Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „LEIKIRNIR hafa batnað eftir því sem á einvígið hefur liðið. Viðureignin á fimmtudagskvöldið var hreint frá- bær auk þess sem dómgæslan var eins og best varð á kosið. Það kæmi mér ekkert á óvart þótt fimmti leik- urinn toppaði hina fjóra og yrði besti leikurinn í einvíginu. Varnarleikur liðanna hefur verið mjög góður og það sem heppnast hef- ur best í leik liðanna. Í heildina er þarna um að ræða tvö afar vel þjálfuð og skipulögð lið sem greinilega leggja allt í þessa leiki,“ segir Einar sem fylgst hefur með leikjunum fjórum af áhuga. Sigurbergur og Fannar Þór hafa leikið vel „Síðan hafa leikmenn eins og Sig- urbergur Sveinsson og Fannar Þór Friðgeirsson farið mikinn og virki- lega tekið af skarið og sýnt hvað í þeim býr. Það er gríðarlega mik- ilvægt fyrir liðin að hafa innan sinna vébanda menn sem hafa getu til þess að leika hvað best þegar mest á reyn- ir. Ég get alveg séð fyrir mér að úr- slitaleikurinn geti snúist upp í lítið einvígið þeirra á milli ásamt því að markvarslan skipti miklu máli,“ segir Einar. „Þegar litið er yfir leikina fjóra hef- ur markvarslan verið nokkuð jöfn. Hlynur hefur átt einn slæman leik í marki Vals. Sömu sögu er að segja af Birki Ívari í Haukamarkinu. Hann hefur leikið vel í þremur leikjum en tókst ekki sem best upp í einum. Þannig að markvarslan hefur verið nokkuð jöfn til þessa þegar litið er yf- ir leikina fjóra. Verði markvarslan áfram nokkuð jöfn geta úrslit oddaleiksins ráðist ef einhver einn einstaklingur úr öðru hvoru liðinu tekur af skarið og nær að vera afgerandi líkt og Fannar gerði á fimmtudagskvöldið í fjórðu viðureign liðanna.“ Fjarvera Gunnars veikir Hauka Gunnar Berg Viktorsson, leik- maður Hauka, missir af úrslita- leiknum í dag eftir að hafa verið úr- skurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar í gær. Hann fékk rauða spjaldið á síðustu sekúndum venju- legs leiktíma. „Það getur haft gríðarleg áhrif á varnarleik Haukanna að Gunnar verður ekki með. Hann er óumdeild- ur leiðtogi í varnarleik liðsins. Hins vegar getur fjarvera hans haft þau áhrif að þeir leikmenn Hauka sem eftir standa þjappa sér betur saman en áður. Þá er spurningin sú hvað Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, gerir. Hann hefur til dæmis þá möguleika að láta Heimi Óla Heimisson í miðju varnarinnar. Eins getur Gísli Jón Þórisson leyst þessa stöðu. Hann er lágvaxnari en Heimir og Gunnar en hefur á móti meiri reynslu en Heim- ir,“ segir Einar sem hefur sínar kenn- ingar um hvað muni ráða úrslitum. „Verði þetta mikill markaleikur vinna Valsmenn. Takist Haukum hins vegar að halda markaskorinu niðri fara þeir með sigur af hólmi. Þannig verður þetta,“ segir Einar Jónsson, þjálfari bikarmeistara Fram í hand- knattleik kvenna. Allt undir á Ásvöllum  Haldist markaskor lágt vinna Haukar  Verði mikið skorað vinnur Valur, telur Einar Jónsson  Fjarvera Gunnars Berg getur þjappað Haukaliðinu saman Morgunblaðið/Kristinn Spenna Sigurður Eggertsson og Björgvin Þór Hólmgeirsson mætast í úrslitauppgjörinu á Ásvöllum í dag. Í HNOTSKURN »Leikur Hauka og Valshefst kl. 14 í dag á Ásvöll- um í Hafnarfirði, heimavelli Hauka. »Hvort lið hefur unnið tvoleiki í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitlinn. Sig- urliðið í dag hampar Íslands- bikarnum. Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram í handknattleik, telur að úrslita- leikur Hauka og Vals um Íslands- meistaratitilinn í handknattleik karla, sem fram fer á Ásvöllum í dag og hefst kl. 14 verði jafn og spennandi. Einn afgerandi einstaklingur úr hvoru liði geti ráðið því hvort liðið hreppi Ís- landsmeistaratitilinn. Forráðamenndanska úr- valsdeildarliðsins Esbjerg segjast hafa fengið þau skilaboð frá enska 1. deildar félaginu Reading fyrir tveimur vik- um að það ætlaði ekki að nýta sér þann möguleika að halda Gunnari Heiðari Þorvaldssyni í herbúðum liðsins en Gunnar hefur verið í láni frá Esbjerg hjá Reading frá áramót- um en snýr nú aftur til Esbjerg. „Við höfðum vonast til að Reading nýtti sér þann kost að halda Gunnari en það reyndist ekki. Svo nú munum við finna það út með honum og um- boðsmanni hans hvort hann verður hjá okkur eða við reynum að finna annað félag fyrir hann,“ sagði Niels Erik Söndergård, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá Esbjerg, við netmið- ilinn bold.dk.    