Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 23
Stína mín, ég mun sakna þín, þinn- ar hlýju og góðmennsku. Halldór Bragason. Það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um ömmu er faðm- lagið hennar, það var engu líkt. Hún knúsaði og kyssti mann svo innilega að það sagði allt um hversu mikið henni þótti vænt um mann. Strax eft- ir að hún var farin þá fór ég einmitt að hugsa um þetta: mun ég þá aldrei geta faðmað hana aftur? Ég þreif hjá ömmu reglulega og gerði ýmislegt eins og að skreyta fyr- ir jólin eftir að við fluttum heim til Ís- lands frá Danmörku 2004. Í þessi skipti settist ég alltaf með ömmu og spjallaði um heima og geima og oft endaði það þannig að ég eyddi hálfum deginum heima hjá ömmu því við höfðum svo rosalega mikið að tala um. Það var einstaklega gaman að spjalla við hana ömmu, hún hélt ávallt með mér ef ég trúði henni fyrir ein- hverju. Einn af einstökum kostum sem amma bar var hennar einstaki hæfi- leiki til að hrósa, hún gerði í því að hrósa flottum fötum eða einfaldlega segja manni hversu mikill snillingur maður væri í hinu og þessu. Þetta er hæfileiki sem mér finnst ekki algeng- ur í íslensku samfélagi í dag og ég fer strax að hugsa hvort maður hafi verið nógu duglegur að hrósa henni fyrir góða kaffifrómasinn eða segja henni hversu mikið maður mat hana eins og hún gerði með sínu sterka faðmlagi. Amma mín, ég mun sakna þín sárt, en ég veit að þú ert á betri stað núna og núna þarftu ekki að þjást lengur, við getum öll huggað okkur við það. Afi sagði daginn sem þú fórst að núna ætti hann bara eina Kristínu Hall- dórsdóttur eftir, en það verður nú skrýtið að hafa þig ekki lengur til að leita til. Þitt barnabarn, Kristín Elísabet Halldórsdóttir. Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 hafði ekki mikið sofið, en hann var alltaf með þeim allra síðustu að fara í háttinn enda ekki takandi í mál ann- að en að standa vaktina til enda. Það er mitt lán að hafa fengið að vera samferða Villa í þessi rúm 30 ár og fengið að kynnast Villa mjög vel, deila með honum í gleði og erfiðleik- um, trúa honum fyrir mínum vanda- málum og hann mér fyrir sínum og rökræða hin ýmsu þjóðfélagsmál, ferðast á erlendri grundu þar sem við báðir nutum okkar sérlega vel og áttum einstaklega góða tíma saman sem ekki hægt er að rekja hér, en þær ferðir hefðu ekki verið þær sömu án hans. Við áttum saman skemmtilegt áhugamál en það var að kveðast á, iðkuðum það ekki oft en við ákveðnar aðstæður og þá var Arnar sonur hans ávallt með okkur og skemmti sér konunglega. Eftir að Villi greindist með krabbamein ákváðum við að fara saman í göngutúra á hverjum þriðju- degi, á þeim göngutúrum áttum við margar góðar stundir saman. Þar ræddum við saman um okkar góðu tíma, vandamál þjóðar okkar, plönin okkar um framtíðina, það sem við ættum eftir að gera og var þar sér- staklega rætt um hjólhýsið hans og Báru og sumarbústaðinn okkar Svönu. Eitt var það sem við komum okkur saman um að gera ekki í þess- um göngutúrum og það var að ræða mikið um það mein sem hann hrjáði, Villa fannst það nefnilega gott að vera ekki alltaf spurður um hvernig heilsan væri, og ég skildi það vel, „maður þarf að fá að ræða eitthvað uppbyggilegra,“ sagði hann. Villi minn, ég kveð þig með þess- um orðum: Ég gleymi ei við góðra vina skál mér gaman þótti að dvelja með þér stund