Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 27
ínu svona vel. Við erum líka þakklát
fyrir að hafa fengið að hafa hana
svona lengi hjá okkur.
Nú er hins vegar komið að kveðju-
stund og við þökkum af alhug allar
samverustundir með henni, þá fyrir-
mynd sem hún var okkur og síðast en
ekki síst allar þær fyrirbænir sem
hún veitti okkur. Það verður öðruvísi
að koma á Egg og hitta hvorki afa né
ömmu þar. Við munum halda áfram
að segja börnunum okkar frá lang-
ömmu Jónínu og halda minningu
hennar á lofti. Blessuð sé minning
ömmu Jónínu.
Brynhildur, Brynjólfur, Sigur-
borg og Sigríður Bjarnabörn.
Okkur systurnar langar að minnast
þín, elsku amma, í nokkrum orðum.
Við eigum margar ljúfar og góðar
minningar sem við getum leitað í þeg-
ar við hugsum til þín. Við nutum
þeirra forréttinda að fá að alast upp í
sveitinni með þér og afa. Þegar við
vorum litlar kenndir þú okkur ótal
margt. Þú sagðir okkur sögur og æv-
intýri og kenndir okkur þulur og vísur
sem við munum búa að alla ævi og
kenna okkar börnum.
Tónlistin og orgelið þitt skipaði
stóran sess í lífi þínu. Þú hafðir yndi af
söng og spilaðir svo fallega á orgelið
alveg fram á síðasta dag. Þær voru
ófáar stundirnar sem við sátum með
þér við orgelið, þú að spila og við að
syngja. Einnig var svo gaman þegar
þú komst til okkar í barnaskólann þar
sem þú kenndir söng, þá tókum við
alltaf fagnandi á móti þér. Þú varst
mjög trúuð kona alla tíð og einkenndi
það okkar uppeldi. Við munum vel
eftir þér sitjandi í græna stólnum í
herberginu þínu að hlusta á útvarps-
messuna á sunnudögum, þá þótti þér
vænt um að hafa okkur hjá þér og
syngja með þér sálmana.
Við minnumst þess svo vel þegar
okkur líkaði ekki maturinn hjá
mömmu, þá fórum við fram til þín og
vonuðumst eftir betri mat hjá þér og
áttir þú alltaf eitthvað gott handa
okkur. Við minnumst sérstaklega
hvað þú gerðir góðan grjónagraut. Þá
borðuðu allir hjá þér. Þú hafðir unun
af að fá gesti í heimsókn og gerðir þá
gjarnan þitt góða súkkulaði og alltaf
var til gott bakkelsi með.
Við erum óendanlega þakklátar
fyrir að hafa haft þig þetta lengi hjá
okkur. Þú varst alla tíð hress og
heilsugóð. Við gátum alltaf leitað til
þín sem börn og líka eftir að við urð-
um fullorðnar. Eftir að við fluttum að
heiman þá héldum við áfram góðu
sambandi við ykkur afa. Við komum
flestar helgar í sveitina með börnin
okkar og tókuð þið ávallt vel á móti
okkur og voruð innilega glöð að sjá
okkur. Okkur þykir vænt um hvað
börnin okkar fengu að kynnast þér
vel, þau elskuðu þig og þú sýndir þeim
alltaf mikla umhyggju, ástúð og varst
þeim svo góð.
Þú ljómaðir af gleði þegar við kom-
um að heimsækja þig þessa fimm síð-
ustu mánuði ævi þinnar sem þú dvald-
ir á dvalarheimilinu. Daginn áður en
þú veiktist þá komum við til þín, þú
varst svo hress og fórst að kenna
Berglindi vísuna um Finnu sem
veiddi fiðrildið. Við erum þakklátar
fyrir að hafa getað verið hjá þér og
haldið í höndina þína þegar þú kvadd-
ir þetta jarðneska líf þó að það hafi
verið mjög erfitt.
Elsku amma, nú er komið að
kveðjustund. Þín verður sárt saknað
en við varðveitum í hjarta okkar allar
dásamlegu minningarnar um þig. Við
þökkum þér fyrir allan tímann sem
við áttum saman, hann er okkur
ógleymanlegur. Við viljum kveðja þig
með sálminum sem þú hélst mikið
upp á alla tíð.
Ljúfur ómur loftið klýfur,
lyftir sál um himingeim.
Þýtt á vængjum söngsins svífur,
sálin glöð í friðarheim.
Lofið Drottin, lofið Drottin,
lofið Drottin, amen.
Þýtt á vængjum söngsins svífur,
sálin glöð í friðarheim.
Hvíldu í friði, Guð geymi þig.
Valbjörg og Halldóra
(Abba og Dóra).
Elsku langamma mín.
Þú varst alltaf svo góð við okkur
barnabarnabörnin þegar við komum í
sveitina. Þú gafst okkur alltaf kandís.