Unnur Lára Ásgeirsdóttir úrSnæfelli hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik. Unnur er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Hauka úr Snæfelli á skömmum tíma en áður hafði Gunnhildur Gunnarsdóttur hafa vistaskipti.    Orlando Magic heldur sig-urgöngu sinni áfram í úr- slitakeppni NBA-deildarinnar og í fyrrinótt hafði Orlando betur gegn Atlanta Hawks, 112:98, á heimavelli. Staðan er 2:0 fyrir Orlando sem lagði Charlotte 4:0 í fyrstu umferð. Næstu tveir leikir fara fram í Atl- anta en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki kemst í úrslit Austurdeildar.    Dwight How-ard skoraði 29 stig fyrir Or- lando og hann tók 17 fráköst að auki. Vince Car- ter skoraði 24 stig og Rashard Lewis skoraði 20. Al Horford var stigahæstur í liði Atlanta með 24 stig og Joe Johnson skoraði 19. Atl- anta tapaði fyrsta leiknum með 43 stig mun en liðið hefur enn ekki náð sér á strik í undanúrslitunum gegn Orlando.    Haukar, nýliðarnir í úrvalsdeildkarla í knattspyrnu, lánuðu í gær tvo leikmenn til 2. deildar liðs ÍH. Það eru varnarmaðurinn Sindri Örn Steinarsson, sem lék 10 leiki með Haukum í 1. deildinni í fyrra, og framherjinn Enok Eiðsson, sem lék 7 leiki og skoraði eitt mark fyrir Haukana í fyrra.    Guðfinnur Þórir Ómarsson,sóknarmaður úr ÍR, er genginn til liðs við 1. deildar lið Þróttar í fót- boltanum. Guðfinnur lék áður með Þrótturum en hann spilaði 20 leiki með ÍR í 1. deildinni í fyrra og skor- aði í þeim fjögur mörk. Fólk sport@mbl.is AFREKSFÓLK í júdó mun reyna með sér í Laug- ardalshöllinni um helgina þar sem fram fer Norð- urlandamót í íþróttinni. Mótið er haldið hérlendis á fimm ára fresti að jafnaði og var síðast á Íslandi árið 2005. Um 150 keppendur mæta til leiks og þar af eru tæplega 60 sem koma frá útlöndum. Keppt er í fjórum aldursflokkum, einum hefðbundnum, einum undir 17 ára, einum undir 20 ára og einum öldungaflokki. Að sögn landsliðsþjálfarans Bjarna Friðrikssonar eru Norðurlandaþjóðirnar sterkar júdóþjóðir og þá sérstaklega Svíar. Þeir státa nú af Evrópumeistara sem getur því miður ekki verið með að þessu sinni. „Allt okkar sterkasta fólk verður með,“ sagði Bjarni þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær en Bjarni var þá á fullu að und- irbúa mótið. Bjarni segir nokkra íslenska keppendur eiga möguleika á gull- verðlaunum í mótinu. „Þormóður Árni Jónsson er sigurstranglegastur í sínum flokki en fær væntanlega harða keppni frá Birni Sigurðarsyni. Bjarni Skúlason er líklegastur í sínum flokki en þar eru tveir Svíar. Það kemur á óvart ef Anna Soffía vinnur ekki sinn flokk. Þormóður, Bjarni og Anna eru því líklegust til þess að vinna titla. Mest spennandi flokkarnir verða væntanlega -73kg, -81kg og -90kg hjá körlunum. Þetta eru gríðarlega sterkir flokkar og þar eru fjórir til fimm sem geta unnið,“ sagði Bjarni ennfremur og telur að breiddin sé meiri í ís- lensku júdói en verið hefur. „Það má segja að breiddin hafi aukist. Í -73 og -81 kg flokkunum eru fjórir jafngóðir menn í hvorum flokki sem vinna hver annan til skiptis. Við eigum fleiri góða ein- staklinga og í fleiri þyngdarflokkum en áður,“ sagði Bjarni. Keppnin hefst klukkan 10 í dag og stendur til 15. Á morgun verður keppt í yngri ald- urshópum og verður glímt frá kl 9 til 13. kris@mbl.is Um 150 keppendur á NM í júdó  Þormóður, Bjarni og Anna Soffía eiga mesta möguleika á gullverðlaunum Þormóður Árni Jónsson ÍR-INGAR stóðu uppi sem Íslands- meistarar í keilu, bæði í kvenna- og karlaflokki, eftir sigra í oddaleikjum Íslandsmótsins í Keiluhöllinni í fyrrakvöld. ÍR-KLS sigraði KFR-Lærlinga, 15:5, í karlaflokki og vann þar með einvígið 34:26. ÍR-TT vann KFR-Valkyrjur, 12:8, og þar með 38:22 samanlagt í þrem- ur leikjum. vs@mbl.is Morgunblaðið/hag Karlarnir Lið ÍR-KLS fagnar sigrinum á KFR-Lærlingum. Morgunblaðið/hag Konurnar Lið ÍR-TT fagnar sigrinum á KFR-Valkyrjum. ÍR varð tvö- faldur meist- ari í keilunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.