og eins var gott ef angur mæddi sál að eiga tryggan vin með kærleikslund. (Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti) Elsku Bára mín og fjölskylda, megi góður guð vera með ykkur og styrkja. Blessuð sé minning Villa. Kærar kveðjur. Guðbjartur Kr. Greipsson og fjölskylda. ✝ Ingvar EinarBjarnason fæddist 2. mars 1922 í Reykja- vík. Hann lést aðfara- nótt föstudagsins langa sl., 2. apríl. Ingvar var sonur Bjarna Nikulássonar vélstjóra og Þórunnar Ingibjargar Páls- dóttur húsmóður. Systkini Ingvars voru Ragna, f. 1918, hún lést aðeins eins og hálfs árs, Guðríður Ragnheiður, f. 1924, hún lést árið 2006, Ragnheiður, f. 1929, hún lést árið 1991, og Guð- mundur Þórarinn, f. 1933, hann lést árið 1999. Eina eftirlifandi systkini Ingvars er Páll, en hann fæddist 1926. Ingvar kvæntist í október 1944 Ingibjörgu Erlu Egilsdóttur, þau skildu. Ingvar og Ingibjörg Erla eignuðust saman börnin 1) Bjarna Þór, f. 1946, hann lést aðeins tveggja ára. 2) Sigrún, f. 1949, maki hennar er Bjarni Bjarnason. 3) Guðjón, f. 1950. 4) Þórunn Ingibjörg, f. 1954, maki hennar er Eðvald Sigurðsson. Barnabörnin eru orðin 11 og barna- barnabörnin 12. Árið 1984 kvæntist Ingvar eftir- lifandi eiginkonu sinni, Valgerði Jóndísi Guðjónsdóttur. Ingvar ólst upp í Reykjavík en dvaldi á veturna austur í Holti og lauk þar barnaskóla- prófi en þar var sr. Jón Guðjónsson í Holti undir Eyjafjöllum. Og þegar í Iðnskólann var komið þá þurfti hann ekki að hafa mikið fyr- ir náminu svo vel hafði sr. Jón kennt honum og bjó hann lengi að þeim lærdómi. Ingvar hóf prentnám í prent- smiðju Jóns Helgason- ar 1938 og lauk prófi í Víkingsprenti í ágúst 1943. Ingvar vann við prentun í Víkingsprenti þar til í októ- ber 1944. Þá flutti hann til Akureyr- ar og starfaði þar við prentiðnina í eitt og hálft ár. 1948 stofnaði Ingvar Þórsprent í Reykavík og flutti með það til Neskaupstaðar 1952 og stofn- aði þá Nesprent, var þar við prent- störf og sjósókn til 1957. Á Neskaup- stað stofnaði Ingvar lúðrasveit en þar kenndi hann einnig ungum tón- listarmönnum. Ingvari var tónlistin í blóð borin og spilaði hann á trompet, en þar naut hann tilsagnar Karls O. Runólfssonar. Ingvar spilaði einnig á önnur hljóðfæri, t.a.m. á lúður og sög. Í Reykjavík spilaði hann í Lúðra- sveitinni Svani og Lúðrasveit verka- lýðsins. 1957 flutti Ingvar til Reykja- víkur og starfaði þar við prentiðnina. Útför Ingvars Einars fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 9. apríl, og hefst athöfnin kl. 15. Hverju sem ár og ókomnir dagar að mér víkja, er ekkert betra en eiga vini sem aldrei svíkja. (Davíð Stefánsson) Það eru um það bil sextán ár síðan ég kynntist honum Ingvari. Ég hafði þá skömmu áður farið að rugla reyt- um saman við Einar, son Valgerðar. Strax í upphafi þessara kynna tókst með okkur sérstök vinátta sem ekki bar skugga á og ég vil nú að leið- arlokum þakka hjartanlega fyrir. Þegar ég kem nú í Fannborgina sakna ég þess að heyra ekki kallað innan úr stofu „hæ skutla“. Og ef Manchester United hafði tapað leik var Einari jafnan heilsað með þess- um orðum: „Jæja Ninni minn, eigum við nokkuð að tala um fótbolta núna?“ Eins voru stundum æði snarpar umræður um pólitík og varð nú stundum að biðja þá aðeins að róa sig því ekki voru þeir sammála um þá hluti frekar en fótboltann, allt í góðu þó. Veit ég að Einar á eftir að sakna þessara heimsókna ekki síður en ég. Ingvar var sannarlega tilbúinn í ferðalagið langa enda búinn að skila sínu og ríflega það. Aðstandendum öllum votta ég dýpstu samúð. