Morgunblaðið - 09.04.2010, Síða 24

Morgunblaðið - 09.04.2010, Síða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 ✝ Guðmundur ÁrniBjarnason var fæddur í Reykjavík 27. júlí 1934. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi þann 31. mars sl. eftir skamma legu. Móðir Guðmundar var Jón- ína Árnadóttir, f. að Áshóli í Ásahreppi 6. maí 1908, d. 16. sept 1998. Sambýlismaður hennar mörg hin síð- ustu ár var Bjarni Bjarnason, f. 5. apríl 1912 að Vatnsenda í Skorradal, d. 14. sept 2009. Faðir Guðmundar var Bjarni Guðmundsson, f. 7. sept. 1906 að Auðsholti í Ölfusi, d. 25. okt 1999. Guðmundur átti eina hálfsystur sammæðra, Eyrúnu Jónu Axelsdóttur, f. 1937, d. 1994. Hálfsystkini hans samfeðra eru níu talsins. Þann 13. desember 1958 gekk Guðmundur að eiga Gyðu Þor- steinsdóttur, f. 2. apríl 1942, d. 28. júlí 2000. foreldrar hennar eru Guðríður Guðbrandsdóttir, f. 23. maí 1906, og Þorsteinn Jóhanns- son, f. 19. maí 1907, d. 23. júlí 1985. Þeim Guðmundi og Gyðu varð þriggja barna auðið. Þau eru: aldurs, en síðustu ár þess tímabils var hún ráðskona hjá Gísla Frí- mannssyni að Hamraendum á Mýrum. Þegar Jónína hvarf á braut þaðan til annarra starfa, ákvað Guðmundur að vera áfram hjá Gísla, sem hann kallaði æ síð- an fóstra sinn. Þegar Gísli brá búi og fluttist til Reykjavíkur nokkr- um árum síðar, var Guðmundur í fylgd með honum og héldu þeir heimili saman þar til Guðmundur hóf búskap með Gyðu. Fyrstu 10 til 11 árin í Reykjavík starfaði Guðmundur hjá Lýsi hf. og síðan Sælgætisgerðinni Nóa hf. Árið 1967 kom hann sér upp sendibíl og starfaði eftir það við sendibíla- akstur hjá Nýju sendibílastöðinni allt til ársins 1990, mestan hluta þess tíma að verkefnum fyrir Sölufélag garðyrkjumanna. Árin 1990 til 2001 starfaði Guðmundur við afgreiðslustörf hjá Skeljungi hf. Hann tók alla tíð virkan þátt í starfsemi Breiðfirðingafélagsins. Fyrstu árin stóð heimili Guð- mundar og Gyðu í Reykjavík, en árið 1962 fluttu þau í Kópavog, þar sem þau bjuggu lengst af á Nýbýlavegi 21, síðar Grenigrund 6. Allra síðast var heimili þeirra í Hafnarfirði. Fyrir um 20 árum reistu þau sér sumarhús við Gísl- holtsvatn í Holtum. Þessi staður var þeim báðum afar kær og þar áttu þau margar yndisstundir með fjölskyldu sinni. Útför Guðmundar verður gerð frá Digraneskirkju í dag, 9. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 11. 1) Þorsteinn Guð- mundsson, f. 30. júní 1959, sambýliskona hans er Björg Sig- urðardóttir, f. 5. febr. 1965. 2) Júlíana Ósk Guðmunds- dóttir, f. 4. des. 1966. Eiginmaður hennar er Ólafur Björn Heimisson, f. 2. sept 1961, og eru börn þeirra a) Heimir Bergmann Ólafsson, f. 5. febr 2002, og b) Gyða Ósk Ólafs- dóttir, f. 28. júlí 2003. Fyrrverandi eiginmaður Júlíönu er Hannes Sig- urður Guðmundsson og eru synir þeirra a) Sindri Þór Hannesson, f. 16. mars 1995, og b) Atli Freyr Hannesson, f. 8. sept 1997. Dætur Ólafs af fyrri sambúð eru tvíbur- arnir Sólveig og Salbjörg, f. 1. ágúst 1985. 3) Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir, f. 24. júní 1976. Eiginmaður hennar er Gylfi Berg- mann Heimisson, f. 8. maí 1975, og eru börn þeirra a) Dóróthea Gylfa- dóttir, f. 11. sept 1998, og b) Darri Bergmann Gylfason, f. 29. apríl 2001. Guðmundur var með móður sinni í ýmsum vistum til 15 ára Elsku pabbi, kallið er komið. Læddist aftan að okkur og veitti þungt högg. Það er erfitt að kyngja því að þú sért farinn þar sem þú varst allaf svo hress. Það eru margar minningar sem hrannast upp. Þú vannst mikið þegar við systkinin vor- um lítil en gafst þér samt alltaf tíma fyrir okkur á kvöldin eftir að þú komst heim og last sögur fyrir okkur fyrir svefninn. Sterk er sú minning þegar þú settist niður fyrir framan sjónvarpið og ég tyllti mér á sófabak- ið fyrir aftan þig með hárgreiðu og æfði mig í alls konar túberingum og hárgreiðslu á þér. Þetta lést þú yfir þig ganga og síðar tók Guðmunda systir við. Þú hefur nú oft skotið því að okkur systrum í góðu að það sé nú á okkar ábyrgð hversu fljótt þú misstir hárið. Oft fékk ég að vera með þér í sendiferðabílnum þegar þú varst að keyra út grænmetið. Fékk ég að hjálpa þér að bera inn í búð- irnar. Man að stundum fannst mér nóg um móttökurnar sem þú fékkst í búðunum og kom heim einn daginn og tilkynnti mömmu það að þú kysst- ir allar kerlingarnar í búðunum. Þá hlýddir þú mér yfir lærdóminn fyrir próf. Alltaf gat ég leitað til ykkar mömmu. Þegar ég átti Sindra minn þá tókst þú að þér að passa hann 3 mánaða gamlan þegar ég fór að vinna, þar sem þú varst í veikindafríi eftir mjaðmaaðgerð. Seinna flutti ég heim til ykkar mömmu með drengina mína tvo og síðan í næsta hús við ykkur. Eftir að mamma veiktist keyptum við saman hús í Hafnarfirði og þar hefur þú búið niðri hjá okkur síðustu 10 árin og verið einn af fjöl- skyldunni okkar. Alltaf var afi teikn- aður með þegar börnin áttu að teikna fjölskyldu sína. Þú hjálpaðir okkur með barnahópinn. Passaðir Heimi og Gyðu þegar þau voru lítil og við Bjössi vorum að vinna þangað til þau komust á leikskóla og alltaf varstu tilbúinn að skjótast og ná í þau. Þá nutu krakkarnir góðs af því að þú varst oftast heima þegar þau komu úr skólanum eða komst heim rétt á eftir þeim. Og oft sóttir þú þau í skól- ann. Ég gat skotist út án þess að þurfa að taka þau með mér og gat komið við í búð á leið heim úr vinnu vitandi að þú værir heima og til taks ef eitthvað kæmi upp á. Þú gekkst í heimilisverkin, hengdir út á snúru ef ég setti í þvottavél á morgnana og oft varstu búinn að taka hann niður og brjóta saman þegar ég kom heim. Fastur liður var að þú hitaðir kaffi handa þér og Bjössa. Þið náðuð vel saman og aðstoðuðuð hvor annan. Til dæmis lögðuð þið parketið hjá okk- ur. Saman dúkalögðuð þið eldhúsin á báðum hæðum, settuð upp kofa hér í garðinum og fyrir austan. En það sem ég er stoltust af er pallasmíðin ykkar hérna í kringum húsið. Elsku pabbi, ég vona að þú hafir vitað hvað ég mat það mikils að hafa þig hér hjá okkur og alla aðstoðina sem þú veittir okkur. Barnabörnin sætta sig ekki alveg við það að afi komi ekki heim aftur. Það er stórt skarð komið í okkar daglega líf sem þarf að skipuleggja upp á nýtt. Það sem þótti lítið mál er stórt mál í dag því þig vantar. Elsku pabbi, við sökn- um þín sárt og hafðu hjartans þökk fyrir allt. Þín dóttir, Júlíana Ósk. Elsku afi, við söknum þín sárt og spyrjum oft af hverju þú þurftir að deyja. Þú hugsaðir svo vel um okk- ur. Þegar þú fórst á spítalann hafðir þú áhyggjur af því hvort mamma vissi ekki örugglega um páskaeggin sem þú varst búinn að kaupa handa okkur. