Nýr Stormur


Nýr Stormur - 27.05.1966, Side 6

Nýr Stormur - 27.05.1966, Side 6
N£$dRMtm FÖSTUDAGUR 27. raaí 1960 JÚNAS JÓNSSON FRÁ HRiFUU: Leikrit og ævmt/ri Nú er stormurinn afstað- inn og ró komin á hugi manna á ný. Mörgum var forvitni á að opná dagblöðin s.l. þriðju- dag og lesa viðbrögð þeirra. Eins og að lífcum iætur fögnuðu þrjú þeirra sigri, þótt sigurhrós Tímans væru lævi blandin. Að vísu hafði flokkurinn bætt við sig mestu atkvæðamagni, en það nægðí honum ekki til að koma þriðja manni inn í borgar- stjórnina og fella þar með meirihluta Sjálfstæðisflokks- ins. Framsóknarflokkurinn Vonbrigði Framsóknar- manna eru eðlilega mikil, þar sem þeir töldu sér þrjá menn örugga. Mikið var talað um stóraukið fylgi Frams.flokks- ins og töldu flestir þá örugga með þrjá menn. Kosningavél Framsóknarmanna brást hins vegar. Var yfirstjórn hennar fullkomlega í molum, þrátt fyrir nægt starfslið. Merking- ar þeirra voru gerðar af handahófi og andvaraleysi einkenndi alla þeirra kosn- ingabaráttu. Mun þetta og verða þeim á- minning. Áhugaleysi fólks um stjórnmál nú á síðari tímum er einkennandi fyrir tíraa verðbólgu og upplausnar. All- ir eru önnum kafnir við að krækja sér í verðlitlar krón- ur, sem fara sífellt minnk- andi en fjölgar að sama skapi. Úrræðaleysi flokkanna ýtir undir þetta áhugaleysi, vegna þess að engum þeirra er treyst. Stjórnarandstöðublöð- in, önnur en Þjóðviljinn, virð- ast vera feimin við að segja andstæðingum sínum til syndanna og voru Framsókn- armenn yfirleitt undrandi og reiðir yfir dugleysi Timans. Þrátt fyrir þetta unnu þeir verulega á og ætti þeim að vera þetta hvatning til aö láta ekkl deigann síga. Hræðsla Framsóknar og A1 þýðuflokksins við Sjálfstæðis menn, mun nú væntanlega minnka, þegar í ljós er komið, að virki þeirra í Reykjavík er ekki óvinnandi. Alþýðuflokkurinn Alþýðuflokkurinn kom sterk ari út úr þessum kosningum en við var búist. Sennilega hafa allmargir óánægðir Sjálf stæðismenn kosið flokkinn, en meirihluti fylgisaukning- arinnar kom frá gömlum Al- þýðuflokksmönnum, sem snú ið höfðu viö honum bakinu. Ástæðan fyrir því er tví- mælalaust viðbrögð Alþýðu- flokksins síðustu dagana fyr- ir kosningar. Höfuðstefna Gylfa og Emils í flokknum undanfarið, hefir verið sú að gera ekkert sem styggt gæti samstarfsflokkinn. Það mun hafa verið þvert ofan í vilja þeirra, að Alþýðublaðið tók á sig rögg og sýndi viðleitni til að standa i lappirnar. Það mun hafa verið Óskar Hall- grímsson, sem tók af skarið og fylgismenn hans. Þetta bendir til þess að flokkurinn ætti ennþá líf fyrir höndum og ef til vill framtíð sem sós- íaldemokratískur flokkur, ef hinum dauðu höndum Gylfa og Emils væri svift af stýr- inu. Þessir menn virðast ætla að valda fullkomlega hlutverki Guðmundar í., að vera drag- bítar á flokknum, enda fara óvinsældir þeirra dagvaxandi. Þeír hafa að vísu möguleika á að koma Alþýðuflokknum til hjálpaf, með því að segja sig úr Alþýðuflokknum og ganga yfir í Sjálfstæðisflokk- inn, þar sem þeir eiga heima og hafa átt lengi. Sjálfstæðisflokkurinn Morgunblaðið og Vísir reyna að bera sig karlmann- lega og halda áfram að birta myndir. Þessi blöð segja að markið hafi náðst, sem sé að halda meirihlutanum. Allir vita að þessi kosninga úrslit eru mesti