Morgunblaðið - 09.04.2010, Page 32

Morgunblaðið - 09.04.2010, Page 32
Eftir Matthías Árna Ingimarsson matthiasarni@mbl.is ÞAÐ var fjölmenni á Súfistanum í Hafnarfirði þar sem blaðamaður sötraði svart kaffið og beið eftir viðmælanda sínum. Með nokkra mínútna millibili ganga inn þau Björgvin Hall- dórsson, Helga Möller, Guðrún Gunnarsdóttir, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson. Ótrúlegt en satt var ekkert þeirra viðmælandi blaðamanns að þessu sinni. Í þetta skiptið er það Hafnfirðingur, Sveinn M. Jónsson, sem undanfarin ár hefur búið og unnið í Lund- únum, nú síðast sem yfirupptökustjóri og framleiðandi hjá hljóðverinu Great Eastern Studios. Þar hefur hann unnið með hljóm- sveitum á borð við The Horrors, White Lies og Babyshambles, sem vandræðagemsinn Pete Doherty fer fyrir. Súfistinn er helst til þéttsetinn og því er ákveðið að rölta um miðbæinn inn á Kaffi Aróma og ræða málin í ró og næði. Áhugaleysi ruddi veginn – Nú ertu yfirupptökustjóri hjá Great Eas- tern-hljóðverinu, hvernig kom það til? „Það er mjög fyndið hvernig ég fékk þetta starf. Ég fór í hljóðverið til að taka upp lög með hljómsveit sem ég var í. Sjálfur hef ég lært upptökustjórnun og grúskað í þessu í fleiri ár, en yfirupptökustjórinn okkar þar var alveg úti á túni. Hann var áhugalaus og horfði á ruðning í sjónvarpinu og skoðaði ebay frek- ar en að vinna með okkur. Þar af leiðandi fengum við frekar lélegar upptökur miðað við hvað þetta er gott stúdíó.“ – Þú tókst þá við af honum? „Já, eftir þetta fór ég að spyrjast fyrir um hver ætti stúdíóið og sæi um reksturinn. Við fengum að vera þar þegar tími var laus án þess að vera með upptökumann og gera bara allt sjálfir. Fyrst fengum ég og breskur félagi minn til okkar tvær hljómsveitir í prufuupp- tökur, til að sjá hvernig gengi. Þessi vinur minn var mikið í PR-málum, búinn að halda klúbbakvöld í Lundúnum og þekkti fullt af hljómsveitum sem vildu taka upp. Þegar eig- andi hljóðversins heyrði þessar upptökur átt- aði hann sig bara á því að hann var ekki með rétta menn í vinnu. Þetta endaði með því að við vorum bókaðir meira en hljóðverið gat ráðið við. Og nú sé ég alfarið um hljóðverið.“ Átta hljóðver í sama hverfinu – Hvernig hefur gengið að sjá um rekstur heils hljóðvers? „Það hefur gengið ágætlega. Fyrstu mán- uðina gerðum við þetta fyrir nánast ekki neitt, kannski með hundraðkall á tímann. En það var nauðsynlegt til að byggja upp hóp við- skiptavina og láta fólk vita af okkur. Það er vitað mál að það er ekkert auðvelt að fá út- gáfusamning í dag og að tónlistarfólk er ekki ríkasta stéttin. Það getur verið erfitt að reka fyrirtæki sem er að pína peninga út úr fátæku fólkinu. Stundum heyrir maður í hljómsveitum sem eru mjög efnilegar, þá reynir maður að koma til móts við þær.“ – Er ekkert erfitt að vera í þessum bransa í Lundúnum? „Jú mjög. Það eru til dæmis í okkar hverfi ein átta önnur stúdíó á mjög litlum radíus og öll mjög flott. Þau eru ekkert endilega að taka meira upp en við þó svo græjunar séu dýrari og húsnæðið stærra. Stundum virðast tónlist- armenn ekki endilega sækja í nýjustu og bestu græjurnar, frekar í gott fólk og andrúmsloft, og við höfum reynt að skapa það hjá okkur. Það er meira svona heimilisfílingur hjá okkur, stúdíóið er frekar eins og íbúð sem hægt væri að búa í ef maður vildi.“ The Horrors banka upp á – Þú hefur verið að taka upp hljómsveitir eins og White Lies, The Horrors og Babysham- bles. Hvernig kom það til? „The Horrors voru sendir af útgáfufyrirtæki sínu að taka upp nokkur lög. Þeir búa víst nokkrir í sömu götu og Great Eastern og einn daginn banka þeir bara upp á. Ég fer til dyra, þá stendur þessi hljómsveit á götunni og spyr hvort þeir megi koma inn og taka upp. Þessi lög sem við tókum upp voru svo endanlega kláruð af Geoff Barrow, gítarleikara Port- ishead. Þetta gerðist bara svona allt í einu og var mjög skemmtilegt. White Lies komu svo og tóku upp demóplötu sem landaði þeim stórum útgáfusamningi og um daginn leigði Placebo hljóðverið í viku til þess að æfa fyrir tónleika.“ – En Babyshambles? „Vinkona mín sem ég er að vinna tónlist með kynnti mig fyrir Doherty og við fórum að spjalla um tónlist og stúdíóið. Ég bauð honum bara að koma og líta inn þegar hann hefði tíma. Daginn eftir var hann svo bara mættur með hljómsveitina til að skoða stúdíóið. Þá fékk ég vin minn Teit Árnason til að hjálpa mér. Tók- um upp nýtt efni á fjórum dögum.“ – Hvernig var að vinna með honum? „Það er bara mjög fínt. Hann er algjört lamb, rosalega rólegur og kurteis, ekki með neina stjörnustæla við okkur. Hann bara lifir fyrir tónlistina og vill ekkert annað gera. Hann hlýddi manni í einu og öllu.