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og tilbúinn að snúast með okkur og sækja okkur í skólann. En núna ertu farinn til ömmu. Elsku afi, við elskum þig. Þín barnabörn, Sindri Þór, Atli Freyr, Heimir Bergmann og Gyða Ósk. Vinátta okkar Guðmundar stóð í meira en hálfa öld og á hana féll aldrei skuggi. Hann gekk að eiga fóstursystur mína, Gyðu Þorsteins- dóttur, í desember 1958 og bjuggu þau saman í farsælu hjónabandi þar til í júlí árið 2000, þegar hún var burt kölluð eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm. Guðmundur og Gyða voru mjög samhent í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau komu sér upp fallegu heimili, fyrst í Reykjavík, síðan í Kópavogi en loks í Hafnarfirði. Minnisstæðast er okkur Ingu heimili þeirra við Ný- býlaveg, þar sem við nutum gest- risni þeirra í mörgum fjölskyldu- boðum. Þá er ótalið sumarhús þeirra við Gíslholtsvatn í Holtum þar sem þau áttu margar yndis- stundir með börnum sínum. Eftir störf hjá ýmsum fyrirtækjum á höf- uðborgarsvæðinu kom Guðmundur sér upp traustri sendiferðabifreið og má segja að sendibílaakstur hafi orðið ævistarf hans. Á þessum vett- vangi naut meðfæddur dugnaður hans sín vel og varð lykillinn að góðri afkomu. Guðmundur hélt alla tíð uppi kærleiksríku sambandi við tengdaforeldra sína, Guðríði Guð- brandsdóttur og Þorstein Jóhanns- son. Minnisstæð er umhyggja Guð- mundar fyrir tengdaföður sínum, þegar hann lá banaleguna fyrir tutt- ugu og fimm árum. Fram á síðasta dag hélt Guðmundur uppi traustu sambandi við Guðríði og var henni innan handar á ýmsa vegu. Hún er nú á 104. aldursári og við dágóða heilsu. Á kveðjustund er margt að þakka og margs að minnast. Við þökkum Guðmundi fyrir samfylgd- ina og biðjum honum blessunar Guðs. Börnum hans og fjölskyldum þeirra og Guðríði tengdamóður hans sendum við Inga innilegar samúðarkveðjur. Megi sá sem öllu ræður styðja þau öll og styrkja á þessum erfiðu tímamótum. Sigurður Markússon. Guðmundur Árni Bjarnason ✝ Helga BjörgJónsdóttir fædd- ist á Þorvaldsstöðum í Breiðdal 10. nóv- ember 1920. Hún lést á sjúkradeild sjúkrahússins á Eg- ilsstöðum 1. apríl 2010. Foreldrar Helgu Bjargar voru Guðný Jónasdóttir. f. 30. október 1891, d. 7. janúar 1956, og Jón Björgúlfsson, f. 5. mars 1881, d. 10 maí 1960. Helga Björg fór tveggja ára í fóstur til fósturforeldra móður sinnar, Árna Björns og Bjargar, í Dísastaðaseli og dvaldi þar til 10 ára aldurs. Fyrri eiginmaður Helgu Bjarg- ar var Valgeir Eiríksson, sjómað- ur, f. 1. mars 1924, d. 20. október 1973. Þau eignuðust sjö börn en fjögur af þeim komust á legg. Þau eru Margrét Jenný, f. 20. júní 1946, d. 17. október 