ósigur, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir beðið í áratugi. Þau sýna að almenningur treystir flokkn- um ekki lengur og að stjórn hans á málefnum landsmanna er með þeim ódæmum að gaml ir og öruggir fylgismenn sitja heima í stórhópum eða skila auðu, auk þeirra, sem farið hafa yfir á aðra flokka. Verð bólgustefna ríkisstjórnarinn- ar hefir nú fengið þvílíkt áfall að öllum er Ijóst að almenn- ingur krefst annara aðgerða. Geir Hallgrímsson reyndi að fela Sjálfstæðisflokkinn á bak við sína eigin persónu. Þetta mistókst að miklu leyti og áróður sá er hann rak, féll ekki í góðan jarðveg hjá borg arbúum. Sagt er að Eyjólfur Konráð hafi stjórnað þeirri „stæl- gæja' mennsku, sem ein- kenndi kosningabaráttuna. Öll baráttan var stórfelld móðgun við heilbrigða dóm- greind borgarbúa. Þeir vissu sem var, að hér var ekkert annað er> ..ýndarmennzka á ferð, herbragð sniðið að er- Leikfélag Reykjavíkur sýnir nú við mikla aðsókn sjónleik úr gamalli sögu eftir Halldór Kíljan Laxness. Mikið hefur verið rætt um þetta skáldverk nú í vor og eru skoðanir skipt ar meðal bókmenntafólks, sem kynnt hefur sér efnið. Skáldin verða oft fyrir höppum og óhöppum með bæk ur sínar. Allir þekkja dæmi um að skáld verða fyrir hörð- um dómum þegar sá gállinn er á háttvirtum almenningi. En síðan koma óvænt höpp. Eitt sinn var Halldór Laxness að feta sig áfram með Jón Hreggviðsson og lét ekki að annað stæði til en að bæta lendum fyrirmyndum. Vænt- anlega verður ekki boðið upp á slíkan ósóma aftur. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið fór fram úr vonum manna. Að vísu er útkoman góð, þegar tekið er tillit til þess stutta tíma, sem listinn hafði til umráða. Talið er og fullvíst að hinir harð- soðnu kommúnistar hafi ekki stutt listann. Hinsvegar er fullvíst að listinn á fyrst og fremst gengi sitt unga fólkinu að þakka. Kosningarnar eru vottur þess, að fólk vill fá heilsteyptan sósialdemokrat- iskan flokk. Ef Alþýðuflokkur inn gæti losað sig við íhalds- mennina úr flokknum, menn- ina sem eru til hægri við Sjálf stæðisflokkinn, og ef Alþýðu- bandalaginu tækist að losna við línudansarana frá Moskvu þá er hér kominn grundvöll- ur fyrir stóran sósíaldemokrat iskann flokk, sem gæti tekið við því hlutverki, sem beið Alþýðuflokksins á sfnum tíma. Kosningarnar eru beinn ó- sigur fyrlr stjómarstefnuna, þrátt fyrir fylgisaukningu A1 þýðuflokksins. Hún var aðeins hvatning sem kom frá fólkinu, þegar Alþýðublaðið sýndi lit þess, að enn fyrirfinndust í flokknum menn, sem ekki höfðu runnið saman við íhald íð og væru ef til vill reiðu- búnir til að hefja flokkinn upp úr niðurlægingunni. við þætti í stóran róman. En þá gerist tvennt óvænt. Sögu- kaflanum er breitt í leikrit og það sýnt fyrir 100 þúsund gesti í þjóðleikhúsinu við hinn me&ca fögnuð og aðdáun. Um sama leyti kom út saga á dönsku. Þá skeðu þau undur, aö fjöldi greindra og vel menntaðra manna skildu í fyrsta sinn hvað íslendingar höfðu orðið að þola undir stjórn og umsjá frændþjóðar, sem er annars mild í lund og lífsháttum. Hetjusagan um Jón Hregg- viðsson er talin áhrifamesta röksemd íslendinga í handrita málinu. Þessi bók vann ó- vænta sigra þar sem engir voru að berjast í það sinn. Nú kemur skyndilega fram bók- menntadeila í ræðu og riti í sambandi