“ Yfirupptökustjóri í hljóðveri í Lundúnum  Tekið upp hljómsveitir á borð við Babyshambles, The Horrors og White Lies Doherty Pete Doherty var sem lamb, rólegur og kurteis segir Sveinn.Horrors Hljómsveitin The Horrors bankaði upp á hjá Sveini einn daginn. Upptekinn Sveinn M. Jónsson hefur nóg að gera. 32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 2010 Søren Rønholt er danskur ljós- myndari sem er um þessar mundir að vinna að verkefni um fegurð hinnar norrænu konu. Hann ætlar sér að ljósmynda tíu konur frá hverri Norðurlandaþjóðanna nakt- ar á heimilum sínum. Søren er væntanlegur til landsins í dag og verður hér til 18. apríl. Í tilkynningu um verkefnið segir: „Með verkefninu vill Søren endur- skoða þær hugmyndir sem eru við lýði í nútímasamfélagi um fegurð sem helst birtist okkur á fótósjopp- uðum myndum glanstímarita.“ Sýningar verða haldnar í hverju þátttökulandi og ljósmyndabók verður gefin út. „Søren hefur margra ára reynslu sem tísku- ljósmyndari þar sem hugmyndir um hina svokölluðu „fullkomnu“ fegurð færast sífellt fjær raunveru- leikanum. Með verkefninu vill hann endurhugsa þessa ímynd.“ Nánari upplýsingar um Søren má nálgast á www.roenholt.dk og áhugasamar geta haft samband við hann með því að senda tölvupóst í póstfangið sr@roenholt.dk. Ath. myndin fyrir ofan er ekki eftir Søren Rønholt. Vantar hugrakkar íslenskar konur Fólk HÓPUR listamanna ætlar næstkomandi mánudag að setja upp sýninguna Nei, Dorrit! í Iðnó. Þetta verður fyrsta og jafnframt eina sýningin, en verkið er unnið eftir viðtali breska tímaritsins Condé Nast við forseta- hjónin Ólaf Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff. Það er Snorri Ásmundsson sem fer fyrir hópnum í hlutverki Ólafs Ragnars, en Ásdís Sif Gunnarsdóttir leikur Dorrit, Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður leik- ur Joshua Hammer og er höfundur hljóðmyndar, tón- listarkonan Kría Brekkan leikur hund forseta- hjónanna og rithöfundurinn Auður Jónsdóttir leikstýrir leikgerðinni sem er eftir Þórarin Leifsson. „Kjarni málsins er sá að við höfum verið að hittast í hálft annað ár á Holtinu, nokkrir listamenn; myndlist- armenn, rithöfundar og kvikmyndagerðarfólk, og svo kom þessi hugmynd á einum fundinum. Við vorum að ræða þetta viðtal og við bara ákváðum að kýla á þetta,“ segir Snorri. Sýningin er 25 mínútur og hefst kl. 20.30, akkúrat á eftir Kastljósinu, eins og segir í tilkynning- unni, en þennan sama dag kemur einmitt rannsókn- arskýrsla Alþingis út og mun hún liggja frammi á barn- um til sýnis eftir sýninguna. Snorri segir að sú staðreynd hafi aðeins spilað inn í dagsetningu sýning- arinnar en segir verkið þó ekki beint vera pólitíska yf- irlýsingu. „Ja, pólitískt „statement“? Við erum náttúrlega bara að leika viðtalið, það var svo ótrúlegt. Blaðamaðurinn leyfir sér að birta og segja frá svo mörgu. Og Dorrit segir það í viðtalinu að hann megi nota þetta, gefur hon- um grænt ljós. Og við höfum verið að spyrja okkur eftir á hvort forsetaembættið hafi ekkert lesið þetta yfir eða fylgst með þessu?“ Einstök sýning á verkinu Nei, Dorrit! í Iðnó Snorri Ólafur Ragnar í Iðnó. Félagarnir Nökkvi Svavarsson og Kiddi Big Foot (Kristján Jónsson) hyggja nú á samstarf að nýju og er það „lounge“-tónlist sem á hug þeirra allan um þessar mundir. Piltarnir störfuðu á sínum tíma saman á Skuggabarnum sáluga, sem skemmtanastjórar og skífu- þeytarar. Nú snúa þeir aftur sem dúóið SHADOW DJ’s og ætla að leggja undir sig Pósthúsið vínbar-bistró á milli kl. 22-01 um helgar. Þar ætla þeir að spila þægilega tónlist og er þessi stund hugsuð sem nokkurs konar upphitun fyrir djammið. SHADOW DJ’s spila „lounge“ á Pósthúsinu Í dag kemur út þriðja plata takt- smiðsins og upptökustjórans Steves Samplings. Breiðskífan heitir Milljón mismunandi manns og „fjallar um ungan mann í leit að betra lífi og ástinni eina langa nótt í lífi hans“. Tónlistarmaðurinn gefur plötuna sjálfur út í samstarfi við Kimi Records. Á plötunni koma fram hvorki meira né minna en tíu rapptónlist- armenn, en þeir eru meðal annarra DiddiFel og Byrkir B. úr Forgotten Lores, Gnúsi Yones, Steini úr Quar- ashi, G. Maris, Dabbi T., Brjánsi, B. Kay og Mezzias MC. Í tilefni af útgáfunni verða út- gáfutónleikar á Venue í kvöld og platan flutt þar í heild sinni. Sér- stakir gestir á tónleikunum eru 3ja hæðin og Quadruplos. Fjallar um betra líf, ástina og djammið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.