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Guðrún Kristinsdóttir (Gunný). Ingvar Einar Bjarnason HINSTA KVEÐJA Elsku afi. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir) Hvíl í friði. Erla og Unnur Katrín. ✝ Elsku hjartans dóttir okkar, systir og barnabarn, ALEXÍA BARTOLOZZI, Túngötu 11, Álftanesi, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju- daginn 6. apríl. Útförin fer fram frá Möðruvallakirkju í Hörgárbyggð þriðjudaginn 13. apríl kl. 14.00. Ragnheiður Sverrirsdóttir, Luigi Bartolozzi, Sverrir Bartolozzi, Sverrir Haraldsson, Sigurbjörg Sæmundsdóttir, Michele Bartolozzi, Franca Di Marco. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSLAUG ARNAR, Hjallavegi 7, Reykjanesbæ, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 5. apríl. Útför hennar fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 13. apríl kl. 14.00. Sigurbjörg Ó. Stefánsdóttir, Vilberg Eiríksson, Guðbjartur J. Sævarsson, Heiðrún B. Sigmarsdóttir, Áslaug Eyrún Guðbjartsdóttir,Aron Ingi Vilbergsson, Birkir Freyr Guðbjartsson, Arnar Gauti Vilbergsson og aðrir aðstandendur. ✝ Sambýliskona mín fyrrverandi, elskuleg dóttir, systir, mágkona og frænka, KRISTÍN RÓSA STEINGRÍMSDÓTTIR frá Torfastöðum 1, Kleppsvegi 108, lést af slysförum þriðjudaginn 6. apríl. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á björgunarsveitirnar. Magnús Ingi Guðmundsson, Steingrímur Gíslason, Jensína S. Steingrímsdóttir, Ægir Hilmarsson, A. Jóna Steingrímsdóttir, Björn Magnússon, Árný V. Steingrímsdóttir, Friðgeir Jónsson, Gísli Steingrímsson, Ragnheiður Sigmarsdóttir, Birgir Árdal Gíslason, Magrét Jónsdóttir, Sigurður Þór Steingrímsson, Guðbjörg Bergsveinsdóttir, Bergur G. Guðmundsson, Sigrún Óskarsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÞÓRDÍS GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Dídí, Reykjamörk 2b, Hveragerði, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 5. apríl. Jarðsungið verður frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 10. apríl kl. 13.00. Guðlaug Bjarnþórsdóttir, Davíð Jóhannesson, Sólveig Bjarnþórsdóttir, Birgir Sigurðsson, Valdís Bjarnþórsdóttir, Þormóður Ólafsson, Jón Ingi Bjarnþórsson, Bjarnþór Bjarnþórsson, Jóna Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN INGVARSDÓTTIR, Tjarnarkoti, Vestur-Húnavatnssýslu, áður Arnarhrauni 15, Hafnarfirði, lést mánudaginn 22. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Jóhannsdóttir, Ásgeir Haraldsson, Ingunn Hallgrímsdóttir, Úrsúla Linda Margeirsdóttir, Michael Bragi Whalley, Þorsteinn Margeirsson, Jóhann Ingi Margiersson og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL JANUS ÞÓRÐARSON, Hlíf II, Torfnesi, Ísafirði, lést á öldrunardeild Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði fimmtudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 10. apríl kl. 14.00. Sigrún Þorleifsdóttir, Þorleifur Pálsson, Guðlaug Stefánsdóttir, Þórður Pálsson, Sveinfríður Högnadóttir, Hilmar Pálsson, Guðbjörg Skarphéðinsdóttir, Sigrún Pálsdóttir, Jón Þorleifsson, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morg- unblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.