við Dúfnaveizlu Halldórs Laxness. Menn segja að Dúfnaveizlan eigi að vera leikrit, en þetta séu sundur- lausir sögukaflar og allavega ólíkir sönnu leikriti. Þetta er sennilega . eðlileg kenning, ef fljótt er á litið. Við höfum alið tvær kynslóðir við Ibsen og hans skáldaskóla. Sá, sem les Brúðuheimilið eða Brand, er ekki í vafa um að hér er um að ræða tvö leikrit, en ekki sögur. Efnið er fast- bundið frá upphafi til síðustu línu eins og marmarasúlurnar í hofi Periklesar, sem hafa staðið óhreyfðar í himinbornu samræmi í meira en 2000 ár. Mönnum getur fundist gagn rýnendur Dúfnaveizlunnar hafa rétt fyrir sér, að þar sé ekki um að ræða leikrit í hefð bundnum 19. aldar stíl. Lax- ness hefur ef til vill villst út af þjóðveginum, líkt og þegar venjuleg skáldsaga úr myrk- viði íslenzkra þjáninga varð vinsælasta leikrit þjóðarinnar og öflugasta sóknarskjalið í nálega vonlausu bókmennta- máli við Dani út af handrit- unum. Ef Halldór Laxness hefur brotið á móti bókmennta- smekk íslendinga, verður sök hans sennilega talin í því fólg in að gera sér ævintýri úr nokkrum þjóðlífsmyndum og tengja þessar myndir saman með listrænum töfraþræði og leyfa að sýna verkið í Iðnó. Þar gefst höfuðstaðarbúum tækifæri til að sjá þetta töfra spil langt fram eftir vorinu. Hér er víða komið við sögu. Gömlu hjónin í kjallaranum hafa ekki lært hagfræði lið- andi stundar en þau hafa lif- að hér á landi. Án þeirra æv- intýra i þúsund myndum mundi íslenzka þjóðin ekki hafa byggt þetta land, róið nærri áhaldalaus við stórfeng lega náttúru, hafið, fljótin, jökla, sanda, blindhríðar, gos, pestir og hafíslokur. Síðan koma nýir tímar. Menningin velur nýjum kynslóðum öfl- ugar, samsettar en broslegar hömlur. Upp úr þeim hitabelt isgróðri sprettur hámenning- in, sem fylgir auðvirðilegum skyndigróða með þar tilheyr- andi svikum, þjófnaði og leyni geymslu við hlið fjársjóða frá diktatorum og ekkjum þeirra. Dúfnaveizlan er að vísu æv- intýri, en þetta skáldverk spennir yfir sögu landsins með frumlegum drengskap. Inn í þetta ævintýri kemur Eva, telpa send inn í kjallarann í barnavagni. Þessi litla Eva er skyndilega fær í flestan sjó, og hún tengir með furðuleg- um hætti og sterkum gömlu hjónin og svindl í hátíðabún- ing. í rústunu mer fatapress- arinn hetja í fornum og nýj- um sið. Eva er líka sundlétt eins og formóðirin áður. Þeg- ar þessi furðuheimur hrynur, lifir allt sem átti skilið að lifa og gamla söguhetjan fær sinn draum uppfylltan, af því hann var nógu sterkur, nógu einfaldur og nógu hreinn. Ævintýri Halldórs Kiljans er ekki aðeins auðugt af svip- myndum og fyndni, snjöllum kjamyrðum og svörum, held- ur hefur hann líka verið svo heppinn, að í meginhlutverk- unum eru prýðilegir leikarar. Svindlarinn kann sitt starf. Kvenhetjan tengir saman með sínum þætti í ævintýrinu mestu andstæðumar á skemmtilegan hátt, rétt áður en bogi forlaganna brestur fyrir tilverknað áhrifamikilla forlaga. Ms. „TOBICLIPPER“ siglir í sumar /isamt M.s. Kronprins Olav Frá Kaupmannahöfn 10/6, 1/7, 22/7, 12/8, 2/9 Frá Reykjavík 21/6, 12/7, 2/8, 23/8, 13/9 Skipið kemur við í Færeyjum í báðum leiðum. Skipauffirciðslu Jes Zimsen Sjávarbraut 2, við Ingólfsgarð — Sími 1 30 25

x

Nýr Stormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.