 2 2 7 6 1 1 4 0 4 7 2 5 0 1 8 5 5 8 5 8 9 6 9 9 9 0 7 9 1 6 4 8 5 2 6 1 6 7 5 1 2 7 9 7 5 4 0 9 1 2 5 0 3 1 8 5 9 2 6 6 7 0 1 1 0 7 9 2 4 4 8 5 8 4 1 6 8 5 3 2 8 5 1 1 4 1 2 1 9 5 0 5 6 9 5 9 5 2 5 7 0 6 8 1 7 9 3 2 0 8 6 3 7 1 7 1 6 9 2 8 5 4 2 4 1 5 9 2 5 0 7 2 6 5 9 6 8 7 7 0 8 2 0 8 7 3 6 1 7 2 8 2 2 8 7 3 6 4 2 0 3 6 5 0 8 6 7 5 9 7 7 2 7 0 9 3 8 8 7 3 9 1 7 2 8 4 2 8 8 2 7 4 2 1 8 0 5 1 3 7 4 6 0 5 1 0 7 1 2 1 9 9 0 8 3 1 7 9 5 2 2 8 8 7 7 4 2 3 0 6 5 2 0 3 0 6 0 8 0 1 7 1 4 3 1 9 3 2 4 1 8 4 6 4 2 8 9 9 1 4 2 4 7 7 5 2 1 9 5 6 1 3 5 5 7 2 4 5 7 9 7 3 8 1 9 4 0 7 2 9 2 8 2 4 2 6 0 1 5 2 5 8 5 6 1 6 5 8 7 3 1 1 9 Næstu útdrættir fara fram 15. apríl, 21. apríl & 29. apríl 2010 Heimasíða á Interneti: www.das.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.