Morgunblaðið - 08.05.2010, Side 3
Harry Redk-napp var í
gær útnefndur
knatt-
spyrnustjóri
tímabilsins í
ensku úrvals-
deildinni fyrir
þann árangur
að koma Tott-
enham í fjórða sætið og þar með í
Meistaradeild Evrópu. Þetta er að-
eins í annað sinn síðan úrvalsdeildin
var stofnuð sem stjóri meistaraliðs-
ins hlýtur ekki þennan titil. Hitt var
þegar George Burley sem fór með
nýliða Ipswich í 5. sæti deildarinnar
tímabilið 2000-2001 var útnefndur.
„Þetta var allt undir leikmönnunum
komið og þeirra árangur sem er á
bak við þetta,“ sagði Redknapp á
vef Tottenham um útnefninguna en
að henni stendur úrvalsdeildin
ásamt styrktaraðilum sínum,
fulltrúum fjölmiðla og stuðnings-
manna.
Tinna Jóhannsdóttir og ValdísÞóra Jónsdóttir byrjuðu ekki
vel í svæðisúrslitunum í bandaríska
háskólagolfinu en mótið fer fram í
Stanford í Kaliforníu þar sem Tig-
er Woods var við nám á sínum tíma.
Tinna sem leikur fyrir San Franc-
isco-háskólann lék fyrsta hringinn á
79 höggum og er átta yfir pari vall-
arins í 88. sæti. Valdís Þóra, sem
leikur fyrir Texas State, er á 85
höggum eða 14 yfir pari. Hún er á
meðal neðstu kvenna í 117. sæti.
FH hefur náð samkomulagi viðdanska knattspyrnumanninn
Jacob Neestrup um að hann gangi
til liðs við félagið en Neestrup hefur
verið til skoðunar hjá Íslandsmeist-
urunum síðustu daga. Að því er
fram kom í norska blaðinu Stav-
anger Aftenblad í gær á Neestrup
eftir að útkljá mál sín við norska 2.
deildar liðið Stavanger IF en að
sögn blaðsins á hann inni ógreidd
laun hjá félaginu. Hann hélt af landi
brott í gær og að öllu óbreyttu mun
hann koma aftur til landsins í næstu
viku og skrifa þá undir samning við
Hafnarfjarðarliðið. Ljóst er að hann
verður ekki með FH-ingum í fyrsta
leiknum í úrvalsdeildinni gegn Val á
mánudaginn.
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010
ÞAÐ er hins vegar ekki svo að öll mörk
Vals í gær hafi verið óumdeilanleg.
Fyrsta markið, sem kom Valskonum á
bragðið í fyrri hálfleik, var nefnilega
ansi vafasamt að mati þess sem þetta
skrifar. Hér verður gerð tilraun til að
lýsa því.
Dagmar Ýr Arnardóttir, varn-
armaður Vals, meiddist innan eigin
vítateigs og lá óvíg eftir. Reyndar er
óttast að hún hafi slitið krossband í
hné. Greta Mjöll Samúelsdóttir, Bliki,
var með boltann og spyrnti honum út
fyrir hliðarlínu eftir skipanir frá liðs-
félögum sínum þess efnis. Nokkur tími
fór í að koma Dagmar af velli og við
það virtust leikmenn hreinlega gleyma
aðdraganda innkastsins því að í stað
þess að Valskonur köstuðu boltanum
til Blika eins og tíðkast við svona tilvik
var boltanum komið inn í vítateig Blika
þar sem markadrottningin Kristín Ýr
skoraði.
Svona mörk hafa áður verið skoruð í
fótboltaleikjum en undirritaður man
ekki til þess að þau hafi verið skoruð
án þess að einn einasti kjaftur í stúk-
unni, þeir voru reyndar ekki margir,
eða þá alla vega leikmenn og þjálfarar
liðsins sem markið bitnar á, létu heyra
í sér. Í samtali við þjálfara Blika eftir
leik komst ég að því að hann sá ekki
þetta atvik enda með hugann við hvaða
varamaður ætti að leysa Dagmar af
hólmi. Sara Björk Gunnarsdóttir, mið-
vallarleikmaður Blika, sagði sig og
samherja sína einnig líklega hafa verið
of upptekna af því að hugsa um Dag-
mar og alvarleg meiðsli hennar.