2002, Guðjón Smári, f. 27. apríl 1950, Val- gerður Heba, f. 28. mars 1953, Ólafur Björgvin, f. 20. janúar 1955. Í dag eru barnabörnin 13, barnabarnabörnin 23 og eitt barnabarna- barnabarn. Síðari eiginmaður Helgu Bjargar var Þorfinn- ur Jóhannsson, f. 11. ágúst 1900, d. 29. apríl 1981, bóndi og oddviti, Geithellum 2 í Álftafirði, S-Múlasýslu. Eftir venjubundið forskólanám lá leið hennar í Alþýðuskól- ann á Eiðum haustið 1938 og lauk hún þaðan prófi 1940 og vornám- skeiði í húsmæðraskólanum á Hallormsstað 1941. Helga Björg lagði auk húsmóðurstarfa gjörva hönd á margt á langri starfsævi, lengst af norðan heiða á Akureyri þar sem hún vann m.a. í mörg ár við saumaskap á saumastofunni Heklu. Helga Björg var síðast til heim- ilis í Miðvangi 22, Egilsstöðum. Útför Helgu Bjargar fer fram í Garðakirkju í dag, 9. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 11. Það var mikil ró, sátt og friður sem lýsti svo fallega ásjón elskulegrar móður minnar þegar hún kvaddi þetta jarðneska líf. Ég verð forsjánni ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá henni þar til yfir lauk. Móður minni á ég allt að þakka og það er með miklli lotningu og söknuði sem ég mun ávallt minnast hennar, sterku, fallegu og vel gefnu konunnar sem í mínum huga gerði og gat allt. Móðir mín var stolt kona, stolt af landi og þjóð, uppruna sínum, sveitinni sinni og arfleifð. Hún hafði stórt hjarta, hlýja hönd og öruggan faðm. Móðir mín lagði hart að sér við upp- eldi okkar systkinanna, hún var vakin og sofin yfir velferð okkar og hlífði sér á engan hátt. Hún kenndi okkur börn- unum sínum að vera orðheldin, heið- arleg, ábyrg og umfram allt góðar manneskjur, eftirleikurinn var síðan okkar. Ég ætla að kveðja hana móður mína að sinni með þessum fallegu orð- um sem skáldið frá Fagraskógi orti í minningu móður sinnar og gera þau orð að mínum til minningar um móð- ur mína. Svo leggur þú á höfin blá og breið á burt frá mér og óskalöndum þínum, og stjarna hver, er lýsir þína leið, er lítill gneisti, er hrökk af strengjum mínum. Þú skilur eftir minningar hjá mér um marga gleðistund frá liðnum árum, og alltaf mun ég fagna og þjást með þér og þú skalt vera mín – í söng og tárum. (Davíð Stefánsson) Elsku mamma mín takk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Valgerður (Vala Heba). Löngum og oft ströngum æviferli er lokið. Móðir sem fórnaði kröftum sínum til að sjá börnum sínum far- borða hefur kvatt. Þegar ég horfi til baka er mér hulin ráðgáta hvernig Helgu entist sólar- hringurinn til þeirra hluta sem hún kom í verk. Árum saman meðan börn- in uxu úr grasi vann hún á saumastofu í verksmiðju á Akureyri, oft nætur- vinnu. Einnig á sjúkrahúsi Akureyr- ar, síðan biðu hennar börnin og heim- ili, oft hefur hvíldin ekki verið löng með fjögur börn á ýmsum aldri og í skóla. Auk annars saumaði hún og prjónaði allan fatnað á sig og börnin. Gömul föt öðluðust nýtt líf sem barna- föt í höndum Helgu, útprjónuðu peys- urnar vöktu athygli á götum Akur- eyrar, en þar átti Helga heima þegar börnin uxu úr grasi. Hún