Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 09.04.2010, Qupperneq 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ER AÐ SKRIFA ÁSTARBRÉF TIL LÍSU OKKUR VANTAR TÍU DÓSIR AF TÚNFISKI GRETTIR, ÞAÐ ERU EKKI ALLIR MIÐAR INNKAUPALISTAR ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA AÐ GRÍNAST HANN ER EKKI MJÖG ÁNÆGÐUR EFTIR AÐ KRAKKARNIR FARA Í SKÓLANN KOMA ALLAR KONURNAR Í HVERFINU TIL OKKAR OG SPILA POOL HANN SEGIR ALLTAF, „AF HVERJU GETA KONUR EKKI VERIÐ Í KEILUHÖLLINNI?“ HVAÐ FINNST PABBA ÞÍNUM? HÚSIÐ MITT ER FÉLAGS- MIÐSTÖÐ SKAMMASTU ÞÍN, SNATI! AF HVERJU GETUR ÞÚ EKKIVERIÐ HUGRAKKUR EINS OG ÞESSI HUNDUR? ÞAÐ HEFUR VERIÐ TÍU MÍNÚTUM OF SEINT SÍÐAN SÍÐASTI LOFTSTEINN LENTI ÞAÐ ER ENGINN TRÚAR- BRAGÐASKÓLI ÞESSA VIKUNA Í ALVÖRU? Í STAÐINN VILJA ÞEIR AÐ FÓLK HJÁLPI ÞEIM AÐ FARA MEÐ MATARSENDINGAR TIL ALDRAÐRA ÞARF ÉG AÐ GERA ÞAÐ? JÁ, SÉRSTAK- LEGA ÞÚ ÞESSI BÚNINGUR OG TÆKIN SEM ÞÚ SETTIR UPP LÉTU ALLA HALDA... AÐ ÉG VÆRI KÓNGULÓAR- MAÐURINN ÞETTA ER BARA BYRJUNIN HANN LÉT MIG SITJA INNI OG NÚ HEFNI ÉG MÍN Týndur köttur GRÁYRJÓTT kisa hef- ur ekki skilað sér heim, að Skildinganesi 7, síð- an mánudaginn 29. mars sl. Krúsa er 17 ára, sjónskert, ólarlaus en eyrnamerkt (R5H029). Þá er líklegt að hún hafi komist inn um glugga hjá öðrum í Skerjafirði. Þeir sem hafa orðið hennar varir eru vinsamlegast beðn- ir að hafa samband í síma 825-5065 eða 690- 7771. Gilitrutt Mér finnst að nýja eldstöðin eigi að bera nafnið Gilitrutt. Eyfellingur. Fyrirmyndir NÚ þegar íslenska fótboltasumarið er á næsta leiti finnst mér tímabært að vekja at- hygli stuðningsmanna allra liða á einu. Mér hefur fundist að í gegnum árin hafi bor- ið á drykkju meðal stuðningsmanna og ólát- um. Við hörðustu stuðningsmenn liðanna erum fyrirmynd okkar félags og ættu allir að líta í eigin barm. Íþróttir, áfengis- og tóbaksneysla fara ekki saman. Góða skemmtun í sumar! Ingólfur Lekve Fylkismaður Ást er… … jarðvegur kærleiks og vonar. Velvakandi Kötturinn Krúsa er týndur. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnustofur opnar kl. 9.-16.30, út- skurður og bingó kl. 13. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, opin smíðastofa kl. 9-16þ30, bingó kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið verður kl. 9-12. Dalbraut 18-20 | Söng- og harmoniku- stund kl. 14. Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl. 8-16, boccia kl. 10.45. Listamaður mán- aðarins. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók- menntaklúbbur kl. 13, Ólafur Haukur Símonarson les upp úr verkum sínum. Dans í Ásgarði Stangarhyl 4, sunnu- dagskvöld kl. 20, Borgartríó leikur fyrir dansi. Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur á Grand Hóteli á morgun, laugardag kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl. 9.30 og 13, málm- og silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl 10.30, bingó kl. 13.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opnar vinnustofur, félagsvist FEBG og námskeið í almennri handavinnu, fastir tímar. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, m.a. er bókband, prjónakaffi kl. 10, stafganga kl. 10.30. Frá hádegi spilasalur opinn og kóræfing kl. 15. Sími 575-7720. Háteigskirkja | Brids fyrir konur kl. 13. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 12.30. Dansleikur verður 21. apríl, Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa frá kl. 9, postulínsmálning, myndlist kl. 13, bíódagur kl. 13.30, kaffisala í hléi. Böð- un fyrir hádegi og hársnyrting. Hæðargarður 31 | Hringborðið. kl. 8.50, gönuhlaup og Thachi kl. 9, leik- fimi kl. 10, listasmiðjan kl. 9-16. Gáfu- mannakaffi kl. 15, dalalíf kl. 15.30. Sími 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Boccia í Gjábakka kl. 13. Uppl. í síma 554-2780 og á glod- .is Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða- klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, bingó kl. 13.30, veitingar. Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglumanna | Fundur sunnudaginn 11. apríl kl. 10 á Grettisgötu 89. Norðurbrún 1 | Myndlist og útskurður kl. 9, leikfimi kl. 13, guðsþjónusta kl. 14 og sparikaffi. S. 411-2760. Vesturgata 7 | Skartgripagerð, korta- gerð, glerbræðsla og enska kl. 11 30, tölvukennsla kl. 13.30, sungið v/ flygilinn kl. 14.30, veitingar, dansað í aðalsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leir- mótun kl. 9, handavinnustofan opin, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30. Baldur Garðarsson skrifar hug-leiðingu um afdráttarhátt eft- ir að hafa rekist á nokkrar gamlar vísur í bókinni Um daginn og veg- inn eftir Jón Eyþórsson veður- fræðing frá 1969: „Fremsti stafur er felldur brott af sérhverju orði. Þar segir hann að Guðmundur Finnbogason hafi gert tilraunir með háttinn og skásta vísa hans sé: Snuddar margur trassinn trauður, treinist slangur daginn (nuddar argur rassinn rauður reynist langur aginn). Vísan er torskilin og e.t.v. ekki í hæsta gæðaflokki, en Sveinn frá Elivogum á að hafa reynt að gera betur (vísa hans á reyndar vel við í nútímanum): Fléttum hróður, teflum taflið, teygjum þráðinn snúna (léttum róður, eflum aflið, eygjum ráðin núna). Þessi vísa er reyndar gölluð, en Jón birtir hana með tvö n í þráð- inn. Á wikipedia er grein um bragarháttinn og þessi vísa höfð eftir Jóhannesi úr Kötlum: Drósir ganga, dreyrinn niðar drjúpa skúrir. (Rósir anga, reyrinn iðar rjúpa kúrir). Lýk hér erindi með vísu, sem Jón Eyþórsson hefur eftir ónefnd- um hlustanda: Lystisemda lífsins njótum, liðna tíma er vert að muna, þótt við stöku boðorð brjótum, í bróðerni við samviskuna. Svo mörg voru þau orð árið 1969, enda hippamenning þá alls- ráðandi.“ Vísnahorn pebl@mbl.is Af rassi og afdráttarhætti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.