„Ég tók bara ekki eftir þessu. Maður
var eiginlega í sjokki yfir Dagmar.
Þetta er fáránlegt svona eftir á að
hyggja,“ sagði Sara Björk eftir leikinn.
Það er hins vegar ekki við Valskonur
að sakast í þessum málum því þær virt-
ust alveg jafnlítið meðvitaðar um það
að eðlilegast væri að Breiðablik fengi
boltann eftir innkastið. Atvikið skrifast
frekar á meðvitundarleysi en óheið-
arleika. Gefum markaskoraranum
Kristínu Ýri orðið:
„Ég sá reyndar ekki hvað gerðist en
ég spurði dómarann hver ætti boltann
og hann sagði „þið eruð með boltann,
þið eigið hann“. Það er dómarinn sem
ræður, ekki satt?“ sagði Kristín Ýr og
það er svo sem hárrétt hjá henni.
Það eru kannski bölvuð leiðindi og
dónaskapur í mér að velta mér svona
upp úr þessu fyrsta marki og ég ætla
ekki að halda því fram að það hafi haft
úrslitaáhrif. Síður en svo. Valskonur
voru betri aðilinn og gerðu út um leik-
inn með þremur mörkum á fjórum
mínútum í seinni hálfleiknum. Geri
aðrir betur. Ég kemst samt ekki hjá
því að velta því fyrir mér hvernig við-
brögð áhorfenda hefðu orðið ef „sviðið“
hefði verið stærra.
„Óheiðarlegt“ en öllum
virtist alveg sama
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný Björk Gunnarsdóttir er nýkomin til Vals frá Stjörnunni. Hér hefur hún betur gegn Önnu Birnu Þorvarðardóttur úr
Breiðabliki í meistaraleik liðanna í Kórnum í gærkvöld. Valskonur bættu þar enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn.
Íslands- og bikarmeistarar Vals unnu í
gærkvöld sigur í meistarakeppni KSÍ
með því að leggja „silfurlið“ Breiðabliks
að velli, 4:0, í Kórnum. Kristín Ýr Bjarna-
dóttir, Katrín Jónsdóttir og Dagný Brynj-
arsdóttir sáu um að skora mörkin fyrir
Valsliðið sem svo sannarlega lofar góðu
fyrir komandi sumar þar sem flestir spá
því áframhaldandi sigurgöngu.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
Öruggur sigur Vals Vafasamt mark Dagmar illa meidd
ætlum okkur að vera í henni að ári,“
agði Þórður.
Spurður út í deildina almennt sagði
Þórður: ,,Ég held að deildin verði
miklu sterkari en í fyrra. Eftir að
hafa séð marga leiki hjá þessum lið-
um er það mín tilfinning og flestra
annarra. Það verða mörg lið sem geta
blandað sér í toppbaráttuna. Ef við
verðum þarna uppi eins og ætlunin er
þá sé ég fyrir mér að Víkingarnir
verði þar líka. Þórsararnir eru seigir
og baráttuglaðir og gætu blandað sér
baráttuna. Þó svo að Þrótturum hafi
ekki gengið allt of vel þá er með þeir
hörkumannskap. HK-liðið er gott og
Fjölnisliðið er ungt og sprækt. Leikn-
r getur á góðum degi unnið öll lið og
vo er alltaf eitthvert lið sem kemur á
óvart. Þetta verður hörkumót.“
ÍA tekur á móti HK í fyrstu um-
erðinni á morgun en leikina má ann-
ars sjá hægra megin í opnunni.
Hér til vinstri er síðan liðskipan
allra liðanna í 1. deildinni 2010.
Morgunblaðið/Ómar
trik. Búist er við því að annað verði
rstranglegir þeir séu taldir.
á morgun
KNATTSPYRNA
VISA-bikar karla
Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð:
Gnúpverjar – Kjalnesingar ..................... 1:1
Kjalnesingar unnu 3:0 í vítaspyrnu-
keppni og mæta Leikni R. í 2. umferð.