fékkst einn- ig við gerð minjagripa fyrir verslanir á Akureyri. Helga var bókhneigð og prýðilega ritfær í bundnu og óbundnu máli og eftir hana liggja ritsmíðar og ljóð. Eina ljóðabók gaf hún út sem heitir För. Helga hafði hug á frekara námi eftir veru sína á Eiðaskóla en ör- lög ráða og kynnist hún ungum og glæsilegum manni, Valgeiri Eiríks- syni frá Fáskrúðsfirði. Þau giftust og hófu búskap í Breiðdal en þar kom að þau settust að á Akureyri og bjuggu þau þar meðan sambúðin stóð. Eftir að leiðir skildi flutti Helga til Reykja- víkur og vann ýmis störf. Helga og Valgeir eignuðust sjö börn en fjögur komust upp. Það var mikil gleði þegar Margrét Jenný fæddist, sú fyrsta af börnunum sem lifðu, og reyndist móður sinni stoð og stytta í umönnum systkina sinna. En einnig mátti þessi móðir sjá á bak henni langt fyrir aldur fram úr þungbærum sjúkdómi sem dró hana til dauða hægt og hægt, það var henni þung raun. Helga Björg réðst sem ráðskona að Geithellum í Álftafirði til Þorfinns bónda og þau gengu síðar í hjóna- band. Þarna fann Helga öryggi og skjól, enda maðurinn valmenni og reyndist henni og börnunum af- bragðsvel. Síðustu árin eftir andlát Þorfinns bjó Helga á Miðvangi í íbúð fyrir aldraða sem hún keypti þar. Þar var hún uns kraftana þraut og hún dvaldi að síðustu á sjúkrahúsi á Egils- stöðum. Að síðustu er hér vísa eftir Helgu úr ljóðabókinni För: Ég legg á koddann lúin kona, ljúfum blundi ætla að ná. Að dýrðlega mig dreymi vona, Drottinn viltu um mig sjá. Með þökk fyrir allt sem þú varst mér systir. Með samúðarkveðju, Þórey Jónsdóttir. Elsku amma og langamma. Okkur systurnar og langömmustelpuna þína langar til að kveðja þig með fallegu ljóði eftir þig sjálfa. Sem lítil börn, við lutum æðri vilja. Þó leiðir flestar þekkjum gegn um skóginn. Vitum eitt, að verðum öll að skilja. Þá voldug dauðans hönd er lögð á plóginn. Æ hver ert þú, hinn huldi dauðans kraftur? Þú hjúpar allt með dimmri rökkurskýlu. Við skiljum ei – en guð allt gefur aftur er göngum vér í hinsta sinn til hvílu. Og vel sé þeim er vini sína kveðja með von og trú á bjarta endurfundi. Þeim veitt er þrek þá veiku að styrkja og gleðja og vekja trú er annars deyja mundi. (Helga Björg Jónsdóttir frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal) Elsku amma og langamma, í okkar augum varst þú alltaf merkileg kona sem ávallt fór ótroðnar slóðir. Það var sannarlega engin amma eins og þú. Þín verður sárt saknað. Ástarkveðja, Hildur Rós, Heba Björg og Birta. Helga Björg Jónsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN BJARNASON, Miðtúni 16, Tálknafirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 1. apríl. Útför verður frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 10. apríl kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess. Ása Jónsdóttir, Viðar Jónsson, Kristrún Jónsdóttir, Gunnlaugur Björn Jónsson, Ólafur Jónsson, Jón Ingi Jónsson, Gerður Rán Freysdóttir, Bjarni Jónsson, Bjarnveig Guðbrandsdóttir, Hugi Jónsson, Ýr Árnadóttir Poulsen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.