Ég man þegar ég var lítil og var í
sveitinni hjá ömmu og afa, þegar við
komum inn úr fjósinu á morgnana
fórum við alltaf til þín og fengum kaffi
og kandís. Ég man að þú gafst mér
alltaf smá kaffi og fullt af kandís.
Elsku langamma, ég mun aldrei
gleyma þér og varðveiti allar fallegu,
skemmtilegu og góðu minningarnar
um þig. Ég sakna þín og vona að þér
líði vel þarna uppi. Kannski sitjið þið
langafi einhvers staðar á fallegum
stað og drekkið kaffi og fáið ykkur
einn kandísmola.
Ég mun alltaf elska þig og hugsa
um þig hvern dag. Ég hefði ekki getað
hugsað mér betri og skemmtilegri
langömmu en þig og hvað ég fékk að
hafa þig lengi og kynnast þér vel.
Þitt langömmubarn,
María Ósk Sigurðardóttir.
Elsku langamma okkar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Takk fyrir allar yndislegu sam-
verustundirnar.
Hvíl þú í friði.
Þín langömmubörn,
María Ósk, Telma Björk,
Pálmar Ingi, Berglind Björg,
Bjarki Freyr, Brynjar Snær,
Alexander Franz, Sunneva
Dís og Bjartmar Dagur.
Fleiri minningargreinar um Jón-
ínu Sigurðardóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri -Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is
Leó, s. 897- 5300.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss
Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma: 894-0431.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Bókhald
Bókhald, ráðgjöf, skattaskil
Bókhald, launavinnslur, VSK uppgjör,
innheimta og greiðsla reikninga.
Getum bætt við okkur verkefnum.
Fagleg og vönduð vinnubrögð.
TEMP ehf., Bæjarlind 14-16, S. 555
3311, www.temp.is - temp@temp.is
Skattframtal
Fjármálaráðgjöf,
bókhaldsþjónusta, skattframtöl,
stofnun félaga og
samningagerð fyrir einstaklinga
og rekstraraðila.
SELUR
selur@simnet.is
567 3367 - 840 1925
FRAMTAL 2010
Skattframtöl, uppgjör og ársreikn-
ingar fyrir einstaklinga og rekstrar-
aðila. Fagleg og vönduð vinnubrögð.
TEMP ehf., Bæjarlind 14-16, S. 555
3311, www.temp.is, temp@temp.is
Ýmislegt
Teg. Romance - "push up" fínlegur
og flottur í BCD skálum á kr. 6.885,-
Teg.Romance - "push up" mjög
glæsilegur í D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 6.885,-
Laugavegi 178, sími 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 93350 - létt fylltur og flottur í
BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-
Teg. 10253 - sérlega mjúkur og
glæsilegur í BCD skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
Laugavegi 178, sími 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Létt og þægileg dömustígvél úr leðri.
TILBOÐ: 5.000.
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Heitir pottar
Sími 565 8899
GSM 863 9742
www.normx.is
normx@normx.is
Góð fjárfesting
Hagstætt endurgjald af peningum
þínum !!! Sjáðu nú til !
http://uppspretta.is/loan/179
Fóðraðir, dömukuldaskór úr leðri.
Stærðir: 36 - 42. Litir: svart og brúnt.
Verð: 18.750.
Vönduð, gæruskinnfóðruð
dömustígvél úr leðri.
Stærðir: 36 - 42. Litir: svart og brúnt.
Verð: 28.850.
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bekkjarpartí
Afmælisveislur
Fermingarveislur
Besta verðið.
Studio 29
Laugavegur 101
sími 511 3032/861 2319
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 8.900,-
Dömu leður sandalar með
frönskum rennilás. Litir: Svart -
Hvítt - Rautt.
Stærðir 36-42
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- fimmtud kl.
11.00 - 17.00
föstudaga kl. 11.00 -15.00
www.praxis.is
Bátar
Útvega koparskrúfur á allar
gerðir öxla
Beint frá framleiðanda. Upplýsingar á
www.somiboats.is eða oskar@somi-
boats.is Óskar 0046704051340
Til sölu glæsilegur skemmtibátur
Skilsö, árgerð 1998, 30 feta, norskur
með 260 hestafla Volvo penta vél.
Keyrður aðeins 550 tíma á vél. Mjög
lítið notaður.
Til sýnis og sölu hjá Snarfara,
Naustavogi. Tilboð óskast.
Bílar
Til sölu Kia Sportage dísel jeppi
árg. 2002. Ekinn 71.000 þús.
Upplýsingar í síma: 894-0431.
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
RÝMINGARSALA
135 R 13 kr. 3.900
165 R 13 Sava kr. 4.900
185/70 R 13 kr. 5.900
165 R 15 Sava kr. 5.900
185 R 15 Matador kr. 6.900
195 R 15 Camac kr. 9.900
205 R 16 Bridgestone kr. 13.900
30x 9.5 R 15 Camac kr. 21.900
31x12.5 R 15 S Swaper kr. 23.900
265/70 R 16 Insa Turbo kr. 19.500
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi
Sími 544 4333
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Skattframtöl