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Magdeburg – Grosswallstadt.............. 30:28
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Orlando – Atlanta ............................... 112:98
Staðan er 2:0 fyrir Orlando
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
Oddaleikur karla um Íslandsmeistaratitil:
Ásvellir: Haukar – Valur........................ L14
Staðan er 2:2 og sigurliðið verður Ís-
landsmeistari 2010.
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Akranesvöllur: ÍA – HK ......................... S14
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Njarðvík .... S14
Gervigras Laugardal: Þróttur R. – KA S14
Gróttuvöllur: Grótta – ÍR....................... S14
Þórsvöllur: Þór – Fjölnir ........................ S14
Víkin: Víkingur R. – Fjarðabyggð......... S14
Lengjubikar karla, úrslit B-deildar:
Boginn: Víkingur Ó. – Völsungur ..... S16.30
Lengjubikar kvenna, úrslit C-deildar:
Gervigras Laugard: Völs. – Þróttur R . L12
VISA-bikarinn, bikar karla, 1. umferð:
Fjórtán leikir fara fram víðsvegar um land í
dag, laugardag, og sex á morgun, sunnu-
dag. Sjá nánar á www.ksi.is.
JÚDÓ
Norðurlandamót fullorðinna fer fram í
Laugardalshöllinni í dag frá kl. 10 til 16. Á
morgun er keppt í unglingaflokkum á sama
stað frá kl. 9 til 13.
ÞAÐ ræðst á morgun hvort það verður Chelsea eða Manchester United sem hampar Englandsmeistaratitl-
inum í knattspyrnu í ár en þá fer fram lokaumferð deildarinnar. Chelsea er með pálmann í höndum. Vinni
liðið sigur á Wigan á heimavelli sínum er meistaratitillinn þeirra en misstígi leikmenn Lundúnaliðsins sig
bíða meistarar síðustu þriggja ára eins og gammar, tilbúnir að taka á móti enn einum titlinum.
Takist United að leggja Stoke að velli og Chelsea nær ekki að fara með sigur af hólmi á móti Wigan fer bik-
arinn á loft á Old Trafford og um leið setur félagið nýtt met hvað fjölda titla varðar. United og Liverpool hafa inn-
byrt titilinn 18 sinnum hvort félag í efstu deild en Chelsea getur orðið meistari í fjórða sinn og reyndar er fátt sem
bendir til annars en að svo verði.
„Mínir menn hafa verið mjög einbeittir alla vikuna. Þeir vita hversu mikilvægur leikurinn er. Til þess að vera
meistarar þurfum við að spila eins vel og við gerðum á móti Liverpool. Við erum í góðri stöðu og við getum ráðið
okkar eigin örlögum á okkar heimavelli á Stamford Bridge sem er mjög gott,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri
Chelsea, við fréttamenn í gær en nær öruggt er talið að hann tefli fram sama liði og vann Liverpool um síðustu
helgi. Chelsea tapaði fyrri leiknum gegn Wigan en liðið hefur aðeins tapað einum leik á heimavelli á leiktíðinni.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ekki gefið
upp vonina um að kraftaverk eigi sér stað á Stamford Bridge.
„Við vonumst til að ljúka mótinu á réttan hátt en það er aldrei auðvelt að
spila á móti Stoke. Liðið er ákveðið og baráttuglatt. Við viljum gera vel í síð-
asta heimaleiknum og þú veist aldrei hvað gerist. Við bíðum bara og sjáum
hvað gerist,“ sagði Ferguson en lærisveinar hans töpuðu síðast deildaleik gegn
Stoke árið 1984. gummih@mbl.is
Chelsea með pálmann í höndunum en
Ferguson vonast eftir kraftaverki
Tilbúnir Wayne
Rooney fagnar titli
með Man.Utd ef
liðið vinnur Stoke
og Chelsea
misstígur sig.
Efstir
Didier Drogba
og John Terry
landa titlinum á
morgun ef þeir
vinna Wigan.
Fólk sport@mbl.is
við