Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 Sudoku Frumstig 6 2 9 5 4 6 8 3 7 2 3 4 9 2 7 6 8 6 5 9 7 8 5 3 7 1 5 2 2 3 7 2 5 1 8 9 5 2 3 1 7 3 5 8 1 6 3 3 8 1 6 9 5 4 8 7 5 4 7 7 2 4 3 8 6 7 8 3 6 5 6 9 4 2 8 4 5 1 7 6 3 9 2 7 3 1 2 5 9 4 8 6 9 2 6 8 3 4 1 7 5 5 9 7 3 4 8 2 6 1 6 8 2 5 9 1 7 3 4 4 1 3 6 2 7 9 5 8 1 5 4 9 8 3 6 2 7 3 7 8 4 6 2 5 1 9 2 6 9 7 1 5 8 4 3 9 7 8 1 6 2 4 3 5 5 3 1 9 4 7 8 6 2 6 2 4 3 8 5 1 7 9 3 9 6 8 2 1 5 4 7 2 4 7 5 9 3 6 1 8 1 8 5 4 7 6 2 9 3 8 5 9 6 3 4 7 2 1 7 6 3 2 1 8 9 5 4 4 1 2 7 5 9 3 8 6 6 1 8 4 3 7 2 9 5 5 3 7 8 2 9 6 4 1 4 9 2 1 5 6 8 7 3 9 4 5 2 8 3 1 6 7 3 2 6 7 1 5 9 8 4 7 8 1 9 6 4 3 5 2 8 6 3 5 4 2 7 1 9 1 5 9 3 7 8 4 2 6 2 7 4 6 9 1 5 3 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 9. apríl, 99. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr- um né lof mitt úthöggnum líkneskjum. (Jesaja 42, 8) Icelandair er fyrirmyndarflugfélagog Víkverji getur ekki annað en hrósað starfsfólkinu sem hann hefur átt samskipti við. x x x Um páskana varð Víkverjistrandaglópur í London á leið- inni til Íslands. Klukkutíma bið eftir töskum á Heathrow-flugvelli kom í veg fyrir að Víkverji og kona hans næðu kvöldvél heim. Starfsmenn Ice- landair sáu hins vegar til þess að þau komust með hádegisvélinni daginn eftir. x x x Víkverji fór í páskafrí til Möltu.Icelandair bókaði farangurinn alla leið. Á bakaleiðinni sögðu starfs- menn Air Malta að ekki væri hægt að tékka farangurinn til Íslands vegna þess að enginn samningur væri við Icelandair þess efnis og því þyrfti Víkverji líka að sjá um að bóka far- angurinn inn hjá Icelandair í Lond- on. Þegar Víkverji benti á að Ice- landair hefði bókað farangurinn alla leið var kallað á annan starfsmann og hann sagði að þar sem Víkverji væri með tvo miða, pappírsfarseðil upp á gamla móðinn milli Möltu og Eng- lands og rafrænan farseðil milli Eng- lands og Íslands, væri ekki hægt að bóka alla leið. Þegar umræddir ferðalangar komu að töskufæribandinu á flugstöð 4 á Heathrow-flugvelli voru tæplega tveir tímar í brottför Icelandair frá flugstöð 1. Víkverji hafði samt vaðið fyrir neðan sig og bað starfsmann um að hringja í innritun Icelandair og láta vita að von væri á viðkomandi farþegum frá flugstöð 4. Bent var á að lokað yrði fyrir innritun 45 mín- útum fyrir brottför. Klukkutíma bið eftir töskunum kom hins vegar í veg fyrir áframhaldandi flug þetta kvöld- ið þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir farþega og starfsmanna. Starfsstúlka Icelandair á Heath- row benti Víkverja á hagkvæma hót- elgistingu. Daginn eftir gekk allt eins og í sögu og þegar komið var í frí- höfnina í Flugstöð Leifs Eiríkssonar blöstu töskurnar við á færibandinu. Icelandair brást ekki frekar en fyrri daginn. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 púsluspil, 4 ástæður, 7 líkindi, 8 spyr, 9 hagnað, 11 ögn, 13 at, 14 garpa, 15 merki, 17 ljómi, 20 mann, 22 hnífar, 23 tign- armanns, 24 ránfugls, 25 fleina. Lóðrétt | 1 hnötturinn, 2 þrífur, 3 peninga, 4 síða, 5 lokka, 6 skerðir, 10 ræna, 12 ávinning, 13 duft, 15 milda, 16 undir- staðan, 18 trjáviður, 19 rýja, 20 ósoðinn, 21 ófög- ur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 alvarlegt, 8 orðum, 9 níðir, 10 ugg, 11 tærar, 13 asnar, 15 starf, 18 ólgar, 21 lof, 22 meiða, 23 álúta, 24 tungutaks. Lóðrétt: 2 liður, 3 aumur, 4 langa, 5 góðan, 6 gort, 7 frúr, 12 aur, 14 sál, 15 sómi, 16 atinu, 17 flagg, 18 ófátt, 19 grúsk, 20 róar. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. cxd5 exd5 5. g3 Rc6 6. Bg2 Rf6 7. O-O Be7 8. Rc3 cxd4 9. Rxd4 O-O 10. h3 Db6 11. Rxc6 bxc6 12. b3 Be6 13. Bb2 Hac8 14. Hc1 Hfd8 15. Ra4 Db5 16. Dc2 c5 17. Ba3 Hc7 18. Hfd1 Hdc8 19. e3 h5 20. Db2 Re4 21. Bxe4 dxe4 22. De5 Bf6 23. Dxh5 g6 24. Dh6 c4 25. Bb2 c3 26. Rxc3 Da5 Staðan kom upp í seinni hluta Ís- landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla í Reykjavík. Al- þjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinns- son (2360) hafði hvítt gegn kvenna- stórmeistaranum Lenku Ptácníkovu (2317). 27. b4! Dxb4 28. Rd5 Dxb2 29. Rxc7 Be5 30. Rd5! Bd6 svartur hefði orðið mát eftir 30… Hxc1 31. Re7#. 31. Hxc8+ Bxc8 32. Dh4 Kg7 33. Rf6 Be7 34. Dh7+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Öryggisnet. Norður ♠D64 ♥KG ♦10763 ♣10852 Vestur Austur ♠K973 ♠ÁG82 ♥109873 ♥652 ♦K8 ♦9542 ♣63 ♣94 Suður ♠105 ♥ÁD4 ♦ÁDG ♣ÁKDG7 Suður spilar 3G. Þrátt fyrir veikt tvíspil í spaða opn- ar suður á 2G og norður hækkar í þrjú. Útspilið er hjartatía. Þetta er fljótafgreitt spil í sveitakeppni eða rú- bertubrids, enda níu slagir á borðinu. En hvað gera menn í tvímenningi? Í svona spilum ræður skapgerðin för. Hérarnir taka laufin fyrst og sjá svo til með tígulsvíninguna, en spennufíklar láta skeika að sköpuðu og svína strax í tígli. Þriðji kosturinn er reyndar til: Að svína strax, en setja upp öryggisnet ef svíningin skyldi misheppnast. Þetta er gert með því að taka fyrsta slaginn á ♥K í borði og láta ♥D undir heima, eins og um ♥Á-D tvíspil sé að ræða. Spila svo tígli á drottningu, frekar en gosa. Vestur þarf að vera mjög tortrygginn ef hann skiptir yfir í spaða eftir þessa þróun mála. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú tekur þér ýmislegt fyrir hend- ur sem öðrum þykir flókið. Mundu að fólk þarf ekki endilega að vera sammála þér þótt það elski þig. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er eitthvert eirðarleysi í þér. Áður en þú veist af ertu komin/n á kaf í áhugamál sem mun eiga hug þinn allan næstu árin. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Vegna stöðu himintunglanna hentar dagurinn vel til breytinga á þínu nánasta umhverfi. Rómantíkin liggur í loftinu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert full/ur af krafti og iðar í skinninu að koma öllu því í verk sem hef- ur verið á biðlistanum. Leitaðu leiða til að njóta lífsins og fara í frí. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú nýtur góðs af ríkidæmi annarra í dag. Byrjaðu á því að reyna að gera þér grein fyrir stöðunni sem komin er upp í stórfjölskyldunni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Nú styttist í sumarfríið og þú verð- ur að hafa stjórn á því í hvað peningarnir fara á næstunni. Aðstæður eru þannig að þú þarft á öllu þínu að halda. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þótt margir eigi sér sama takmark þá geta leiðirnar að því verið marg- víslegar. Gerðu eitthvað í þínum málum, þú átt eftir að kunna að meta breytingar heima. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þetta er góður dagur til að gera upp gömul deilumál innan fjölskyld- unnar. Regnboginn er einskonar blekk- ing, en færir von. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Hugsanir um rómantík eru áleitnar í dag og þú veist ekki í hvorn fót- inn þú átt að stíga. Opnaðu hugann og breyttu áætlunum. Það er enginn á móti þér, í mesta lagi þú sjálf/ur. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er ekki von að þér sé skemmt, þegar þú situr bara með hendur í skauti og ætlast til þess að fá allt upp í hendurnar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú munt að öllum líkindum hitta áhugaverðan einstakling í dag sem er ólíkur því fólki sem þú ert vön/vanur að umgangast. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Dagurinn hentar ekki til að taka ákvarðanir varðandi fjármálin. Haltu áfram að gefa eftir að sólin er sest. Mundu að sinna heilsunni. Stjörnuspá 9. apríl 1869 Kristján Jónsson Fjallaskáld lést, 26 ára. Meðal kvæða hans eru Yfir kaldan eyðisand og Allt fram streymir endalaust. 9. apríl 1981 Heklugos hófst. Það stóð stutt og er talið framhald gossins árið áður. 9. apríl 1982 Mattheusarpassía Bachs var flutt í fyrsta sinn í heild hér á landi, í Háskólabíói. Flytj- endur voru á fjórða hundrað, Pólýfónkórinn, Hamrahlíðar- kórinn, Kór Öldutúnsskóla, kammerhljómsveitir og ein- söngvarar. Flutningurinn tók rúmar fjórar klukkustundir. Stjórnandi var Ingólfur Guð- brandsson. 9. apríl 1982 Fimmtán ungmenni fermdust borgaralegri fermingu, þeirri fyrstu hér á landi. Athöfnin var í Norræna húsinu. 9. apríl 2003 Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Dana, afhenti Davíð Oddssyni forsætisráð- herra frumrit fyrstu stjórnar- skrár Íslands frá 1874. Hún var síðan til sýnis í Þjóðmenn- ingarhúsinu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… María Kristín Guðmundsdóttir er 45 ára í dag, 9. apríl. Hún mun eyða deginum með fjölskyldu sinni. 45 ára „ÉG hef afskaplega gaman af því að halda upp á afmæli og nota til þess öll tækifæri,“ segir Þorvald- ur Karl Helgason biskupsritari, sem verður sex- tugur í dag. Systkinum sínum og konu sinnar, og mökum þeirra, býður Þorvaldur heim til sín í fiski- súpu í hádeginu í tilefni dagsins. Um kvöldið býður hann svo börnum sínum og tengdabörnum heim. „Það eru forréttindi að eiga börn og fjölskyldu sem maður getur kallað saman með auðveldum hætti. Mér finnst hver einasti maður vera af- skaplega ríkur sem hefur tækifæri til að hitta börn sín og fjölskyldu. Þannig að það er hátíð hvenær sem fjölskyldan kemur saman,“ segir hann. Allur dagurinn hjá Þorvaldi verður undirlagður afmælisveislum, því dagurinn hefst á afmæliskaffi á skrifstofu Biskupsstofu. „Það er líka mikil hamingja fólgin í því að vinna á svona góðum vinnustað, þar sem ólíkir einstaklingar með ólíkan bakgrunn og menntun koma saman.“ Í nógu er að snúast hjá Þorvaldi fyrir biskupsstofu um þessar mund- ir, þar sem árleg prestastefna verður haldin í lok mánaðarins, en skipulagning hennar er að miklu leyti á herðum hans. hlynurorri@mbl.is Þorvaldur Karl Helgason sextugur Forréttindi að hitta börnin Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.